Morgunblaðið - 25.03.1958, Blaðsíða 20
VEÐRID
A kaldi, léttskýjað, hiti nálægt
frostmarki.
71. tbl. — Þriðjudagur 25. marz 1958
Reykjavíkurflugvöllur
Sjá grein á bls. 11.
Dæmdur í sextán ára fangelsi
Hæstiréttur þyngdi dóminn ytir Sig-
urbirni I. Þorvaldssyni, er varð
stúlku að bana i Hveragerði
1 GÆRMORGUN kvað Hæsti-
réttur upp dóm í máli því, sem
ákæruvaldið höfðaði gegn Sigur
birni Inga Þorvaldssyni, er í
ársbyrjun 1957 réði ungri stúlku
bana í Garðyrkjuskóla ríkisins í
Ölfusi. Var Sigurbjörn Ingi, sem
nú er 26 ára, dæmdur í 16 ára
fangelsi. Þyngdi Hæstiréttur
verulega dóminn, en í undirrétti
var sakborningur dæmdur í 12
ára fangelsi.
Dómur þessi í Hæstrétti er
hinn þyngsti, sem upp hefur ver
ið kveðinn síðan núgildandi
refsilög tóku gildi. Grein sú í
hegningarlögunum, sem verkn-
aður Inga varðar við, er svo-
hljóðandi: „Hver, sem sviptir
annan mann lífi, skal saeta fang-
elsi ekki skemur en 5 ár, eða
ævilangt".
í V. kafla um refsingar segir í
34. gr. að dæma megi menn i ævi
langt fangelsi eða um tilskilinn
tíma, og þá ekki skemur en 30
daga og ekki lengur en 16 ár.
Þess mun ekki dæmi síðan hegn
ingarlögin voru sett að sakborn-
ingur hafi verið dæmdur í ævi-
langt fangelsi.
í forsendum dóms Hæstarétt-
ar í máli þessu segir á þessa leið:
„Eftir uppsögu héraðsdóms
Fálki hremmir enn
önd á Tjörninni
FÁLKANUM, sem tók stokkönd
ina af Tjörhinni fyrir nokkru,
virðist hafa nú orðið það ljóst, að
ekki þarf mikið áræði til þess að
hremma bráð þar. í gærmorgun
um 8 leytið sá maður, sem vinn-
ur í Völundi, Franz Arason, stór-
an fálka koma fljúgandi utan af
Flóa inn yfir bæinn. Eftir nokkra
stund kom fálkinn aftur, og
virtist Franz hann þá taka sig
upp af Tjörninni. Fálkinn var
ekki tómhentur því í klónum
bafði hann stóra önd og tók nú
stefnuna út í Engey. Má ætla, að
hér sé um sama fálka að ræða og
hremmdi stokköndina, sem frá
var sagt fyrir nokkru.
hafa framhaldspróf verið háð í
málinu og vitni verið eiðfest
sem héraðsdómara hafði láðst að
láta vinna eið að vætti sínu.
Það er sannað, að ákærði
hleypti af ráðnum hug skoti úr
byssu á stúlkuna Conkoi'díu
Jónatansdóttur hinn 6. janúar
1957 í eldhúsi Garðyrkjuskóla
ríkisins að Reykjum í Ölfusi, en
eigi þykir verða staðhæft, að
hann hafi verið fullráðinn að
fremja verkið, fyrr en hann kom
inn í eldhúsið, þar sem stúlkan
var fyrir. ,
Conkordía lézt örskömmum
tíma síðar af afleiðingum skot-
sársins. Verknaður ákærða varð-
ar' við 211 gr. hegningarlaga nr.
19/1940, og þykir refsing hans
hæfilega ákveðin fangelsi 16 ár.
Ákvæði héraðsdóms um frá-
di'átt á vist ákærða í gæzluvarð-
haldi frá refsingu, um sviptingu
Brezkur togari enn
lekinn í landhelgi
FRÉTTARITARI Mbl. : Seyðis-
firði símaði í gær, að varðskipið
Þór hafi enn komið þangað í gær
með brezkan togara, sem kærður
er fyrir að hafa verið í land-
helgi. Hér er um að ræða Hull-
togarann Junella, skipstjóri
John F. Leighton.
Það var seint á laugardags-
kvöld, sem varðskipið kom að
hinum brezka togara við Lóns-
bugt milli Eystrahorns og Vestra
horns. Dimmt var orðið og
hvasst, hálfgerð slydda og
skyggni lélegt. í ratsjá varð-
skipsins kom í ljós, að togarinn
var um V2 sjómílu fyrir innan
línu. Vegna þess hversu skyggni
var slæmt, gátu varðskipsmenn
eigi greint hvort togarinn var að
veiðum þarna. Er þeir komu um
borð í togarann, kom í ljós, að
hann var með óbúlkuð veiðar-
færi og fiskur var á þilfari.
Leighton skipstjóri gerði ekki
athugasemdir við staðsetninguna,
en neitaði eindregið að hafa ver-
ið þarna að veiðum.
14 ára drengur
bjargar 10 ára
dreng
frá drukkmin
STYKKISHÓLMI, 24. marz.
Um hádegisbilið á laugardaginn
var 10 ára drengur. Snæbjörn
Jóhannsson að nafni, hætt koin-
inn, er hann féll í höfnina út af
hafskipabryggjunni. Var honum
bjargað af 14 ára dreng. Var
hann þá meðvitundariaus orðinn.
Tildrög slyssins voru þau, að
Snæbjörn litli var að hjóla á
reiðhjóli um hafskipaDryggjuna,
en úti á enda hennar mun hann
hafa rekið hjólið utan i og misst
jafnvægið. — Vai hann þá
svo framarlega á brye._,junni, að
hann féll fram aí i ofan
í höfnina, en lágsja. . Þetta
var mikið fall og . . j hlaut
drengurinn allmhv,.... .vurð á
höfuðið. Hann var n.uu^itundar-
laus er á slysstaö Dar 14 ára
dreng, Jakob Sigurbjörnsson.
Kastaði hann sér þegar til sunds
réttinda og málskostnað í héraði
eiga að vera óröskuð.
Ákærði greiði allan áfrýjunar-
kostnað sakarinnar, þar sem tal-
in málflutningslaun sækjanda og
verjanda í Hæstarétti, kr. 6000.00
til hvers.
Það athugast, að eigi verður
séð, að héraðsdómari hafi tekið
í sínar vörzlur skotvopn það, sem
ákærði framdi verknaðinn með“.
Byssuna, sem um er getið í
forsendum Hæstaréttardómsins,
fékk Sigurbjörn Ingi lánaða.
Eigandanum sagði hann að kálf
ur hefði fótbrotnað í fjósinu á
Garðyrkjuskólanum og bað um
að fá hana lánaða til þess að
aflífa kálfinn. Manninum þótti
skýringin eðlileg, lánaði Sigur-
birni byssuna svo og þrjú skot
i hana.
23 Hienn gengu
í Óðin
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ ÓÐINN
hélt félagsfund s. 1. sunnudag í
Sjálfstæðishúsinu. í upphafi fund
arins voru lesnar upp inntöku-
beiðnir frá 23 mönnum og voru
þær allar samþykktir.
Rætt var um félagsmál og voru
umræður hinar fjörugustu. Óð-
inn er tuttugu ára 29. þ. m. og
gefur féalgið út afmælisrit í til-
efni þes?. Auk þess verður af-
mælisins minnzt með hófi n. k.
föstudag.
Eins og skýrt hefir verið frá í fréttum, laskaðist stýri strand-
feröaskipsins Esju í höfninni á Patreksfirði fyrir nokkru. En
þótt stýrið yrði ónothæft, komst Esja hjálparlaust hingað til
Reykjavíkur. Þar sem skipið er búið tveimur skrúfum, er í
slíkum neyðartilfellum hægt aó stjórna því að allverulegu leyti
með skrúfunum, sem þá er beitt sem stýri. — Myndin sýnir
hversu stýri skipsins var illa farið, þegar Esja var tekin upp
í slipp hér í Reykjavík.
2 leiðir til bjorgunar norska sjómanninum:
Með lítilli þyrilvœngju
Russe/ eða
Meistaravík
frá HMS
stórri frá
Jakob Sigurbjörnsson
og gat bjargað drengnum og
dregið hann að landi. Þykir
mönnum Jakob hafa sýnt hið
mesta snarræði og karlmennsku.
Svo var af Snæbirni dregið, að
það tók nokkurn tíma að koma
honum aftur til meðvitundar.
Foreldrar Jakobs eru þau Soffía
Pálsdóttir og Sigurbjörn Krist-
jánsson sjómaður. —Á.H.
HAFNARFIRÐI, — Netjabátarn-
ir hafa fiskað fremur vel síðustu
daga. Sérstaklega hefir þó einn
þeirra, Hafnfirðingur, aflað vel.
S. 1. laugardag kom hann t. d.
með 40 tonn, sem er það mesta,
er einn bátur hefur fengið á ver-
tíðinni. Annars hefur hann oft
fengið 15 og upp í 20 tonn.
Ágúst kom af veiðum á sunnu-
daginn og var með karfa. Hinir
togararnir eru allir á veiðum.
—G. E.
Bókaupphoð í dag
í dag heldur Sigurður Benedikts
son bókauppboð í litla salnum í
Sjálfstæðishúsinu. Seldar verða
100 bækur, þ. á. m. Biblíumyndá
bók, gefin út í Skálholti 1695,
(„Schemato^raphia Sacra“),
ýmsar fáséðar rímur, m. a. eftir
Snorra Björnsson, Sigurð Breið-
fjörð. Árna Sigurðsson, Davíð
Scheving og Hannes Bjarnason,
Ijóðmæli og leikrit Sigurðar Pét-
urssonar, þrjár af elztu bókum
Halldórs Kiljan og skemmtisaga
eftir Þorlák Ó. Johnsen kaup-
mann: Mínir vinir, gefin út í
Reykjavík 1879. Einnig verður
ferðabók Þorvalds Thoroddsen
seld, ásamt Lýsingu Islands og
Landfræðisögunni. — Bækurnar
eru til sýnis kl. 10—4 í dag, en
uppboðið hefst kl. 5.
Árekstur í gær
KL. LIÐLEGA tólf á hádegi í
gær, ók maður nokkur
eftir Miklubrautinni og sveigði
inn á Lönguhlíð. Var mann
þá svo óheppinn að rekast þar
utan í vörubíl. Bíllinn hans
skemmdist nokkúð við þetta. Er
sennilegt talið að maðurinn á
vörubílnum hafi ekki orðið
þessa var, því að hann ók áfram
leiðar sinnar, en manninum tóKst
ekki að greina númer hans. Vill
rannsóknarlögreglan biðja vöru-
bílstjóra þann, sem hér á hlut að
máli, að gefa sig ftam.
í GÆR hafði enn ekki tekizt að
bjarga hinum slasaða sjómanni
af norska selveiðiskipinu Drotl í
Dumbshafi. Það var á fimmtu-
daginn sem hjálparbeiðni barst
fyrst frá skipinu, en þegar flug-
vélar frá varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli náðu radíósam-
bandi við hið norska skip á sunnu
dag, hélt skipstjórinn fast við
þá ósk sina að hinn slasaði mað-
ur yrði fluttur frá skipinu ef
hægt væri. Hann væri mjög illa
fótbrotinn og liði þjáningar.
Nú er aðstaðan slík, að sel-
veiðiskipið Drott er fast í ísnum
nærri 500 km norður af íslandi
og nærri 100 km undan austur-
strönd Grænlands. Er nú unnið
að því að undirbúa úr tveimur
áttum björgun sjómannsins.
Brezka eftirlitsskipið Russel og
norska eftirlitsskipið Draug mætt
ust í gær við ísröndina um 140
km frá selveiðiskipinu. Er það
of mikil vegalengd fyrir hina
litlu þyrilvængju sem er um borð
í HMS Russel. Hvorugt þessara
eftirlitsskipa er til þess fallið að
sigla um ís, en þær fréttir bár-
ust þó í gær, að með tilliti til
þess hve veður er stillt á þessum
slóðum muni skipstjórinn á HMS
Russel hafa í hyggju að sigla
nokkurn spöl inn í ísinn til að
stytta flugleiðina fyrir þyril-
vængjuna. í því skyni hafði sér-
stakur leiðsögumaður komið um
bórð í Russel frá norska viðgerð-
arskipinu Salvador, sem er á þess
um slóðum.
Máske eru þó meiri líkur
til þess, að aðrar björgunar-
aðgerðir heppnist, sem banda-
ríska varnarliðið á Keflavík-
urflugvelli er að framkvæma.
í gær flutti risastór Globe-
master flugvél þyrilvængju
frá Keflavíkurflugvelli til
flugvallarins í Meistaravík í
Grænlandi. Þessi þyrilvængja
er miklum mun stærri og þol
meiri heldur en litla krílið
sem sett var um borð í HMS
Russei. Var þess vænzt að
þessi stóra þyrilvængja yrði
samsett og tilbúin að leggja
af stað í björgunarflug kl. 10
árdegis í dag. Þegar þyril-
vængjan leggur af stað munu
Skymaster-björgunarflugvélar
af Keflavíkurflugvelli fylgj-
ast með henni og vísa henni
leiðina. Mun vera um 150 km
leið frá Meistaravík til hins
norska selveiðara.
I skeyti frá NTB segir að hin
litla þyrilvængja um borð í
HMS Russel hafi snemma á
mánudagsmorgun gert tilraun
til að sækja hinn slasaða
norska sjómann, Bent Arnt-
zen. Þyrilvængjan hafi þó orð-
ið að gefast upp, vegna þess
að vegalengdin frá ísröndinni
til selveiðiskipsins Drott var
of löng fyrir þol þyrilvængj-
unnar, enda liggur Drott 74
sjómílur inni í ísnium en þyril-
vængjan getur aðeins flogið
100 milna leið í áfanga.
Ný framhaldssaga
í DAG hefst í blaðinu ný fram-
haldssaga, sem nefnist „TKX
svarar ekki“. Hún er eftir
franska blaðamanninn og rithöf-
undinn Jacques Remy og fjallar
á skemmtilegan og spennandi
hátt um það hvernig nauðstaddri
skipshöfn á íshafinu, norður af
íslandi, er komið til hjálpar af
fórnfýsni og mannúð margra
einstaklinga með aðstoð nútíma
tækni. Hér var sýnd ekki alls
fyrir löngu kvikmynd sem
nefndist „Neyðarkall af hafi“.
Sú mynd var í meginatriðum
byggð á sögu þessari, enda þótt
víða hafi verið vikið frá þræði
hennar, eins og títt er í kvik-
myndum. Sú nýbreytni verður
höfð við birtingu þessarar sögu,
að myndir úr kvikmyndinni
verða birtar með sögunni — og
er að vænta að slíkt verði til
þess að auka ánægjuna af lestr-
inum.