Morgunblaðið - 29.04.1958, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 29. apríl 1958
MORGVNBl AÐIÐ
19
r/Þeir lentu stundum
sem ætluðu til Eyja'
segir Guðmundur
Sigurðsson. verkstj.
í Vestmannaeyjum
—Það er bezt að ég kaupi
hjá ykkur tvö bréf tii viðbót-
ar. Mér finnst að ef fólk hef-
ir einhverja aura, sem það
þarf ekki nauðsynl. að nota til
daglegra þarfa, þá sé þeim
ekki betur varið á annan hátt
en þann, að kaupa þessi bréf
Flugfélagsins.
Sá er þetta mælti var Guð-
mundur Sigurðsson, verk-
stjóri í Vestmannaeyjum, er
hann kom inn í afgreiðslu
Flugfélagsins þar nýlega.
— Það er nú líka svo með
okkur þessa gömlu, að við
kunnum kannske bezt að
meta samgöngurnar eins og
þær eru orðnar í dag og ekki
vildi ég fyrir nokkurn mun
vera án flugsamgangna hérna
við Eyjarnar. Ég man líka þá
tima er farþegar til Vest-
mannaeyja komust hér ekki í
land og lentu stundum annað
hvort til Færeyja eða Skot-
lands.
Guðmundur, sem lengi hefir
búið í Eyjum kann frá mörgu að
segja og í stuttu spjalli sagði
hann okkur frá ýmsu sem á daga
hans hefir drifið.
Guðmundur fæddist í Hildisey
í Landeyjum árið 1881. Rétt fyrir
aldamótin fór hanh til Vest-
mannaeyja og reri þar á opnu
skipi hjá Jóni Guðmundssyni, er
var alþekktur aflamaður ag mik-
ill sjósóknari.
— Hvernig fannst þér að fara
til sjós?
— Okkur strákunum kom vel
saman og öllum þótti okkur vænt
um formanninn okkar og litum
upp til hans. Við bjuggum á
pakkhúslofti allir saman og þar
var stundum kalt, því ekki var
þetta sérlega vandað hús. En
félagsskapurinn var góður og for-
maðurinn okkar passaði upp á
okkur eins og við værum synir
hans. Engum leiðst að vera leng
Ur úti á kvöldin en honum þótti
hæfilegt og reglusemi í okkar
hóp var góð.
— Og hvernig aflaðist?
— Þessa fyrstu vertíð, sem ég
reri héðan, höfðum við góðan
Þakkarorð
ÞEGAR ég nú er farsællega kom-
inn heim, eftir nokkurra vikna
legu í sjúkrahúsi, (vegna hol
skurðar), og hef fengið tækifæri
til að athuga allar þær hlýju
kveðjur og ávörp, ásamt góðum
gjöfum, sem vandamenn, vinir
og velunnarar hafa sent mér hing
að heim, vegna sjötugsafmælisins
þann 15. febrúar s. 1., finn ég
mér bæði ljúft og skyldugt að
senda öllu þessu ágæta og elsku-
lega fólki, fjær og nær, mínar
innilegustu þakkir og votta því
einlægan vinarhug.
Ég vil trúa því, að allar hinar
hlýju kveðjur og sá góðhugur,
sem þeim fylgir, eigi sinn virka
þátt í því að ég nái nokkurri
heilsu og hreysti á ný og mér
auðnist að njóta starfs og gleði
á meðal hinna mörgu glöðu og
góðu vina.
Það er og einlæg ósk mín og
von, að mér megi enn takast að
leggja góðum málefnum lið, til
þarfa og þrifa byggðarlagi mínu,
Olafsfirði, og íbúum þess.
Lifið svo allir mínir virkta-
vinir, heilir, frjálshuga og starf-
andi, að öllu því, sem auka má
andlega og efnalega velferð
okkar kæru heimabyggðar.
Páskum 1958.
Árni Jónason,
Syðri-Á, Ólafsfirði.
hlut. Seinna hóf ég búskap í Hild
isey og þá sótti maður kaupstað
til Vestmannaeyja. Ekkert hefi
ég gert á ævinni, sem eins slxtur
manni og þær ferðir. Róið báðar
leiðir og er erilsamar útrétting-
ar í Eyjum.
Stundum kom það fyrir að við
töfðumst vegna veðurs. Jafnvel
allt að tveim vikum.
Þó man ég ekki eftir öðru eins
og þegar faðir minn fór hingað
til Vestmannaeyja í fyrstu viku
vetrar ög komst ekki heim fyrr
en á þorra. Hann var sextán vik
ur veðurtepptur.
— Þú sagðir að sumir sem ætl
uðu hingað hefðu hrakizt ti Fær
eyja og Skotlands.
— Já það kom oft fyrir að fólk
komst ekki í land hér úr skipun-
um, sem þá gengu frá Reykjavík
til útlanda. Já, þeir fóru bæði til
Færeyja og Skotlands og stund-
um til Danmerkur.
Um einn var þetta kveðið:
Fátt er nú í fréttum nýtt,
sem færir þessi góa.
Fúsi á Bjólu fór til Leith
en fékk ei þar að róa.
— Hvenær fluttist þú til Vest-
mannaeyja?
— Það var árið 1917. Ég stund
aði hér sjó lengi framan af.
Fannst ég samt orðinn of gamall
þeggr vélbátarnir voru orðnir
einráðir. Það er allt annað að
stunda sjó á opnum báti eða á
mótorbátunum. Maður gat verið
góður sjómaður á gamla vísu,
en alls ekki liðtækur á mótor-
bátunum. Þar voru störfiri önnur.
Kröfðust meiri hraða og leikni.
Nei, menn þurfa að byrja ungir
til þess að læra réttu handtökin.
En ekki held ég að sjómennskan
sé eins skemmtileg nú og í þá
daga, er við vorum þetta fjórtán
Skotlandi,
til sextán saman á opnu skipi. Þá
var líka meiri félagslund með
mönnum. Það var eins og hættur
og erfiði þjöppuðu mönnum bet-
ur saman.
— Hvað tókst þú fyrir að lok-
inni sjómennsku?
— Stundaði hina og þessa
vinnu, lengst af vegagerð.
Var verkstjóri hjá Vegagerð rík-
isins, fyrst undir Eyjafjöllum og
svo í níu sumur fyrir austan. Það
var vegur sem nú er orðinn fjöl-
farinn og liggur úr Vopnafirði
upp Möðrudalsöræíi. Þetta var
fjallvegur og gat ekki heitið ann-
að en ruðningur og verkfærin
voru ekki annað en skófla og
haki og önnur handverkfæri. En
hvað um það: Leiðin opnaðist.
— Og nú--------?
— Nú hugsa ég um þennan eina
ríkisveg, sem er hér í Vestmanna
eyjum. Hann liggur héðan úr
kaupstaðnum og inn á Stórhöfða.
Við ætium að vinna við hann
í sumar, en það verður ekkert
hægt að gera þar fyrr en þeir
koma af síldinni. Fyrr fáum við
ekki mannskap. Það er svo sem
margt sem þyrfti að gera hér í
Eyjum. Mér finnst okkur liggja
miklu meira á þverbraut hér á
flugvöllinn, en þessu skipi, sem
þeir eru að tala um.
Flugið er og verður okkar
bezta lausn á samgöngumálunum.
— Sv. S.
Sfeinþór
Aðalsteinsson
Fæddur 19. febrúar 1950.
Dáinn 21. apríl 1958.
ORÐTAKIÐ segir: Að þeir, sem
Guð elskar deyi ungir. Oft er það
svo er dauðann ber að höndum
á morgni lífsins og óvæntan hátt,
að þar fara börn, sem hafa náð
óvenju þroska andlega og líkam-
lega. Einn af þessum hörmulegu
atburðum gerðist á Vatnsleysu-
strönd 21. þ. m. er 8 ára drengur,
Steinþór Aðalsteinsson, drukkn-
aði.
Steinþór heitinn sýndi það í
sinni stuttu skólagöngu að har.n
var gæddur þeim afburða nóms-
hæfileikum, sem sjaldgæfir eru
hjá 8 ára barni. Vafalaust hefur
hann verið kallaður svo fljótt
héðan, til þess að sinna mikil-
vægara hlutverki, en dauðlegur
heimur hefur upp á að bjóða.
í þeirri einlægu trú, flyt ég þér
beztu þakkir fyrir samleið okkar
í vetur og bið góðan Guð að
styrkj a foreldra þína og aðra ást-
vini í þeirra miklu sorg.
— J. K.
Skátadagur
á Patreksfirði
HALLDÓRA Jóhannsdóttir frá
Gröf í Eyrarsveit varð sjötug sL
sunnudag. Þessi mynd átti þá að
fylgja gi-ein um hana.
INGI INGIMUNDARSON
héraðsdómslögmaSur
Vonarstræti 4. Sími 2-47-53.
Heimasími: 2-49-95.
Sigurður Ólason
HæstaréUarlögmaáuj
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdómslögmað’ui
Málflutningsskrifstofa
Austurstræti 14. Sími 1-55-35.
HÖRÐUR ÖT.AFSSON
málflulningsskrifstofa.
Löggiltur dómtúlkur og skjal-
þýðandi í ensku. — Austurstræti
Þorvaldur Arl Arason, htfl.
LOGMANNSSKRIFSTOFA
Skólavörðustig 38
»/«• tdtl joh.Mvrlftfssun h.f. - Pósíh tf|4
Simat 1)416 og 1)4/) - Simnctm /#*»
PATREKSFIRÐX, 28. apríl.
Hin árlega skátamessa Skátafé-
lagsins Samherja á Patreksfirði
var flutt í Eyrarkirkju, sunnu-
daginn 27. apríl sl. Sóknarprest-
urinn, séra Tómas Guðmundsson,
predikaði.
Skátarnir söfnuðust saman við
barnaskólann fyrir guðsþjónust
una og fóru í skrúðgöngu i ldrkj-
una. Að lokinni messu voru
framreiddar góðar veitingar fyrir
þorpsbúa í hinu nýja og vistiega
heimili skátanna og notaði fjöldi
fólks tækifærið, að fá sér þar
síðdegiskaffi.
Skátaheimilið var reist að
mestu leyti í sálfboðavinnu og
er hin myndarlegasta bygging,
staðsett í miðju þorpinu. — Karl.
Hjartanlegt þakklæti færi ég öllum sem heimsóttu mig
sendu mér gjafir og heillaskeyti á 60 ára afmæli mínu
þann 20/4.
Guð blessi ykkur öll.
Frímann Ingimarsson.
n
fVl.s. H. J. Kyvig
fer frá Reykjavík til Færeyja og
Kaupmannahafnar 4. maí. Til-
kynningar um flutning óskast
sem fyrst.
IVf.s. Dronning
Alexandrine
fer frá Reykjavík 16. maí til Fær-
eyja og Kaupmannahafnar. Pant
aðir farseðlar óskast greiddir
fyrir 5. maí.
SKIPAAFGREIÐSLA
JES ZIMSEN
— Erlendur Pétursson -—
PÁLL S. PALSSON
hæstarellurloj' iuadui.
3ankastræti 7. — Sími 24-200.
ALLT í RAFKERFIÐ
Bílaraftækjaverzlun
Halldórs Ólafssonar
Rauðarárstig 20. — Slmi 14775.
Samkomar
k.f.u.k. — A.D.
Fjölmennið á afmælisfund fé-
lagsins í kvöld kl. 8.30. Fjöl-
breytt dagskrá. Kaffi. Takið
handavinnu með. Stjórnin.
Fíadelfía.
Almennur biblíulestur kl. 8.30.
— Allir velkomnir.
Vinna
Hreingemingar.
Vanir menn. Fjót og góð vinna.
Sími 23939. ALLL
ennslo
LANDSPRÓF
Veiti tilsögn í reikningi, eðlis-
fræði, algebru, mál- og setningar-
fræði, dönsku, ensku o.fl. og bý
undir landspróf og önnur próf,
einnig utanskóla. —
Dr. Ottó Arnaldur Magnússon
(áður Weg),
Grettisgötu 44A. Smi 15082.
ITo. G. T.
Ungmennastúkan Hrönn nr. 9.
Fundur x kvöld, þriðjudag, kl.
8.30 e.h. í GT-húsinu uppi.
Inntaka nýrra félaga
Skemmtun að fundi loknum.
Félagar fjölmennið, mynd
verður tekinn af hópnum. Æ.L
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞJÓÐÓLFUK GUÐMUNDSSON
andaðist í sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 26. þ.m.
Lovísa Vigfúsdóttir, Gunnar Þjóðólfsson.,
Ragnar Þjóðólfsson og systir hins látna.
Systir okkar,
SARA SOFFl A FINNBOG ADÓTTIR
Kjartansgötu 10, andaðist í BæjóirsjúKrahúsi Reykjavík-
ur 27. apríL
Jóna Finnbogadóttir,
Sigríður Finnbogadóttir,
Steinunn Finnbogadóttir.
Jarðarför
JÓNlNU GUÐMUNDSDÓTTUR
fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 30. þ.m. kL
2 e.h.
Guðmunda og Andreas Bergmann.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför móður okkar og ömmu
HANNÍNU GUÐBJARGAR HANNESDÓTTUR
Túngötu 18, Sandgerði.
Guð bessi ykkur öll.
María Stefánsdóttir, öskar Hlíðberg.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem á einn eða
annan hátt auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát
og jarðarför
MARlU JÓNSDÓTTUR
D-götu 4, Blesugróf.
Eiginmaður og börn hinnar látnu.
Hjartans þakkir færum við öllum nær og fjær, sem
sýndu okur samúð við andlát og jai'ðarför sonar okkar
og bróður
ÁSTÞÓRS HJÖRLEIFSSONAR
Margrét Ingimundardóttir,
Hjörleifur Jónsson og systkini.