Morgunblaðið - 29.04.1958, Side 13
Þriðjudagur 29. apríl 1958
MORGVISBLAÐIÐ
13
Hlustað á útvarp
ENN hefur sumar gengið í garð.
Að vísu fremur kalt og gróður-
lítið, en hefur þó oft verið verra.
Útvarpið gat þessa hátíðadags á
margan hátt, svo sem vera ber.
Sumargjöf, félag sem safnar fé til
styrktar fátækum börnum, safn-
aði stórfé og skátar létu mikið til
sín taka. Gengu um bæinn í
skrúðfylkingu, hlustuðu á mess-
ur o. s. frv. Fagurt veður var í
höfuðstaðnum, svo að varla gat
betra verið.
★
í erindaflokki útvarpsins um
vísindi nútímans talaði dr. Jón
Vestdal efnaverkfræðingur um
tækni. Mæltist honum vel og var
erindið mjög fróðlegt. Var af
miklu að taka, eins og hann sagði
og varð því að stikla á stóru í
einu erindi. Sem dæmi um það,
hvað nútimatækni hefur áorkað,
gat hann þess, að þar sem éinn
sjómaður aflaði á frumstæðan
hátt tveggja smálesta af fiski
væri nú aflað 70 smálesta. Fram-
farir stafa ekki af bættum þjóð-
félagsháttum heldur af notkun
véla. Varla sú tegund vísinda
til, sem ekki byggist á tækni.
Gufuvélin, sem Skotinn James
Watts fann upp er fyrsta stóra
skrefið — og aldahvörf í iðnaði
við komu þessarar vélar, sem
enn er í höfuðatriðum hin sama
og var, sem sé, gufuþrýstingur,
er snýr hjóli. Þá kom dieselmót-
orinn rétt fyrir síðustu aldamót.
— Rafmagnstækni, atómtækni.
Perpetuum mobile, þ. e. vél sem
vinnur án hjálpar orku, finnst
aldrei. Orka fæst aldrei úr engu
og verður aldrei að engu. öll
orka kemur frá sólinni, nema
atómorkan. Orka fæst úr kolum,
olíu, fallvötnum, sjávaröldum,
flóði og fjöru, geislum sólarinnar
o. fl. Orka til ræktunar m. a.
úr tilbúnum áburði, sem unninn
er úr loftinu, úr köfnunarefni.
Ekki dugar sá áburður einn sam-
an. Margt fleira sagði ræðumaður
auðvitað. — Eg vil bæta því við
að eg tel að sá tími komi áður
en langt líður, að atomsólum
verði komið fyrir á hæðum og
fjöllum er geisli frá sér birtu og
hita yfir okkar dimma og kalda
skammdegi. Þessi spádómur mun
rætast, tæknin er á sigurbraut.
Páll Bergþórsson og Gestur
Þorgrímsson fluttu þáttinn um
helgina. Var talað við gamlan
mann, Bjarna Viborg, sem nú
dvelur á Ferjukoti. Maður þessi
var lengi í Kanada, var 4 ár í
fyrri heimsstyrjöldinni, særðist
mikið og oft — og ber þess aldrei
bætur. Eftir það vann hann við
skógarhögg með Indíánum lengi.
Var frásögn hans að mörgu leyti
merkileg. — Þá var sagt frá og
talað við blindan öldung, Þórð
að nafni. Því miður heyrði eg
ekki föðurnafn hans né dvalar-
stað, en það var aðeins nefnt í
upphafi frásagnarinnar og. aldrei
aftur. Lítil truflun i útvarpstæki
getur valdið því, að hlustendur
tapi þaimig heimild sem þeir
vildu ekki án vera vegna þess að
nafns og heimilis er aðeins laus-
lega getið í upphafi þáttar. Þórð-
ur þessi er gott dæmi um mann,
sem ekki lætur bugast þrátt fyr-
ir ómild örlög, hann varð blind-
ur á sjötta ári, lærði þó trésmiði
og það svo vel, að margt sem
hann hefur gert er ágætlega af
hendi leyst. Hann er glaður í
bragði og hress. Mikið glaðari og
hressilegri en margur annar, sem
fulla sjón og ágæta heilsu hefir.
Óska eg honum allra heilla og
þakka honum, hver sem hann er,
fyrir þá hollu kenningu, sem
hann flutti mér og öðrum hlust-
endum. Þá var rætt við þrjár
systur, sem flutt hafa heim frá
Brasilíu, en til Hamborgar fluttu
þær á barnsaldri með föður sín-
um Jóni Guðjónssyni, er fyrst
dvaldi þar í 20 ár, síðan í Sao
Paulo í 30 ár. Þær systur eru
tónlistarmenn, spila ágætlega á
hljóðfæri. Frá Vestmannaeyjum
var útvarpað leikþætti, skildist
varla nokkurt orð, fremur venju
er útvarpað er af leiksviði. Loks
kom Hallbjörg Bjarnadóttir fram,
hermdi hún eftir bandarískum
negra, Páli Robesyni að nafni,
sem þykir góður söngmaður. —
Var ótrúlegt að kona skyldi geta
framleitt slíka tóna og raunar
stórmerkilegt.
★
Úlfar læknir Þórðarson talaði
um daginn og veginn. Merkileg-
ar voru upplýsingar þær, er
hann gaf um aldur stúdenta hér
á landi, eða réttara sagt í Reykja-
vík. Fyrir 25—30 árum voru
stúdentar venjulega 18 ára er
þeir luku prófi, sagði hann, nú
eru þeir 20, jafnvel 21 árs. Þó er
fólkið fullt eins bráðþroska og
það var áður. Þetta veldur því,
að þeir stúdentar er halda áfram
námi og ljúka embættisprófum.
koma tveim árum síðar í gagnið
en áður var. 1 nágrannalöndun
um eru fullbakaðir stúdentar um
18 ára. Þessum töfum hér hlýtur
þunglamalegt fræðslukerfi vart
að valda. — Ræðumaður sagði
að mjög algengt væri að náms-
menn við háskólann hér stofnuðu
til heimila, margir löngu áður
en þeir hefðu lokið námi, oft til
stórkostlegs kostnaðar fyrir for-
eldra og aðstandendur. Þetta
giftingarflan ungs fólks hér, er
orðin hálfgerð landplága og er
þess oft getið í ræðum og riti.
— Þá sagði ræðumaður að þeir
stúdentar er útskrifast úr mála-
deild væru verr menntaðir en hin
ir er ganga gegnum stærðfræði-
deild. Eg held að þetta sé mjög
vafasamt. Að minnsta kosti er
málanám mikið praktískara en
óþarflegt stærðfræðinám. Stærð-
fræði er skemmtileg fyrir þá,
sem gáfur hafa í þá átt. En þegar
menn í daglegu lifi nota reikni-
vélar til allra hluta, er stærð-
fræði ekki hagnýtt fag eða gagn-
legt. Auk þess eru tveir þriðju
manna frábitnir stærðfræði, blátt
áfram leiðist hún og eiga erfitt
með að læra hana. Langmestum
ræðutímanum varði læknirinn til
þess að tala um flugvélar og
flugmál og mun eg ekki skrifa
um þau mál að sinni.
★
1 laginu „Sortnar þú ský“ eftir
Emil Thoroddsen gerði Þorsteinn
Hannesson, söngvari, sig hvað
eftir annað sekan um það, að
leggja áherzluna á síðara atkvæði
tveggja atkvæða orða. Eins og eg
hef áður bent á má slíkt ekki
eiga sér stað í útvarpinu og á að
taka hart á því. í íslenzku máli
á ætíð að leggja áherzlu á fyrsta
atkvæði orða. Eg get þessa hér
á ný, af því að hér er talsverð
hætta á ferðum vegna amerískra
dægurlaga, þar sem mjög oft er
lögð skökk áherzla á íslenzk orð
vegna lagsins (melódíunnar).
★
í spurningaþætti útvarpsins,
sem Sigurður Magnússon fulltrúi
stjórnar var spurningin nú
(21.4.): Hver er skoðun yðar á
abstrakt málaralist? Spurningu
þessa ræddu þau Ásgeir Bjarn-
þórsson listmálari, Hörður Ágústs
son listmálari, Hannes Davíðsson
arkitekt og Bryndís Víglundsdótt-
ir kennari. Urðu allsnarpar og
skemmtilegar umræður um list
yfirleitt og var fróðlegt á að
hlusta. Ekki vil eg leggja neitt
til þessara mála, persónulega
kann eg ekki að meta abstralct-
málverk og langar ekki til að
hengja þau upp á veggi í mínum
herbergjum. Samt tel eg víst að
í góðum abstraktmálverkum sé
list og fegurð, svo mætir menn
fást við þessa list af mestu al-
vöru. Hitt er víst, að sumt af
því, sem kallað er abstraktlist,
og abstrakt bókmenntir er klessu
verk og einskisvert bull.
★
Samfelld dagskrá stúdenta há-
skólans var ágæt. Tók hver deild
sinn hluta, fannst mér þó þáttur
lagadeildar bera af. Meðal annars
lásu ung skáld ljóð, þeir Hannes
Pétursson og Gylfi Gröndal og
dr. Hallgrímur Helgason stjórn-
aði kór stúdenta. Mér fannst
eitt kvæði Hannesar og eitt lag
eftir dr. Hallgrím bera af, þótt
margt væri gott. Yfir höfuð var
ákaflega fræðandi og gott að
heyra til hinna ungu mennta-
manna.
★
Vonandi verður erindi Guð-
mundar Kjartanssonar: Náttúru-
skoðun frá Seljalandsheiði gefið
út á prenti, en eg gat aðeins
hlustað á lítinn hluta þessa gagn-
fróðlega fyrirlestrar hins ágæta
náttúrufræðings.
Hús 106 ferm. 1 hæð og kjallari og bílskúr í Klepps-
holtinu. úppiýsingar í Kauphöllinni.
200 þúsund krónur
íbúð 2 herbergi og eldhús óskast til kaups á Hita-
veitusvæöinu útborgun kr. 200 pús. — Tilboð merkt:
„Þórður — 8103“ sendist afgreiðslu blaðsins hið
fyrsta.
Staðhœft að foringjar
uppreisnarmanna á Súm
ötru hafi flúið land
Litlu munaði að Sjafruddin yrði
handtekinn
SINGAPORE, 26. apríl — (Reuter) — Herstjórn Indónesíustjórnar
tnkynnir, að sl. miðvikudag hafi aðeins munað hársbreidd að her-
sveitir hennar hafi handtekið Prawiranegra Sjafruddin, forsætis-
ráðherra uppreisnarmanna á Súmötru.
Blaðið Straits Times í Singapore staðhæfir, að helztu foringjar
uppreisnarmanna séu flúnir til Malakka-skaga. Telur blaðið að þeir
cíði eftir flugfari til Norður-Celebes, en þar hafa þeir í hyggju að
lialda baráttunni áfram. Meðal foringjanna, sem flúið hafa Súmölru,
er Sjafruddin og Hussein, yfirforingi uppreisnarmanna.
Fulltrúi landsstjórans í Singa-
pore hefur borið ummæli blaðs-
ins til baka. Hann segir að yfir-
völdum í Singapore og Malakka-
skaga sé ókunnugt um að þessir
menn hafi stigið þar á land.
Blaðið Straits Times svarar því
til, að yfirvöldunum hafi einnig
verið ókunnugt um stöðugar
ferðir uppreisnarmanna til Singa
pore, þótt slíkt hafi verið öllum
lýðum ljóst.
Borgin S*Iok fellur
Herstjórn Djakarta-stjórn-
arinnar tilkynnir í dag, að
borgin Solok, sem er um 60
km frá Vestiurströndinni hafi
nú verið tekin. Þar voru
teknir höndum um 250 upp-
reisnarhermenn. Ráða upp-
reisnarmenn nú aðeins yfir
tveimur virkisbæjum. Satu
Sankkai og Bukit Tingi.
Flótti gegnum frumskóg
Þá segir herstjórnin að litlu
hafi munað að Sjafruddin for-
sætisráðherra uppreisnarmanna
yrði handtekinn s. 1. miðviku-
dag, þegar her stjórnarinnar sótti
fram nálægt Solok. Hófu stjórn-
arliðar skothríð á bílalest upp-
reisnarmanna. Höfðu þeir ofur-
efli liðs og neyddust uppreisn-
armenn til að yfirgefa bíla og
hörfa fótgangandi í norðurátt
gegnum frumskóga. Það er nú
upplýst að forsætisráðherrann
var meðal þeirra sem komust
undan.
AÐ ALFLIMDUR
Barnavinafélagsins Sumargjöf verður haldinn í
skrifstofu félagsins, Laufásveg 36 miðvikud. 30.
apríl kl. 20.30.
Dagskrá:
Lagabreytingar og venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Barnavinafélagsins Stunargjafar.
Til sölu
Tveggja herbergja íbúð í vesturbænum. íbúðin er i
góðu standi. Nánari uppýsingar gefur:
Málflutningsskrifstofa
Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlákssonar
og Guðmundar Péturssonar
Aaðlstræti 6, (Morgunblaðshúsið) Símar 1 2002,
1 3202 og 1 3602.
VERZLUNARWANNAFfXAG
KhfKJAViuvii heidur
almennan félagsfund
í kvöld k. 8.30 í félagsheimili V.R. Vonarstræti 4.
Fundarefni:
1. Félagsmál., 2. Kjarasamningarnir,
3. Önnur mál.
Verzlunarfólk er hvatt til að mæta vel og stund-
víslega. Stjórn Verzlnarmannafélags Reykjavíkur.
RAGNAK JÓNSSON hæstaréttarlogmaOur. Laugaveg, 8. — Simi 1V752. 1-ógfræðistörf. — Eignaumsýsla. STEFAN PÉTURSSON, hdl., Málflutningsskrifstofa. Laugavegi 7. — Sími 14416. Heima 13533. HILMAR FOSS lögg. kjalaþvð. «& r.oiut. Hafnarstræti 11. — Sim; 14824.
Gísli Einarsson hcruðsd'uiiíilögmaJur. Máll lutniiigsskrifstol a. l.augavegi 20B. — Sími 19631.