Morgunblaðið - 03.05.1958, Síða 2
2
Monr.T'Npr *afr
Laugardagur 3. maí 1958
20 þús. smúlestir af úburði from
leiddor í Áburðarverksmiðjunni
Tekjuafgangur nam 1,8 millj. kr.
AÐALFUNDUR Áburðarverk-
Myndir þessar voru nýlega teknar við verðlaunaafhendingu i
danslagakeppni Félags ísl. dægurlagahöfunda. Verðlaunahafar
fyrir gömlu dansana eru á neðri myndinni, talið frá vinstri:
Uörður Hákonarson, Rvík, 3. verðlaun (Gunnurællinn), Bjarm
J. Gíslason, Keflavík, 1. verði. (Harmoníkupolki) og Jóhann
Gunnar Halldórsson, Rvík, 2. verði. — Nýju dansarnir (efri
myndin) talið, frá v.: Tólfti september, Rvik, 3. verðl. (Hæ,
þarna Sveínn), Óðinn G. Þórarinsson, Akranesi, 1. verði. (Nú
liggur vei á mér) og Ágúst Pétursson, Kópavogi, 2. verðlaua
(Óskastund).
Sá sem hélt sig særðan var
ósærður en vinurinn særðis!
smiðjunnar hf. var haldinn í
Gufunesi sl. þriðjudag. Satu fund
inn hluthafar og umboðsmenn
hluthafa fyrir 97% af hlutafé
verksmiðjunnar. Fundarstjóri
var Vilhjálmur Þór, bankastjóri,
og fundarritari var Pétur Gunn-
arsson, tilraunastjóri. Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri, sat
fundinn fyrir hönd ríkissjóðs í
forföllum forsætis- og landbún-
aðarráðherra.
Vilhjálmur Þór, formaður
stjórnar verksmiðjunnar, flutti
skýrslu stjórnarinnar um rekstur
og afkomu stjórnarinnar á árinu
1957. Á árinu urðu afköst
verksmiðjunnar 19971 smálest
kjarnaáburðar, 1263 smálestum
minna en afköst næsta árs á und-
an. Sagði stjórnarformaður, að
minnkuð afköst stöfuðu af skorti
á raforku. Rekstrarútkoman væri
þó aðeins um 600 þús. kr. lakari
en á árinu þar á undan, og væri
það því að þakka, að felldir
hefðu verið niður nokkrir tollar
af rekstrarvörum verksmiðjunn-
ar til samræmis við innfluttan
áburð, svo og árvekni og alúð
starfsmanna verksmiðjunnar. Þá
gat formaður þess, að verksmiðj-
an hefði fengið sem næst 10%
meiri orku á árinu, en útlit var
fyrir í upphafi, og þakkaði hann
stjórnendum Sogsvirkjunarinnar,
að svo vel tókst til.
Rekstrarreikningar sýna, að
tekjuafgangur nam tæpum 1,8
millj. kr., er eignir fyrirtækisihs
höfðu verið afskrifaðar um rúmar
9,2 millj. kr. Af tekjuafgangi
voru 1.065.000 kr. lagðar í vara-
sjóð, en 728 þús. kr. varið til
niðurgreiðslu á rekstrarhalla frá
árinu 1955.
Skýrði formaður frá því, að
samkvæmt útreikningum fram-
KEFLAVÍK, 2. maí. — Fjárhags-
áætlun Keflavikurbæjar fyrir
árið 1958 var samþykkt á síðasta
bæjarstjórnarfundi. Niðurstöðu-
tölur fjárhagsáætlunarinnar eru
10,590,000 kr.. — Helztu tekjuliðir
eru útsvör og lántaka 9,630,000
kr., fasteignaskattur 330 þús. kr.,
tekjur af vinnuvélum 100 þús. og
ýmsar endurgreiðslur. Helztu
gjaldaliðir eru: líftryggingar og
lýðhjálp 1,490,000 kr., menntamál
1,120,000 kr., löggæzlukostnaður
600 þús. kr. og til heilbrigðismála
580 þús. kr. Til brunavarna eru
áætlaðar 100 þús. kr. Vextir og
afborganir af lánum eru 900 þús.
kvæmdarstjórans hefði fyrirtæk-
ið sparað þjóðarbúinu um 37,5
millj. kr. á árinu miðað við, að
köfnunarefnisáburður heíði verið
fluttur inn frá Evrópu. Frá upp-
hafi rekstrar verksmiðjunnar
hefði fyrirtækið eftir 3 ár og 9
mánuði sparað og aflað gjaldeyris
alls um 122 millj kr.
Miklir erfiðleikar væru nú
framundan í rekstri verksmiðj-
unnar sökum sífellt minnkandi
raforku, og mun framleiðsla á-
burðarmagns fara minnkandi, unz
nýja orkuveitan við Sog tekur
til starfa. Fyrirsjáanlegt væri, að
1960—61 myndi þörf landsins
fyrir köfnunarefnisáburð sam-
svara því mesta magni, sem verk-
smiðjan getur framleitt með því
að fá næga orku til vinnslu. Full
þörf væri því á að fara að hugsa
fyrir stækkun verksmiðjunnar.
Sett voru upp tæki á sl. ári til
að auka vatnsefnisframleiðslu
verksmiðjunnar og þar með heild
arafköst hennar. Heildarkostnað-
ur þessarar framkvæmdar nam
2 millj. kr. Þá gat formaður þess,
að ekki hefði verið hjá því kom-
izt að hækka áburðai'verðið í ár
upp í 100 kr.
Formaður sagði, að unnið væri
jafnt og þétt að framgangi fosfat-
verksmiðjumálsins. en ekki hefði
verið hægt að hefjast handa
vegna skorts á leyfum frá hinu
opinbera.
Framkvæmdarstjórinn Hjálm-
ar Finnsson las því næst upp
reikninga fyrir árið, og voru
reikningarnir samþykktir athuga
semdalaust. Enn fremur var sam
þykkt, að ekki skyldi greiddu.
arður.
Stjórn Áburðarverksmiðjunnar
skipa nú: Vilhjálmur Þór, banka-
stjóri; Ingólfur Jónsson, alþingis-
maður; Jón ívarsson, forstjóri;
Kjartan Ólafsson, fulltrúi; Pétur
Gunnarsson, tilraunastjóri.
kr. Þá eru áætlaðar rúmlega 6
millj. kr. til ýmissa framkvæmda,
svo sem gatna og viðh. gatna
1 millj. kr. gatnalýsingar 130 þús.
kr., fegrunar bæjarins 120 bús.
kr., vatnsveitu, holræsagerðar og
vatnsgeymis 850 þús. kr., til vænt
a ilegrar gagnfræðaskólabygging-
ar 500 þús. kr., til félagsheimilis
200 þús. kr., til leikfimihúss
og bamaskóla 300 þús. kr. og
til verkamannaskýlis 80 þús. kr.
Eru hér aðeins taldir nokkrir
helztu liðir til framkvæmda. Tii
samanburðar má geta þess, að
niðurstöðutölur fjárhagsáætlunar
árið 1957 voru 10 millj. kr.
HJÚKRUNARLIÐ slysavarðstof
unnar, sem er ýmsu vant í við-
skiptum sínum við ýmsa nætur-
gesti er þangað leita, fékk heim-
sókn aðfaranótt 1. maí, sem
vissulega er í frásögu færandi.
Það var kl. 12—1 um nóttina
sem þetta gerðist. Þrir piltar, er
„höfðu verið að skemmta sér“
komu í leigubíl að slysavarðstof-
unni. Einn þeirra var æstur mjög
er hann kom þangað inn og bað
um að sér yrði hjúkrað. — Hann
taidi sig vera með opið sár á
kvið. Hvorttveggja, áfengisáhrif
og hræðsla ruglaði manninn svo,
að beita varð hann valdi, til þess
sð hægt yrði að rannsaka sárið á
kviðnum.
Forsaga þessa er aftur sú, að
þegar hann fór að heiman frá
sér með félögum sínum, þá hafði
hann tekið með sér byssusting af
hermannariffli, sem hann átti!
Ósliðruðum, hafði hann stungið
byssustingnum inn á sig, niður
með buxnastrengnum.
Maðurinn mun hafa verið að
eiga við þetta hættulega eggjárn
í buxnastrengnum, er hann veitti
því eftirtekt að blóð var á hendi
hans. Varð hann þá gripinn
hræðslu. Hafði byssustingurinn
gengið á hol? — Félagar hans óku
honum í snatri til læknavarðstof
unnar.
Gegnum rúðu á hurð-
inni að slysavarðstofunni, sem
var lokuð, sá hann að búið var
að leggja vin hans niður. Ein-
hver maður hélt honum sem
hann væri í skrúfstykki.
Samstundis heimtaði hann að
! hurðin yrði opnuð fyrir sér, svo
að hann gæti komið félaga sínum
til hjálpar. Hann beið ekki svars,
— sló með annarri hendi gegn-
um 5 mm þykka rúðu i hurðinn,
sem mölbrotnaði. Hann gekk í
gegnum gatið og inn í slysavarð-
stofuna. Þegar hann kom þang-
að, sá hann að hönd hans sjálfs
var alblóðug. Við þessa sýn das-
aðist hann skyndilega. — Hjúkr-
unarkonan hljóp til hans og
færði hann á sjúkrabörur. Hann
hafði stórskaddað höndina, skor-
ið sig mjög illa á handarbaki og
afltaugar voru í sundur.
Pilturinn, sem „særzt hafði af
byssustingnum“ fékk að vita í
þessu, að hann væri með öllu 0-
særður á kviðnum. Blóðið á
hendi hans stafaði frá því að
blætt hafði úr tönn í munni
hans, og hann með einhverjum
hætti „smurt“ því á höndina. Var
piltur þessi fluttur í „kjallarann“
en félagi hans varð eftir á slysa-
varðstofunni, því að hann þurfti
mikillar hjúkrunar við
Blíðskaparveður
1. maí á ísafirði
ÍSAFIRÐI, 2. maí. — 1. mai var
hátíðlegur haldinn hér í blíðskap
arveðri. Hátíðahöldin hófust með
útisamkomu í Hafnarstræti kl.
1,30. Þar fluttu ávörp og ræður
fulltrúar frá Verkalýðsfélaginu
Baldri, Vélstjórafélaginu og Fé-
lagi opinberra starfsmanna. Enn
fremur lék Lúðrasveit ísafjarð-
ar. Kl. 4 var samkoma í Alþýðu-
húsinu. Voru þar ávörp, upplest-
ur, söngur oe kvikmyndasýning,
og lék LúðriBveitin þar einnig.
Um kvöldið var dansleikúr í Al-
þýðuhúsinu. —G. K.
Hraðkeppni í
handknatfieik
Á SUNNUDAGSKVÖLDIÐ kl. 8
fer fram að Hálogalandi „hrað-
mót“ H. S. f. Taka 4 lið karla
þátt í keppninni og 2 kvennalið.
Leiktími er 2x15 mín. og er það
lið úr keppni, er tapar leik.
Liðin sem leilca eru F. H., KR,
ÍR og úrvaíslið úr öðrum félög-
um í karlaflokki og Ármann og
KR í kvennaflokki.
Tízkusýning
KLUKKAN 4 í dag verður fyrsta
tízkusýning sumarsins haldin í
Sjálfstæðishúsinu. Eru það tízku
verzlanirnar ,,Hjá Báru“ og
„Guðrún“ sem standa fyrir sýn-
ingunni. Sýndur verður sumar-
fatnaður, kjólar, dragtir, kápur
og einnig nokkrir sumarhattar.
Eftirspurn eftir aðgöngum. var
það mikil, að engan veginn var
hægt að fullnægja henni.
Kaffisala
kvenstúdenta
Á SUNNUDAGINN efnir Kven-
stúdentafélag íslands til kaffi-
sölú í Sjálfstæðishúsinu, og hef-
ur þar á boðstólum kaffi og alls
kyns ljúffengar kökur.
Með kaffisölunni hyggst félag-
ið safna í námssjóð til styrktar
íslenzkum kvenstúdent. Um þess
ar mundir er hér á landi ensk
menntakona. Ursula Brown, á
sex mánaða styrk frá félaginu,
og er hún að undirbúa útgáfu á
Eddukvæðunum á ensku.
Vonast Kvenstúdentafélagið til
þess að Reykvíkingar styðji þessa
viðleitni þess með þvi að koma
og drekka kaffi í Sjálfstæðishús
inu eftir klukkan tvö á morgun.
B a z a r
'SAFNAÐARKONUR í Ytri-
Njarðvík starfa nú að því af
miklum áhuga að prýða kirkju
sína. Á morgun kl. 2:30 halda
þær bazar í samkomuhúsi Njarð-
víkur, og mun ágóðanum verða
varið til að prýða kirkjuna að
innan.
Mörg og merk verkeini Biblíulél
NiðurstöðutöTur fjúrhagsúætlunur
Keflavíkurbæjur rúml. 10,5 millj.
Aðalfundur haldinn
SÍÐASTLIÐIÐ ár uxu gjafir til
Hins íslenzka Biblíufélags mjög,
svo að þær hafa aldrei verið jafn-
miklar. Hefur öll starfsemi fé-
lagsins aukizt, ekki sízt síðan það
hófst handa um útgáfu Nýja
testamentisins og nú síðastliðið
ár Biblíunnar allrar.
Á síðasta aðalfundi félagsins
var breytt lagaákvæði um aðal-
fundartíma. Verður aðalfundur
að þessu sinni á morgun, sunnu-
daginn 4. maí, og hefst að lok-
inni síðdegisguðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni, þar sem gjaldkeri
félagsins, sr. Óskar J. Þorláksson,
prédikar. Mikil verkefni eru
framundan, sem verða ekki leyst
nema með enn aukinni fórnfýsi
og áhuga félagsmanna og ann-
arra velunnara félagsins. —
á morgun
Meðal verkefnanna er endurskoð-
un sú á þýðingu Nýja testamentis
ins, sem félagsstjórn hefur sam-
þykkt að gerð skuli og æskileg-
ast væri að lokið yrði á 150 ára
afmæli félagsins, ef þess er nokk-
ur kostur. Nánari upplýsingar um
hag og starf félagsins verða
gefnar á aðalfundi þess að lok-
inni síðdegisguðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni á morgun.
Þessa dagana er verið að senda
meðlimum Biblíufélagsins sér-
prentun af kafla úr Ferðabók
Hendersons. Er það saga Biblí-
unnar hér á landi. Hefir séra
Magnús Már, prófessor, bætt við
kaflann þætti um helztu atriði
þeirrar sögu eftir daga Hender-
sons.
Sem fyrr segir, varð að beita
manninn valdi til þess að hjúkr-
unarlið slysavarðstofunnar gæti
gengið úr skugga um meiðslin.
Tók einn starfsmaður stöðvarinn
ar piltinn og lagði hann niður.
Annar félaga hans, sem úti í
bílnum hafði beðið, kom nú inn
til að huga að félaga sínum.
8/æs by r I eg a
tyrir P/even
PARÍS, 2. maí — Líkur bentu til,
að Pleven myndi takast stjóm-
armyndun, þegar Mollet leiðtogi
Jafnaðarmanna hvatti flokk sinn
í kvöld ti! að greiða atkvæði með
stjórn hans — þó án þess ao taka
þátt í henni. —
Afli Hornafjarðarbáta misjafn í
apríl — góðar aflahrotur annað veifið
m
HORNAFIRÐI, 2. maí — Afli
Hornafjarðarbáta hefur með köfl-
um verið allsæmilegur í apríl.
Þar hafa skipzt á miklar afla-
hrotur og því nær alveg „dauð“
tímabil. Um páskana var t. d.
mjög mikil aflahrota, en mjög
dró úr aflanum upp úr páskun-
um. Aftur gerði góða aflahrotu,
en nú síðustu dagana hefur afli
verið lítill eða a. m. k. mjög mis-
jafn á bátana.
Frá áramótum er nú aflahæst-
ur Jón Kjartansson með 630 lest-
ir, næstur er Helgi með tæpar
600 lestir, og flestir hinir bátarn-
ir með eilítið minni afla.
Mikil atvinna hefur verið hér
bæði við hagnýtingu aflans og
einnig hefur verið óvenjumikið
um skipakomur í mánuðinum, t.
d. komu tvö saltskip. Jökulfell
tók hér 11600 kassa af fiski, sem
flytja átti til Rússlands, sænskt
skip tók 5200 kassa til Bandá-
ríkjanna og Dísarfell 1200 pakka
af skreið. Ennfremur tók Dísar-
fell hér 260 lestir af mjöli. All-
ir lýsisgeymar hér eru að verða
fullir, og unnið er að pökkun á
saltfiski eftir því, sem tinú
vinnst til. —Gunnar.