Morgunblaðið - 20.05.1958, Blaðsíða 1
20 síður
m
De Gaulle reiðubúinn að taka völd í Frakklandi
Mun þó ekki brjóta lög lýðveldisins
Frá blaðamannafundinum
i Paris i gær
PARÍS, 19. maí. — Reuter. — De Gaulle hershöfðingi lýsti
því yfir á blaðamannafundi, sem hann hélt í París í dag,
að hann væri reiðuhúinn að taka völdin í Frakklandi og
bjarga landinu þannig enn einu sinni, ef þjóðin óskaði þess
og þjóðþingið kveddi hann til þess.
Hershöfðinginn lýsti blessun sinni yfir aðgerðum her-
ttjórnarinnar í Alsír. Þær hefðu verið óhjákvæmilegar.
Hins vegar kvaðst hann ekki hafa í hyggju að rjúfa lög
lýðveldisins né taka völd með byltingu, heldur vænti hann
þess að koma breytingum fram á stjórnarkerfi Frakklands
með löglegum hætti.
Gat orðiff upphaf borgara-
styrjaldar
Blaðamannafundur þessi var
boðaður með nokkurra daga fyr-
irvara og var hans beðið með
mikilli eftirvæntingu, því að vit-
að var að á honum myndi de
Gaulle gefa nokkru nánari skýr-
ingu á því, hvað hann hefði meint
með ummælum sínum í síðustu
viku, að hann væri reiðubúinn
að taka við völdum. Var nú jafn-
vel talið að með vissum ummæl-
um gæti de Gaulle hleypt af stað
borgarastyrjöld í Frakklandi.
Kommúnistar mótmæltu því að
de Gaulle yrði leyft að halda
blaðamannafundinn. Sögðu þeir
að fundurinn væri aðeins liður í
landráðastarfsemi hans. Þegar
stjórn Pflimlins leyfði fundinn,
undirbjuggu kommúnistar mót-
mælaverkfall, sem skyldi hefjast
um miðjan dag. Verkfall þetta
varð ekki mjög víðtækt, en neð-
anjarðarbrautir stöðvuðust ein-
mitt um það leyti sem fundurinn
hófst.
De Gaulle ók til Parísar
snemma í morgun en almenning-
ur varð ekki var við för hans
inn í borgina. Blaðamannafund-
urinn var haldinn í stórum sal
í Hotel Palais d’Orsay í borginni.
umhverfis gistihúsið stóðu nær
2000 vopnaðir lögreglumenn vörð
og engum var hleypt inn nema
blaðamönnum og fulltrúum er-
lendra sendiráða, sem boðið hafði
verið til fundarins. Um 600 manns
voru á fundinum og var hótel-
salurinn troðfullur.
Talið að Rússar séu að
hefja hefndaraðgerðir
gegn Júgóslövum
De Gaulle: — Hví ætti ég aff taka upp á því á gamals aldri aff
gerast einræffisherra?
Ef stjórn Pflimlins missir
þingmeirihluta sinn
— tekur De Caulle við
BELGRAD, 19. maí. (Reuter). —
Rússar hafa ákveðið að fresta
samningaviðræðum við Júgóslava
um nýjan viðskiptasamning. Þótt
Rússar láti svo heita, sem samn-
ingunum sé aðeins frestaff fram
í næsta mánuff, hefur óhugnaður
gripið um sig meðal Júgóslava.
Þeir telja nú víst, aff Rússar sé<u
að hefja efnahagslegar hefndar-
aðgerffir gegn Júgóslavíu. Væri
þaff þá í annaff skipti sem Rúss-
ar valda Júgóslavíu stórfelldu
efnahagslegu tjóni meff stöðvun
verzlunar og viffskipta.
I fyrsta skipti gerðist það, þeg-
ar ágreiningur kom fyrst upp
milli Titós og Stalíns. Þá setti
Stalín algert viðskiptabann á
Júgóslavíu. Stóð yfir um þær
mundir viðreisn landsins eftir
styrjöldina og var viðreisnará-
áætlunin byggð á samstarfi við
Rússa, svo að áhrif viðskipta-
bannsins urðu geigvænleg.
Eftir dauða Salins tókust aft-
ur sættir með Rússum og Júgó-
slövum og var þegar svo komið,
að Rússland var langstærsta við-
skiptaland Júgóslavíu.
Sé það nú ætlun Rússa að setja
nýtt viðskiptabann á Júgóslava
eru þeir síðarnefndu neyddir til
að leita lána til langs tíma með-
al vestrænna þjóða.
í viðskiptaumræðum, sem áttu
að hefjast nú í vikunni í Moskvu
var ætlunin að semja vörulista
varðandi viðskipti þjóðanna á
þessu ári að upphæð 124 milljónir
dollara. Mun hafa verið búizt við
að Rússar seldu kol, olíu, unna
málma, áburð og vélar en að
Júgóslavar seldu þeim aftur
málmgrýti, sement, efnavörur,
tóbak og landbúnaðarvörur.
Júgóslavar höfðu hug á að
festa kaup á kjarnorkuofni í
Sovétríkjunum. Þá væntw
þeir þess aff fá 18 milljón doll-
ara lán í Rússlandi, en fyrir
þremur árum hétu Rússar að
útvega Júgóslövum fjármagn
og veita tæknilega affstoð viff
byggingu tveggja áburffarverk
smiðja, viff endurnýjun á þrem
ur námum, við byggingu raf-
orkuvera og alumíníum-verk-
smiffju í Montenegro.
Stöðvun á þessum framkvæmd-
um mun að sjálfsögðu hafa al-
varleg áhrif á allt efnahagslíf
Júgóslavíu. Verður þá að endur-
skipuleggja alla framkvæmdaá-
ætlun ríkisins
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Rvík
efndu til almenns fundar í Sjálf-
stæðishúsinu á sunnudaginn. Var
þar rætt um tillögur ríkisstjórn-
arinnar í efnahagsmálum. Frum-
mælendur voru Ólafur Thors,
formaður Sjálfstæðisflokksins, og
Ólafur Björnsson prófessor. Ól-
Sækist ekki eftir einræffi
De Gaulle flutti fyrst yfirlýs-
ingu. í henni sagði hann m. a.:
Framh. á bls. 3.
afur Thors sagði, að frumvarp
ríkisstjórnarinnar væri versti
óskapnaffur, sem sézt hefði á Al-
þingi lengi — að núverandi ríkis-
stjórn sjálfri undantekinni. Það
fæli ekki í sér efndir á hinum
mörgu og miklu fyrirheitum
stjórnarinnar, það fæli í sér end-
PARÍS, 19. maí. (Reuter). —
Yfirlýsing de Gaulle hefur
orðið frönskum stjórnmála-
anleg svik fyrirheitanna. Ráð-
stafanirnar, sem áttu að verða
prófsteinn stjórnarinnar, hafa
orffið legsteinn hennar, sagffi Ól-
afur Thors. Ólafur Björnsson
sagði í upphafi frá mótmælabréf-
um, sem send hafa verið fjár-
hagsnefndum Alþingis vegna
frumvarps stjórnarinnar og rakti
síðan, hvaff í því felst. Hann
sagði að lokum, að stjórn sú,
sem nú situr, væri ekki ríkis-
stjórn í venjulegum skilningi.
Hún hefði ekki sameiginlega
Framh. á bls. 9
Frummælendur á fundi Sjálfstæðisfélaganna. Ólafur Thors og Ólafur Björnsson.
Stjórnin hefir enga sameigin-
lega stefnu í efnahagsmálum
Ráöstafanir, sem verða áttu prófsteinn stjórnarinnar,
hafa ordið legsteinn hennar
Geysifjölmennur fundur Sjálfstæðis
félaganna á sunnudaginn
mönnum mikill léttir. Þeim
þykir nú ljóst að sú hætta sé
hjá liðin, að hershöfðinginn
efni til byltingar og ræni
völdum með blóðugri upp-
reisn.
Margir þingmenn fylgdust meff
blaðamannafundinum gegnum
sjónvarpið og þótt flestir stjórn-
málaforingjar neiti að láta að
svo komnu í ljós álit sitt á yfir-
lýsingu de Gaulles er það skoðun
stjórnmálafréttaritara, að hers-
höfðinginn hafi verulega unnið á
með yfirlýsingu sinni.
Sumir eru jafnvel þeirrar
skoðunar, að blaðamannafund-
urinn verði upphaf þess, aff
de Gaulle verffi falin stjórnar-
myndun. Hin hógværa og skyn
samlega framkoma hans á
fundinum muni leiffa til þess
að fylgi hans meðal þing-
manna muni aukast. Komm-
únistar munu aff sjálfsögðu
verffa eins fjandsamlegir hers-
höfffingjanum og áffur. Hins
vegar er taliff líklegt, aff jafn-
affarmenn séu farnir aff linast
í mótspyrnu gegn honum.
Yfirlýsingar de Gaulles á blaða
mannafundinum eru almennt
skildar sem áskorun til Coty
Frakklandsforseta að fela honum
st j órnar myndun. Telja flestir
stjórnmálaritarar að það hafi
verið skynsamlegt hjá de Gaulle
að efna ekki til æsinga. Hann
viti sem er að stjórn Pflimlins
getur ekki leyst Alsírvandamál-
Fi'amh á bls. 19
Uppreisnarmönmim
gefnar upp sakir
ALGEIRSBORG, 19. maí. (Reut-
er). — í dag var tilkynnt i Al-
geirsborg stofnun allsherjar-ör-
yggisnefndar fyrir alit Alsír. Með
al helztu foringja hennar eru
Soustelle, og hershöfðingjarnir
Massu og Salan.
Um leið og stofnun hennar var
tilkynnt gaf Salan út tilkynningu
til serkneskra uppreisnarmanna,
þar sem hann skorar á þá að
leggja niður vopn og skuli þeim
þá gefnar upp allar sakir.
*