Morgunblaðið - 14.02.1958, Page 15
Föstud. 14. febrúar 1958
MORCVNBLAÐIÐ
15
Jóhanna Guðbrandsdóttir Hunt
Minningarorð
Átthagafélag Strondomanna
Aðgöngumiðar að árshátíð félagsins eru seldir í
verzlun Magnúsar Sigurjónssonar,
Laugavegi 45, sími 14568.
Tryggið ykkur miða í tíma.
Stjórnin.
„ORATOR“
FÉLAG LAGANEMA HELDUR
Árshátíð
sína í Tjarnarcafé sunnudaginn 16. febrúar n.k.
klukkan 9 e.h.
Miðar afhentir í Háskólanum kl. 5—7 í dag og á
morgun. — Pantanir í síma 16576 á sama tíma.
S.G.T.
Félagsvlstin í G.T.-húsinu
i kvöld klukkan 9. —
Ný 5 kvölda keppni. Heildarverðlaun kr. 1000.00.
Auk þess fá ininnst 8 þátttakendur kvöldverðlaun
hverju sinni
Dansinn hefst klukkan 10.30.
Aðgöngumiðasala frá kl. 8. — Sími 1-33-55
Þórscafe
FOSTUDAGUR
F. 1. jan. 1922 — D. 11. febr. 1958.
Krjúptu að fótum
friðarboðans,
og fljúgðu á vængjum
morgunroðans
meira að starfa
guðs um geim.
VARLA setur að mönnum öllu
meiri hugsun um líf og dauða
en þegar ungt og gjörvulegt
fólk í blóma lífsins er fyrirvara-
lítið kallað burt frá okkur. Svo
fullvíst sem það er, að eitt sinn
skal hver deyja, þá stöndum við
þó eftir og spyrjum ósjálfrátt —
hví er það líf svo fljótt tekið
frá okkur, sem er svo ungt, öll-
um kært og lofar svo góðu? En
þeirri spurningu verður ekki svar
að. Lífið allt er okkur að mestu
ráðgáta og hulinn leyndardóm-
ur. Það hefur lengi verið sagt:
Þeir, sem guðirnir elska, deyja
ungir. Vel trúi ég því, að guð
ætli þeim, sem ungir og flekk-
lausir deyja, ný og meiri ætlunar
verk á öðru tilverustigi.
En um þetta verða hugleiðing-
ar okkar, þegar við í véikleika
okkar hörmum andlát Jóhönnu
Guðbrandsdóttur Hunt.
Hún fæddist á nýjársdag ár-
ið 1922. Foreldrar hennar voru
Sigríður Árnadóttir og Guð-
brandur Hákonarson, er lengi var
vélstjóri á skipum Eimskipafé-
lags fslands, kunnur drengskap-
armaður. Lézt Guðbrandur fyrir
Félagslíf
Ármann—KR sunddeildir
Skemmtifundur verður í kvöld
í KR-húsinu kl. 9. Félagar fjöl-
mennið og takið með gesti.
Nefndirnar.
Knattspyrnufélagið Víkingur
Félagsheimilið opið í kvöld kl.
7,30—11,30. Æfingar í kvöld að
Hálogalandi: kl. 6 kvennaflokk-
ur, kl. 8,30 III. flokkur.
Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Skíðadeild ÍR
Skemmtifundur í ÍR-húsinu
fösludag kl. 9 e. h. Bingo o. fl.
Stjórnin.
Fundur verður í St. Septínu
föstudaginn 14. febrúar kl. 8,30
í Ingólfsstræti 22. Séra Jakob
Kristinsson flytur erindi: Minni
um geðheimareynslu. Sýnd kvik-
mynd frá Noregi. Kaffi.
Gestir velkomnir.
I. O. G. T.
Þingstúka Reykjavíkur
Templarar!
Munið Þingstúkufundinn I
kvöld á Fríkirkjuvegi 11.
Þt.
allmörgum árum, en þær mæðg-
ur voru síðan samvistum að
mestu þar til Sigríður dó fyrir
þremur árum. Jóhanna heitin
lagði snemma fyrir sig hár-
greiðslustörf, tók próf í þeirri
iðngrein, rak um skeið hár-
greiðslustofu og var vel látin í
því starfi. Árið 1955 giftist Jó-
hanna eftirlifandi eiginmanni
sínum, Frederic L. Hunt, frá
Bandaríkjunum. Fluttu þau
snemma á sl. ári vestur um haf,
til ættlands hans, þar sem þau
stofnuðu heimili sitt og fram-
tíðin blasti við þeim. En svo dró
óvænt ský fyrir sólu. Hún kenndi
þá sl. haust þess sjúkdóms, sem
varð henni að aldurtila. Flutti
hún hingað heim, lá í Lands-
spítalanum og háði þar sína
hljóðu baráttu við örlög sín, þar
til þreyttar brár féllu til hinzta
svefns að morgni 11. þ.m. Þótt
bjartar framtíðarvonir hinnar
ungu og lífsglöðu konu væru
brostnar, þá æðraðist hún aldrei,
heldur bað aðra vera hughrausta.
Með trúnaðartrausti laut hún
vilja hinnar eilífu forsjónar, þar
til yfir lauk.
Jóhanna heitin var fríð sýnum,
björt yfirlitum, há og gjörvi-
leg. Hún bar með sér þann þokka
og hlýju, sem yljaði öllum í ná-
vist hennar. Hún var glaðlynd
og einstaklega góðlynd. Aldrei
mun hún hafa lagt til nokkurs
manns í orði eða verki. öllú'm
var hún góð. Það var einkum
vegna þessarar hjartahlýju
Hönnu okkar, sem öllum þótti
svo innilega vænt um hana. Hún
var að öllu útliti og hjartalagi
eins og sólargeisli, sem gerir hið
gráa hversdagslega líf okkar
hlýrra og bjartara. Hún var hin
þroskaða kona með barnshjarta
og hreina sál. Það er mikill harm
ur kveðinn að eiginmanni henn-
ar og ástvinum við andlát henn-
ar og öll munum við lengi sakna
hennar.
Þegar við í dag fylgjum Jó-
hönnu til hinztu hvíldar, þá bless
um við bjarta minningu hennar
og biðjum henni alls góðs á veg-
um æðra lífs.
Ég votta eftirlifandi eigin-
manni hennar og skyldfólki inni-
lega samúð í sorg þeirra.
M. J.
t
Megi á nýjum leiðum
ljósið háa og bjarta
skína við þér vina,
vísa þér veginn heim;
ég bið þess að guð þig blessi
opni þér faðminn blíða
faðir þinn og móðir
hinum megin bíða.
DANSLEIKIiR
að Þórscafé í kvöld kl. 9.
Hljómsveit
Aage Lorange
Hin vinsæla dægurlagasöng-
kona DIDDA JÓNS,
syngur með liljómsveitinni.
Sími: 23-333.
Vinkona.
Árshátíð
Vcrzlunar- og kaupmannafélags Hafnarfjarðar
verður haldin í Alþýðuhúsinu laugardaginn 22. þ.m.
og hefst með borðhaldi kl. 6.30 e.h.
NEFNDIN.
Germania
kvikmyndasýning
verður í Nýja-Bíói laugardaginn 15. febrúar kl. 14.00
Sýndar verða þýzkar fræðslu- og fréttamyndir.
Aðgangur ókeypis.
Félagsstjórnin.
Bokorasveínaiélag íslands
þakkar öllum þeim, sem sendu félaginu
kveðjur, gjafir og árnaðaróskir á 50 ára
afmæli félagsins.
Stjórn Bakarasveinafélags
íslands
VttRÐLR - HVttT - HEIMDALLLR - ODINN
Spilakvöld
halda Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík mánudaginn 17. febr. kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu
Skemmtiatriði: 1. Félagsvist. — 2. Ávarp. — 3. Verðlau naafhending. — 4. Dregið í happdrætti. — Itvikmynda-
sýning. — Aðgöngumiðar verða afhentir í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í dag klukkan 5—6 e.h.
Skemmtinefndin.