Morgunblaðið - 29.04.1958, Side 12
12
Monr.uivnLAÐiÐ
Þriðjudagur 29. apríl 1958
Carðar Pálsson sfýrimaður:
Skattarnir fæla stýrimennina í land
Sv/pað vandamál margra þjóða
J>AÐ ER dönskum æ stærra
vandamál á síðari árum, hversu
sjómennirnir fiýja af skipunum
f land. Siglingafræðingurinn
Knud Hansen skrifaði um þetta
mál í timaritinu „Söfarten“ á sl.
ári.
í sivaxandi mæli fá stýrimenn
á verziunarflotanum sér vinnu í
landi og vanalega fara þeir í verr
launaðar stöður en þær, sem þeir
höfðu á sjónum. Eftir fyrri heims
styrjöldina var lengi vel erfitt
fyrir stýrimenn að fá atvinnu og
þóttust menn hólpnir, ef þeir að-
eins komust til sjós sem óbreyttir
liðsmenn. En þessi tími er lið-
inn. í dag bíða stýrimennirnir
ekki eftir að komast í brúna,
heldur bíður hún eftir þeim.
Siglingafræðingurinn telur
hina eiginlegu orsök þess, að
stýrimennirnir fara í land þessa
m.a.: Þó tekjumöguleikarnir til
sjós séu miklir og stöðuhækkanir
auk þess örar, þá er það skatta-
löggjöfin sem gerir strik í reikn-
inginn og gerir að litlu löngunina
í hin miklu laun. „Til hvers er
að íá mikið kaup“, segja ungu
stýrimennirnir, „því jafnvel þótt
við séum sparsamir, hverfur
meiri hlutinn í skattahítina".
Mér finnst rangt, segir Knud
Hansen, að sjómenn fái ekki skatt
fríðindi í einhverju formi. Að
minnsta kosti er það hættulegt,
að skattpíningin skuli hindra út-
gerðarmenn, sem þó afla inörg
hundruð milljóna ár hvert í þjóð-
arbúið, í þvi að fá nógu marga
stýrimenn.
Einnig er það, að stýrimenn
sem og aðrir, óska eftir að hitta
íjölskyldu sína við og við. Oft
er það því aðeins hægt með því
að eiginkonur þeirra ferðist til
þeirrar hafnar sem skipið liggur
L En fráleitt hefur þótt, að þessi
o. fi. dýr útgjöld megi koma til
frádráttar á tekjum.
Ef við settum nú svo, að hið
opinbera tæki sig til einn góðan
veðurdag og gerði sjómennskuna
fjárhagslega freistandi, hvað er
þá að segja um hina miklu mögu-
leika til sjós?
Ég myndi segja, að þar væru
almestu framvonirnar og blátt
áfram ævintýraleg tækifæri fyr-
ir unga menn.
Eí dregnar eru saman orsakir
þess, hversu erfitt er fyrir út-
gerðarmenn að fá stýrimenn verð
ur það á þessa leið.
Hinar eyðileggjandi skattregl-
ur, sem alls ekkert tillit taka
til þess fólks, sem oft verður að
vera mánuði eða ár að heiman,
án alls þess, sem við hin njótum
i svo ríkum mæli, eru þyngstar
á metunum. Hin mörgu tæki-
íæri til friðsællar landvinnu, svo
og hin sivaxandi þörf herskipa-
flotans fyrir stýrimenn kaup-
skipaflotans, hafa og sín miklu
áhrif.
Danski kaupskipaflotinn hefir
lengi orðið að hafa sig allan við,
til að útvega hina nauðsynlegu
tölu stýrimanna og vélamanna á
skipin. Nú er útlitið orðið svo
slæmt, að farið er í alvöru að
tala um að Ieggja upp skipum
vegna skorts á yfirmönnum.
Höfuðorsök skortsins er
tilboð frá vissum löndum um
gífurlegt kaup í dollurum og
skattfrelsi, og það lítur út fyrir
að ákvörðunin um hinn nýja
sjómannaskatt, sem skyldar hina
ógiftu dönsku sjómenn til að
greiða ríkisskatt, en hingað til
hafa þeir aðeins greitt útsvar,
muni auka flóttann allverulega
frá danska kaupskipaflotanum.
Hin háu launatilboð koma sér-
staklega frá þeim þjóðum, sem
ekki eru eiginlegar siglingaþjóð-
ir, en hafa orðið heimili fyrir
vaxandi kaupskipaflota ýmissa
landa, vegna hinna lágu skatta
og þar fyrirfinnast ekki tilhlýði-
leg sjóferðalög.
Þessi lönd eru Panama, Costa
Rica, Líbería og Honduras. Út-
gerðarfélög, sem sigla undir fána
þessara landa, hafa umboðsmenn
staðsetta i öllum aðalhafnar-
borgum heimsins, með það fyrir
augum m.a., að útvega þá áhafn-
armeðlimi, sem mest þörf er fyr-
ir, eins og stýrimenn og vélstjóra.
Offramleiðsla en samt skortur
Hér heima (í Danmörku) ætti
ekki að vera skortur á stýrimönn-
um. Stýrimannaskólarnir eru full
setnir og kennsla fyrir vélstjóra
er mjög mikil, þannig mætti raun
verulega tala um offramleiðslu.
Samt sem áður sýnir síðasta
athugun, að danska kaupskipa-
flotann vantar 256 stýrimenn,
264 vélstjóra og 730 lærða aðstoð-
armenn í vél.
Næstu 3 árin bætast danska
kaupskipaflotanum ca. 125 stór
skip, sem munu þarfnast 4 til 5
hundruð stýrimanna og 7 til 8
hundruð vélstjóra.
Ógerlegt hefir verið að fá full-
komnar upplýsingar um, hvað
verður um alla hina mörgu stýri-
menn. Sumir leita sér að vinnu
í landi vegna konu og barna, þótt
þeir hafi jafnvel helmingi minna
kaup en til sjós.
Ef athuguð er skuggahlið þessa
máls, kemst maður að því að
aukinn fjöldi stýrimanna, hinir
ógiftu, hafa árum saman tekið
við glæstum tilboðum erlendis
frá. Sem dæmi er hægt að taka
ungan, ógiftan stýrimann, sem
fékk tilboð frá Panama-skipi um
Norðurlanda kaup -f- 50% álag,
ásamt skattfrelsi og fríum ferð-
um út og heim.
Danskir útgerðarmenn hafa að
vissu marki orðið að reyna að
bæta úr stýrimannaskortinum
með því að notast við stýri-
menn með undanþágu, eða leita
fyrir sér erlendis.
Mjög í samræmi við þetta hefir
Politiken móttekið eftirfarandi
skeyti til danska forsætisráðherr-
ans H. C. Hansen, gegnum loft-
skeytastöðina í Lyngby: Áhöfnin
á m.s. „Vestralia" leyfir sér hér
með að senda harðorð mótmæli
gegn hinum nýja sjómannaskatti.
Umboðsmenn Panama, Liberiu
og Honduras gleðjast og senda
dönskum áhöfnum launatilboð,
sem þeir gylla með greiðslu í
dollurum, þreföldu dönsku kaupi,
skattfrelsi, tvöföldum orlofspen-
ingum og aukaþóknup handa yf-
irmönnum. Vér spyrjum yður
háttvirti forsætisráðhíerra: Óskið
þér eftir almennum flótta af
dönskum skipum, tapi fyrir
danska'útgerðarmenn og um leið
tapi á hinum mjög verðmæta
gjaldeyri, er við vinnum fyrir?
Óskið þér eftir að „straffa" danska
sjómenn, sem ár eftir ár fá ekki
sinn hlut i hinum miklu góðær-
um í landinu, sem þeir hafa þó
átt sinn þátt í að skapa ekki síð-
ur en aðrir, en verða þar að
auki að fórna öllu fjölskyldulífi?
Verði þetta frumvarp sam-
þykkt mun það verða eins konar
„boomerang“ fyrir stjórnina.
Ætlar ríkisvaldið með tillits-
leysi sínu að fórna íslenzkum far
mönnum á stalli suðrænna skipa-
agenta?
Vandamál Dana eru ekki ólík
þeim vandamálum, sem knýja að
dyrum hér heima. Við skulum nú
hugleiða þessi mál lítillega og
skoða þau í ljósi þeirra stað-
reynda, sem hér eru kunnar.
Það má segja að fullmenntaðir
stýrimenn séu brátt orðnir nógu
margir, til þess að svara eftir-
spurninni hér heima, þannig er
það að minnsta kosti í bili, en
um vélstjórana gegnir allt öðru
máli, því þar er um hreinan
skort að ræða og hefir verið
alla tíð frá því að nýsköpunin
hófst.
Mörg skip sigla í dag með vél-
stjóra á undanþáguréttindum og
sum skipin eru meira að segjameð
hreina leikmenn innanborðs.
Hin mikla vöntun á stýrimönn-
um og vélstjórum, sem hófst með
nýsköpunartímabilinu, orsakaði
einnig að margir þessara manna
byrjuðu starfið á undanþágurétt-
indum, en öðluðust síðar meir
full réttindi. Það vill því segja
að margir þeirra manna, sem í
dag starfa sem stýrimenn og vél-
stjórar, hafa ekki fengið tæki-
færi, til þess að ljúka þeim
reynslutima, sem krafizt er,
vegna hinna miklu þarfa flotans
fyrir þessa menn.
Jafnvel þótt Vélskólinn í
Reykjavík verði þétt setinn á
næstu árum, verða allir nemend-
ur hans að skila sér til sjós, ef
úr á að rakna.
Þegar litið er á þessi mál af
sanngirni, sést að þessar starfs-
greinar eru ekki eins eftirsókn-
arverðar og skyldi og kemur þar
margt til greina. Reynslan er
líka sú að stýrimenn og vélstjór-
ar, sem skólann sækja, Vjósa oft
á tíðum einhverja þægilega land-
vinnu, heldur en illa launaðar
byrjunarstöður til sjós.
Þá gerir hin sívaxandi vél-
væðing í landi einnig kröfur til
svo og svo margra vélstjóra ár
hvert.
Hvað hefir ríkisvaldið gert til
þess að örva farmenn til að ganga
menntaveginn?
Jú, það hefir byggt veglegan
skóla fyrir farmenn, með vel
menntuðu kennaraliði, sem far-
menn geta verið stoltir af. En
hvað tekur svo við þegar skóla-
veru er lokið og menn koma út í
athafnalífið til að leita sér at-
vinnu? Eru kjörin slík til sjós, að
menn skoði ekki hug sinn áður en
þeir velja þá leið, til að sjá sér
og sínum farborða?
Til skamms tíma má segja, að
kjörin hafi verið smánarleg bor-
ið saman við hliðstæðar atvinnu-
greinar í landi.
Við síðustu samninga fékkst þó
nokkur lagfæring á þessum hlut-
um, fyrir góða samvinnu þessara
stétta, en ríkisvaldið er þó á góðri
leið að jafna þá uppbót og gera
að engu.
Hún minnti á atburðina í Ung-
verjalandi 1956 og skoraði 6
verkamenn að vera á verði gegn
undirróðri gagnbyltingarmanna.
Hún lýsti því þó yfir, að pólskir
verkamenn þyrftu ekki að óttast
að fazistaöflin næðu völdum í
landinu, vegna þess, að rússneskt
herlið dveldist í landinu og yrði
ætíð reiðubúið að koma verka-
mönnum til hjálpar.
Þegar rætt er um kaup og kjör
vinnandi stétta, þá eru nokkur
atriði, sem snerta sjómenn ein-
göngu, sem meta mætti til fjár.
Sjómenn dvelja langdvölum að
heiman frá sér og slitna þá að
meira eða minna leyti úr tengsl-
um við fjölskyldur sínar, sjó-
menn geta ekki varið frístundum
sínum á sama veg og landverka-
fólk og sjómenn fara á mis við
það frjálsræði, sem landmenn
njóta í svo ríkum mæli.
Væri ekki athugandi fyrir rík-
isvaldið, ef það ætlar hinum unga
íslenzka kaupskipaflota lengri
lífdaga og aukinn vöxt, að reyna
nú þegar að hlynna lítillega að
þeirri stétt, sem ber hita og
þunga dagsins.
Þetta getur ríkisvaldið gert,
með því að veita farmönnum nú
SVÍÞJÓÐARDEILD samtakanna
The Experiment in Internatiortal
Living, sem er alþjóðlegur félags-
skapur, er vinnur að gagnkvæmri
kynningu og vináttutengslum
milli fólks af ýmsu þjóðerni,
býður islenzku æskufólki á aldr-
inum 16—20 ára hálfsmánaðar-
dvöl í Svíþjóð, gegn þvi að jafn-
stór hópur sænsks æskufólks njóti
hiiðstæðrar fyrirgreiðslu hér,
jafnlangan tíma í júlí-byrjun í
sumar.
fslenzki hópurinn mun leggja
af stað frá Reykjavík hinn 7.
júní n. k. með m.s. Heklu. Skip-
ið kemur við í Þórshöfn i Fær-
eyjum, Bergen og Kaupmanna-
höfn og kemur til Gautaborgar
hinn 13. júní. í Svíþjóð munu
svo ísl. þátttakendurnir dveljast
á völdum einkaheimilum í hálf-
an mánuð.
Hinn 27. júni verður farið með
m.s. Heklu heimleiðis frá Gauta-
borg með viðkomu í Kristians-
sand og í Færeyjum. Og verða
þá 15 sænskir unglingar með í
förinni. Komið verður til Reykja-
STOKKHÓLMUR, 26. apríl. —
Tveir nýtízkulegir og mjög hrað-
skreiðir tundurspillar eru til sölu
i Svíþjóð. Skipin eru í byggingu
í sænskum skipasmíðastöðvum.
Hvort þeirra er 2600 rúmlestir og
hafði sænski flotinn pantað þau.
En nú hafa verið gerðar róttæk-
ar breytingar á iandvarnaráætl-
un Svíþjóðar, þar sem dregið er
vcrulega úr styrkleika flotans.
Þrátt fyrir þetta munu útgjöld
til landvarna aukast á fjárhags-
árinu 1958—59 um 100 milljónir
sænskra króna. Munu þau nú
nema 2700 milljónum sænskra
króna. Er það nú athyglisvert, að
flugherinn hlýtur stærstan hluta
þessara útgjalda. Það er áætlað
Rússland, sagði frú Furtseva,
mun aldrei yfirgefa Pólland,
heldur styðja það í viðleitninni
til að skapa pólsku þjóðmni nýtt
líf. Rússland verður ætíð reiðu-
búið að koma Póllandi til hjálpar.
Það var litill vafi, hvað hin
rússneska frú meinti með þessum
orðum sínum. Hún vildi minna
pólsna vcrkamenn á nálægð hins
rússneska hernámsliðs og að þeir
skyiiu hafa sig hæga.
þegar skattfríðindi í einhverju
formi og þar með tryggt framtíð
íslenzka flotans, þannig að vöxt-
ur hans verði ekki stöðvaður fyr-
ir manneklu.
Telja má víst, að umboðsmenn
Panama, Costa Rica, Liberíu og
Honduras eigi eftir að leita fyrir
sér hér heima eins og annars stað-
ar. Gæti það ekki orðið fullmik-
il blóðtaka fyrir íslenzka flot-
ann, ef slíkum agentum tækist að
hremma til sín fjölda af far-
mönnum?
Ég skora á ríkisvaldið að taka
þessi mál til alvarlegrar yfir-
vegunar og finna nú þegar ein-
hverja viðunandi lausn á þessum
vanda, áður en hinn suðræni felli
bylur skellur hér á okkur og kem
ur öllu í óefni.
víkur 2. júli.
Síðan dveljast sænsku þátttak-
endurnir á íslenzku heimilunum
í hálfan mánuð. Þeir fara utan
aftur með m.s. Heklu 19. júln
Nauðsynlegt er að væntanlegir
þátttakendur' í Sviþjóðarförinni
taki sænska unglinga til dvalar
um hálfsmánaðar skeið eins og
að framan greinir. Af þessum
sökum verður að þessu sinni að
takmarka þátttöku við æskufólk
frá Reykjavík og bæjum og
byggðarlögum á Suður- og Yest-
urlandi.
Kostnaður fyrir hvern þátttak-
anda er áætlaður um 2000 kr.
og eru þar innifalin öll fargjöld
og þátttökugjald.
Umsóknir um þátttöku sendist
Magnúsi Gíslasyni, námsstjóra,
Vonarstræti 8, (Box 912) Reykja-
vík, sem fyrst og eigi. síðar en
10. maí n. k. Umsókn fylgi upp-
lýsingar um aldur, nám eða at-
vinnu, ásamt meðmælum frá
skólastjóra, kennara eða vinnu-
veitanda svo og önnur meðmæli
ef fyrir hendi eru.
að um 1100 milljónir kr. fari til
flughersins, 900 milljónir til land
hersins og 500 milljónir til flot-
ans. Um 2000 milljónir kr. fara
til sameiginlegra landvarnar-
þarfa.
Það er athyglisvert, að stöðugt
fer vaxandi fjárveiting til til-
rauna og smíði flugskeyta. Er sú
fjárveiting nú áætluð um 25 millj
ónir sænskra króna. Svíar hafa
sjálfir smíðað fúllkomin loft-
varnarflugskeyti, en munu einn
ig hafa í hyggju að kaupa flug-
skeyti frá Bretum eða Banda-
rikjamönnum. Engin endanleg
ákvörðun hefur verið tekin um
að útvega kjarnorkuvopn til land
varna. Eru mjög skiptar skoðanir
um það í Svíþjóð, einkum virðist
það álit margra að nægilegt sé
að treysta á aðstoð frá Vestur-
veldunum, ef að til árásar kynni
að koma á Svíþjóð.
Vélaviðgerðarmenn
hjálCA
VIKUNA 17.—22. marz dvöldu
10 íslenzkir vélaviðgerðarmenn á
vegum ICA stofnunarinnar hjá
Cummins dieselvélaverksmiðj-
unni í Bandaríkjunum. Kynntu
þeir sér rekstur og viðhald
Cummins dieselvéla, en af þeim
er mikill fjöldi hér á landi. —
Nöfn íslendinganna eru þessi:
Sigurður Þorleifsson, Jón Þor-
valdsson, Ingi Guðmundsson,
Sigurður G. Ólafsson, Stefán
Ólafsson, Oddur Pétursson, Guð-
mundur Hilmar Pétursson, Krist-
inn Siggeirsson, Bjarni Sveins-
son og Þorsteinn Þorsteinsson.
Rússu yfirgefo oldrei Pdlland
VARSJÁ, 25. apríl — Frú Furtseva, hin valdamikla stjórnmálakona
Rússlands, hefur lýst því yfir, að rússneski herinn muni aldrei
hverfa brott af pólskri grund. Yfirlýsingin kom fram í ræðu, sem
hún flutti í verksmiðjubænum Nowa Huta, skammt frá Krakow.
Frú Furtseva er nú á ferðalagi um Pólland ásamt Voroshilov,
forseta Rússlands. Ræðuna í Nowa Huta flutti hún fyrir þúsundum
\erkamanna úr stálverksmiðjum borgarinnar.
Þýtt og ritað
Skiptiheimsókn ung-
linga til Svíþjóðar
Svíar vilja selja tundur-
spilla en kaupa flugskeyti