Morgunblaðið - 02.03.1958, Page 11

Morgunblaðið - 02.03.1958, Page 11
Sunnudagur 2. marz 1958 MORCVNBLAÐIÐ 11 Þingvellir aff vetrarlagi. Útsýn yfir Almannagjá, Lögberg og vellina. Ljösmyndari Mbl. tók þessa mynd, er hann var á ferff þar ausiur frá fyrir nokkru. 1 REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 1. marz Andlát Brynleifs Tobíassonar Dauða Brynleifs Tobíassonar bar að mjög snögglega og með óvenjulegum hætti. Mun nær einsdæmi, að hjón deyi bæði sömu nóttina, á þann veg sem hér varð. Brynleifur var einn þeirra manna, sem lengi verður eftir munað. Hann þótti ágætur kennari, að vísu sérvitur nokkuð, en fjölfróður. Meðal þjóðarinnar í heild var hann kunnastur fyrir forustu sína í bindindismálum. Þar var hann í fremstu fylkingu áratugum saman. Brynleifur skildi manna bezt, að hóf í málflutningi er vænlegast þegar til lengdar læt- ur. Öfgar geta einnig verið hættu- legar í baráttunni við óreglu og óhóf. Tillögur Brynleifs í bind- indismálum voru markaðar af eindreginni sannfæringu og góð- um skilningi á því, hvað er fram- kvæmanlegt. I íslenzkri mannfræði vann Brynleifur Tobiasson grundvall- arverk með því að taka saman bókina: Hver er maðurinn? Þaö rit er ómissandi handbók, að sjálfsögðu þarf það endurnýjunor við, en þar ruddi Brynleifur brautina. í umgengni var Brynleifur skrafhreifur og ske'mmtilegur maður, sem ætíð var ávinningur að spjalla við. — Áður fyrri fylgdi hann Framsóknarflokkn- um að málum, var af þeirra hálfu í framboði til þings og naut ann- ars trúnaðar þeirra. En Brynleif- ur var fyrir löngu horfinn úr þeim félagsskap og lét sér ára- tugum saman annt um framgang Sjálfstæðisstefnunnar. Síðasta sinnið, er sá, sem þetta ritar, átt; tal við Brynleif var nokkru eftir bæjarstjórnarkosningarnar. — Hringdi Brynleifur þá til að sam- gleðjast yfir hinum ágæta sigri, og benti fyrstur manna á það, sem satt er, að í innanlandsmál- um hefði aldrei glæsilegri kosn- ingasigur verið unnin á íslandi. Ráðherrann þurfti liádegisverð Dean Acheson er tvímælalaust með fremstu stjórnmálamönnum. sem nú eru uppi meðal vest- rænna þjóða. Á meðan hann var varautanríkisráðherra Banda- ríkjamanna gerðist hann einn af upphafsmönnum Marshall-sam- starfsins. Síðar var hann sem utanríkisráðherra helzti frum- kvöðull Atlantshafsbandalagsins og atkvæðamesti leiðtogi þess, þangað til hann lét af störfum. Acheson hefur á seinni árum skrifað nokkrar bækur um stjórn- mál og viðhorf Bandaríkjamanna til þeirra. Nú nýlega er komm út bók eftir hann um stöðu þjóö- ar hans í alþjóðamálum og heit- ir hún: Power and Diplomacy. Bók þessi er prýðilega rituð og skrifuð af yfirsýn viturs og reynds stjórnmálamanns. Ache- son víkur m. a. að því, að hug- sjónir og raunsæi um þýðingu valdsins í alþjóðastjórnmálum verði að fylgjast að, ef vel á að fara. En hægara kann að vera að gera sér þessa nauðsyn ljósa en að orða hana ætíð réttilega. Segir Acheson af því þessa sögu: „Fyrir nokkrum árum stóð hæfileikamikill írskur utanríkis- ráðherra fast á því við mig, að eg semdi og skýrði á einni síðu og í orðum, sem kveiktu í heim- inum, trú frjálsra manna. Eg benti honum á, að írskt skaplyndi væri miklu betur lagað til þessa háleita verkefnis — þó að krafan um stuttleik kynni þar að skapa örðugleika — en þær veraldlegu erfðir, sem ég hefði fengið frá láglöndum Skotlands — gegnum Ulster — og Suður-Englandi. Og meira en það, ég bauð honura kyrrláta stofu og til leiðbeining- ar um efni og stíl, faðirvorið, sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkj- anna og Gettysburgræðu Lin- colns. En hann var þá boðinn í hádegisverð." Lofið mér að skoða skjölin: Acheson víkur einnig að því, hvort krefjast beri þess af þeim, sem gagnrýni stjórnarvöldin, að þeir setji fram í einu og öllu hvernig leysa skuli viðfangsefmn Um þetta segir hinn reyndi stjórnmálamaður: „Það væri flónska af mér að segja stjórninni hér eða annars- staðar hvað hún eigi að gera í hinum mörgu og ólíku tilfellum, sem hún þarf við að fást. Eng- inn, sem stendur utan við hefur þá þekkingu — þó að margir blaðamenn sýnist halda að þe,r hafi hana — né þau ráð yfir, hvað gert er og hvernig, né yfir- mönnunum, sem framkvæma verkin, er þarf til þess að þeir geti sagt til um þetta. Eg hefi ann ars staðar nefnt, að Charles E. Hughes (utanríkisráðh. og dóm- stjóri Hæstaréttar. Ath. Mbi ) svaraði, þegar hann var spurður hvað hann myndi segja, ef utac,- ríkisráðherrann spyrði hann ráða um tiltekið málefni: „Eg mundi biðja um, að mér gæfist færi á að skoða skjölin.“. Sá, sem ekki hefur hina nýju og nánu þekk- ingu, sem embættismaðurinn ræður yfir, verður að láta sér nægja að tala almennt um mál- in.“ Þjóðarhag lirakar Þessi regla á ekki síður við á íslandi en í Bandaríkjunum. Al- ger fásinna er að krefjast þess af þeim, er utan við standa, að þeir beri fram ákveðnar, sundur- liðaðar tillögur um úrlausn hinna flóknustu viðfangsefna stjórn- málann'a. Það geta valdhafarnir einir gert, þeir, er í sinni hendi hafa alla þræði. Verkefni stjórn- arandstöðunnar er að halda uppi skynsamlegri gagnrýni og benda á eftir hverjum meginreglum vænlegast sé að leysa vandann. Þetta hafa Sjálfstæðismenn gert frá því, að þeir komust í stjórnarandstöðu. Við þann höf- uð-erfiðleika hefur þó verið að etja, að stjórnvöldin hafa á fátt lagt meira kapp en að dylja'fyr- ir almenningi flestar staðreyndii', sem segja til um hvert ástandið er í raun og veru. Þetta verðui til þess, að sumir missa stjónar á því, sem úrslitum ræður. Endalaust er togazt á um það, bak við tjöldin, og nú orðið einr- ig í almannaaugsýn, í stjórnar- blöðunum, hvað til bragðs eigi að taka í efnahagsmálunuru. Sannleikurinn er þó sá, að nán- ast verður að líta á það sem tækniatriði, hvert af hinum þekktu úrræðum er notað a hverjum tíma, ef tilganginum er náð og atvinnu og framleiðslu haldið uppi, svo sem við verður komið. Það er óhagganleg-staðreynd, að þrátt fyrir allar deilurnar um efnahagsmálin á undanförnum árum, þá hefur öllum ríkisstjórn- um þangað til nú tekizt að halda atvinnuvegunum gangandi og framleiðslunni við ú þann veg, að efnahagur landsmanna hefur farið síbatnandi frá því, að eymd- arstjórn Framsóknar og Alþýðu- flokksins á árunum fyrir seinna stríðið lauk. Á tímabilinu, sem síðan er liðið, hefði vissulega margt mátt betur fara en ætiö hefur verið sótt - rétta átt, þang- að til nú. í öllu fjasi sín um fjárhagsmálin þegja stjórnar- herrarnir og málgögn þeirra um það, sem mestu máli skiptir. Hef- ur hagur þjóðarinnar í heiid batnað frá því að V-stjórnin tók við, hefur hann staðið í stað eða hefur honum e. t. v. stórlega hrakað? En sú ömui'lega stað- reynd blasir nú við. „Spilað úr“ 600 millj. kr. umfrain tekjur Nú er komið í ljós, að til þess að halda uppi atvinnu og fram- kvæmdum í landinu á síðasta lVz ári, hefur V-stjórnin í senn þurft að taka að láni 386 milljónir kr. hjá erlendum lánardrottnum og því til viðbótar auka á skuld- bindingar bankanna út á við um 79,4 milljónir, ganga á birgðir útflutningsvöru í landinu um 55 millj. kr. og eyða a. m. k. 100 milljónum króna af erlendri vöru, sem búið var að draga að í landinu. Á þennan veg hefur ríkisstjórnin á IV2 ári aflað sér með varhugaverðu móti, vægast sagt, rúmra 600 milljóna til að „spila úr“, svo að orðalag Lúð- víks Jóséfssonar frá því í sumar sé notað. Auðvitað hefur nokkuð a? þessu fé farið til framkvæmda, sem eðlilegt er að taka erlent lánsfé til. Sogsvirkunin nýja mun þó ekki fú af þessu fé nema eitt- hvað h. u. b. 100 millj. króna Að henni slepptri hafa á þessu tímabili sízt verið meiri fram- kvæmdir en voru á næstu áruin á undan, en þá jukust sambæri- leg lán erlendis á tæpum þrem- ur árum einungis um 130 milli. króna, eða ekki nema um lít:Ö brot/ af því, sem nú hefur gerzt á IV2 ári. Halli á þjóðarbúinu Verulegur hluti þess fjár, seni nú hefur verið aflað með bein- um lántökum eða með eyðsiu handbærra eigna, hefur farið til að standa undir halla á þjóðar- búinu. Svo stórkostlegum halla, að jafnvel þeir, er tortryggnastir hafa verið í garð valdhafanna hafa ekki til neinnar hlítar gert sér grein fyrir, hversu hallinn er ískyggilegur, né heldur hví- líku ráðleysi hann lýsir. Eða hvaða vit er t. d. í því að ganga svo stórlega á eignir, sem hér hefur verið gert og safra jafnmiklum skuldum til þess að geta staðið undir launagreiðslum til 1865 erlendra manna, þar af kringum 1350 sjómanna, sem stjórnarvöldin beittu sér fyrir eða létu fá vinnuleyfi í landinu á sl. ári? Má þó vel vera að útlend- ingarnir hafi verið mun fleiri, því að enn hefur einungis verið hægt að grafa upp skýrslu um hversu margir höfðu komið til landsins fram að 1. september. Um þetta eins og annað verður að notast við skýrslubrot, sem menn ná af hendingu, því að heildarmyndina reyna stjórnar- völdin að fela eftir sinni ítrustu getu. Vísitölustigin 20 Þrátt fyrir eignai'ýrnun og skuldasöfnun hefur og engan veginn tekizt að halda í horfinu um lífskjör almennings. í þeim efnum reyna stjórnarvöldm að vísu að halda uppi stórkostlegum blekkingum og rangfæra vísi- töluna í meira mæli en nokkru sinni fyrr. Þrátt fyrir það hefur vísitalan þó hækkað á s.l. ári um 5 stig, og víst er það mikil hækk- un á ekki lengri tíma. Hins vegar reyna stjórnarherrarnir og fylgis menn þeirra að þegja alveg í hel. að frá því að V-stjórnin tók við hafa hvorki meira né minna en 9 vísitölustig verið falin með auknum niðurgreiðslum á vöru- verði. Þessar upplýsingar voru knúnar fram fyrir atbeina Sjálf- stæðismanna. Þær birtust í mjög greinargóðri skýrsiu í Hagtíðind- um. Ber að lofa þá framtakssemi hagstofustjóra. En lærdómsríkt er, að ekkert stjórnarblaðanna hefur er.n sagt frá þessu grund- vallaratriði. Þá gera stjórnarblöðin sér ekki heldur sérlega tíðrætt um 6 visi- tölustigin, sem launþegar voru sviftir skömmu eftir að V-stjórn- in tók við. Sannarlega hafa öll þessi 20 vísitölustig mikla þýð-. ingu, þegar meta skal, hvernig ástandið í raun og veru er í efna- Ihagsmálum okkar, og hvort stjórninni hafi tekizt að leysa I þann vanda, sem við var að etja. Stuðningur Framsóknar við kommúnista Mikla athygli vekur hversu ákafur Framsóknarflokkurinn er nú í að styðja kommúnista innan verkalýðsfélaganna. Þetta er þeim mun athyglisverðara sem Framsókn ekki alls fyrir löngu hafði bundizt svardögum við Al- þýðuflokkinn um sameiginlega baráttu gegn kommúnistum. Nú eru þau héitorð öll rofin, og örgustu fjandmenn Alþýðuflokks ins studdir til valda í verkalýðs- hreyfingunni. Ekki þarf að fara í grafgötur um, hvernig á þeim svikum stendur. Þjóðviljinn segir s.l. fimmtudag um stjórnarsamvinn- una og þá samvinnu við verka- lýðsfélögin, sem sé forsenda hennar: „Engum kemur til hugar að sú samvinna standi degi lengur en vinstri öflin ráða þýðingarmestu verkalýðsfélögunum og fara með yfirstjórn heildarsamtakanna“. Hér er að gerast hið sa na og í Kópavogi. Þar sveik Hermann flokk sinn vegna hótunai 'R'inn- boga Rúts Valdemarssonan> Finnbogi Rútur hefur og sagt frá því, að Hermann Jónasson hafi spurt miðstjórn Framsóknar, hver „þyrði“ að mæla öðru bót en að vera á móti Alþýðufl. í verka- lýðsfélögunum. í miðstjórninni mun enginn hafa staðizt ógnun I Hermanns. Þolgæði Alþýðuflokks ins er vissulega mikið. Þar er reynt að hugga sig við að Sjálf- stæðismenn hafi áður fyrri ein- hvern tímann unnið með komm- únistum innan verkalýðsfélag- anna. Stóð nýlega í Alþýðublað- inu, að Sjálfstæðismenn hefðu hjálpað kommúnistum þar til valda 1942. Sú sagnfræði hvílir á fullkomnum misskilningi. Sá, sem þá var drýgstur í hjálpinni við kommúnista, var einmitt Her- rnann Jónasson. Bandalagið var að vísu eklci jafn opinbert þá og nú, en allir, er þessa atburði muna, vita, að það voru gerðar- dómslögin og klofningur lýðræðis sinna út af þeim, sem leiddi til sigurvinninga kommúnista á ár- inu 1942. Sjálfstæðismenn telja sig ekki undan ábyrgð á gerðar- dómslögunum. En þeir sáu skjót- lega að þar hafði verið gerð ein mesta skyssa í íslenzkum stjórn- málum á þessari öld. Hermann Jónassen telur þá lagasetningu hins vegar enn í dag sér til hins mesta hróss. Enda hefur hún ásamt eymdarstjórn Hermanns á árunum 1934 til 1939 reynzt helzti aflvaki kommúnista hér á landi. ^orysta Mermanns Giiomundssonar Hin imyndaða samvinna Sjálf- stæðismanna og kommúnista inn- an verkalýðsfélaganna var af allt öðrum toga spunnin og löngu fyrr. Á.stæðan var sú, að 1930 hafði verið sett í lög Alþýðusambands- ins, að kjörgengi á Alþýðusam- bandsþing skyldu engir aðrir Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.