Morgunblaðið - 15.01.1958, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 15. Jan. 1958.
Þessa dagrana stendur >fir í bogasal Þjóðminjasafnsins sýningin Bærinn okkar, sem fjallar um skipulagsmál Reykjavíkur. Það, sem mesta athygli vekur á sýningunni,
er geysistórt líkan af allri Reykjavík fyrir vestan Elliffaár. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa mynd af hluta af líkaninu. Neðst á myndinni er Ægissíða. Nokkru
ofar eru fjölbýlishúsin við Hjarðarhaga og síðan stórbyggingarnar, sem verða við Hagatorg: Melaskóli, Neskirkja, háskólabíóið fyrirhugaða, Búnaðarfélagshúsið og
útvarpshöllin. Þar hjá er Háskólahverfið og Tjörnin. Við norðurenda hennar sést ráðhúsið. Til vinstri á myndinni eru Melarnir og eldri hverfi Vesturbæjarins, síðan
Miðbærinn og Austurbærinn. Ber þar mest á Hallgrímskirkju. Ljósm.: Ól. K. M.)
Ungur psliur lenti í
hrakningi á Slrönduui
Villtist af réttri leið og var kominn í
miklar ógöngur.
Eisenhower leggur fram hæsta
fjárlagafrumvarpið á friðartímum
GJÖGRI, Strandasýslu, 13. jan.—
Á Þorláksmessu vildi það til, að
piltur að nafni Hjalti Guðmunds-
son frá Bæ í Trékyllisvík lenti í
miklum hrakningum á leiðinni
frá Kaldbak norður að Veiðileysu
en þessi kafli er óbygg-ður og
mjög iliur yfirferðar. Var piltur-
inn, sem stundar nám í Hólaskóla
á leið heim til sín í jólaleyfi.
Átti að sækja piltinn á báti að
Birgisvík, sem er nú eyðijörð, en
þar sem ekki var lendandi vegna
brims, varð hann að halda áfram
að VeiðiIeysu.Lenti Hjalti, sem er
19 ára gamall í hinum mestu erf-
iðleikum á þeirri leið. Fundu leit
armenn hann niðri í fjöru í mikl-
um torfærum og komu honum til
hjálpar. Pilturinn var þrekaður
mjög og lá í nokkra daga eftir
ferðalagið vegna bólgu í fótum,
en óslasaður var hann að öðru
leyti.
Kom ekki á tilteknum tíma.
Hjalti lagði af stað frá Ásmund
arnesi í Bjarnarfirði fótgangandi
á Þorláksmessu og ætlaði hann
sér að vera kominn eftir 2—3
tíma í Birgisvík, en þangað ætl-
aði Ágúst Lýðsson að sækja hann
á báti. Gangfæri var erfitt, mik-
ill laus snjór, en veður gott að
öðru leyti. Á tilteknum tíma var
Ágúst kominn í Birgisvík til að
sækja piltinn. Ekki sá hann neitt
til hans, en þar sem ólendandi
var í Birgisvík, hélt Ágúst til
Veiðileysu og bjóst við að Hjalti
sæi að ólendandi væri í Birgis-
vík og héldi þangað einnig. En
er Hjalti var eigi að heldur kom-
inn til Veiðileysu um 6 leytið um
kvöldið, fóru tveir menn til móts
við hann á landi fótgangandi þeir
Guðbrandur Þorláksson og Lýður
Hallbergsson og um sama leyti
lagði Ágúst af stað á báti sínum
ásamt öðrum manni á móti Hjalta
og ætluðu þeir að freista þess að
lenda þar, er þeir mættu honum.
Heyrðu veik köll.
Er mennirnir er á landi voru
höfðu gengið í eina klukkustund
án þess að verða pilsins varir,
vildi það til að Lýður hrasaði
um stein. Stönzuðu þeir félagar
við þetta, en í þeim svifum heyrð
ist þeim eins og þrusk niðri í
fjöru, en þeir voru þá staddir á
háum sjávarbökkum. Tóku þeir
þá til að hóa og kalla og gekk
það um stund. Loks var tekið
undir við þá niðri í fjöru. Var
það Hjalti. Fundu leitarmenn-
irnir piltinn þarna í fjörunni,sem
er mjög ill yfirferðar og var
hann kominn í hinar mestu ógöng
ur þar sem heitir Breiðavík. Var
Hjalti þrekaður mjög og illa á
sig kominn. Hafði hann villzt af
leiðinni niður í fjöruna, en þar
hefði hann fljótlega komizt í
þrot, þar sem hún er vart mönn-
um fær nema háfjara sé.
NICOSIA, 13. jan. — Kýpurbúar
munu berjast gegn Bretum, þang
að til þeir hafa farið með sigur
af hólmi, segir foringi uppreisn-
armanna, Dighenis, í flugriti, er
dreift var um eyjarnar í dag. Við
munum berjast til þrautar, bætir
hann við, og falla ekki í þær
gryfjur, sem Bretar hafa búið
okkur. — Tilefnið til þessa bréfs
er það að í dag eru liðin átta
ár frá því gríska orþodoksakirkj-
an undir forustu Makaríosar og
Hresstist fljótlega
Þeir félagar hresstu nú Hjalta
á kaffi og öðru því, er þeir höfðu
meðferðis og lifnaði hann tals-
vert við. Urðu þeir nú að snúa
við með hann til að komast upp
úr fjörunni á rétta leið. í sama
mund bar Ágúst þar að á báti og
ákvað hann að lenda og taka
Hjalta í bátinn. Gekk það með
nokkrum erfiðismunum því
Hjalti var mjög aðframkominn
og féll flatur í flæðarmálið og
blotnaði allur. Komst hann samt
í bátinn, þurr föt fékk hann á
Litlanesi, en þangað var hann
sóttur á hestum síðasta spöl leið-
arinnar. Hjalti var mjög bólginn
á fótum eftir hrakninginn og lá
hann nokkra daga heima hjá sér
yfir jólin.
Ókunnugur leiðinni.
Hjalti var algjörlega ókunnug-
ur þessari leið. Var hann orðinn
svo þrekaður er hann fór fram
hjá Birgisvík, að hann kvaðst
ekki hafa orðið þess var hvar
hann var staddur. Hugsaði hann
aðeins um að komast í Veiði-
leysu. Er sýnt að pilturinn hefði
ekki komizt hjálparlaust úr þeim
ógöngum, sem hann var kominn
í. Má því segja, að þarna hafi
skollið hurð nærri hælum.
EOKA-leynifélagsskapurinn hófu
baráttuna fyrir sameiningu Kýp-
ur og Grikklands. — Neðanjarð-
arhreyfing kommúnista á Kýpur
hvatti íbúana til að láta til skar-
ar skríða gegn Bretum, en yfir-
menn kirkjunnar og EOKA hafa
skoráð á fólkið að sýna stillingu.
Þess má geta, að um þessar mund
ir er mannréttindanefnd Evrópu-
ráðsins stödd á Kýpur að athuga
meðferð Breta á eyjarskeggjum.
WASHINGTÐN, 13. jan. — Eis-
enhower Bandaríkjaforseti lagði
í dag fyrir sambandsþingið fjár-
lagafrumvarp sitt fyrir fjárhags-
árið, sem hefst 1. júlí í sumar.
Er þetta hæsta fjárlagafrum-
varp, sem flutt hefur verið í
Bandarikjunum á friðartímum.
Útgjöldin eru áætluð 73 þús.
millj. dollara, eða 1 milljarð
dollara hærri en á síðasta fjár-
hagsári.
Aðaláherzlan er lögð á land-
varnirnar og er áætlað, að til
þeirra renni 46 þús. milljónir
dollara. Gert er ráð fyrir, að
aukin verði til muna framleiðsla
á fjarstýrðum vopnum, svo og
flugvélum, sem eiga að geta flutt
HELLNUM, 6. jan. — Tíðarfar
hefir verið með eindæmum stirt
um þessi áramót. Á aðfangadag
jóla, gerði hér norðvestan ofsa-
rok með snjókomu og hélzt svip-
að veður um jólin og fram um
nýjár. í veðrinu á aðfangadags-
kvöld fauk þak af hlöðu á Ham-
arendum, einnig þak af fjárhúsi
í Gröf. Vegir tepptust þegar. Á-
ætlunarferðir frá Rvík til Sands
um Útnesveg hafa fallið niður
og engin póstur borizt hingað né
héðan síðan fyrir jól.
Gjöf til kirkjunnar
Við messugjörð á Hellnum á
nýjársdag bárust kirkjunni sjö
fveggja arma vegglampar, hinir
vönduðustu og fegurstu gripir.
Lamparnir eru úr látúni og kop-
ar, smíðaðir í Svíþjóð fyrir með-
algöngu Þorleifs Kristóferssonar
húsgagnaarkitekts í Reykjavík,
en hann og frú Magnfriður Sig-
urbjörnsdóttir, Hofteig 16, höfðu
forgöngu um fjársöfnun meðal
velunnara kirkjunnar bæði hér
slík vopn og skotið þeim og
kjarnorkuknúnum kafbátum, sem
geta skotið fjarstýrðum skeytum
yfir 2000 km. vegalengd. Af
fjarstýrðum skeytum verður
mest framleitt af Þór, Júpíter og
Atlasskeytum.
Þrátt fyrir þessa miklu út-
gjaldahækkun er ekki gert ráð
fyrir hækkun á sköttum, nema
síður sé. — í boðskap sínum
sagði forsetinn m. a., að allt yrði
gert, sem hægt væri, til að halda
í horfinu í sambandi við varnir
landsins. Bandaríkjamenn verða
að leggja hart að sér, ef þeir eiga
að geta staðið Rússum á sporði í
framleiðslu nýtízku vopna, sagði
forsetinn.
heima, í Reykjavík og víðar. Sr.
Þorgrímur Sigurðsson, sóknar-
prestur, afhenti lampana fyrir
hönd gefenda að aflokinni guðs-
þjónustu, en þeim hafði þá ver-
ið komið fyrir í kirkjunni.
„Landabrugg og ást“
Þann 30. des. sýndi Umf.
Trausti sjónleikinn „Landabrugg
og ást“ í Félagsheimili hreppsins.
Þann dag var erfitt yfirferðar
vegna snjóa og þurftu margir að
ganga síðasta spölinn að sam-
komustað. Síðan hefir leikfl. fé-
lagsins sýnt leikritið á Sandi og
Ólafsvík, tvær sýningar á hvor-
um stað, við húsfylli og ágætar
undirtektir. í Ólafsvík urðu
margir frá að hverfa, þar sem
allir miðar seldust upp á svip-
stundu. Áhugi almennings fyrir
leikritaflutningi í þessum þorp-
um er mikill, enda oft sýnd þar
ágæt leikrit. í Ólafsvík verður t.
d. frumsýnt bráðiega leikritið
„Maður og kona“, en þar er starf
andi leikfélag.
-Regína.
Dighenis segir:
Við berjumsf þar fil yfir lýkur
Stirt tíðarfar um áramótin