Morgunblaðið - 08.01.1958, Síða 10

Morgunblaðið - 08.01.1958, Síða 10
10 MORGTJN nr 4Ð1Ð Miðvik'udagur 8. jan. 1958 .ttttfrl&frifr Otg.: H.f. Arvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðairitstjorar: Valtýr Steíánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar: Sigm-ður Bjarnason frá Vigur. Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Ola, simi 33045 Auglýsmgar: Arni Garðar Kristmsson. Ritstjórn:. Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargiald kr. 30.00 á mánuði umamands. í lausasölu kr. 1.50 eintakið. SAGAN FRÁ IÐJU GETUR GERZT í DAGSBRÚN UTAN UR HEIMI Markgreifinn af Milford Haven — fimmti maður Evu Bartok? Markgreifinn af Milford Haven á harðaspretti frá símaltlefanum 1-^YRIR tæpu ári síðan, hinn \ 24. febrúar, fóru fram stjórnarkosningar í tveim ur verkalýðsfélögum í Reykja- vík, Iðju, félagi verksmiðjufólks og Trésmiðafélaginu. Báðum þessum verkalýðsfélög- um höfðu kommúnistar ráðið um árabil. í Iðju hafði framboðslisti þeirra stundum orðið sjálfkjör- inn en ella náð kosningu með hundruð atkvæða meirihluta. En við stjórnarkosningarnar i fyrra hófu lýðræðissinnar náið og markvíst samstarf um að hnekkja völdun. kommúnista í þessum félögum. Enda þótt leið- togar Framsóknarflokksins reyndu eftir megni að hjálpa kommúnistum til þess að halda þeim munu flestir þeirra fáu Framsóknarmanna, sem í þeim voru hafa stutt framboð lýðræðis xsinna. Lýðræðissinnað fólk í Iðju og Trésmiðafélaginu ákvað að freista þess að losa samtök sín undan ofbeldisstjórn kommún- ista. Margir voru vantrúaðir á að þetta tækist og töldu aðstöðu kommúnista svo sterka að von- laust væri að hnekkja völdum þeirra. En hin öfluga sókn og sam- starf lýðræðissinna bar þann glæsilega árangur, að komm- únistum var hrundið úr stjórn bæði í Iðju og Trésmiðafélag- inu. í Iðju hlaut listi lýðræðis- sinna 524 atkvæði en Iisti kommúnista 498 atkvæði. 1 Trésmiðafélaginu hlaut listi lýðræðissinna 159 atkvæði en listi kommúnista 135 at- kvæði. Merkileg straumhvörf. Þessi úrslit í hinum tveimur stóru verkalýðsfélögum sýndu merkileg straumhvörf innan verkalýðshreyfingarinnar í Reykjavík. Kommúnistar voru komnir þar á hratt undanhald. Þeir voru að missa tökin á stærstu verkalýðsfélögunum. Fólkið inn- an samtakanna reis upp og myndaði öflug samtök lýðræðis- sinnaðra manna um að reka Rússaþýin af höndum sér og fá starfhæfum mönnum forystu félaganna. Fólkið í Iðju og Trésmiðafélag- inu vildi að hagsmunasamtök þess yrðu fyrst og fremst notuð til þess að standa vörð um hags- muni þess en ekki um pólitíska klíkuhagsmuni kommúnista. Þess vegna sigraði framboðslisti lýðræðissinna. Átökin um Dagsbrún. í Dagsbrún, stærsta verkalýðs- félaginu í Reykjavík, hafa komm únistar lengi farið með völd. Hafa þeir talið þetta stóra og fjölmenna félag höfuðvígi valda sinna. Þess vegna hafa þeir einskis látið ófreistað til þess að halda því. Hundruð manna inn- an félagsins hafa verið svipt félagsréttindum og andstæðing- um kommúnista torvelduð mjög öll barátta gegn ofbeldisstjórn þeirra. Með slíkum aðferðum hefur kommúnistum tekizt að halda Dagsbrún með hundruð atkvæða meirihluta við flestar stjórnar- kosningar í félaginu undanfarin ár. En margt bendir til þess að nú sé sama sagan að gerast í Dagsbrún og gerðist í fyrra í Iðju og Trésmiðafélaginu. Lýðræðissinnað fólk í félag- inu hefur bundizt samtökum um að leysa þessi hagsmuna- samtök sín úr ánauð komm- únista. Leiðtogar Framsóknar hafa að vísu eins og í Iðju- kosningunum, lofað kommún- istum hjálp sinni. En þeir fáu Framsóknarmenn, sem eru í verkamannastétt í Reykjavík, munu flestir styðja samtök lýðræðissinna. Lýðræðissinnar einhuga. Innan Dagsbrúnar starfar því allt lýðræðissinnað fólk að því um þessar mundir að hnekkja áhrifum og völdum hins fjar- stýrða ofbeldisliðs kommúnista. Allir lýðræðissinnaðir og frjáls- lyndir verkamenn minnast hinn- ar blóðugu uppreisnar verka- lýðsins í Ungverjalandi gegn Rússum og hinum alþjóðlega kommúnisma. Sú uppreisn var barin niður með einstæðri hörku og villimennsku. Vopnlaus verka lýður var brytjaður niður af skriðdrekum og vígvélum komm únista. Kommúnistar á íslandi hafa lýst því yfir, að samúð þeirra sé öll með hinum rússnesku böðlum ungverzks verkalýðs. „Þjóðviljinn“ hefur birt fjölda varnargreina fyrir Janos Kad- ar, kvislinginn, sem hleypti Rauða hernum á vopnlitla verkamenn og menntamenn, sem forystu höfðu um upp- reisn ungverzku þjóðarinnar gegn kúgurum hennar. Þannig er „frjálslyndi“ kommúnist- anna á íslandi. Þetta <*etur ^erzt Þessir menn haldá nú dauða- haldi í stærsta verkalýðsfélag landsins og svífast einskis til þess að viðhalda ofbeldisstjórn sinni þar. En öll lýðræðissinnuð öfl hafa sameinazt gegn Rússa- þýjunum í Dagsbrún. Dagsbrún- armenn muna hvað gerðist í Iðju og Trésmiðafélaginu fyrir tæpu ári síðan. Þá voru margir, sem trúðu því ekki að hægt væri að sigra kommúnista í þessum félög- um. En engu að síður var völd- um þeirra hrundið og lýðræðis- sinnar tóku við stjórn samtak- anna. Þetta getur gerzt í Dags- brún í þessum mánuði. Fjöldi verkamanna hefur nú aflað sér félagsréttinda þar. Auk þess er vitað að fylgi kommún ista í félaginu hefur hrað- minnkað. Á f jölmennum vinnu stöðum í bænum, þar sem þeir voru áður mjög sterkir, mæl- ir nú varla nokkur verkamað- ur þeim bót. Þannig gengur þróunin í rétta átt. Hinn fjarstýrði flokkur er kominn á hratt undanhald inn- an verkalýðshreyfingarinnar. Flótti hans verður ekki stöðv- aður. FYRIR skömmu kom óvæntur reki á fjörur Lundúnablaðanna. Sorpblöðin fullyrtu framar öllu um þetta efni, og blöð af betra taginu létu þetta mál til sín taka: Ætlar markgreifinn af Milford- Haven, sem er mjög skyldur Elísa betu drottningu og frændi Louis Mountbatten lávarðar, að ganga að eiga þýzku kvikmyndaleik- konuna Evu Bartok? Eva gekk í Subudtrúar- ílokkinn Hún hefir verið gift fjórum sinnum. Fyrsti maður hennar var ungverskur liðsforingi, annar bandaríski kvikmyndaframleið- andinn Alexander Paal, því næst milljónamæringurinn William Wordsworth og loks þýzki kvik- myndaleikarinn Curd Júrgens. Fyrir tólf vikum síðan fæddi Eva dóttur og neitaði að gefa upp fað erni hennar. Vakti þetta enn meiri athygli, þar sem læknar höfðu spáð því, að fæðingin myndi ganga mjög illa. En allt gekk að óskum, og þakkaði Eva það því, að hún hafði gengið í Subudtrúarflokkinn og lært Eva Bartok og markgreifinn — aðalumræðuefni Lundúnabúa . .. leyndardóma hans af „spámann- inum“ John Bennett. Hún dvaldi •á heimili Bennetts um jólin til að sjá dóttur sína Díónu Grazíu. Þar dvaldi hún í viku, og þann stutta tíma gekk mikið á, eins og vænta mátti. Skömmu eftir komu hennar til Bennetts, lagði mark- greifinn af Milford-Haven þang- að leið sína, og nokkrir tugir blaðamanna og blaðaljósmyndara eltu hann. Hann hafði fyrst gert boð á undan sér frá símaklefa á næsta götuhorni, og þaðan fór hann á harðasprettti, svo að met- hafi hefði ekki gert betur, yfir götuna og inn um dyrnar, sem voru í hálfa gátt. ★ Eva Bartok talaði við blaða- mennina gegnum opinn glugga. BÆJARSTJÓRN Feneyja hefir að nokkru samþykkt áform um að svipta borgina því, sem helzt hefir laðað ferðamenn þangað, þ. e. a. s. fylla upp sýkin að tölu- verðu leyti og gera borgina jafn- framt landfasta. Bæjarbúar mót- mæla þessu kröftuglega. Áform bæjarstjórnarinnar byggj ast á því, að ferðatnannastraum- urinn vex jafnt og þétt og íbú- unum fjölgar sífellt, svo að nauð- synlegt er að reisa ný íbúðar- hverfi og endurskipuleggja um- ferðina um borgina. Nýtízku íbúðarhverfi á Sacca Fisola Nú er t. d. verið að reisa ný- Þrír lögreglubílar komu á vett- vang og hringsóluðu næstu daga umhverfis húsið. Kvikmyndakon- an sendi blaðamönnum whisky- flösku til að gefa þeim til kynna, að hún vildi ekkert við þá tala. En þeir sendu flöskuna óopnaða til hennar aftur. ★ Nú er Eva Bartok farin aftur til Múnchen til að ljúka töku kvikmyndarinnar „Kvenlæknir við Stalingrad". Markgreifinn af Milford-Haven, sem á næstunni mun skilja við konu sína, banda- rískan milljónamæring, er áfram í Lundúnum og sömuleiðis hin tólf vikna gamla Diana Grazia. Og allir spyrja: Ætlar hann að verða fimmti maður Evu Bartok? Kalt stríð milli Onassis og Rainiers fursta HINN gríski jöfur olíuflutning- anna, Aristoteles Onassis, kvað hugleiða það í fyllstu alvöru að flytja föggur sínar og fé frá dverg ríkinu Monaco. Fyrir nokkrum árum síðan kom hann öllum á óvart með því að kaupa spilavitið í Monte Carlo, og sagt er, að síðan hafi hann svo til ráðið lögum og lofum í Monaco. Ástæðan til þess, að hann hyggst nú yfirgefa furstadæmið, er sú, að hann getur ekki þolað Rainier fursta. Gríski útgerðar- maðurinn, sem býr í skemmti- snekkju sinni í höfninni, og furst inn : höll sinni á klettahöfðanum, heyja kalt stríð sín á milli. Onass Frh á bis. 19. tízku íbúðarhverfi fyrir 10 þús. manns á eynni Sacca Fisola, og jafnvel Lido er nú að breytast úr baðstað í nýtízku úthverfi. í þessum nýju áætlunum er m. a. gert ráð fyrir að byggja brýr yfir Lagúninn. Þetta hefir í för með sér að fylla verður upp nokkur sýki og búa til a. m. k. eina eyju í Lagúninum. Ef þessi áform ná fram að ganga þrátt fyrir mótmæli Fen- eyjabúa, verður þess ekki langt að bíða, að Feneyjar séu ekki lengur borg gondólanna heldur borg lúksusbílanna. Myndin sýnir sjálfan Canal Grande í Feneyjum og Rialta- bfúna. Skyldi fara svo, að síkin og gondólarnir hverfi úr sög- unni á næstu áratugum? ’.'erða Feneyjar borg lúksusbílanna ?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.