Morgunblaðið - 03.05.1958, Blaðsíða 15
Laugardagur 3. maí 195?
MORCV1SBLAÐ1Ð
15
— Kröfugangan
Framh. af bls. 1.
hefði náðst meðal verkalýðssam-
takanna um 1. maí, og fyrirvara
þann, sem um helmingur félag-
anna hefði haft á um undirskrift
1. maí ávarpsins. Hann lagði á
það ríka áherzlu að verzlunar-
mannafélögin væru tekin inn í
Alþýðusambandið, þar sem það
myndi stuðla að auknum styrk
beggja aðila. Hann talaði um að
nú alveg á næstunni væru vænt-
anlegar efndir á loforði ríkis-
stjórnarinnar um lífeyrissjóð tog-
— Heimssýningin
Framh. af bls. 6
búið kostaði það 100 milljónir
belgiskra frarka. Sú upphæð tvö
faldaðist hins vegar áður en yfir
lauk, enda var byggingin styrkt
sem kostur var — og á nú að
þola, að samtímis séu í henni
3,200 manns, sem fara á milli
kúlnanna í rafmagnsstigum og
lyftum. Byggingastarfið var ýms-
um erfiðleikum bundið, sérstak-
lega vegna þess, að of seint var
hafizt handa. Síðustu mánuðina
var unnið nótt sem nýtan dag —
og ekki gafst tími til þess að
reisa vinnupalla, sem til þurfti
— né viðhafa öryggisútbúnað
fyrir verkamenn, sem kröfðust
margfaldra launa fyrir bragðið.
Sá orðrómur gengur um Briissel,
að 19 verkamenn hafi beðið bana
er verið var að reisa efstu kúlurn
ar. Stjórnarvöldin hafa hvorki
staðfest né borið til baka þessar
sögur, sennilega til þess að fæla
ferðamenn ekki frá því að hætta
sér upp í Atomium.
Enda þótt sýningarhallirnar
séu hver annarri ólíkar í útliti,
þá er ekki hægt að segja, að
ósamræmis gæti. Þarna er fram-
tíðin í djarflegum myndum —
og jafnvel kaþólska kirkjan, sem
hingað til hefur verið talin ærið
íhaldssöm, lætur sitt ekki eftir
liggja. Sem vænta má ber mest
á russnesku og bandarísku sýn-
ingarhöllunum — og er sú rúss-
neska öllu viðameiri, enda er
haft fyrir satt, að Kússar hafi
varið 5 sinnum meira fé til sinn-
ar sýningar en Bandaríkjamenn
í sína. Þessar tvær sýningardeid-
ir eru mjög ólíkar, jafnólíkar og
austrið .og vestrið. Bandaríkja-
menn leggja áherzlu á að sýna
líf hins bandaríska borgara,
bandarískan munað og þægindi,
jafnt innanhúss sem utan —
stundum á gamansaman hátt.
Bússar hafa hins vegar að mestu
sneitt hjá því, en sýna hins veg-
ar „hverju sósíalisminn hefur
áorkað" — stórar kúlulegur og
sputnik. Það er e.t.v. táknrænt
fyrir Frakkland og frönsk stjórn
máí, að franska sýningarhöllin,
sem talin er eitt mesta mann-
virki sýningarinnar, var ekki
fullgerð þegar sýningin var opn-
uð. Vonir standa til, að hægt
verði að opna hana upp úr helg-
inm.
Aðeins tvö Norðurlandanna,
Noregur og Finnland, eiga skála
á sýningunni. Hvorugur þeírra
er stór, en samt sem áður
hefur vel tekizt til. fslendíngar,
sem heimssýninguna sækja, gera
e.t.v. ráð fyrir, að í sýningimni,
sé íslands að einhverju getið.
Blaðmanni Morgunblaðsins hefur
hins vegar ekki tekizt að finna
neitt annað íslenzkt én fána
landsins meðal þjóðfána þeirra
ríkja, er aðild eiga að Evrópu-
ráðinu — í sýningarskála þess.
Belgiska biblíufélagið á lítinn
skála á belgiska sýningarsvæð-
inu — og þar er auglýst, að til
sýnis og sölu séu biblíur á öllum
þeim tungumálum og mállýzkum,
sem biblían hefur verið prentuð
á. Það var því ekki úr vegi að
athuga, hvort íslenzk biblía væri
þar a boðstolum — en þegar for—
stöðumaður deildarinnar hafði
blaðað í öllum skjölum og biblíu-
bunkum, sem handbærir voru__
kom í ljós, að hvorki var þar að
finna íslenzka né færeyska
bíbliu.
arasjómanna. Að lokum minntist
Jón á kjara- og frelsisskerðingu
verkalýðs fjölmargra landa, þar
sem fólkið hefur verið svipt
frumstæðustu réttindum lifandi
manna.
Næstur talaði Snorri Jónsson,
formaður Félags járniðnaðar-
manna. Var ræða hans með af-
brigðum léleg svo fjöldi fólks
yfirgaf torgið um stundarsakir.
Aðalinntak ræðu hans var um
það, að A. S. í. hefði ekki fengið
að fullskipa kvölddagskrá út-
varpsins 1. maí. Snorri sagði síð-
an, að það væri stefna verka-
lýðssamtakanna að halda niðri
dýrtið í landinu og að auka kaup-
mátt launanna, en fór þó ekki
neinum sérstökum viðurkenning-
arorðum um „verðstöðvunar-
stefnu“ ríkisstjórnarinnar eða ár-
angur hennar. Þá ræddi hann
um, hve aðstaða verkafólks á
vinnustöðvum væri betri en áður
hefði verið og nefndi sem dæmi
að nú væru víðast hvar kaffi-
stofur og sums staðar stórir mat-
salir á vinnustöðvunum. Hann
bar fram kröfur um að aukin
verði bygging leiguhúsnæðis.
Snorri lauk máli sínu með aðal-
kröfu sinni um útrýmingu her-
skálanna — treystum eininguna,
lifi A. S. í.!
Það vakti eftirtekt áheyrenda,
að hvorugur ræðumaður komm-
únista minntist á efnahagsvanda-
mál þjóðarinnar, og báðir forðuð-
ust að ræða um hvað væri fram-
undan í þeim málum eða hverjar
myndu verða ráðstafanir rikis-
stjórnarinnar, en þeim mun þó
báðum vera vel kunnugt ura
hverjar tiilögur stjórnarinnar
verða.
Fólk það, sem flúið hafði torg-
ið undir ræðu Snorra Jónssonar,
þyrptist nú að aftur, er síðasti
ræðumaðurinn, Bergsteinn Guð-
jónsson, form. Hreyfils, tók til
máls. Ræða Bergsteins er birt
á öðrum stað hér í blaðinu, en
hún stakk mjög í stúf við ræður
kommúnistanna, þar sem hann
tók fyrir þau vandamál, sem að
verkalýðnum ög þjóðinni allri
steðja nú. Hann ræddi um rýrn-
andi kaupmátt tímakaupsins og
auknar álögur á þjóðina undan-
farin missiri. Fór hann hörðum
orðum um úrræðaleysi ríkisstjórn
arinnar og algera uppgjöf henn-
ar á yfirlýstum stefnuatriðum.
Bergsteinn gerði grein fyrir þeim
ágreiningi, sem orðið hefði um
1. maí-ávarpið, þar sem um helm-
ingur félaganna hefði ekki vilj-
að skrifa undir þá kröfu að
ályktuninni frá 28. marz 1956, um
brottför varnarliðsins, skyldi
framfylgt strax. Sagði hann að
fulltrúar þessara félaga hefðu
ekki getað fallizt á það sjónar-
mið kommúnista að landið skyldi
vera óvarið gegn hugsanlegum
árásum óvinveittra ríkja. —
Hann lýsti samúð sinni með
verkalýðssamtökum þeirra þjóða,
sem undirokaðar eru ofurvaldi
einræðis og kúgunar.
Ræða Bergsteins bar mjög af
ræðum hinna ræðumannanna,
enda kom það greinilega fram á
þeim sérstaklega góðu viðtökum,
sem hún hlaut hjá áheyrendum.
Yerzlunarmannafél.
Ikraness segir upp
samningum
AKRANESI, 2. maí. — Verzlun-
armannafélag Akraness hefir
sagt upp samningum. Hefir það
sent Vinnuveitendafélagi Akra-
ness, kaupmönnum og Kaupfé-
lagi Suður-Borgfirðinga, svolát-
andi tilkynningu: „Vegna vænt-
anlegra aðgerða ríkisstjórnar-
innar í verðlagsmálum leyfir
trúnaðarmannaráð Verzlunar-
mannafélags Akraness sér hér
með að segja upp núgildandi
samningi um launakjör verzlun-
ar- og skrifstofufólks á Akranesi.
Sagt er upp með eins mánaðar
fyrirvara, eins og lög gera ráð
fyrir, og fellur því samningur
Verzlunarmannafélags Akraness
úr gildi 1. júní n.k.
Samkomur
Fíladelfía:
Sunnudagaskóli kl. 10,30. Á
sama tíma í Eskihlíðarskóla. Út-
varpsguðsþjónusta kl. 5 (Ekki
kl. 4,30. Almenn samkoma kl.
8,30. Arvik Ohlsson talar. Allir
velkomnir.
M.s. GliLLFOSS
fer frá Reykjavík kl. 5 síðd. í
dag tíl Leeth og Kaupmanna-
hafnar. Farþegar eru beðnir að
koma til skips eigi síðar en kL
4,30 e.h.
H.f. Eimskipafélag íslands.
Félagslíi
Þjóðdansafélag Reykjavíkur
lagt verður af stað í ferðina
að félagsgarði kl. 8 í kvöld frá
B.S.Í. mætið stundvíslega.
Framarar
Áriíðandi æfing á laugardag 3.
maí kl. 5 fyrir meistara og 2.
flokk.
Nefndin.
Réttindi véist/óra
EINS og áður hefur verið sagt
frá í Mbl., flytur Karl Guðjóns-
son frumv. til laga um breytingar
á lagaákvæðunum um réttindi
vélstjóra á skipum. Sjávarútvegs-
nefnd neðri deildar hefur haft
frumv. til athugunar að undan-
förnu, og liggur álit hennar nú
fyrir. Málið var rætt á þingfundi
í gær.
Karl Guðjónsson skýrði nefnd-
arálitið. Hann kvað nefndina
hafa fengið umsagnir frá ýmsunx
aðilum. Eru skoðanir um málio
mjög skiptar. Nefndin leggur þó
til, að frumv. verði samþykkt
með breytingum. Er þeim ætlað
að kveða á um, að starfstimi
komi ekki til greina við réttmda-
öflun, nenta menn hafi verið
skráðir á skip sem vélstjórar.
Einnig er breytingatillögunum
ætlað að færa ákvæðin um
skyldu til að hafa vélstjóra a
skipum til samræmis við aðrar
breytingar, sem frumv. fjailar
um.
Framsögumaður las skýrslu
frá samgöngumálaráðuneytinu
um vélstjóraundanþágur 1956 og
1957. Voru þær þessar: Mótor-
vélar undir 250 hö.: 117 (1956j
og 149 (1957). 250—600 hö.: 49
og 65. Yfir 600 hö.: 49 og 30. —
Gufuvélar 48 og 50.
Undanþágurnar eru veittar til
6 mánaða í senn, svo að þær eru
fleiri en aðilarnir, sem hafa feng-
ið þær.
Að lokum sagði Karl Guðjóns-
son, að hann teldi, að endurskoða
ætti gildandi reglur um mennt-
un vélstjóra almennt. Nefnd sú,
sem að því hefur unnið, heíði
lokið störfum fyrir nokkrum dög-
um, ekki orðið sammála og skilaó
tveimur álitsgerðum. Væri ekkx
unnt að bíða eftir lagafrumv.
byggðu á þessari endurskoðun.
Yrði að veita þeim mönnum rétt-
indi, sem nú starfa sem vélstjórar
Cambridge-léreft
í smábamafatnadí nýkomið.
MÁNAFOSS
Grcttisgöiu 44, síiui 15082
a grundvelli undanþága, enda
mætti þjóðin ekkí missa þá úr
starfi.
Magnús Jónsson las upp bréf,
sem Vélstjórafélag íslands hafðr
ritað um mál þetta. Er þar sagt,
að félagið hafi nú álitsgerðir
fyrrgreindrar nefndar til athug-
unar, og að endurskoða þurfi
atvinnulöggjöfina samhliða breyt
ingum á skólalöggjöfinni. Verði
tillögur Karls Guðjónssonar sam-
þykktar skapist ósamræmi milh
þeirra hluta laganna sem hann
vill breyta, og annarra, og skapi
það óþarfa erfiðleika. Þá teíur
félágið réttindaaukninguna ekki
eins aðkallandi og sumir viiji
vera láta og óskar þess, að frumv.
Karls verði látið bíða næsta
þings, svo að nægur tími vinnisi
til að vinna að endurskoðun
skólalöggjafarinnar og atvinnu-
löggj af ar innar.
Magnús kvaðst að vísu ekki
vilja gera öll sjónarmið vélstjora
félagsins að sínum, en hins vegar
teldi hann, að hér væri um að
ræða mál, er þarfnaðist vandiegr-
ar athugunar. Væri ekki sjaan-
legt, að til skaða væri að fresta
því, þar til á næsta þingi.
Karl Guðjónsson kvaðst þekkja j
og skilja sjónarmið vélstjórafé-,
lagsins, þótt hann teldi ekki, að
taka ætti þau til greinda. Fyrir
sér vekti ekki að svipta þá, sem ,
menntazt hafa í vélstjóraskólan- j
um, neinum réttindum, heldur (
veita öðrum hluta af þeim sér-
réttindum, er þessir menn njóta ,
nú.
Að ósk Magnúsar Jónssonar
var málinu frestað. Taldi hann
rétt að fá upplýsingar í ra
menntamálaráðherra um það,
hvenær hann hygðist leggja íram
frumv. byggt á álitum nefndax !
þeirrar, sem fyrr er frá sagt. —
Ráðherrann var ekki á fundinum.
4
SKIPAUTGCRB RIKISINS
SKJALDBREIÐ
fer vestur til Flateyrar hinn 8.
þ.m. Tekið á móti flutningi til
Ólafsvíkur, Grundarfjarðar,
Stykkishólms, Skarðsstöðvar,
Króksf jarðarness og Flateyrar í
dag og á mánudag. Farseðlar
seldir á miðvikudag.
fjölritarar og
til
íjölritunar.
Linkaumboð Finnbogi Kjartansson
Austurstræti 12. — Sími 15544
/ f fjölrita
'§fjzó7eZs?er fn\
Fimleikanámskeiðin hefjast í ÍR-
húsinu mánud. 5. maí.
Frúarfl. kl. 4,50.
Kvennafl. kl. 8,50.
Kennari Unnur Bjarnadóttir.
ÍR.
Vormót I. fl.
Hefst á íþróttavellinum 3. maí
kl. 2. Þá keppa Fram og Valur.
Dómari. Gunnar Aaðalsteinsson.
ALLT I RAFKERFIÐ
Biiaraftækjaverzlun
Halldórs Ólafssonar
Rauðarárstíg 20. — Sími 14775.
FERÐ um Krísu-
vík, Selvog, Þor-
lákshöfn og
Hveragerði sunnu
dag kl. 9 f.h.
Ferðaskrifstofa Páls Arasonar
simi 17641.
I. O. G. T.
Stúkan Sóley nr. 242.
Félagsvist og dans í kvöld kl.
8,30. — Félagar fjölmennið.
Nefndin.
Málllutninpsskrifstofa
Einar B. Cuðniundsson
Guífis ngur Þoriáksson
Guðinnndur Pctursson
Aðalstræti 6, III. hæð.
Siniar 1200? — 13202 — 13602.
HÖRÐUR ÓI.AFSSON
málfiutningsskrifstofa.
Löggiltur dó-ntúlkur og skjal-
þýðandi í ensku. — Austurstræti
Maðurinn minn og faðir okkar
SIGURÐUR MAGNÚS SÓLONSSON
múrarameistari,
andaðist í Landakotsspítala aðfaranótt 1. þ. .m.
Laufey Einarsdóttir og börn.
Faðir okkar
SVAVAR ÞJÓÐBJÖRNSSON
Sandgerði, Akranesi,
lézt á Landakotsspítalanum fimmtudaginn 1. maí.
Dætur hins látna.
KNUT HERTERVIG
frá Siglufirði, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni,
þriðjudaginn 6. maí kl. 1,30 e.h.
Svava Hertervig,
Sigurbjörg Hálfdánardóttir.
Arnesingafélagið
heldur SUMARFAGNAÐ í Hlégarði, Mosfellssveit
í kvöld kl. 9.
Góð skemmtiatriði. Ferð frá B.S.l. kl. 8,30.
Árnesingafélagið í Reykjavík.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og ú»för
STEFÁNS BENEDIKTSSONAR
Skaftafelli, öræfum.
Börn hins látna. •
Öllum þeim, sem á einn eða annan hátt heiðruðu mínningu
móður okkar
JÓHÖNNU EINARSDÓTTUR
frá Garðhúsum, færum við okkar hjartanlegustu þakkir.
Eirika Eiríksdóttir,
Guðrún Eiríksdóttir,
Járngerður Eiriksdóttir.