Morgunblaðið - 15.01.1958, Síða 20
11. tbl. — Miðvikudagur 15. janúar 1958.
Gengislækkun eftir kosningar
er eina úrræði stjórnarinnar
Timinn tekur undir gengislækkunar-
boðskap Hermanns Jónassonar
EINS og kunnugt er, lýsti Hermann Jónasson forsætisráðherra því
yfir í áramótaræðu sinni, að gengi íslenzku krónunnar væri alltof
hátt. Jafnframt skýrði hann frá því, að sérfræöingar ríkisstjórn-
arinnar ynnu nú að undirbúningi ráðstafana til lausnar vanda at-
vinnuveganna. En hvorki niðurstöður þessarar rannsóknar né til-
laga ríkisstjórnarinnar væri að vænta fyrr en eftir bæjarstjórn-
arkosningar.
f áramótaávarpi forsætisráðherra fólst þannig bein yfir-
lýsing um það, að ríkisstjórnin teldi gengislækkun líkleg-
ustu leiðina út úr þeim erfiðleikum, sem að íslenzku efna-
hagslífi steðja um þessar mundir. Blað kommúnista, Þjóð-
viljinn, hefur einnig þrásinnis lýst því yfir, að Framsókn-
arflokkurinn og Alþýðuflokkurinn hafi sótt fast á um
gengislækkun, en ráðherrar kommúnista hafi til þessa get-
að hindrað hana.
Tíminn tekur undir skoðun
Hermanns
í gær birti Tíminn, málgag.n
forsætisráðherrans, grein upp úr
tímariti Landsbankans, þar sem
mjög, er deilt á núverandi upp-
bótakerfi og talið að það hindri
að nýjar útflutningsgreinar vaxi
upp í landinu. Ennfremúr er
bent á það jafnvægisleysi í gjald-
eyrismálum þjóðarinnar, sem se
afleiðing misræmisins á milii
verðlagsins innanlands og utan
Er það greinilega skoðun þess,
er greinina ritar, að uppbótai-
kerfið hafi gengið sér til húðar
og ný gengisskráning ísl. krónu
sé óhj ákvæmileg. Auðsætt er að
Tíminn birtir þessa grein, vegna
þess að hún felur í sér staðfest-
ingu á þeirri skoðun Hermanns
Jónassonar í áramótaávarpi aö
gengi ísl. krónu sé alltof hátt og
gengisfelling sé óhjákvæmileg
Tíminn grípur hverja rödd, sem
tekur undir þessa skoðun fegins
hendi.
Gengislækkun hin „nýja leið“
Allt bendir því til þess að hin
„nýja leið“ vinstri stjórnarinn-
ar, verði gengislækkun. En til-
lögur um þau úrræði verða ekki
lagðar fram fyrr en eftir bæjar-
stjórnarkosningarnar.
Enginn tekur mark á þeim
staðhæfingum kommúnista, að
þeir muni aldrei samþykkpi
gengislækkun meðan þeir sitji í
ríkisstjórn. Vitanlega munu
kommúnistar samþykkja gengis-
fellingu eftir bæjarstjórnarkosn-
Kosningaskrifstofur fyrir Miðbæinn,
Vesturbæinn Smáíbúahverfi, Bú-
staðahverfi, Blesugróf og Austurbæ
í dag opna Sjálfstæðismenn í
Reykjavík fimm kosningaskrif-
stofur.
Kosningaskrifstofa Sjálfstæðis-
manna fyrir Nes- og Melahverfi
hefur verið opnuð í KR-húsinu,
með inngangi frá Ægissíðu.
Síminn þar er 13-0-97, og er
skrifstofan opin frá kl. 5—10 e.h.
dag hvern.
Sjálfstæðismenn, sem búsettir
eru í Miðbænum (frá Óðinsgötu
vestur að Aðalstræti), hafa kosn-
ingaskrifstofu að Laufásvegi 58.
Hún verður opin daglega kl. 2—
10 e. h., sími 12742.
Sjálfstæðismenn í Vesturbæn-
um hafa skrifstofu að Ægisgötu
10. Hún er einnig opin daglega
kl. 2—10, sími 11288.
Sjálfstæðismenn í Austurbæn-
um hafa opnað skrifstofu að
Hverfisgötu 42 (2. hæð). Þar er
opið daglega kl. 5—10. Síminn
er 14722.
Loks hafa Sjálfstæðismenn, er
búa í Smáíbúða- og Bústaðahverf
unum og í Blesugróf, opnað skrif-
stofu á Sogavegi 94. Fyrst um
sinn verður hún opin kl. 8—10
e. h. dag hvern. Síminn cr 18647.
Á skrifstofunum liggja frammi
kjörskrár, og þar eru gefnar all-
ar upplýsingar, sem kosningarn-
ar varða. Sjálfstæðisfólk er
hvatt til að hafa samband við
skrifstofurnar í hverfum sínum
hið fyrsta.
ingarnar, alveg á sama hátt og
þeir hafa samþykkt áframhald-
andi dvöl hins erlenda varnar-
liðs í landinu og tekið ábyrgð á
samningum við Bandaríkjamenn
þar að lútandi. Kommúnistar
samþykkja allt, bæði gengislækk
un og „hernám“, aðeins ef þeir
Lúðvík og Hannibal fá að hanga
í ráðherrastólum sínum.
En almenningur í landinu veit
nú hvað til stendur. Gengislækk-
un er eina úrræði vinstri stjórn-
arinnar.
) Andlátsfregn |
ANTON JÓNSSON, skipasmíða
meistari frá Arnarnesi, lézt í
Landsspítalanum aö morgni dags
hinn 14. þ. m.
Þessa mæta manns verður síð-
ar getið nánar hér í blaðinu.
Björn Pálsson
í SAMBANDI við 50 ára afmæli
Björns Pálssonar, flugmanns, 10.
janúar s. 1. sæmdi Slysavarna-
félagið hann Björgunarheiðurs-
merki S.V.F.Í. með gullstjörnu
fyrir framúrskarandi fórnfúst
björgunarstarf við áhættusamt
sjúkraflug.
Dagsbrúnar-
fundur í kvöld
FUNDUR verður haldinn í
Verkamannafél. Dagsbrún annað
kvöld kl. 8.30 í Iðnó. Á funui
þessum verða umræður um störf
Dagsbrúnarstjórnarinnar á sl. ári.
Má búast við að umræður verði
miklar um þessi mál, þar sem
verkamönnum í Reykjavík mun
þykja stjórn kommúrísta í félag-
inu hafa haldið iila á kjara- og
hagsmunamálum félagsmanna.
Allir þeir lýðræðissinnar i
Dagsbrún, sem fá því við komið
ættu að fjölmenna á fundinn og
þar sem búast má við húsfylii
ættu menn að mæta tímanlega.
Jóhann
Guðmundur
Bjarni
Sjálfstœðisfélögin
í Reykjavík
Álmennur
endafundur
kjós-
kvöld
i
Heiir-
dallnr
FULLTRÚARÁÐSFUNDUR
verður í Heimdalli í dag kl.
17.30 í ValhöII. Áríðandi mál á
dagskrá. Fulltrúar eru beðnir að
mæta vel og stundvíslega.
SJÁLFSTÆÐISFELÖGIN í Reykjavík halda fund í Sjálfstæðis-
húsinu í kvöld. Er þetta fyrsti almenni kjósendafundurinn, sem
félögin efna til fyrir bæjarst.jórnarkosningarnar. Á fundinum munu
ýmsir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins lialda ræður. Munu þeir
skýra stefnu og störf flokksins í bæjarmálunum og svara áróðri
andstæðinganna.
Eftir því sem Iíður að kjördegi herða Sjálfstæðismenn sóknina.
Að undanförnu hefur fulltrúaráðið haldið hverfafundi og unnið
af miklu kappi. Fjölmennt hefur verið á samkomum Sjálfstæðis-
félaganna. Hvarvetna kemur í ljós áhugi og baráttuvilji í röðum
Sjálfstæðismanna. Menn eru staðráðnari en nokkru sinni fyrr í
því, að tryggja Reykjavík áfram farsæla stjórn Sjálfstæðisflokks-
ins. Engar kosningahömlur fá hindrað menn í þeim ásetningi.
Þvert á móti hvetur allt framferði ríkisstjórnarinnar alla hugs-
andi menn til að veita vinstri flokkunum verðuga ráðningu í
kosningum þessum.
Ræðumenn á fundinum í kvöld verða: Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, Magnús Jóhannesson, trésmiður, Kristján J. Gunn-
arsson, yfirkennari, Gróa Pétursdóttir, frú, Jóhann Hafstein, banka-
stjóri, Guðmundur H. Guðmundsson, húsgagnasmíðameistaii.
Bjarni Benediktsson, ritstjóri, Einar Thoroddsen, hafnsögumaður
og Geir Hallgrímsson, hæstaréttarlögmaður.
--------------------------------Allt stuðningsfólk lista
Sjálfstæðisflokksins er vel-
komið á fundinn meðan- hús ■
rúm leyfir. Fundurinn hefst
kl. 8,30 og er fólki ráðlagt að
mæta stundvíslega þar sem
búast má við mikilli aðsókn.
SÍS, auðhringurinn, sem jafnvel leiðtogar Alþýðuflokksins segja nú að ógni pólitísku frelsi þjóð-
arinnar, seilist stöðugt til aukinna áhrifa í Reykjavík. Bak við hann stendur Framsóknarflokkur-
inn, sem nú er í nánu samstarfi við Alþýðuflokkinn og kommúnista. — Reykvíkingar svara
ásælni og yfirgangi SÍS og Framsóknarflokksins bezt með því að fylkja sér einhuga um D-Iistann,
lista Sjálfstæðisflokksins og hins frjálsa framtaks, í bæjarstjórnarkosningunum hinn 26. jan. n.k.
Spilakvöld Sjálf-
stæðisfélaganna
í Hafnarfirðí
í kvöM
H AFNARFIRÐI — Að þessu
sinni verður spiluð félagsvist
í tveimur húsum í kvöld:
Sjálfstæðis- og Góðtemplara-
liúsinu. Verður þetta síðasta
spilakvöld Sjálfstæðisfélag-
anna fyrir kosningar, og hefst
það kl. 8,30. Eins og jafnan
áður, verða v^rölaun veitt.
Þetta spilakvöld verður frá
brugöið þeim fyrri að því
leyti, að nú verða flutt ávörp,
og einnig mun hinn vinsæli
leikari, Karl Guðmundsson,
skemmta. — Er allt Sjálfstæð-
isfólk hvatt til að fjölmenna
á spilakvöldið og taka með sér
gesti. —G.E.