Morgunblaðið - 25.01.1958, Síða 19
Laugardagur 25. Januar 1958
MORGVNBLAÐ1Ð
19
Ógerniagui oð holdn bomboðs-
fund í Neshoupsloð vegno skipn-
logðra fundnrspjalln kommúnisto
— segja Framsóknarmenn þar 1 bæ
í NESKAUPSTAÐ hefur ekki
verið haldinn neinn almennur
framboðsfundur í sambandi við
bæjarstjórnarkosningarnar og
Guðmunda Elíasd.
fær vtðurkenningu
fvrir kirkjusöng
KIRKJUEÁÐ Washingtonborgar
veitti nýlega ýmsu listafólki og
starfsmönnum útvarps- og sjón-
varpsstöðva viðurkenningu fyrir
framúrskarandi störf í þágu kirkj
unnar. Fór afhending viðurkenn-
ingarskjala fram í hádegisverði
á Sheraton Park hótelinu í Was-
■hington, þar sem viðstaddir voru
um 600 manns, þeirra á meðal
ýmsir þjóðkunnir kirkjuleiðtogar
'listamenn, útvarpsfólk og sendi-
inenn erlendra ríkja. Sat fulltrúi
Æslenzka sendiráðsins þennan
imannfagnað í fjarveru sendi-
iherra.
Meðal þeirra sem viðui-kenningu
■hlutu var íslenzka söngkonan
Guðmunda Elíasdóttir og í lok
samkomunnar söng hún einsöng
(„Faðir vor“) við verðskuldaða
hrifningu áheyrenda.
(Frá Utanríkisráðuneytinu).
slíkur fundur verður ekki hald-
inn. Ástæðan er sú að Framsókn-
armenn í bænum telja með öllu
vonlaust að slíkur fundur geti
komið að gagni fyrir frambjóð-
endur og bæjarbúa, þar eð komm
únistar í bænum hafa alltaf skipu
lagt fundaspjöll á slíkum fram-
boðsfundum.
Það voru kommúnistaforingj-
arnir í Neskaupstað undir for-
ustu Lúðvíks Jósefssonar ráð-
herra, sem vildu boða til borg-
arafundar vegna kosninganna.
Sjálfstæðismenn þar í bænum
kváðu sig reiðubúna að taka þátt
í slíkum umræðum, ef allir flokk
ar, sem þátt taka í kosningunum,
mættu.
Sl. laugardag kom í ljós að
Framsóknarmenn voru ekki til-
búnir til þátttöku í hinum vænt-
anlega fundi. Á mánudaginn til-
kynntu þeir bréflega, að þeir
myndu ekki taka þátt í umræðum
á slíkum fundi. Segja Framsókn-
armenn að það sé reynsla undan-
farinna ára, að ekki hafi verið
unnt að hafa sæmilega fundar-
stjórn vegna hóps manna, sem
virðist hafa haft það hlutverk á
fundum þessum, að hindra sæmi-
lega siðsamar umræður um þau
málefni, sem fyrir haíf legið.
Segja Framsóknarmenn í bréfinu
til kommúnista að engar líkur
séu á að breyting til batnaðar
muni verða í þessum efnum.
Lögðu Framsóknarmenn síðan
til í bréfi sínu til kommúnista,
að fallið yrði frá slíkum borgara-
íundi. Þeir munu aftur á móti
hafa rætt þann möguleika að út-
varpsumræður skyldu fram fara
um endurvarpsstöðina, en því
tóku foringjar kommúnista dauf-
lega, enda skiljanlegt, þar sem
þar gátu þeir ekki beitt klækjum
sínum.
Enska
bikarkeppnin
í DAG fer fram fjórða umferð
ensku bikarkeppninnar. Sextán
leikir fara fram í þessari umferð
og þrengist því hringurinn mjög.
Þessir eru leikir umferðarinnar:
Bristol Rovers v. Burnley
Cardiff City v. Leyton Orient
Chelsea v. Darlington
Everton v. Blackburn Rovers
Liverpool v. Northamp. Town
Manch. United v. Ipswich T.
Newcastle U. v. Scunthorpe
Notts County v. Bristol City
Sheffield Wed. v. Hull City
Stoke City v. Middlesbrough
Tottenham H. v. Sheffield U.
West Bromwich v. Nottingh. F.
West Ham Utd. v. Stockport C.
Wolverhampton W. v. Portm.
York City v. Bolton W.
Kjördeildaskipting
Við hcsjarsfjórnarkosningarnar í Reykjavík 31. janúar 1958
K jördeildaskipting
í Breiðagerðisskóla:
1. Akurgerði — Búðargerði
2. Bústaðavegur — Hamarsgerði
3. Heiðargerði — Hvammsgerði
4. Hæðargarður — Réttarholtsvegur
5. Sel j alandsvegur — Vatnsveituvegur
Kjördeildaskipting
í Langholtsskóla:
1. Ásvegur — Engjavegur
2. Ferjuvogur — Langholtsvegur 15
3. Langholtsvegur 16 — til enda
4. Laugarásvegur — Skeiðarvogur 99
5. Skeiðarvogur 101 — Vesturbrún.
K j ördeildaskipting
í Austurbæjarskólanum:
1. Auðarstræti — Barmahlíð
2. Barónsstígur — Blönduhlíð 10
3. Blönduhlíð 11 — Bólstaðahlíð
4. Bragagata — Eiríksgata 29
5. Eiríksgata 31 — Eskihlíð
6. Fjölnisvegur — Freyjugata 28
7. Freyjugata 30 — Grettisgata 83
8. Grettisgata 84 — Hrefnugata
9. Hverfisgata — til enda
10. Hörgshlið — Laugavegur 34B
11. Laugavegur 35 — til enda
12. Leifsgata — Mánagata
13. Mávahlíð — Miklabraut 48
14. Miklabraut 50 — Njálsgata 59
15. Njálsgata 60 — Rauðarárstígur
16. Reykjahlíð — Skipholt
17. Skólavörðustígur — Snorrabraut 36
18. Snorrabraut 38 — Urðarstígur
19. Úthlíð — Þverholt
Kjördeildaskipting
í Miðbæjarskólanum:
1. Aðalstræti — Bárugata 20
2. Bárugata 21 - — Bjarkargata
3. Blómvallagata — Flugvallarvegur
4. Framnesvegur — Hallveigarstígur
5. Hávallagata - — Hringbraut 80
6. Hringbraut 81 — Laufásvegur 69
7 Laufásvegur 71 — Óðinsgata 19B
8. Óðinsgata 20 — Smiðjustígur
9. Sóleyjargata — Suðurgata
10. Sölfhólsgata - — Vesturgata 40
11. VesLurgata 41 — Öldugata.
Kjördeildaskipting
í Laugarnesskólanum:
1. Borgartún — Hraunteigur
2. Hrisateigur — Kleppsvegur 48
3. Kleppsvegur 54 — Laugarnesv. 108
4. Laugarnesvegur til enda -—■ Miðtún 30
5. Miðtún 32 — Samtún
6. Selvogsgrunn — Suðurlandsbraut
(Herskólahverfið og ,,H“-húsin)
7. Suðurlandsbraut til enda — Þvotta-
laugavegur
Kjördeildaskipting
í Melaskólanum:
1. Aragata — Garðavegur
2. Granaskjól —Hagamelur
3. Hjarðarhagi — Kaplaskjólsv. 64
4. Kaplaskjólsv. Austurvöllur — Melhagi
5. Nesvegur - - Reynistaðavegur
6. Shellvegur — Tómasarhagi
7. Víðimelur - — Ægissíða.
—Hves vegna kýs ég
Staðreynd er það, að allir for-
ystumenn vinstri flokkanna eru
einungis sérhagsmunamenn, sem
ekki hafa getað komizt áfram í
lífinu af eigin rammleik. Hér er
um að ræða vesæla bitlingahjörð,
sem hefur hlotið ljótan munn-
söfnuð í vöggugjöf, en skortir að
sama skapi atorku og dugnað,
þótt vitsmuna sé ekki ávallt vant.
Hví skyldi skyldi eiga að skipta
um forustu Reykjavíkurbæjar?
Á heilbrigt hugsandi manni og
konu hvergi að vera vært í land-
inu? Þegar þess er gætt, að stjórn
Reykjavíkur bæjar hefur á undan
förnum árum unnið einstakt þrek
virki í framkvæmdum, þá kemur
það vissulega úr hörðustu átt,
af „vel tömdum húsdýrum", eins
og einn úr minnihlutaflokkunum,
kallaði kommúnista í útvarpsum-
ræðunum, að koma í veg fyrir
það, að fólki sem bókstaflega leit
ar hælis hjá Sjálfstæðismönnum
í Reykjavik eftir ofþjökun í
„fangabúðum“ vinstri manna
vítt og breitt um landið, sé mein-
uð landvist í Reykjavík. Það er
engu líkara, en meginhlutverk
vinstri forkólfanna sé að gjöra
íslendinga landræka, ef þeir
hlýða ekki boði og banni þeirrar
helstefnu, sem nú ríkir í lands-
stjórn íslendinga. Hins vegar
telja Reykvíkingar nauðsynlegt,
að einhvers staðar á íslandi sé
griðastaður fyrir rétt hugsandi
menn og hafa því ákveðið að láta
sjálfa höfuðborgina þjóna því
hlutverki framvegis, eins og
hingað til, að forða fólki undan
óstjórn ósamstæðra metorða-
seggja, sem ekkert sjá nema
sjálfa sig og sína, og misþyrma
öllu sem eitthvað á skylt við
frjálsa hugsun og réttsýni.
Enginn má láta rugla svo dóm-
greind sína, að hann missi sjónar
á frelsi og framtíð og fyrir því
kýs hann D-listann, menn og kon
ur forsjálni og sanngirni.
Reykvíkingar! Heilir hildar til
— heilir hildar frá !
Guðlaugur Einarsson.**
M úrhúðunarnef
verð pr. rúlla kr. 225,75
U. Benediktsson hf.
Lóugata 2 — sími 11228
BAF
Höfum opnað
raftækjavinnustofu á Vitastíg 11,
undir nafninu R a f.
Við framkvæmum vindingar á rafmótorum, viðgerð-
ir á heimilistækjum o. fl. Sími 23621.
Árni Sighvatsson, löggiltur rafvirkjameistari,
Guðjón Guðmqndsson, rafvélavirki.
i
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, er sýndu mér ást-
úð og virðingu og glöddu mig á ýmsan hátt á 75 ára
afmæli mínu þann 20. janúar sl.
Guð launi ykkur öllum.
Guðríður Ásgeirsdóttir,
Hamrahlíð 25.
Faðir okkar
MARTEINN EINARSSON
kaupmaður, Laugavegi 31, andaðist að heimili sínu föstu.
daginn 24. þ. m.
Börn hins látna.
Innilegar þakkir vottum við öllum nær og fjær, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
mannsins míns
ANTONS JÓNSSONAR
skipasmíðameistara.
Fyrir mína hönd og ættingjanna.
Margrét Magnúsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
JÓNS GUÐNA JÓNSSONAR
Bolungarvík
Elísabet Bjarnadóttir, börn og tengdabörn
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför systur
okkar
INGIBJARGAR JÓHANNESDÖTTUR
frá Útibleiksstöðum
Margrót Jóhannesdóttir,
Salóme Jóhannesdóttir.