Morgunblaðið - 25.03.1958, Side 19
Þriðjudagur 25. marz 1958
MORGUNBLAÐtÐ
19
Tito fagnar sigri í kosn-
ingum án keppinauta
BELGRAD, 24. marz (Reuter) —
Júgóslavnesk yfirvöld segja, að
kosningarnar sem fram fóru uih
helgina hafi verið sigur fyrir
Tito forseta og kommúnistaflokk-
inn. Segja þau að fylgi flokks-
ins hafi verið meira en við síð-
ustu kosningar árið 1953.
Tilkynnt er að 90% hinna 11
milljón kosningabæru manna
hafi nú neytt atkvæðisréttar síns,
en 89% í síðustu kosningum.
— Mike Todd
Frh. af bls. 1.
menn auk Mike Todds, kvik-
myndahöfundurinn Art Cohn og
flugmaður vélarinnar.
Mike Todd var giftur kvik-
myndaleikkonunni Elisabeth
Taylor. Ætlunin hafði verið í
fyrstu, að hún kæmi með honum
í þessa ferð. En hún hætti við
það á síðustu slundu vegna las-
leika.
★
Hinn látni kvikmyndafram-
leiðandi er mörgum harm-
dauði. Todd var talinn mikill
töframaður og svo auðugur, að
sagt var að hann gæti veitt
sér allt í þessum heimi. Fræg-
astur hefur hann orðið fyrir
hinar þrívíðm Cinerama kvik-
myndatökur sínar, en auk þess
kostaði hann upptöku á kvik-
myndum sem hlutu frægð um
allan heim. Nýlega lét hann
hefja tökni á stórkostlegri kvik
mynd um Don Quixote. í titil-
hlutverki átti að vera franski
leikarinn Fernandel. Er sagt
að Fernandel hafi verið sem
bugaður maður er hann frétti
lát Mike Todds. — Nú verður
kvikmyndin um Don Quixote
aldrei búin til, því að enginn
gat gert hana nema Mike Todd
sagði Fernandel.
Félagslíl
Iþróttafélag Kvenna
Munið mynda- og kaffikvdldið
í kvöld_kl. 8,30 í Aðalstræti 12.
Víkingar, 4. og 5. fl.
Æfing á Valsvelli þriðjudag,
kl. 6,45, — Þjálfari.
Víkingar M.-, 2., 3. fl.
Æfingar verða fyrst um sinn
á þriðjud. kl. 7. Fimmtud. kl. 7 á
Valsvelli. —
Knattspyrnunefnd.
Kjósendur höfðu um fátt að
velja, því að enginn má bjóða
sig fram nema með samþykki
kommúnistaflokksins. — Kosinn
var 301 fulltrúi á sambands-
þingið í Belgrad. í nær öllum
kjördæmum var aðeins einn í
kjöri. f sex kjördæmum mátti
velja á milli tveggja. Þá skyldi
einnig kjósa 810 fulltrúa á héraðs-
þing og voru 884 í framboði um
þau sæti.
Af þessu sést að í fæstum kjör-
dæmum var um nokkuð að velja.
Kjósendur gátu þó lýst van-
trausti á stjórnina með því að
skila auðum atkvæðaseðlum eða
ógilda þá. Segja júgóslavnesk
yfirvöld að yfirleitt hafi 5% at-
kvæða verið auð og ógild. í nokkr
um sveitum Slóveníu var sú hlut-
fallstala þó hærri, allt upp í 15%.
Tito náði sjálfur kosningu í
Cukarica kjördæmi í Belgrad.
Enginn mótframbjóðandi yar. —
37.570 atkvæði voru greidd eða
99,3%. Þar af voru aðeins 246
atkvæðaseðlar auðir og ógildir.
Tvö innbrot um
helgina
TVÖ innbrot voru framin um
relgina hér í bænum. Hið fyrra
aðfaranótt laugardags, er brotin
var rúða í sýningarglugga verzl-
unarinnar Optiks, Hafnarstræii
18. Þaðan var stolið tveimur
ágætum Jenar-sjónaukum og
einnig Exa-ljósmyndavél. Var
ekkert af þessu í töskum. Er ekki
útilokað að þjófarnir hafi reynt
að koma þessu þýfi í verð.
Hitt innbrotið var framið í
Skoda-bílaverkstæðið, þar sem
stolið var rafknúinni smergil-
skífu.
Páskaferð í QRÆFI
Ferð’askrifstofa
PÁLS
ARASONAR
Hafnarstræti 8.
Sími 17641.
FÉLAG ÍSLEZRA EINSÖNGVARA
í Austurbæjarbóói í kvöld kl. 11,30.
Næsta sýning annað kvöld miðvikudag
kl. 11,30.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíó, Bókaverzl. Sig-
fúsar Eymundssonar og Hreyfilsbúðinni frá kl. 2.
VALUR. — Páskadvöl
Þeir félagar, sem hafa í
hyggju að dveljast í skálanum yf-
ir Páskana, eru minntir á, að sök
um mikillar aðsóknar er nauðsyn-
legt að skrifa sig á lista sem ligg
ur frammi að Hlíðarenda, fyrir
föstudagskvöld.
Skíðanefndin.
Skíðafólk!
Skíðaferðir verða hér eftir á
hverju kvöldi kl. 8,30 að Skíða-
skálanum í Hveradölum. Afgr.
hjá BSR, sími 11720. Brekkan er
upplýst og lyftan í gangi.
___________________Skíðafclögiit.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem glöddu mig á átt-
ræðisafmæli mínu 15. marz sl. með höfðinglegum gjöf-
um og heillaóskum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Halldórsdóttir,
frá Langagerði.
Flugbjörgunarsveitin
Æfing í kvöld kl. 8,30 í
heimilinu. — Stjórnin.
VaLs-
ALLTAF
EITTHVAÐ
NÝTT
30 TEGUNDIR AF
K R Y D D I
FAST í
Bæjarskrifstofurnar
Austurstræti 16 verða lokaðar frá
hádegi í dag þriðjudaginn 25. marz
vegna jarðarfaratr.
VALDIMAR BRYNJÓLFSSON
frá Sóleyjarbakka
andaðist 24. þ.m. í Sjúkrahúsi Hvítabandsins.
Börn og tengdabörn.
Jarðarför mannsins míns
SIGURÐAR BJÖRNSSONAR
fiskimatsmanns, fer fram miðvikudaginn 26. þ.m. kl. 13.30
frá heimili hans Bárugötu 23, Akranesi. Blóm afþökkuð,
en þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús
Akraness.
Elísabet Jónsdóttir.
Þökkum auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát
og jarðarför móður okkar
HELGU GUÐMUNDSDÓTTUR
Börn og tengdabörn.
ÍWI f#1 j
Sonur minn
MATTHÍAS
lézt að Vífilsstaðahæli að morgni 23. þ.m.
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Ólafur H. Matthíasson.
Móðursystir okkar
SIGRlÐUR RÓSA PÁLSDÓTTIR
Nýlendugötu 7, andaðist í Landakotsspítalanum 23. marz.
Torfi Ölafsson, Steinunn Ólafsdóttir,
Ingiberg Ólafsson, Ólafur Ölafsson.
Móðir okkar og tengdamóðir
ÞURlÐUR BJARNADÖTTIR
andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu aðfaranótt sunnudagsins
23. þ.m.
Jóhannes Heigason, Eirný Guðlaugsdóttir,
Margrét Helgadóttir, Hersveinn Þorsteinsson,
Ellert Helgason, Guðleif Sveinsdóttir,
Bjarnveig Helgadóttir, Vilhjálmur Björnsson,
Lovísa Helgadóttir, Magnús Pálsson.
Hjartkær eiginkona mín, og móðir okkar og tengdamóðir
STEFANÍA TH. BJARGMUNDSDÖTTIR
sem andaðist í sjúkrahúsinu Sólvangi mánud. 17. marz,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27.
marz kl. 2 e.h. Jarðarförinni verður útvarpað.
Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna.
Hallmundur Sumarliðason.
Útför litlu dóttur okkar
LINDU
sem andaðist 21. þ.m. fer fram frá Keflavíkurkirkju,
þriðjudaginn 25. marz klukkan 2 eftir hádegi.
Jóna Gunnarsdóttir,
Gunnar Kristjánsson.
Faðir okkar
ÞORBJÖRN JÓSEFSSON
sem andaðist miðvikudaginn 19. þ.m. verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju, miðvikudaginn 26. þ.m. kl. 3.15.
Blóm og kransar vinsamlega afbeðið.
Friðvin Þorbjörnsson,
Sigurður Þorbjörnsson,
Guðjón Þorbjörnsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug,
við andlát og útför
BJARNDlSAR BJARNADÓTTUR
Guðrún og Edward Cleaver
Inga Cleaver
Guðrún Pétursdóttir, Magnús Karl Pétursson
Pétur H. Magnússon.
Kærar þakkir til allra, sem auðsýndu vináttu og samúð
við fráfall og jarðarför
INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTUR
frá Skáleyjum.
Vandamenn.
Hjartanlegt þakklæti viljum við færa hinum mörgu,
nær og fjær, er sýndu okkur hálpsemi og hluttekningu
við fráfall og jarðarför konu minnar og móður okkar
MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR
Vesturgötu 61, er lézt í sjúkrahúsinu Sólheimum 12. marz
sl. Einkum viljum við þakka hjúkrunarkonunum í sjúkra-
húsinu fyrir alla umönnun þeirra. Sömuleiðis systur henn-
ar sem vakti allar nætur yfir henni með systurlegum kær-
leika. Ennfremur þökkum við blóm og skeyti send okkur
hér og þar að, utanlands og innan.
Axel R. Magnusen og börnin.
Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okk-
ur samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför foreldra
okkar
GUÐRÚNAR MAGNÚSDÓTTUR
og
SVERRIS SVERRISSONAR
húsasmíðameistara.
Guð blessi ykkur öll. —
Guðlaug Sverrisdóttir,
Gunnlaug Sverrisdóttir,
Sverrir Kr. Sverrisson.