Morgunblaðið - 11.04.1958, Síða 10
10
MORCVISBL 4Ð1Ð
Föstudagur 11. apríl 1958
isttMiiMfr
Htg.: H.í. Arvakur, Reykjavlk.
Framkvæmdastjón: aigíus Jónsson.
Aðamtstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Einar Asmundsson.
Lesbók: Arni Ola, sími 33045
Auglýsingar: Arni Garðar Krxstmsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22480
AsKiiftargjalo kr 30.00 á mánuði ínnanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
SA ER ELDUR HEITASTUR
SÁ er eldur heitastur, er á
sjálfum brennur. Það
sannast átakanlega á
flokkum vinstri stjórnarinnar í
dag, ekki sízt kommúnistum og
Framsókn. Fyrir tveimur árum
sögðu kommúnistar þjóðinni að
ekkert væri auðveldara en að
ráða niðurlögum dýrtíðarinnar
og tryggja hallalausan rekstur
framleiðslutækjanna, ef þeir að-
eins fengju völdin og vinstri
stjórn yrði mynduð.
Fyrir um það bil einu og hálfu
ári síðan lýsti Framsóknarflokk-
urinn því einnig yfir að með því
að taka»kommúnista í ríkisstjórn
væri tryggt nauðsynlegt sam-
starf milli ríkisvaldsins og vinnu-
stéttanna og þar með samkomu-
lag um „nýjar leiðir“ og „var-
anleg úrræði“ til lausnar efna-
hagsmálunum. Efnahagsvanda-
málin væri aðeins hægt að leysa
með kommúnistum. Hins vegar
væri gersamlega ómögulegt að
leysa þau með JSjálfstæðis-
flokknum. Hann fengist ekki til
þess að taka þátt í hinnn „var-
anlegu úrræðum", sem Fram-
sókn hefði nú tryggt sér sam-
starf við kommúnista um.
I þessu sambandi má skjóta
því inn, að nokkrum mánuðum
áður en Framsóknarflokkurinn
komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri hægt að leysa neinn
vanda í efnahagsmálum nema
með kommúnistum hafði Ey-
steinn Jónsson lýst því yfir
frammi fyrir alþjóð í útvarps-
umræðum á Alþingi, að allir
erfiðleikar efnahagslífs okkar
væru kommúnistum að kenna.
Þeir hefðu með verkfallsbröltinu
árið 1955 kastað þjóðinni út í
nýtt kapphlaup milli kaupgjalds
og verðlags, og af því hefði leitt
stóraukinn hallarekstur fram-
leiðslutækjanna.
Þegar Eysteinn Jónsson mælti
þessi orð var hann enn fjármála-
ráðherra í ríkisstjórn með Sjálf-
stæðismönnum. En aðeins örfá-
um mánuðum seinna sá þessi
sami Framsóknarleiðtogi ekkert
úrræði annað en að taka hönd-
um saman við kommúnista.
Og þá báru þeir ekki ábyrgð
á efnahagserfiðleikunum held
ur Sjálfstæðismenn.
Þriggja missera
reynslutími
.Níú hefur vinstri stjórnin,
. amsóknarmenn, kommúnistar
; jg Alþýðuflokksmenn, haft rúm-
lega þriggja missera tíma til þess
að framkvæma hina nýju stefnu,
„vinstri stefnuna" i efnahags-
málum þjóðarinnar. En hin „var-
anlegu úrræði" hafa ekki ennþá
sézt. Kapphlaupið milii kaup-
gjalds og verðlags hefur haldið
áfram og dýrtíðin aukizt.
En vinstri stjórnin hefur sagzt
vera að framkvæma „stöðvunar-
stefnu“. Kommúnistar segja, að
sú stefna sé fólgin í því að halda
verðlaginu niðri. Framsóknar-
menn segja hins vegar, að
hún stöðvi ekki hækkanir
verðlagsins heldur hljóti hún
fyrr eða síðar að leiða til
stöðvunar allrar framleiðslu og
atvinnulífs í landinu. Og aðal-
málgagn Alþýðuflokksins lýsir
því svo yfir, að velgengni at-
vinnulífsins, góð síldveiði og
grasspretta muni setja ríkissjóð
á hausinn ef haldið verði áfram
óbreyttri stefnu.
Að Ioknu rúmlega þriggja
missera reynsluskeiði vinstri
stjórnarinnar er þá þannig
komið, að dómi hennar eigin
flokka, að mesta ólán, sem yfir
þjóðina getur dunið er góður
fiskafli og hagstæð heyskap-
artíð!
Þjóðinni var sagt ósatt
En hvernig stendur á því, að
vinstri stjórnin hefur orðið sér
svo hrapallega til minnkunar í
þessum málum?
Ástæða niðurlægingar hennar
nú er fyrst og fremst sú, að
flokkar hennar hafa sagt þjóð-
inni ósatt, hrúgað upp blekking-
um og rakalausum staðhæfing-
um, ýmist um raunverulegar or-
sakir efnahagserfiðleikanna eða
um getu sína til þess að ráða
fram úr þeim.
Vinstri flokkarnir sögðu þjóð-
inni í fyrsta lagi ósatt, þegar
þeir vörpuðu allri ábyrgðinni á
efnahagsvandamálunum á herð-
ar Sjálfstæðisflokksins. Sjálf-
stæðisflokkurinn hafði sýnt þann
manndóm og ábyrgðartilfinningu,
þegar hann myndaði minnihluta-
stjórn sína haustið 1949, að
kryfja efnahagsvandamálin til
mergjar og leggja fram tillögur
um róttækar viðreisnarráðstaf-
anir. Um þær ráðstafanir tókst
síðan samstarf milli tveggja
stærstu flokka þjóðarinnar. Og
á grundvelli þeirra reyndist
mögulegt að skapa jafnvægi í
efnahagsmálum hennar. Tókst í
aðalatriðum að framkvæma þessa
jafnvægisstefnu með góðum ár-
angri fram til ársins 1955. Þá
auðnaðist kommúnistum að eyði-
leggja framkvæmd hennar að
verulegu leyti með hinum stór-
felldu verkföllum og kauphækk-
unum, sem þá voru knúðar fram.
Hafa sjálfir kveikt
þann e
í öðru lagi hafa vinstri flokk-
arnir sagt þjóðinni ósatt um getu
sína og úrræði til þess að ráða
fram úr efnahagsvandamálunum.
Þeir sögðust eiga „nýjar leiðir"
og „varanleg úrræði“, gagnvart
þessum vandamálum. En þeir
vissu að þeir áttu engin slík úr-
ræði, þeir réðu ekki yfir nein-
um töframeðulum, sem ekki
höfðu áður verið reynd. Þeir
vissu þess vegna að þeir voru
að blekkja þjóðina með'skrumi
sínu og loforðum um „nýjar
leiðir“.
Sá er eldur heitastur, er á
sjálfum brennur. Flokkar vinstri
stjórnarinnar hafa sjálfir kveikt
þann eld, sem nú brennur á skinni
þeirra. Viku eftir viku, mánuð
eftir mánuð, misseri eftir misseri
hefur það dregizt að vinstri
stjórnin legði fram tillögur sínar
í efnahagsmálunum. Þær hafa
ekki enn verið lagðar fram. Ef
til vill verða þær lagðar fram í
næstu viku.
En í þeim munu ekki fel-
ast nein „varanleg úrræði“,
sem leysi allan vanda. Þær
munu verða enn ein sönnun
þess að núverandi ríkisstjórn
hefur sífellt verið að blekkja
þjóðina — og hún er enn að
því.
UTAN UR HEIMI
30 froskmenn ætla að leita
Loch-Neiss skrímslisins
í JÚNÍMÁNUÐI nk. munu 30
skozkir froskmenn hefja alls-
herjarleit að Loch Neiss-skrímsl-
inu fræga í samnefndu vatni í
Skotlandi. Munu froskmennirnir
verða búnir öllum nýjustu tsekj-
um til leitarinnar — þar á meðal
ratsjám. — Sterka ljóskastara
hafa þeir og til þess að verjast
skrímslinu, ef svo færi, að ,það
snerist til varnar, því að talið er,
að það hræðist ljós. Það hefur
aldrei „sézt“ nema að næturlagi
eða í ljósaskiptum.
★ ★ ★
Það eru tveir ungir Skotar,
báðir froskmenn, sem hafa for-
göngu um leitina. Ætla þeir að
ganga úr skugga um það hvort
skrímslið er í raun og veru til —
og hvort nokkur fótur er fyrir
sögusögnum um það. Hafa þeir
skýrt svo frá, að erlendum frosk-
mönnum verði heimilt að taka
þátt í leitinni — jafnvel enskum,
svo fremi að þeir líti málið alvar-
legum augum.
★ ★ ★
Liðlega ár er nú liðið frá því
að skrímslið sást síðast. Var það
kennari einn skozkur — og sagð-
ist honum svo frá, að það hefði
synt í vatnsskorpunni — og væri
17 metra langt. Annars eru liðin
um 30 ár síðan það „sást“ fyrst
— og hafa stórblöð víða um heim
oft rætt um „Nessie", eins og
skrímslið hefur stundum verið
kallað, því að það hefur „sézt“
af og til síðan.
Þeir, sem trúaðastir eru á sögu
sagnirnar halda því fram, að
„Nessie“ hafi verið þarna frá
alda öðli og sé eldra en allt ann-
að lifandi á jarðríki.
★ ★ ★
Víst er um það, að mikill er
áhugi manna á skrímslinu — og
þá aðallega í Skotlandi og í Bret-
landi. Brezka útvarpið, BBC, og
sjónvarpið hafa jafnvel svo mikið
við að senda sérstaka fréttaritara
á staðinn, þegar leitin hefst —
og verða þeir búnir fullkomnum
útbúnaði til sjónvarpsupptöku —
m. a. upptökutækjum, sem hægt
verður að kafa með í djúpið.
Fleiri fréttastofnanir hafa og í
Camansögur að austan
Árið 1957 voru 40 ár liðin frá
rússnesku byltingunni og var
þess minnzt með miklum hátíða-
höldum. Formaður rússneska
kommúnistaflokksins, Nikita
Krúsjeff, fór í tilefni þessa í
ferðalag út á landsbyggðina. í
einu þorpinu hitti hann mjög
gamlan mann og spurði „Liður
þér nú ekki betur núna heldur
en fyrir byltinguna?"
„Nei“, svaraði gamli maðurinn,
„Fyrir byltinguna átti ég tvenn
föt, en nú á ég aðeins fötin, sem
ég stend í.“
„Þá ertu nú vel settur ennþá“,
sagði Krúsjeff. „Sums staðar í
Afríku gengur fólkið allsnakið.
Það á ekki einu sinni ein föt.“
„Er þetta satt?“, spurði gamli
maðurinn, „hvenær varð bylting-
in hjá þeim?“
★
Þessi saga gengur nú frá manni
til manns í Rúmeníu. Tannlækn-
ir, er kom þreyttur heim frá
vinnu, kvartaði yfir því við konu
sína, hve það væri afskaplega
erfitt að draga út tennur í gegn-
um nefið á fólki.
„Gegnum nefið?“ sagði konan
furðu lostin. „Hvers vegna í ó-
sköpunum ertu að því?“
„Ég er neyddur til þess“, svar-
aði hann stuttlega, „fólkið fæst
varla til að opna munninn þessa
dagana“.
★
Húsnæðismálaráðherra Sovét-
ríkjanna hafði sannarlega ástæðu
til þess að vera óánægður ný-
lega, er honum var tilkynnt í
gegnum síma, að smíðapallar á
húsi einu. sem í smíðum var,
hefðu fallið saman og margir
menn farizt.
t „Fábjánar“, hrópaði ráðherr-
ann, „var ég ekki búinn að segja
ykkur, að þið yrðuð að styrkja
bygginguna með því að setja
veggfóðrið á strax?“
★
Einn af íbúum Lettlands var
að því spurður, hvort hann væri
farinn að kunna við kommúnism
ann eftir þau 18 ár, sem landið
hefur verið undir stjórn Sovét-
ríkj anna.
„Ég geri ráð fyrir því,“ svaraði
maðurinn „Ég er alveg eins solt-
inn og flestir aðrir hér um slóð-
ir.“
★
Háttsettir starfsmenn í komm-
únistaflokk Tékkóslóvakíu voru
að yfirheyra sígauna nokkurn,
sem þeir höfðu ástæðu til að ætla
að væri óvinveittur leppstjórn-
inni.
„Hvað mundir þú gera, ef þú
værir sendur til Rússlands"?
spurðu þeir sígaunann.
„Ja, ég mundi vinna baki
brotnu eins og Stakhanovits", var
svarið.
„Ágætt. Segðu okkur nú, hvað
þú myndir gera, ef þú værir send
ur til Bandaríkjanna.“
„Félagar", sagði sígauninn. „Ég
myndi ekki vinna handtak í því
auma landi kapitalismans.“
„Prýðilegt", sagði formaður-
inn. „Það eru þxnir líkar, sem
okkur vantar. Við hvað vinnur
þú annars?“
„Ja, það skal ég segja þér“,
sagði sígauninn, „ég er böðull að
atvinnu".
★
„Hvers vegna var Sputnik II
skotið á loft“? spurði einn Ung-
verji annan.
„Vegna þess að Rússar treysta
engum til að yfirgefa Sovétríkin
fylgdarlaust.“
¥
Maður nokkur hrjáður á svip
gekk laumulega inn í landbúnað-
arverzlun í Austur-Þýzkalandi
og bað um að fá að kaupa alla
ofþroskaða ávexti, grænmeti og
fúlegg, sem til væru í verzlun-
inni. Þegar áfgreiðslumaðurinn
hafði afgreitt manninn sagði
hann glettnislega: „Mér er ekki
grunlaust um það að þér ætlið
að nota þetta í kvöld, er formað-
ur kommúnistaflokksins vinnur
hátíðlega eið að embætti sínu.“
„Uss ekki svona hátt,“
hvæsti maðurinn, „ég er nýi for-
maðurinn".
hyggju að hafa menn -sína til
taks, því að svo virðist, sem allir
búist hálft í hvoru við, að skozku
froskmennirnir afhjúpi geysimik
inn leyndardóm við rannsóknirn-
ar
★ ★ ★
Menn hafa lengi velt þvx fyrir
sér hvort sögusagnirnar um
■
Myndin er af íslenzka frosk-
manninum Guðmundi Guðjóns-
syni. 30 menn í slíkum búningi
ætla nú að leita Loch-Neiss-
skrimslisins.
skrímslið séu á einhverjum rök-
um reistar. Sumir vilja hins veg-
ar halda því fram, að fyrirbæri
þessi hafi verið otrahópar, sem
synt hafi í langri röð — eða þá
að hér hafi verið um fugla að
ræða, sem synt hafi í halarófu
eftir vatninu — og horfið út í
myrkrið. Þeir, sem trúa á tilveru
skrímslisins telja hins vegar að
það hafi króazt inni í fyrndinni,
er landið umhverfis hafi risið úr
sæ.
★ ★ ★
En hvernig sem allt er í pott-
inn búið, þá hefur fregnin um
fyrirhugaða leit froskmannanna
vakið það mikla athygli, að for-
stjórar fjölleikahúsa lýsa þvx nú
yfir hver í kapp við annan, að
þeir vilji kaupa skrímslið, ef það
finnist og kvikmyndaframleið-
andi einn í Hollywood hefur auk
þess boðið sem svarar 30.000 ster
lingsp. í „Nessie“. En nú getum
við spurt sem svo, ef skrímslið
fyndist: Hver er þá eigandinn,
hver getur selt það? I gömlum
brezkum lögum segir, að krúnan
sé réttur eigandi allra sjaldgæfra
sjávardýra, sem finnast — og því
félli það í hlut Elísabetar drottn-
ingar að ráðstafa skrímslinu.
*
Ymsar nýjungar
Útflutningur Bandarikja-
manna á kvikmyndum, minnkaði
á síðasta ári um 2% miðað við
fyrra ár. Hins vegar óx töluvert
útflutningur kvikmyndatökuvéla
og annars vélaútbúnaðar í sam-
bandi við kvikmyndaframleiðslu.
V-Þjóðverjar framleiddu á
síðasta ári 1.212.762 bíla, en það
er 12,7% aukning frá fyrra ári.
Búizt er við að framleiðslan
standi í stað þetta árið miðað
við síðasta ár, en hún hefur aldrei
verið meiri en þá.