Morgunblaðið - 29.01.1958, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 29.01.1958, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 29. jan. 1958 MORC.VNBT.AÐIÐ 9 Árni G. Eylands: HUGLEIÐINGAR UM BÚSKAPINN 1957 ÞAÐ var ekki ætlun mín, að þessu sinni, að rita um búskap- inn á umliðnu ári, er margt sem veldur. En er ég 12. janúar var beðinn um að sýna lit á því enn þá einu sinni, vildi ég ekki skor- ast undan þvi, sem ekki getur talizt nema lítil þegnskylda. Af þessu leiðir þó að grein mín verð- ur síðbúin, hún er ekki rituð á réttum tíma og kemur úr hófi seint fyrir augu lesenda. En því nefni ég þetta, og hef að inngangs orðum, að ég hef lengi talið og tel enn að það sé meginatriði allrar búmensku að gera hlutina á rétt- um tíma. Og ef til vill er ekkert betur til þess fallið að mæla hvort bændunum miðar „nokk- uð á. leið“ í búskapnum en ein- mitt að veita því athygli út um sveitir landsins hvort þetta eða hitt er gert á réttum tíma og þá venjulega vel gert, eða hvort það er gert eftir dúk og disk, illa og í ótíma. Ég hefi lengi klifað um mold og gróður, og oft verður mér lit- ið til vorverkanna, hvenær flög eru unnin, hvenær er borið á og hvenær sáð? Og því miður mun það svo að þar sem miklu munar, um þessa hluti, frá því sem æski- legt er, þar vill fleira hallast í búskapnum. Einhverntíma var þetta orðað þannig: Hér gekk löngum seint að sá, seint gekk líka sprettu að fá, því að vonum stundum strá • stutt er bóndinn hlaut að slá. Sem betur fer lagast þetta með hverju árinu sem líður, þekking- in vex og kunnáttan, leiðbeining- arnar aukast og batna og árangur inn af'starfinu stækkar. Bezta árið á þessari öld Einhver lét svo ummælt að ár- ið sem leið væri „bezta árið á þessari öld“. Ekki ósennilegt að satt sé. í slíkum árum reynir minna á manndóm bóndans held- ur en á erfiðu árunum, en í góð- æri býzt gildur bóndi við harð- ærinu. Veðurstofan — Bára Sigfús- dóttir veðurfræðingur ___ hefir vinsamlegast látið mér í té nokkr ar upplýsingar um veðrið á um- liðnu ári kemur þar greinilega í Ijós að sumarið var betra og hlýrra en í meðallagi víðast hvar um landið. Veðurfar árið 1957 Bráðabirgðayfirlit Janúar. Tíðarfar var hagstætt fyrri hlutann, en mjög umhleyp ingasamt og stormar tíðir seinni hlutann. Gæftir voru lengst af stirðar. Hiti var 2°—3° yfir með- allagi og var hlýjast að tiltölu um norðanvert landið. Úrkoma var nokkuð meiri en í meðalári. í febrúar og marz var lengst af óhagstæð tíð, þó voru gæftir yf- irleitt góðar. Snjóþungt var og haglítið lengst af, en í marzlok brá til þíðviðris. í febrúar var hiti víðast 1°—1!4° undir meðal- lagi, en marz var tiltölulega mild- ari, hiti um meðallag eða lítið eitt yfir því. Úrkoma var mjög breytileg eftir landshlutum. Tiðarfar í apríl var hagstætt og yfirleitt orðið snjólaust í byggð í lok mánaðarins, enda var hlýtt í veðri hiti 2°—3° yfir meðallagi. Úrkoma var yfirleitt nokkru meiri en í meðalári. Víða tók að votta fyrir gróðri um miðjan mánuð. Gæftir voru góðar. Maí. Tíðarfar var fremur ó- hagstætt gróðri framan af, en eft- ir pann 20. hlýnaði og gróðri fór vel fram. Um sunnanvert landið varð mánaðarhitinn nálægt með- ailagi, en um norðanvert landið um það bil 1° hlýrra en í meðal- ári. Úrkoma var meiri en í með- alári og sums staðar sunnanlands mældist meira en tvöföld meðal- úrkoma. Gæftir voru yfirleitt góðar. í júní var vefjurfar hæglátt og hagstæð tíð á Suður og Vestur- landi en of þurrt fyrir gróður á Norðurl og Austurlandi. Hiti var yfirleitt nálægt meðallagi, nema á Vestfjörðum þar sem hlýrra var. Úrkoma var helmingur þess _sem venja er um norðanvert land íð, en nálægt meðallagi um sunn anvert landið. Júlí. Tíðarfar var mjög hag- stætt til heyskapar. Úrkoma var lítil, víða um helmingur af með- alúx-komu. Hiti var allbreytileg- ur eftir landsklutum. Á Suður- og Vesturlandi var yfirleitt held- ur hlýrra en í meðalári en norð- an lands og austan var kaldara. Ágúst. Tíðarfar var hagstætt. Öllum gróðri fór mjög vel fram, en þurrkar voru fremur daufir. Úrkoma ' var nálægt því sem venja er, en hiti víðast 1°—1%° yfir meðallagi. í september og október var með alhiti yfirleitt nálægt meðallagi. Úikoma var víðast lítil í septem- ber og minnst að tiltölu um sunn anvert landið eða um % af með- alúrkomu. I október mældist hins vegar víðast meiri úrkoma en venja er til. í september var tíð- arfar talið hagstætt nema um norðaustanvert landið, í október var allumhleypingasamt. Um þ. 20. kólnaði og snjóaði víða. í nóvember. var tíðarfar hag- stætt nema fyrstu vikuna. Hiti 114°—214° yfir meðallagi, en Árni G. Eylands (5) og sauðfé 370 (220). — Trakt- orar 4. Byrjað var að gefa naut- gripum með beit um 20. nóv. og er það svipað eins og 1956. Haust- ið 1957 var slátrað 30 gripum af holdakyni (blendingar), lögðu þeir sig með 186,5 kg falli að með altali. Holt í Stokkseyrarhreppi: Taða 2500 hestar (2000), úthey 100 (300), nautgripir 62 (60), hross 8 (15) og sauðfé 120 (120). — Traktorar 2. Laugardælir: Taða 5800 hestax (5500), nautgripir 130 (147), sauðfé 320 (260) svín 30 (50). — Traktorar 2. Skriðuklaustur: Taða 1300 hest ar (1300), úthey 100 hestar, naut- gripir 7 (8), hross 6 (6), sauðfé 655 (640). Kartöflur 50 tunnur (40). — Traktorar 2. Garðyrkjan Sumarið var hagstætt fyrir garðyrkju. Kartöflur, sem eru aðalgarðjurtin utan dyra, spruttu langtum betur en árið áður, sem var lélegt kartöfluár. Kartöfluuppskeran er áætluð um 100 þús. tunnur, en Hagstofan telur að uppskeran 1956 hafi ver ið 67 þús. tunnur. Grænmetisverzlun landbúnað- arins seldi um 30 þús. tunnur af ísl. kartöflum á árinu en flutti inn um 40 þús. tunnur. Ennfrem- ur flutti verzlunin inn 370 smál. af grænmeti, svo sem hvítkáli, rauðkáli, gulrótum, rauðrófum o. fl. Af lauk flutti verzlunin inn um 280 smálestir. Sölufélag garðyrkjumanna seldi: Tómata 230 smál. (191). Gúrkur 21.382 kassa (21.796). Hvítkál 66 smál. (76,7). Gulrætur 55,7 smál. (38,7). Blómkál 34.220 hausa (27.982). Gróðurhús byggð á árinu eru talin um 3500 ferm. mest í Hvera gerði 2500 ferm., í Biskupstung- um 600 ferm. og í Borgarfirði 400 ferm. Etirfarandi tölur sýna fram- leiðslu smjörs og osta o. fl. árin 1956 og 1957- Smjör 1956 1957 Birgðir 1.1. 95.064 139.511 Framleitt kg. 754.960 911.011 Selt kg. 710.513 768.553 Birgðir 31.12 139.511 281.969 Ostur 1956 1957 Birgðir 1.1. 126.736 165.660 Framleitt kg. 490.034 741.842 Selt kg. 451.110 498.540,5 Flutt út. 173.726,5 Birgðir 31.12. 165.660 235.235 úrkoma nálægt því sem venja er til. Desember. Tíðarfar var frem- ur hagstætt. Fyrstu vikuna voru hlýindi, en eftir það kólnaði held ur og veður urðu óstöðug. Meðal- hiti mánaðarins var lítið eitt und- ir meðallagi og úrkoma var um meðallag. Heyskapur í samræmj við veðurfar var heyskapur yfirleitt góður, þó ekki væri hann erfiðislaus alls staðar. Flestir bændur voru því að hausti vel undir vetur búnir, með góðan heyafla, bæði að gæð- um og magni. Sem dæmi um heyskap o. fl. nefni ég nokkur býli, öll ofan við meðallag um stærð, og um leið um heyskap og áhöfn, Svigatölur éru tölur ársins 1956. Bessastaðir: Taða 2400 hestar (1800), nautgripir 60 (56), hross 0 (0), kindur 45 (36), hænsni 600 (600). Kartöflur 45 tunnur. — Traktorar 3. Vífilsstaðir: Taða 2500 hestar (2400), nautgripir 85 (85), hross '2 (2), hænsni 250 (300). Kartöflur 50 tunnur. — Traktorar 3. Blikastaðir: Taða 2800 hestar (2500), nautglipir 80 (75), hross 7 (6), sauðfé 10 (12). Kartöflur 40 tunnur, kornuppskera 18 tunn_ ur (25). — Traktorar 4. Sámsstaðir: Taða 1300 hestar (1300), af því verkað sem hey- mjöl 360 hestar (200), úthey 80 hestar (60), nautgripir 17, hross 7, sauðfé 65. Kartöflur 130 tunnur (120) og korn 90 tunnur (90), grasfræ 350 kg. — Traktorar 2. Gunnarholt: Taða í vothey 2500 hestar (2500), þurrhey 4500 (4300). Nautgripir 220 (240), blendingar af holdakyni. Hross 7 Heyinu ekið hross 22 (20), svín 70 (70) og hænsni 400 (450). — Traktorar 3. Hvanneyri: Taða og hey af flæðiengjum 4500 (4200). Mjólk- urkýr 81 (71), geldneyti 28 (50), hross 20 (25) og hænsni 50 (50). Garðaávextir: kartöflur 30 tunn- ur (20), gulrófur 35 (20). — Traktorar 10, þar af 1 beltistrakt- or. Hólar í Hjaltadal: Taða 4800 hestar (4500), nautgripir 60 (60), hross 80 (80), sauðfé 560 (530). Garðaávextir: kartöflur 120 tunn ur (100) og gulrófur 100 (75). — Traktorar 6, þar af 1 beltis- traktor. Egilsstaðir á Völlum: Taða 3300 hestar (3200), mjólkurkýr 32 (31), geldneyti 32, hross 5, (5), Mjólkurframleiðslan Mjólkurbúin eru nú 10 að tölu, en verið er að byggja 2 ný bú, úl viðbótar, á Hvammstanga og Egilsstöðum, ennfremur geril- sneyðingarstöð í Ólafsfirði og Neskaupstað. Sauðfjárræktin Haustið 1956 var lokið niður- skurði í Dalasýslu vegna mæði- veiki, er þar kom upp 1955. Á þetta svæði voru haustið 1957 flutt um 12 þús. lömb frá Vest- fjörðum. Auk þess keyptu bænd- ur á svæðinu nokkuð af lömbum og veturgömlu fé í Laxárdal og Hvammssveit, en þeir hreppar höfðu fengið fjárstofn að fullu 1956. En því miður reyndist mæði- veikibjörninn ekki unninn. Haust ið 1957 kom upp mæðiveiki í Lækjarskógi í Laxárdalshr. en bær þessi er ásamt nokkrum bæj um öðrum í Dalasýslu sunnaa hins svokallaða Dalahóifs. Er þessir bæir þannig á sama mæðivarnarsvæði eins og Mýrasýsla frá Hvítá vestur að Skógarnesi ó Mýrum. Vegna þessara válegu tíðinda var allt fé fellt á 7 bæjum: Lækj- arskógi og Þorbergsstöðum í Laxárdalshr., Brautarholti I og II, Aflsstöðum, Köldukinn og Vatni í Haukadalshreppi. Auk þess nokkru af fé sem tilspurðist ann- ars staðar, en verið hafði á fóðr- um á þessum bæjum eða selt þaðan. Alls rúml. 1500 fjór. I Lækjarskógi kom í ljós all- mikil sýking, töluverð á Þorbergs stöðum og vottur á Brautarholts- bæjunum. Á hinum bæjunum kom engin sýking í Ijós. í haust var gerð girðing úr sjó upp með Haukadalsá í Haukadalsvatn. Á vori komanda verður girt svo að hinir umræddu bæir verði allir í sérstöku mæðivarnarhólfi. Þaf verður auðvitað sauðlaust til hausts 1958. Enn er ekki séð fyrir enda á jan. — nov. 19 Innvegin mjólk kg............ Seld mjólk ltr............... Seldur rjómi ltr............. Framleitt smjör kg........... Framleitt skyr kg............ Framleiddur mjólkurostur kg Gramleiddur mysuostur kg .. Framleitt nýmjólkurduft kg .. Framleitt undanrennuduft kg. Mjólk í niðursuðu ltr........ Undanrenna í Kasein ltr...... Frh. a bJs. 13. gn o.fl. 1957. 61.781.529 54.979.815 26.446.536 25.349.909 808.265 773.940 900.451 772.238 1.665.820 1.482.150 776.294 491.345 46.090 51.353 35.300 37.050 345.635 282.225 144.118 163.500 4.893.242 4.271.400 Sláttutætari tengdur aftan í kraftmikla dráttarvél, en aftan í hann er síðan tengdur vagn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.