Morgunblaðið - 02.03.1958, Blaðsíða 4
4
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 2. marz 1958
í dag er 61. dagur ársins.
Sunnudagur.
2. marz.
Vika af göu
Árdegisflæði kl. 2.36.
Síðdegisflæði kl. 15.07.
Slyaavarðstofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L
R (fyrir vitjaniri er á sama stað,
ití kl. 18—8. Sími 15030.
Næturvörður er í Ingólfs-
apóteki sími 11330. Reykjavíkur
apótek, Laugavegs-apótek og
Iðunnar-apotek, fylgja öll lokun-
aatima sölubúða. Garðs-apótek, —
Holts-apótek, Apótek Austurbæj-
ar og Vesturbæjar-apótek eru öll
opin virka daga til kl. 8, laugar-
daga til k. 4. Þessi apótek eru
öli opin á sunnudögum milli kl.
Kópuv ogs-apótek, Álfhólsvegi 9
1 og 4. —
er opið daglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
frá kl. 9—16 og helga daga frá
kl 13—16. Sími 23100.
Hafnarfjarður-apótek er opið
alia virka daga kl. 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Eiríkur Björns
son.
Kveníélng Háteigsséknu
SKEMMTIFUNDUK
í Þjóöleikhúskjallaranum miðvikudaginn 5. marz
klukkan 8. — Félagsvist og skuggamyndir.
Félagskonur mega taka með sér gesti.
Skemmtinefndin.
Unglinga
vantar til blaðburðar við
Laugav. III.
Skúlagöfu
tffgttttliIitMfr
Sími 2-24-80
K.eflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kL 9—19, laugardaga
kl. 13—16. Helgidaga kl. 13—16.
Næturlæknir er Bjarni Sigurðsson.
I.O.O.F. 3 = 130338
* AF M Æ Ll #
Sjötugur varð í gær Stefán
Sigurfinnsson, frá Ytri-Njarðvík
um nú til heimilis að Bárugötu
32 í Reykjavík.
Hjönaefhi
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Guðrún Guðmundsdóttir,
rafvirkjameistara í Keflavík og
Karl Halldór Ágústsson, vélstjóri
m.s. Hamrafelli.
5 mínútna krossgáta
1S
Lárétt- — 1 hóa saman — 6
skel — 8 sjór — 10 kimi — 12
fjárplógsmenn — 14 félag — 15
fangamark — 16 eldsneyti — 13
skorurnar.
Lóðrétt,- — 2 brak — 3 til — 4
lélegur (forn ritháttur) — 5
hóps — 7 flokkurinn — 9 mann
— 11 kveikur — 13 mjög — 16
ósamstæðir — 17 tveir eins.
Lausn síöustu krossgátu
rán — 10 get — 12 ostanna — 14
Lárétt: 1 sverð — 6 ota — 8
si — 15 NL — 16 odd — 18 ald-
inin.
Lóðrétt: — 2 vont — 3 et — 4
ragn — 5 hrossa — 7 Stalin —
9 Ási — 11 enn — 13 andi — 16
OD — 17 DN.
ISSMessur
Keflavílcurkirkja. Messa kl. 5
síðdegis.
Innri Njarðvíkurkirkja. Barna
guðsþjónusta kl. 11 árdegis.
Ytri-Njarðvík. Barnaguðsþjón-
usta í Samkomuhúsinu kl. 2 síð-
degis. — Séra Björn Jónsson.
Flugvélar
Flugfélag íslands hf: — Milli-
landaflug: Hrímfaxi er væntan-
legur til Rvíkur kl. 16:10 í dag
frá Hamborg, Kaupmannahöfn og
Oslo. Flugvélin fer til Lundúna
kl. 08:30 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar og Vest-
mannaeyja. Á morgun: til Akur-
eyrar, Fagurhólsmýrar, Horna-
fjarðar, ísafjarðar, Siglufjarðar
og Vestmannaeyja.
IQFélagsstörf
Kvenfelag Háteigssóknar held
ur skemmtifund í Þjóðleikhúss-
kjallaranum miðvikudaginn 5.
marz kl. 8.
KFUM og K, Hafnarfirði. — Á
almennu samkomunni í kvöld tal
ar Reidar Albertsson kennari.
Dansk Kvindeklub heldur fund
í Tjarnarkaffi þriðjud. 4. marz,
kl. 8.30 e.h.
Bræðralag — Fundur verður
haldinn í Bræðralagi, kristi-
legu félagi stúdenta mánudaginn
3. marz 1958 á heimili séra Jóns
Þorvarðarsonar Drápuhlíð 4. —
Fundurinn hefst kl. 8.30 e.h.
H Ymislegt
Orð lífsins: Eg olli umturnan
meðal yðar, eins og þegar Guð
umturnaði Sódomu og Gómorru,
og þér voruð eins og Lrandur úr
hálsi dreginn. Og þó hafið þér
ekki snúið yður til mín, se?ir
Drottiun. Amos 4,11.
Kvikmyndin frá Konsó verður
sýnd í síðasta skipti að þessu
sinni í samlromuhúsinu Laufás-
vegi 13, í kvöld kl 8.30. Aðgang-
ur ókeypis og öllum heimill. —
HEIÐA
3Í. Hæ og hó! Afi og Heiða bruna með
ofsahraða á sleða niður fjallið. Heiða hróp
ar af fögnuði. Það er rétt eins og hún
fljúgi áfram. Hún er vel klædd, svo að
henni er hlýtt, og hún er örugg í fangi afa,
sem stöðvar sleðann allt í einu með ör-
uggum handtökum fyrir framan kofann,
sem Pélur á heima í. Afi tekur ábreiðuna,
sem hann. hafði vafið utan um Heiðu, og
lyftir henni af sleðanum. Svo segir hann:
„Nú skaltu fara inn, og þegar fer að
dimma, verður þú að fara heim aftur“.
Míyndasaga fyrir börn
32. Við gluggann situr amma Péturs við
rokkinn sinn. „Góðan daginn, amma,“
segir Heiða og réttir fram höndina. Gamla
konan, sem er blind, leitar að hendi henn-
ar: „Ert þú Heiða litla, sem Pétur talar
svo oft um?“ „Já, ég var einmitt að koma
á sleða", svarar Heiða. „En hvað þér er
hlýtt á hendlnni!" , Gamla konan heldur
enn í hönd Heiðu. „Ég var vafin svo ræki-
lega inn í ábreiðu“, segir Heiða. Það er
auðheyrt, að Fjallafrændi er góður við
hana og sinnir henni eins og góðum afa
sæmir, hugsar Amma.
33. „En hvað það hriktir mikið í glugg-
unum ykkar“, segir Heiða. „Afi getur á-
reiðanlega lagað þá fyrir ykkur“. „Já,
ég get nú ekki séð þá“, andvarpar amma.
„Já, en amma“, segir Heiða. „Glugginn
er rétt hjá þér“. Og Heiða bendir á hann
með fingrinum. „Já, barnið mitt, en ég
get ekkert séð, og á nóttunni þegar vind-
urinn hvín, og það brakar og brestur í
hverju tré, þá ligg ég andvaka og óttast,
að húsið hrynji yfir okkur“. Vesalings
amma! En hvað hún á bágt. Heiða getur
ekki tára bundizt.
FERÖIMAND Miska borgar sig ekki
Vegna mikillar aðsóknar mun
myndin verða sýnd bráðlega aft-
ur.
Háskólatónleikar verða í há-
tíðasalnum í dag, sunnudag 2.
marz kl. 5 stundvíslega. Verður
þá flutt af hljómplötutækjum
skólans þriðja sinfónía Beethov-
ens („Eroica“ eða hetjuhljóm-
kviðan). Dr. Páll ísólfsson skýrir
verkið. Öllum er heimill ókeyp-
is aðgangur.
Kirkjukvöld í Hallgrímskirkju
verður í kvöld kl. 8.30. Próf.
Sigurbjörn Einarsson flytur fyr-
iriestur er hann nefnir: Biblían,
vísindin og heimsmyndin. Frú
ICatrín Dalhoff leikur einleik á
fiðlU. — Jakob Jónsson.
Filadelfía: Bæna- og föstudag-
ur fyrir Fíladelfíusöfnuðinn. —
Brotning brauðsins kl. 4. Fórn-
arsamkoma kl. 8,30, vegna ný-
byggingar Fíladelfíusafnaðarins.
Ræðumenn: Guðmundur Markús
son og Garðar Ragnarsson. Allir
velkomnir!
Björn Jónsson ritstjóri og ráð-
Aerra var einn mesti bindindis-
baráttumaður sinnar tíðar.
U mdæmisstúkan.
Spurning dagsins?
Hvernig lízt yður á poka-
tizkuna?
Þóra Friðriksdóttir, leikkona:
Mér finnst hún vægast sagt
hræðileg, þvi að þó maður hangi
aftan í tízkunni,
þá finnst mér of
langt gengið að
gera það, þegar
hún miðast við
að klæða af kon-
unni allt kven-
legt vaxtarlag.
Vonandi er þetta
ekkert annað en
stundarfyrir-
brigði hjá kvenþjóðinni. —
Konni: Voruð þér að spyrjs
um pokatízkuna? — er það nú
eitthvað nýtt? Ég veit ekki betur
en hún hafi ver-
ið fundin upp I
Hveragerði á
ungmennafélags
móti fyrir nokkr
um árum — og
þó hefur hann
Tómas líklega
séð hana fyrr,
þegar hann orti
„Hvað er í pok-
anum“? — og mér finnst að það
verði spurning dagsins framveg-
is: Hvað er í pokanum? Annars
snýr þetta öllum lögmálum við.
Áður keypti maður „köttinn" í
sekknum, en nú verðum við að
kaupa sekkinn á „köttinn'*.
Bryndís Schram, fegurðar-
drottning íslands: Persónulega
finnst mér fallegt að sjá háa og
laglega konu í
pokakjól, en það
er ekki þar með
sagt, að hver
sem er geti
klæðzt þannig.
Konan má ekki
vera lágvaxin né
holdug, heldur
há og beinvax-
in. Þessi tízka er
því mjög takmörkuð og því vafa
samt að hún nái nokkurn tíma
vinsældum meðal almennings.
Jafnframt er mikill vandi að
klæðast svona kjól þar sem bæði
skór, taska og hárgreiðsla verða
að vera í sama stíl svo að kjóll-
inn njóti sín. Karlmenn virðast
ekki vera ýkjahrifnir af þessum
pokum og það hefur auðvitað
mikið að segja, eins og skiljan-
legt er. En hvað sem því líður
finnst mér sjálfsagt að hver
stúlka, sem getur klæðzt i>oka-
kjólum og kann vel við þá, spóki
sig í þeim svo lengi sem þeir eru
í tízku.
Kristján Arn-
grímsson, verzl-
unarstjórl:
Pokatízkan?
— mér finnst
hún pokaleg.