Morgunblaðið - 25.03.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 25.03.1958, Blaðsíða 8
8 MORCTJNBLAÐ1Ð Þriðjudagur 25. marz 1958 Frú Anna Bjarnason fœdd T horsteinsson Leikfélag stúdenta / Duhlin: írskir leikþœftir Fædd 23. 9. ’73. — Dáin 18. 3. ’58. í DAG verður hún jarðsett í Gamla kirkjugarðinum. Hún var fædd á ísafirði, dóttir Þorsteins Thorsteinsson, kaupm. og alþingismanns, og konu hans. Amalie, f. Löwe, frá Kudköbing í Danmörku. Hingað til bæjarins fluttist hún 17 ára gömul, og giftist 2 árum seinna Niculai Bjarnason, kaup- manni. Þau hjón bjuggu fyrst í Kefla- vík, þar sem Niculai var verzl- unarstjóri fyrir Fischersverzlun, og höfðu þau þar umfangsmik.ið heimili. Til Reykjavíkur fluttust þau árið 1900 og bjuggu þar lengst af, eða rúm 50 ár, að Suð- urgötu 5. Þau hjón eignuðust 4 börn: *Þorstein, kennara við Verzlunar- skólann, Hjálmar, bankaritara, Gunnar, skólastjóra Vélskólans og Jóhönnu, sem látin er fyrir 2 árum. Barnabörn þeirra eru 17 og barnabarnabörn 29. Margir munu sakna þess að eiga ekki lengur erindi upp á loft í Suðurgötu 5, en þar bjó frú Anna seinustu árin, eftir að hún fór að hafa minna um sig. Mann sinn missti hún fyrir 10 árum, en þá kom til hennar syst- ir hennar frú Ingibjörg Bjarnar- son, ekkja Sigfúsar Bjarnarson, konsúls frá ísafirði. Frú Ingi- björg lézt fyrir 3 árum. Eftir það bjó frú Anna ein í heimili. Gestkvæmt var þó alltaf hjá henni. Þangað komu börnin, barnabörn og barnabarnabörn, vinir og venzlafólk. Alltaf vorum við öll velkomin til hennar og öllum þótti okkur innilega vænt um hana, enda voru henni með- fæddir flestir þeir eiginleikar.- sem gera fólk aðlaðandi. — Hún var fríð kona og fyrirmannleg, hæversk og geðgóð og hafði skemmtilega kímnigáfu. Blómin hennar og fyrirkomulagið á heim ilinu báru vott um næma smekk- vísi. Fáir munu hafa umgengizt frú önnu, að nokkru ráði, án þess að taka eftir þeim eiginleikanum, sem mest prýddi hana, en það var hjálpsemi. Ef hún frétti að einhver vina hennar þarfnaðist einhvers, eða þurfti á hjálp að halda, var hennar fyrsta við- bragð ávallt að reyna óbeðin að bæta úr eftir beztu getu. Ekki fannst okkur, sem oftast komum til hennar, að frú Anna væri gömul kona, fyrr en sein- asta árið, þegar kraftarnir voru nærri þrotnir. Hún hafði svo mörg áhugamál og vinnugleðin entist henni þar til hún lagðist banaleguna. Oft undruðumst við kunningjar hennar, hve miklu hún gat afkastað, þótt hendurnar væru farnar að titra svo að hún hafði lítið vald á þeim. En hún var ekki vön að hlífa sér, eða láta dragast á langinn, það sem hún ætlaði sér að gera. Nú er hún fallin frá, en vinir hennar og venzlamenn munu ávallt minnast hennar með virð- ingu og þakklæti fyrir ríka sam- úð hennar með mönnum og mál- leysingjum. Hún var góð kona og göfug og öllum hugþekk, sem kynntust henni. Blessuð sé minning hennar. Frændkona. ★ ★ ★ ANDLÁTSFREGN 84 ára gam- allar konu, sem lifað hefur mis- jafna tíma og háð á stundum erfiða lífsbaráttu, þarf engum að koma á óvart. En samt mun það stór hópur fólks, þriggja kyn- slóða, sem lengi mun verða að átta sig á því að samverustund- irnar með mömmu, ömmu og langömmu í Suðurgötu, verða ei fleiri. Það hafa margir misst mikið við fráfall Önnu Bjarna- son í Suðurgötu 5. Hún var óvenjuleg kona um margt og kom það fram við fyrstu kynni. Hún var gáfuð kona og kunni á mörgu skil. Virðu- leiki hennar var mikill og stolt kona var hún. Hún kunm vel að gleðjast með glöðum og skapa kringum sig það andrúmsloft, sem ánægjulegast er að finna á hverju heimili. Myndarskap átti hún í ríkum mæli og kunni í því efni að gera mikið af litl- um efnum. Yndislegt heimili átti hún og þó umfram allt þægilegt og,aðlaðandi. Þess vegna var ætt ingjahópurinn stór sem að stað- aldri lagði leið sína til hennar, og þar fundu flestir til mikillar hlýju og innileika. En umhyggj- an fyrir afkomendum, börnum, barnabörnum og barnabarnabörn um svo og hjálpfýsin við alla er hjálpar þurftu voru ríkustu eig- inleikar hennar. Með öðrum orð- um var hún óvenjulega heilsteypt kona, gáfuð, virðuleg, dugleg, hörð og góð. Kynni okkar hófust fyrir 4 ár- um, þá er húri stóð á áttræðu, og var ekkja orðin. Kynnin voru ekki orðin löng er ég hafði fund- ið allaáðurnefndaeiginleika ífari hinnar öldnu konu. Af hverjum fundi við hana var eitthvað að læra. Líf hennar, góðleiki, kraft- ur, dugnaður og harka, er góð fyrirmynd hverjum. Þann arf gefur hún stórum ættingjahóp, sem nú syrgir að samverustund- irnar verða ekki fleiri, en hún er nú horfin til eiginmanns, dótt- ur, systra og jafnaldra sinna, sem áður höfðu kvatt jarðneskan heim. Heimkoma hennar til æðri heima verður án efa góð. Við- skilnaðurinn hérna megin var fagur. Til hinztu stundar var líf hennar helgað þeim er eftir lifðu. Hún er í dag kvödd hinztu kveðju. Ég flyt henni alúðarþökk fjölskyldu fninnar fyrir alla sýnda umhyggju og ástúð. A. St. Geít veður á Guðmundardag GJÖGRI, Strandasýslu, 20. marz. — Hér hefir verið þíða og stillur síðan á sunnudag, og þykir eldra fólkinu vænt um, að 16. marz skyldi vera svona góður. Þá var hinn svokallaði Guðmundardag- ur, og hefir eldra fólkið trúað, að vorið eigi að fara eftir þeim degi. Ef svo er, þá þurfum við ekki að kvíða vorinu í ár, því að sunnudaginn 16. marz var hér glaða sólskin og spegilsléttur sjór. Rauðmagaveiði hefir verið góð síðustu daganaj og sæmilegur afli á handfæri. Loðnan er komin og er hún í torfum. Er því mis- jafn afli hjá sjómönnum. Reki hefir verið heldur meiri hér á Ströndum í vetur en Tlndanfarna vetur, og hefir geysilega mikið rekið á Dröngum, en ekki hefir verið hægt að bjarga nærri öll- um þeim við, vegna þess hve miklir snjómóðar liggja í fjöru fram. — Regína. EINS og sagt hefur verið frá hér í blaðinu, er kominn hingað til bæjarins leikflokkur írskra stú- denta, þeirra erinda að sýna hér og víðar nokkra einþáttunga eft- ir írsk öndvegisskáld. — Vér ís- lendingar fögnum af heilum hug komu þessara góðu gesta, sona og dætra þeirrar þjóðar, sem vér teljum til mikillar frændsemi við og höfum jafnan metið mikils. — Margt mun svipað í fari íra og íslendinga, svo sem þjóðtrú þeirra og þjóðsagnir benda til og báðar hafa þjóðirnar háð til sig- urs langvinna og örðuga baráttu gegn erlendri kúgun og yfir- drottnun. — Því hafa íslendingar jafnan borið vinarhug til írsku þjóðarinnar og fylgzt af samúð og skilningi með baráttu henn- ar fyrir frelsi sínu, enda þótt samskipti þjóðanna hafi eigi ver- ið mikil til þessa. Á síðari árum hafa þó kynni milli þjóðanna glæðzt nokkuð fyrir áhrif góðra manna með báðum þjóðunum og er þess að vænta að koma hinna ungu gesta vorra nú eigi eftir að stuðla að enn nánari kynnum vorum og menningartengslum. Hinn írski leikflokkur hafði frumsýningu í Iðnó s. 1. fimmtu- dagskvöld fyrir þéttskipuðu húsi. Voru sýndir fjórir einþátt- ungar: Kossinn eftir Austin Clarke, Byltingin með tunglkom- unni (The Rising of the Moon) eftir Lady Gregory, Kötturinn og máninn, eftir W. B. Yeats, og Helreiðin (Riders to the Sea) eftir John M. Synge. — Austin Clarke er einn á lífi þessara skálda og er nú leiklistarráðu- nautur Abbey-leikhússins í Dubl- in. — Hinir höfundarnir allir voru um langt skeið, fyrir og eftir síðustu aldamót í allra fremstu röð írskra leikritahöf- unda, og Yeats hlaut á sínum tíma Nóbelsverðlaunin. Auk þess voru höfundar þessir miklir leiklistarfrömuðir og stofnendur hins víðkunna Abbey-leikhúss. Allir voru einþáttungarnir at- hyglisverðir, hver á sína vísu. — „Kossinn" fjallar á nokkuð sér- stæðan hátt um Pierrot og Columbinu. Er það gamla sagan um ástir og vonbrigði. — Efnið í „Byltingunni með tunglkom- unni“ er tekið úr frelsisbaráttu íra. Segir þar frá lýðræðissinna, sem sloppið hefur úr fangelsi, en tekst að vinna lögregluforingj- ann, sem handsamar hann til fylgis við málstað þjóðarinnar. — „Kötturinn og máninn“ er mjög sérkennilegur þáttur, í japönsk- um stíl, líkingafullur og gaman- samur á köflum, en undir niðri alvöruþrunginn og dulúðugur. „Helreiðin" eftir Synge er þó langveigamest þessara leikrita, enda er það einn frægasti ein- þáttungur, sem saminn hefur verið, þótt eigi sé hann mikill'að vöxtum. — Er þar lýst á áhrifa- ríkan hátt og af djúpum skiln- ingi og samúð hversdagslífi hins snauða almúgafólks í harðri baráttu þess við erfið og fá- breytileg lífskjör og hversu það með rósemi og undirgefni bregst við hinni miskunnarlausu ásókn dauðans, jafnvel þó að hann höggvi ótt og títt í sama knérunn. — „Michael has a clean burial in the far north, by grace of the Almighty God. Bartley will have a fine coffin out of jthe white boards, and a deep grave surely. What more can we want than that? No man at all can be living forever, and we must be satis- fied“, segir Maurya gamla yfir líki sjötta sonar síns. Það er geysisterk stemning i þessum einþáttungi og veldur því ekki sizt hversu náið er og FÉLAG ÍSLENZKRA RAF- VIRKJA hélt aðalfund sinn sl. laugardag, 22. þ. m. Á fundinum var lýst stjórnarkjöri, sem fram átti að fara að viðhafðri alls- herjaratkvæðagreiðslu, en þar sem aðeins einn listi kom fram, urðu trúnaðarmenn félagsins sjálfkjörnir. Stjórn félagsins og aðrar trúnaðarstöður, eru nú skip aðar sem hér segir: Félagsstjórn: Formaður: Óskar Hallgrímsson. Varaformaður: Auðunn Bergsveinsson. Ritari: Sveinn V. Lýðsson. Gjaldkeri: Magnús K. Geirsson. Aðstoðar- gjaldkeri: Kristinn K. Ólafsson. Varastjórn: Sigurður Sigurjóns- son og Kristján Benediktsson. Trúnaðarmannaráð: Einar Ein- arsson, Kristján J. Bjarnason, Stefán Jónsson og Marteinn P Kristinsson. Varamenn:® Gunn- laugur Þórarinsson, Pétur J. Arnason, Guðjón Jónsson og Ás- geir Sigurðsson. Stjórn Styrktarsjóðs: Formað- ur: Óskar Hallgrímsson. Ritari: Páll J. Pálsson. Gjaldkeri: Óskar Guðmundsson. Varamenn: Ás- laugur Bj arnason og Guðmund- ur Björgvinsson. Stjórn Fast- eignasjóðs: Þorsteinn Sveinsson, Kristján Benediktsson og Magnús K. Geirsson. Endurskoðendur: Þorsteinn Sveinsson, Ragnar Stefánsson og til vara Matthías Matthíasson. Á aðalfundinum flutti formað- ur félagsins, Óskar Haligrímsson, skýrslu um starfsemi þess á liðnu starfsári, sem var mjög fjölþætt. Stærsta viðfangsefnið var bygg- ing félagsheimilis sem félagið hefur staðið að ásamt Múrara- seiðmagnað sambandið milli efnis leiksins og málsins, sem hljómar eins og þungur undirleikur við hinn mikla .harmleik á þessu fá- tæklega heimili. Leiksýning þessi var hinum ungu leikendum til mikils sóma. Að visu leyndi sér ekki að hér voru „amatörar" en ekki þjálf- aðir atvinnuleikarar að verki, en þó fóru leikendur yfirleitt vel með hlutverk sín, af skilningi og góðri innlifun og hreyfðu sig eðlilega og frjálslega á sviðinu. — Einna athyglisverðastur þótti mér leikur Patricks Mac Entee, en hann fór með hlutverk í tveim ur þáttunum og Ann O’Dwyer í hlutverki gömlu konunnar í „Hel reið“. Reyndar fóru allir i þeim þætti vel með hlutverK sín. Leikhúsgestir þökkuðu að leiks lokum hinum ungu leikendum góðan leik og ánægjulega kvöld- stund, með mörgum „framköllun um“ og dynjandi lófataki. — Vil ég að lokum þakka þeim fyrir- komuna í von um að við fáum í náinni framtíð að sjá fleiri írska listamenn á íslenzku leik- sviði. félagi Reykjavíkur. Verður fé- lagsheimilið tekið til fullra nota á yfirstandandi ári. Gjaldkeri fé- lagsins, Magnús K. Geirsson, las og skýrði reikninga félagsins og gerði grein fyrir fjárhag þess. Fjárhagur félagsins er góður. — Skuldlausar eignir nema nú kr. 988.386.52. Eignaaukning á árinu hefir orðið kr. 222.657.72. Félagsmenn voru um sl. ára- mót 358 og skiptast eftir búsetu þannig: Reykjavík, Kópavogskaupstað- ur og. Seltjarnarnes: 280 (271 ár- ið áður). Utan þessara staða 78 (84 árið áður). Við nám í rafvirkjun og raf- vélavirkjun á öllu landinu eru nú 167 nemendur. Frá 1950 til 1957, að báðum árum meðtöldum, hafa verið staðfestir námssamn- ingar við 197 nemendur í Reykja- vík, í þessum iðngreinum og vart færri en 80—90 utan Reykjavík- ur, þannig að alls munu nemend- ur á þessu tímabili hafa verið um 300 talsins. Sérstök félagsdeild starfar á Akureyri og eru félagar þar 21. Formaður deildarinnar þar er Ingvi R. Jóhannsson. (Frá Fél. ísl. rafvirkja). Pyndingar Frafeka PARÍS. — í Alsír voru 495 íransk 'ir hermenn dæmdir til refsingar fyrir misþyrmingu á óbreyttum borgurum í landinu 1957. Auk þess komu 363 hermenn fyrir herrétt, sakaðir um að beita valdi sínu á ólöglegan hátt. Meðal hinna síðast nefndu eru 30 liðs- foringjar. Sigurffur Grímsson. Sfjárn Félags íslenzkra rafvsrkja sjálfkjörin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.