Morgunblaðið - 11.04.1958, Síða 8
8
MORGVNBLAÐIÐ
Fostudagur 11. apríl 1958
Hafnarfjörður
Unglinga eða eldri menn vantar til blaðburðar í
Kinnarnar. Hátt kaup. Talið við afgreiðsluna strax,
Strandgötu 29.
Góður rennismiður
óskast, sem getur tekið að sér verkstjórn á renni-
verkstæði.
Vélsmiðjan Björg h.f.
Sími 1-71-84 og 1-49-65.
Harviðar
- Þiljur
Nýkomið:
Harðviðar-þiljur
Novopan: 12-15-19-22 mm
Birkikrossviður
Parana Pine krossviður
6 mm.
Kikarkrossviður
Harðtex olíusoðið y8“
Texplötur y2“
I
IUænusóttar-
bólusetning
■ Reykjavík
Mænusóttarbólusetningin heldutr áfram
í Heilsuverndarstöðinni.
Opið aðeins:
Þriðjudaga kl. 4—7 e.h.
og
Iaugardaga kl. 9—10 f.h.
Heilsuverndarstöð Reykjavikur
Hjólbarðar
560x15
640x15
750x20
825x20
P. Stefánsson hf.
Hverfisgötu 103
Sími 13450.
Geir Geirsson
Minningarorð
VORIÐ er í nánd og skammt að
bíða, að líf færist í allan gróður.
Á sama hátt birtir í sálum okkar
mannanna, þegar myrkur skamm
degisins þokar fyrir hækkandi
sól og vissunni um gleðilegt sum-
ar.
En skyndilega myrkvast og
skammdegið ríkir á ný. Fjórir
itt að sætta sig við, að hann, sem
átti svo stóra framtíðardrauma,
sé nú horfinn yfir landamærin
miklu.
Geir var glæsimenni og hreif
alla með ljúfmennsku sinni, og
heilsteyptari persónuleika hef ég
ekki kynnzt. Ánægjulegast
fannst mér að ræða við hann um
það starf, sem hann ætlaði að
gera að ævistarfi sínu, flugið.
Hann gekk að flugnáminu af
mikilli alvöru og kostgæfni, enda
var þekking hans og hæfni eftir
því.
En nú er æviskeið hans skyndi-
lega á enda runnið. Ævi, sem
varð allt of stutt. Starfsdagurinn
var aðeins rétt að byrja.
Við hjónin þökkum honum
tryggð og vináttu og geymum
minninguna um góðan dreng.
Sárastur söknuður er þó kveð-
inn að eftirlifandi móður, sem
hann unni svo mjög. Eg sendi
henni og öðrum vandamönnum
hans mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Drottinn gefi dánum ró, hinum
líkn sem lifa.
Sigurjón Ingason.
Aðalfundur
Iðnaðarmannafél.
Hafnarfjarðar
HAFNARFIRÐI. — Iðnaðar-
mannafélagið hélt aðalfund sinn
fyrir nokkru. Var stjórn þess öll
endurkosin, en hana skipa þeir
Guðjón Magnússon, sem er for-
maður, Vigfús Sigurðsson ritari,
Einar Sigurðsson gjaldkeri, Þór-
oddur Hreinsson varaform. og
Gísli Guðmundsson fjármálarit-
ari.
Hér í Hafnarfirði var Iðnþing
fslendinga háð á sl. hausti og sá
iðnaðarmannafélagið um allan
undirbúning þingsins.
Á aðalfundinum var samþykkt
að stofna sjóð til að veita verð-
laun til þeirra nemenda Iðnskóla
Hafnarfjarðar, sem beztum náms
árangri ná. Er sjóðurinn að upp-
hæð 16 þús. kr., en verðlaun
verða veitt úr honum til þeirra
nemenda í 4. bekk, er hljóta að-
aleinkunnina 9 og þar yfir við
lokapróf. — Þá hefir félagið gef
ið út minningarspjöld til efling-
ar styrktarsjóði þess. — G.E.
Lækningastofa
glæsilegir menntamenn í blóma
lífsins eru horfnir af sjónarsviði
þessa lífs. Horfnir okkar dauð-
legu augum fyrir fullt og allt.
Kynni okkar Geirs Geirssonar
urðu ekki löng, en hann verður
mér samt ógleymanlegur, og erf-
Áróra Kristinsdótfir
minning
Fædd 19. ágúst 1918.
Dáin 3. apríl 1958.
ENGINN, sem kynntist henni
mun hafa getað verið ósnortinn
af persónuleik hennar, því svo
var hún sérstæð um margt, en
einmitt það mótaði hana svo, að
hún verður því minnisstæðari
fyrir.
Þess varð fljótt vart. að Áróra
var staðráðin í því að skapa sér
örugga framtíð upp á eigin spýt-
ur. Eftir það að hafa hlotið góða
undirstöðumenntun áður en hún
Garðlönd
Þeir, sem höfðu garðlönd hjá
niér í fyrra og óska eftir að
halda þeim, láti mig vita sem
fyrst. Get einnig bætt nokkr-
um við. —
ODDUR JÓNSSON
Fagradal, Sogamýri.
Sími 16223.
mín er flutt á Bergstaðasttræti 12A,
aeðstu hæð. —
Eyþór Gunnarsson, læknir.
Borðstofuhúsgögn
Nýkomnir smekklegir:
borðstofuskápar, borð og stólar
Hagkvæmir greiðsluskilmálar — Komið og skoðið
Husgagnaverzlun
Guðmundar Guðmundssonar
LAUGAVEG 166
Bann
við hundahaldi I Kópavogi
Samkvæmt ákvörðun heilbrigðissamþykktar fyrir
Kópavogskaupstað nr. 16. 15. febrúar 1958 er
hundahald bannað í lögsagnarumdæmi Kópavogs-
kaupstaðar.
Eftir 1. maí n.k. verða hundar drepnir hvar sem
til þeirra næst á almannafæri í Kópavogskaupstað,
I án frekari aðvörunar til eigenda.
, Lögreglustjórinn í Kópavogi,
8. apríl 1958.
SIGURGEIR JÓNSSON.
fór úr foreldrahúsum hélt hún
áfram menntun sinni, svo hún
gat tekizt á hendur vandasöm og
ábyrgðarmikil störf, en ábyrgðar
tilfinning og skyldurækni voru
sterkir þættir í skapgerð hennar
og mótuðu líf hennar til hinzta
dags.
Þessir góðu eiginleikar komu
sér ekki sízt vel er hún vakti
yfir fyrstu sporum Sigrúnar,
einkadóttur sinnar, sem nú, átta
ára gömul, sér á bak góðrar og
umhyggjusamrar móður.
Þrátt fyrir alla aðra nána að-
standendur Áróru, sem nú eiga
um sárt að binda, verður mér þó
einkum hugsað til dótturinnar
ungu, sem nú stendur andspænis
óráðri gátu lífs og dauða.
Þær mæðgur voru líkar um
margt, og dugur og ástríki góðrar
móður mun verða leiðarljós
ungu dótturinnar um ókomin ár,
þegar hún lítur til baka til
ánægjulegrar bernsku, sem
henni var búin.
Á komandi árum mun hún
horfa yfir hafið — til eilífðarinn-
ar, þar sem móðirin lifir.
Á kveðjustundum sem þessari
reikar hugurinn út yfir mörk
hins efniskennda — hann reikar
inn á lendur hins óáþreifanlega,
þar sem sönnustu verðmætin
geymast, þar sem lífsgátan mikla
er ráðin umfram það sem mann.
legt auga fær greint. Þar, handan
sjúkdóma og sorgar, vakir lífs-
magn óendanlegrar tilveru þess,
sem hefir sannast gildi þessa
heims og annars.
Á þessum mótum kveðjum við
ættingja og vini. Á þessum mót-
um þess skiljanlega og óskiljan-
lega kveðjum við þig, Áróra mín,
og við gleðjumst yfir því, mitt í
söknuðinum, að þangað hefir þú
með þér það eilífa, sem aldrei
deyr, en stefnir að auknum
þroska í ómælanleik eilífðarinn-
ar.
Hinrik Thorlaeius.