Morgunblaðið - 23.01.1958, Page 19
Flmmtudagur 23. Jan. 1958
mORGUNTiLAÐIÐ
19
Blóðugir bordugur í Curucus
Forseta Venezuela settir urslitakostir
CAKACAS OG WASHINGTON
22. janúar — Alvarlegt ástand
ríkir nú í Venezuela. Allsherjar-
verkfall er þar skollið á og mót-
mælagöngum gegn forseta og
stjórn landsins linnir ekki. Kom-
ið hefur til átaka meS borgurum
og lögreglu — og herma fregnir,
að 50 manns hafi látizt í vopnuð-
um átökum í höfuðborginni í
gær.
Mjö|g ströng ritskoðun er í
Venezuela og litlar sem engar
fregnir hafa borizt af ástandinu
þar, en útvarpið í nágrannarík-
inu Colombia skýrði svo frá í
dag, að enn hefðu verið farnar
fjöldagöngur um götur höfuð-
borgarinnar í dag og komið hefði
til átaka. Hefði lögregla beitt
kylfum og táragasi, en ekki er
kunnugt um mannfall. Bílstjórar
gerðu uppsteit mikinn á strætum
borgarinnar og ráðgert var og að
hringja kirkjuklukkum um allt
land í mótmælaskini við stjórn-
arvöldin, sem komust þó að sam-
komuiagi við forráðamenn kirkj-
unnar um áð koma í veg fyrir
það.
Samkvæmt síðustu fréttum frá
Washington hafa samtök herfor-
ingja sent forseta Venezuela úr-
slitakosti þar sem þess er kraf-
izt að hann afsali sér völdum
þegar í stað til þess að komið
verði í veg fyrir frekari blóðs-
úthellingar.
Seinustu fréttir:
Mikill fjöldi manna var hand-
tekinn í Caracas í óeirðunum í
dag og lögðu stjórnarandstæðing-
ar eld í margar opinberar bygg-
ingar og verksmiðjur. Mun mikið
tjón hafa hlotizt af. Olíuiðnaður-
inn gengur hins vegar sinn vana
gang.
Tortryggninni þorf oð eyðtt
— segir H. C. Hanser
WASHINGTON, 22. janúar —
Diefenbaker, forsætisráðherra
Kanada, hefur látið svo um mælt,
að Kanadamenn mundu fagna
ríkisleiðtogafundi svo fremi að
hann yrði vel undirbúinn og fyr-
ir hendi væri umræðugrundvöll-
ur, sem einhverjar vonir væri
hægt að tengja við.
H. C. Hansen, forsætisráðherra
Danmerkur, hefur einnig viðhaft
svipuð ummæli. Sagði hann, að
hugmyndin um griðasáttmála
væri ekki ný — og slíkur sátt-
máli mundi ekki tryggja heims-
friðinn. Eins og málum væri nú
komið yrðu vestrænar þjóðir að
treysta á varnir sínar. Ef Ráð-
stjórnin mundi hætta hinum
svívirðilega áróðri í garð Vest-
urveldanna og segja þjóum sín-
um sannleikann um lýðræðis-
þjóðirnar, væri miklum áfanga
náð. Ef Ráðstjórnin vildi í ein-
lægni draga úr tortryggninni
milli austurs og vesturs og lægja
öldurnar á alþjóðavettvangi —
væri þetta rétta leiðin.
Gils í
„garðholunni46
GILS GUÐMUNDSSON, efsti mað-
ur á lista Þjóðvarnarflokksins, tal-
aði i gær af mikilli fyrirlitningu
um að Reykjavíkurbúum hefði
verið úthlutað nokkrum „garðhol-
um‘% til að rækta í kartöflur.
Þjóðvarnarfulltrúinn ætlaði að
springa af vandlætingu yfir því,
hversu lítilfjörlegt þetta væri.
Þessar „garðholur46, sem Gils
talaði um, eru þó ekki ndnni en
það, að á sl. sumri voru ræktaðar
1256 bæjarhúar fengið sér úlhlut-
aða garða til ræktunar. Á s’. sumri
nam kartöfluuppskeran um 10 þús
und tunnum, og er Reykvíkingum
þannig miklir kartöfluframleið-
endur.
Það væri fróðlegt að sjá rækt-
unina hjá Gils og „garðlioluna44
hans! Ef Gils vantar „garðholu“
lianda sér, er óhælt að segja hon-
um, að Iiann getur fengið vænan
garð útlilutaðan, því að hægt er að
fullnægja allri eftirspurn Reykvík
inga eflir garðlöndum.
Þessi skröksaga Gils um „garð-
holurnar“ og fyrirlitning hans á
ræktun Reykvíkinga, er got- dæmi
um það, hvernig fulltrúar minni-
hlutaflokkanna skrökvuðu í út-
varpinu í gær. Gils talaði um
„skroksögur Þjóðviljans46. Af
liverju var hann þá að bæta við
þær, sá góði maður!
Verkamenn snúnst gegn EOKA
NICOSIA 22. jan. — f dag kom
til mikilla verkfalla og mótmæla
funda á Kýpur. Ástæðan er sú,
að tveir af forystumönnum hinna
vinstrimanna voru drepnir í gær.
Morðingjarnir voru tveir, grímu-
klæddir menn, og þykir fullvíst,
að þeir hafi verið úr EOKA
skæruliðahreyfingunni. Verka-
lýðssamtök vinstrimanna, sem
sögð eru á snærum kommúnista,
en flokkur þeirra er bannaður
á eyjunni, boðuðu þá til tveggja
sólarhringa verkfalls til þess að
mótmæla morðunum. 35 þús.
manns eru í verkalýðssambandi
þessu og var þátttaka í verkfall-
inu góð. Ekki kom til neinna
átaka vegna mótmælafundanna,
en borin voru ótal spjöld með
áletruðum slagorðum — svo sem:
Niður með morðingjana, látið
leiðtoga fólksins í friði — o. s. frv.
PARÍS 22. jan. — Franskur drátt
arbátur er nú á leið til hafnar
í Tunis með afturhlta norska olíu
flutningaskipsins, sem brotnaði
í tvennt á Miðjarðarhafi, í togi.
Er hann væntanlegur til hafnar
á morgun.
PARÍS 22. jan. — Fastaráð
Atlantshafsbandalagsins kom
saman í morgun og ræddi m. a.
síðasta bréf Bulganins. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
var hugsanlegur ríkisleiðtoga-
fundur ekÉL ræddur að pessu
sinni.
Verða eldflaugastöðvar reistar
Bagadadbandalagsríhjunum ?
MOSKVU 22. jan. — í Moskvu
hefur verið skýrt frá, að nýjustu
og langdrægustu flugskeyti Rússa
séu það nákvæm, að ekki geti
munað meira en 9 km frá skot-
marki á tugþúsundakm. vega-
lengd
Ensko knottspyrnon
SJÁVARLOFTIÐ í Blackpool
virðist ekki hafa góð áhrif á
Úlfana. Þeir hafa tapað fimm
sinnum í sjö undanfarin skipti,
sem þeir hafa heimsótt Matt-
hews gamla og menn hans. —
Blackpool-liðið lék mjög vel all-
an leikinn, og sigraði örugglega,
þótt eitt mark liðsins væri dæmt
ógilt. Úlfunum hefur gengið illa
undanfarið. Þeir hafa aðeins
fengið þrjú stig í síðustu fjórum
leikum deildarkeppninnar. Fram-
herjunum hefur gengið mjög illa
að skora, þrátt fyrir opin tæki-
færi. Má því búast við kaupum
hjá félaginu.
Úlfarnir hafa nú fimm stiga
forskot yfir Preston og WBA.
Preston gerði jafntefli í Lund-
únum á móti Tottenham. Tókst
heimaliðinu að jafna skömmu
fyrir leikslok.
Þótt WBA sigraði Sheffield
Wednesday, heldur Preston enn
öðru sæti, vegna hagstæðari
markatölu.
Manchester United hafa vald-
ið miklum vonbrigðum í ár. Hafa
þeir tapað sjö leikum og gert sex
jafntefli í tuttugu og sjö leikum.
Til samanburðar má geta þess að
þeir töpuðu sex sinnum og
gerðu átta jafntefli í allri deild-
arkeppninni í íyrra. — Undan-
farnar vikur hafa orðið miklar
breytingar á liðinu. Út úr fram-
líunni hafa verið teknir hægri
útherjinn Berry, hægri innherj-
inn Whelan og vinstri útherjinn
Pegg. í framvarðalínunni er Ed-
wards eini maðurinn, sem virð-
ist öruggur með stöðu sína í
fyrsta liðinu. — Bakverðirnir
Byrne og Foulkes eru þeir sömu
og léku með liðinu í fyrra. — Þá
keypti United írska landsliðs-
markvörðinn Gregg um miðjaa
desember, og hafa ekki tapað
leik síðan. Sigur liðsins yfir
Bolton gefur til kynna að liðið sé
tilbúið til stórátaka aftur.
í djúpi gleymskunnar berjast
liðin, sem eru í fallhættu. Shef-
field Wednesday er neðst með 16
stig, en aðeins þrjú stig skilja
næstu fimm lið.
I annarri deild hefur West
Ham tekið forystuna, vegna hag-
stæðari markatölu en Charlton.
en bæði liðin hafa 35 stig. West
Ham keypti miðherjann Vic
Keeble frá Newcastle snemma í
haust.
Keeble lék með Newcastle á
Wembley, þegar liðið vann bik-
arkeppnina 1955. Hefur Keeble
leikið mjög vel með West Ham
og á mikinn þátt í velgengni fé-
lagsins. Á móti Swansea skoraði
hann þrjú mörk. Hefur hann þá
alls skorað 15 mörk í 27 leikum.
Á meðan leitar Newcastle að mið
herja um landið endilangt, en lið
ið er í mikilli fallhættu. Charl-
ton tókst að sigra Bristol City
á sjálfsmarki. Liverpool tapaði
óvænt heima á móti Middles-
brough. Baráttan ætlar að verða
hörð og skemmtileg í annarri
deild. Aðeins þrjú stig skilja sex
eftsu liðin.
Félag
Wolves
Preston
WBA
Man. City
Luton
Man. City
Nott. For.
Chelsea
Burnley
Tottenh.
Blackpool
Arsenal
Bolton
Everton
Birmingh.
Portsm.
Aston V.
Newcastle
Leeds
Sunderl.
Leicester
Sheffield W 27
Félag L U J T M S
West Ham 14 7 6 64:39 35
Charlton 15 5 7 63:44 35
Liverpool 14 6 8 55:42 34
Blackburn 12 6 9 44:34 33
Fulham 12 8 7 59:40 32
Barnsley 12 8 7 51:41 32
Ipcwich 12 7 8 49:47 31
Grimsby 13 4 9 69:40 30
Stoke 13 4 11 57:47 30
Hudderf. 9 11 7 46:45 29
Leyt. Or. 12 4 11 63:53 28
Midlesb. 11 6 10 50:43 28
Sheff. Utd. 10 8 9 40:39 28
Cardiff 9 8 10 42:47 26
Bristol R. 10 4 13 54:57 24
Derby C. 9 5 13 44:52 23
Doncanster 6 8 13 34:51 20
Notts. C. 8 4 15 31-51 20
Rotherham 7 5 14 40:56 19
Bristol C. 6 7 13 35:59 19
Swansea 7 4 16 45:74 18
Lincoln 5 8 13 31:52 13
WASHINGTON 22. janúar —
Dulles, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hélt í dag flugleiðis frá
Washington ásamt helztu mönn-
um utaríkisráðuneytisins. Á
mánudaginn hefst í Ankara ráð-
herrafundur Bagdadbandalagsins
og mun Dulles sitja hann. Mun
hann koma við í Marokko og
Persíu á leiðinni og ræða við
forystumenn þar. Væntanlega er
hann aftur til Washington 1. feb.
Dulles mun færa ráðherrafund
inum boðskap Bandaríkjaforseta
þar sem hvatt er til nánari sam-
stöðu hins frjálsa' heims í bar-
áttunni gegn einræði og kúgun
kommúnismans. Ráðstjórnin held
ur því á lofti, að för Dullesar sé
gerð í þeim einum tilgangi að
hvetja Bagdadbandalagsríkin til
þess að koma upp eldflaugastöðv
um og taka við bandarískum eld-
flaugum, en talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins kvað
þessar staðhæfingar ósannar.
Var hann spurður að því hvort
eldflaugastöðvar yrðu reistar í
þeim löndum fyrir botni Miðjarð
arhafs, sem mundu æskja þess.
Ekki kvaðst talsmaðurinn geta
svarað neinu til með það. Hins
vegar sagði hann að Tyrkir
mundu taka við eldflaugum sem
eitt af aðildarríkjum Atlantshafs
bandalagsins, en sem kunnugt er,
eru Tyrkir einnig í Bagdadbanda
laginu.
Innilegar þakkir færi ég vandamönnum og vinum, er
minntust mín á áttatíu ára afmæli mínu 13. janúar, með
heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum.
Lifið heil.
Elinborg Guðmundsdóttir,
Skólavörðustíg 15.
Lokað
í dag vegna iarðarfarar
Verzlun H. Tofl
Skólavörðustíg
L U J T M S
27 17 6 4 63:32 40
27 15 5 7 61:39 35
27 12 11 4 64:45 35
27 14 6 7 68:43 34
27 14 4 9 45:37 32
27 14 3 10 68:64 31
27 13 4 10 55:40 30
27 11 7 9 61:54 29
27 13 3 11 55:53 29
27 11 6 10 58:59 28
27 12 4 11 48:44 28
27 12 3 12 43:47 27
27 11 5 11 49:59 27
27 8 10 9 41:46 26
27 8 8 11 49:60 24
27 9 4 14 50:54 22
27 9 4 14 46:57 22
27 8 4 15 43:48 20
27 7 6 14 34:49 20
27 6 8 13 32:62 20
27- 8 3 16 50:69 19
27 6 4 17 49:71 16
Síðastliðinn miðvikudag léku
Man. Utd. og Red Star (Belgrad)
í Evrópu-bikarkeppninni. — Fór
leikurinn fram í Manchester.
Voru aðstæður mjög slæmar,
rigning kvöldið áður, frost um
nóttina og þoka á meðan á leikn-1
um stóð. Englendingarnir voru
fljótari að átta sig á vellinum og
léku mun betur en mótstöðu-
mennirnir. Hinn frægi mark-
maður, Beara, lék með Red Star
og varði af mikilli prýði. Þrjátíu
mínútur liðu áður en Júgóslav-
arnir áttu skot á mark andstæð-
inganna. En fimm mínútum síðar
skoruðu þeir óvænt. Vinstri inn-
herjinn sendi háan knött að
marki Englendinganna. Mark
vörðurinn, Gregg, stóð of fram-
arlega og „sigldi“ knötturinn yf'r
höfuð hans í markið. En í síðari
hálfleik gerðu innherjinn Charl-
ton og framvörðurinn Colman
tvö mörk og tryggðu þar með
United sigurinn.
Evrópukeppnin er útslátta-
keppni, en leikið heima og að
heimna. Séu liðin jöfn að stigum
gildir markatalan. Sé markatalan
jöfn leika félögin aftur einn leik
í hlutlausu landi.
Leikurinn i Belgrad fer fram
snemma í febrúar.
Elsku litli drengurinn okkar og bróðir
SIGURJÓN FRANKLINSSON
Laugarnescamp 38B, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju
föstudaginn 24. þ.m. kl. 10.30 f.h.
Kristín Hansdóttir, Franklín Steindórsson,
systkini og aðrir vandamenn.
KRISTÍN ÞÓRARINSDÓTTIR,
frá Bolungarvík,
kennari við Melaskólann, sem andaðist 18. janúar síðastl.
verður jarðsett frá Fossvogskirkju föstudaginn 24. þ. m.
klukkan 1,30 e. h.
Athöfninni verður útvarpað.
F. h. fjarstaddra systkina.
Jóhanna Björnsdóttir.
gTtntroa—p—■wptwmb—p——ao——a——gac———obmbmnB—aa—ajg3M
Innilegt þakklæti til allra þeirra mörgu, nær og fjær,.
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og jcirðar-
för elsku litla drengsins okkar
JARLS
Guð blessi ykkur öll.
Edda Ögmundsdóttir,
Sigurður Samúelsson.