Morgunblaðið - 25.03.1958, Qupperneq 1
20 síður
Atlas-flugskeyfiÖ
Mynd þessi af Atlas-flugskeytinu bandaríska var tekin fyrir
nokkru vestur á Canaveralhöfða í Flórída. Þessari risavöxnu
eldflaug er hægt að skjóta heimsálfa milli, yfir þver úthöfin.
Flugskeytið er um 25 metrar á hæð og sjást stærðarhlutföllin
af hermönnunum innan í hringnum neðarlega til hægri. Sex
eldflaugum af þessari tegund hefur verið skotið frá Canaveral-
höfða, þar af hafa heppnazt tvær tilraunir.
sjóflugvél getur sjórinn alltaf
tekið við og því ekki talin eins
mikil hætta samfara þessum til-
raunum í sjóflugvél.
Bandaríkjamenn vilja hraða
tilraunum sínum með kjarnorku-
hreyfla fyrir flugvélar. Verði
Princess-flugbátarnir tiltækir er
talið að það myndi flýta verkinu
um mörg ár. Flugvélar af þeirri
tegund vega um 140 smálestir,
en vænghaf þeirra er rúmir 70
metrar.
'ldarveftíð
jregzt
BJÖRGVIN, 24. marz — Norska
síldarútvegsnefndin skýrir frá
því að fram að helginni hafi ver-
ið landað í Vestur-Noregi 1,1
milljón hektólítra af vorsíld og
3,6 millj. hektólítra af vetrar-
síld.
í fyrra á sama tíma hafði ver-
ið landað 2,7 millj hektólitra
af vorsíld og 8,4 millj. hektólítra
af vetrarsíld.
Þessar tölur sýna þá ömurlegu
staðreynd, að síldarvertíðin
norska hefur brugðizt stórkost-
lega og er það hið mesta áfall
fyrir norskan sjávarútveg og at-
vinnulíf í heild. —NTB.
Er Feisal krónprins, fylgismaður
Nassers, að taka völd í Arabíu?
Gamlir risaflugbáfar
Dreta flýta tilraunum
Bandaríkjamanna með
kjarnorkubreyfla
Óljósar fregnir af stjórnarbreytingum
K.AIRO OG BEIRUT, 24. marz. — Einkaskeyti frá Reuter. —
Egypzk dagblöð staðhæfa í dag, að raunveruleg valdaskipti hafi
orðið á sunnudaginn í Saudi Arabíu, þegar Saud konungur gaf
út tilskipun, sem eykur mjög völd bróður hans, Feisals krón-
prins, en hann telja egypzku blöðin mjög vinveittan Nasser.
Feisal krónprms gegndi áður embætti forsætisráðherra og utan-
rikisráðherra, en á sunnudaginn var honum falið til viðbótar að
gegna embættum innanríkis- og efnahagsmálaráðherra. Segir i
tilkynningu Sauds konungs um þessar stjórnarbreytingar, að
þær séu gerðar til þess að styrkja stjórnina.
Ósamlyndi bræðra
Blöðin í Kairó sögðu í síðustu
viku frá ósamlyndi milli þeirra
bræðra Sauds og Feisals og var
þá m. a. greint frá því að Feisal
krónprins væri í stofufangelsi.
Egyptar hafa að undanförnu
ráðizt harðlega á Saud Araba-
konung og er þess skemmzt að
minnast, að hann var op-
inberlega sakaður um að
bjóða sýrlenzka herforingjan-
um Abdel Serraj fé ef hann vildi
myrða Nasser Egyptalandsfor-
seta og koma í veg fyrir samein-
ingu Sýrlands og Egyptalands.
Þýðing atburðanna óljós
Sendiráð Araba í Bagdad birti
tilkynningu um stjórnarbreyt-
ingar þessar og lét fylgja með
þá yfirlýsingu, að þetta sýndi að
fullt samkomulag og vinátta
væri milli bræðranna.
Dagblöð í Lebanon, sem fylgja
Nasser að málum segja að stjórn-
arbreytingar þessar þýði í raun-
inni að Saud konungur sé búinn
að leggja niður völd. Hlutlaus
blöð í Lebanon segja að Feisal
krónprins sé fremur vinveittur
Nasser. Þau benda hins vegar á
það, að alls óvíst sé að áhrif
Feisals hafi vaxið fyrir þessar
breytingar. Hann hafi að undan-
förnu haft lítil völd, þótt hann
bæri titil forsætis- og utanríkis-
ráðherra. Vel megi vera að valda
aukning hans nú sé aðeins á yfir-
borðinu.
Hammarskjöld
í IHoskvu
MOSKVU, 24. marz — Hammar-
skjöld framkvæmdastjóri S. Þ.
er kommn til Moskvu og hóf
hann í dag viðræður við forustu-
menn Sovétríkjanna. Hann sat
lengi dags á fundi með Krúsjeff
og er álitið að umræðuefnið hafi
verið um möguleika á fundi
æðstu manna stórveldanna.
—Reuter.
Olíuvinnsla haiin að
nýju á MiS-Súmötru
SINGAPORE, 24. marz—Ríkis
stjórnin í Djakarta tilkynnti
í dag, að hún hefði nú allt
olíusvæðið á Mið-Súmötru,
kringum Pakan Bahru á valdi
sinu. Mun olíuvinnsla nú hefj-
ast á ný og verður olíuskipu.n
heimilt að sigla upp fljótin til
að taka farm.
Innanríkisráðherra uppreisn
arstjórnarinnar, Hutabarat
herforingi, talaði í útvarpið í
Padang í dag og skýrði frá
hryðjuverkum, sem hermenn
Djakartastjórnarinnar hefðu
unnið. Sagði hann, að þegar
hópur uppreisnarherforingja
kom til viðræðna við innrás-
arherforingja stjórnarinnar á
Austur-Súmötru hafi þeim
verið heitið griðum.
Þau grið voru rofin, sagði
Hutabarat, og voru uppreisn-
arherforingjarnir, 19 talsins,
teknir og skornir á háls.
Útvarpsstöð uppreisnar-
manna segir að tveimur her-
skipum Djakartastjórnarinn-
ar hafi verið sökkt, en yfir-
maðiur Djakartaflotans ber
það til baka. —Reuter.
Ein síðasta myndin sem tckin var af hinni hamingjusömu f jöl-
skyldu Mike Todd, Elísabeth Taylor og barni þeirra, skömmu
áður en Mike lagði upp í síðustu óhappa-flugferðina.
Dularfull sprenging í flug-
vél og Mike Todd fórst
HINN heimsfrægi bandaríski
kvikmyndaframleiðandi, Mike
Todd, fórst seinni hluta laugar-
dags s. 1. í flugslysi yfir Nýju
Mexikó í Bandaríkjunum. Hann
var á ferð með einkaflugvél sinni
frá Los Angeles til New York.
Slysið varð með dularfullum
hætti. Hafði flugmaðurinn radíó-
samband við flugumferðarstjórn-
ina á Grants-flugvellinum í Nýju
Mexíkó og bað leyfis til að mega
hækka flugið úr 3300 metrum
í 3900 metra, þar sem ísingar
hefði gætt á vængjum. Umferð-
arstjórnin veitti leyfið, og heyrði
ekki meira frá fiugvélinni.
En rétt á eftir sáu menn frá
flugturninum á Grant skyndi-
legan blossa úti við sjóndeildar-
hring. Var lítil flugvél þegar
send upp til að kanna hvernig á
þessum glampa stæði. Flugmað-
ur hennar tilkynnti eftir skamma
stund, að hann sæi brennandi
flugvélarflak niðri í dalskorn-
ingi. Fiugvélin var að mestu
brunnin, aðeins vængbroddar og
stél eftir. Með henni fórust tveir
Frh á bis. 19.
LONDON, 24. marz — í fjögur
ár hefur brezki flugbáturinn
Princess, stærsta flugvél í heimi,
legið ónotaður í flugskála á eynni
Wight við suðurströnd Englands.
Nú benda allar líkur til þess að
hann komi í góðar þarfir í til-
raunum með' kjarnorkuhreyfla
fyrir flugvélar.
í dag tilkynnti stjórn Samnders
Roe-flugvélaverksmiðjanna á
Wight, að fulltrúar fyrirtækisins
liefðu rætt við bandarísk hern-
aðaryfirvöld um notkun Princess
flugbátsins við slíkar tilraunir.
Flugbátar úreltir
Brezka birgðamálaráðuneytið
gerði árið 1946 samninga við
flugvélaverksmiðjur Saunders
Roe ,um smiði á þrenxur risa-
stórum flugbátum, sem hlutu
tegundarheitið Princess. Hlutar í
þessar þrjár risaflugvélar voru
smíðaðir, en aðeins einni þeirra
var lokið og flugtilraunir gerðar
með hana 1952. Þegar þar var
komið sögu, hafði þróunin gert
flugbátana úrelta. Landflugvélar
urðu allsráðandi. Risaflugbátur-
inn og hinir ósamsettu hlutar í
systurflugvélar hans var allt sett
í geymslu.
En nú virðist loks sem Princess
flugbátunnn muni gegna þýðing-
armiklu hlutverki. Það er tvennt
sem gerir hann hagkvæman til
tilrauna með kjarnorkuhreyfla.
í fyrsta lagi að hann getur borið
mikið hlass, en atómhreyflar í
flugvélar munu vega tugi tonna.
í öðru lagi þykir heppilegt að
nota sjóflugvél til tilraunanna.
Hættan er of mikil með land-
flugvél, — ef flugtak hjá henni
misheppnast getur það valdið
sprengingu á flugbraut og dreif-
ingu geislavirkra efna, yfir stórt
landssvæði.
Þótt illa tækist flugtak hjá