Morgunblaðið - 20.05.1958, Qupperneq 19
Þriðjudagur 20. ma’ 1958
MORGVISBLA ÐIÐ
19
Emii Jónsson
CARL Emil Ole Möller Jónsson,
eins og hann hét fullu nafni eftir
afa sínum, Möller lyfsala í Stykk
ishólmi, var fæddur þar hinn 11.
marz 1912. Foreldrar hans voru
hjónin Dóróthea Möller og Jón
Júlíus Björnsson, hreppstjóra í
Stykkishólmi Steinþórssonar.
Ólst hann þar upp til 8 ára
aldurs, er hann fluttist me3 for-
eldrum sínum og systrum til
Reykjavíkur, þar sem hann átti
heimili ae síðan. Snemma fór
hann að vinna fyrir sér, og var
fyrst við verzlunarstörf, og reynd
ist þegar hinn ötulasti til allra
verka. Árið 1934 réðst hann til
Sláturfélags Suðurlands, og hef-
ur síðan unnið þar óslitið, lengst-
um við skrifstofustörf. Þótt hann
nyti ekki langrar skólagöngu, afl
aði hann sér staðgóðrar mennt-
unar, og reyndist hinn hæfasti
starfsmaður í sinni grein, og var
mjög vel látinn jafnt af yfirboð-
urum sínum sem samstarfsmönn-
um, og þeim sem hann átti við
að skipta í starfi sínu. Hann var
dagfarsljúfur og glaðsinna, en
einbeittur og ákveðinn í skoðun-
um, hreinlyndur og hreinskilinn
við hvern sem var. Báru því all-
ir til hans hið bezta traust, enda
var honum sífellt trúað fyrir
ábyrgðarmeira starfi, og síðustu
árin sá hann um allar kaup-
greiðslur til starfsfólksins. Vinum
sínum og venzlafólki var hann
geðþekkur og kær, og tryggð
hans við heimahaga og æskuvini
brást ekki.
Emil kvæntist 21. sept. 1935
Valentínu Valgeirsdóttur, og
— Uppreisn Massu
Framh. af bls. 6
dregizt á langinn. Ýmsir háttsett-
ir hershöfðingjar í París hafa
mjög deilt á herstjórn han. og
má þar nefna hinn þekkta Juin
marskálk, en aðrir hershöfðingj-
ar hafa boðizt til þess að segja
stöðum sínum lausum vegna þess,
að þeir telja að tvídrægnin í
stjórnmálunum skaði mjög sigur-
vonir Frakka í Afríku.
★
Það er langt síðan farið var
að óttast, að herinn í Algier
mundi gera uppreisn og margir
höfðu snemma augastað á Massu
hershöfðingja sem væntanlegum
foringja. í þessu sambandi er
rétt að taka fram, að uppreisn
Massu á eitkert skylt við fasisma.
Massu er hermaður og ekkert
annað. Hann hefur dæmið frá
Dien Bien Phu fyrir sér og hvorki
hann né hermenn hans vilja að
sá leikur endurtaki sig.
★
Það má segja, að þetta sé í
stórum dráttum það sem liggur
á bak við það, að franski herinn
í Alzír hefur gert þá uppreisn,
sem nú hefur komið öllu Frakk-
landi til að riða. Það er hægt að
líta á allt þetta með ýmsum aug-
um, en hins vegar þýðir ekkert
að horfa fram hjá staðreyndum
ef menn á annað borð vilja gera
sér grein fyrir því, af hverju
þeir viðburðir stafa, sem mest er
talað um og örlagaríkastir geta
orðið.
mmnmg
eignuðust þau tvo syni, sem nú
eru uppkomnir, Valgeir Jón, sem
stundar prentiðn, og Björn loft-
skeytamann. Valentína lézt
snemma árs 1939, og var það
mikið áfall fyrir mann hennar og
unga syni. Öðru sinni kvæntist
Emil 15. des. 1940 eftirlifandi
konu sinni, Hrefnu Ólafsdóttur.
Eiga þau fjögur börn, Ólaf, sem
er að verða uppkominn og hinn
mannvænlegasti maður, eins og
þeir allir bræður, Jón, Dórótheu
Ingibjörgu og Dagnýju, sem öll
eru innan fermingar. Heimili
sínu og fjölskyldu var Emil hinn
umhyggjusamasti forsjármaður,
sívakandi og reiðubúinn að fegra
og gleðja, enda átti hann næman
fegurðarsmekk og skilning á gildi
góðs og hlýlegs heimilis.
Emil Jónsson andaðist hinn 13.
þun., og fer útför hans fram í dag.
Hann er mjög harmdauði ást-
ríkri eiginkonu sinni, börnum,
tengdadætrum og litlu sonardótt
urinni, sem var yndi hans og
eftirlæti, systrum sínum frænd-
fólki og venzlafólki öllu, og öll-
um, er af honum höfðu kynni.
Ég bið Guð að styrkja ástvinina
í þeirra mikla missi, um leið og
ég þakka kærum vini langa og
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 10
til ætlazt, að þessi stofnun starf-
aði aðeins í 18 mánuði, eða á með
an á alþjóðarrannsóknum í jarð-
fræði er haldið áfram, en nú er
sýnt, að þessi stofnun hefir gert
svo mikið gagn, að veðurfræðing
ar vilja fyrir hvern mun halda á-
fram starfrækslu hennar.
Einnig tók ráðstefnan til með-
ferðar ýmis tæknileg atriði í veð-
urfræðiefnum. T.d. var á það
bent, að á öld þrýstiloftsflugvéla
yrðu gerðar meiri kröfur til veð-
urfræðinnar og veðurfræðiþjón-
ustunnar en nokkru sinni fyrr.
Þá var til umræðu kjanorka og
veðurfræðivísindi, og hvaða hlut
deild Alþjóðaveðurfræðistofnun-
in skyldi eiga í tæknilegri aðstoð
á veðurfræðisviðinu, en Samein-
uðu þjóðirnar beita sér fyrir
slíkri aðstoð í þágu þjóða, sem
standa höllum fæti í þeim efnum.
Loks var rætt um nauðsyn þess,
að stofnunin eignaðist þak yfir
höfuðið, og þörfina á því að
byggja skrifstofuhús fyrir hana i
Genf.
Ráðstefnunni stjómaði André
Viaut, sem er forseti Alþjóðaveð-
urfræðistofnunarinnar. Hann er
yfirmaður frönsku veðurstofunn-
ar.
Fréttir frá S.Þ.
í stuttu máli
Nýtt frímerki frá Sameinuðu
þjóðunum kemur út þann 2. júní.
Það verður með merki S.Þ., blátt
og hvítt að lit. Verðmæti þess
verður 8 cent, og verður það gef-
ið út í 5 millj. eintökum.
Efnahags- og félagsmálaráð
Sameinuðu þjóðanna hefir sam-
þykkt að stofnuð skuli efnahags
nefnd fyrir Afríku, sem hafi aðal-
bækistöð í Addis Abeba.
ÖRN CLAUSEN
héraðsdómslögmaður, (
Málflutmngsskrifstofa.
Bankastræti 12 — Sími 18499.
góða samferð á lífsleiðinni, og
lýsi blessun yfir minningu hans í
hugum allra þeirra, er til hans
þekktu.
Björn Magnússon,
★
ÞAÐ má segja að lífið sé eins og
vatnið sem rennur eftir árfar-
veginum, alltaf á hreyfingu. Nýj-
ar kynslóðir koma en þær eldri
hverfa í skuggann, það er lífsins
saga. En þegar menn á bezta
aldri hverfa snögglega burt af
sjónarsviðinu — menn sem
manni finnst eiga svo margt eftir
að gera — þá hrekkur maður við,
eða svo varð um mig þegar mér
var tjáð lát míns gamla leikfé-
laga Emils, en svo var hann
kallaður í okkar hópi.
Sá tími sem við þekktumst
bezt var þegar við vorum báðir
fyrir innan fermingu, þá hittumst
við svo að segja daglega að ein-
hverjum leikum og var Emil
ávallt þar með þeim fremstu
bæði með leikni drengskap og
dugnað.
En þegar unglingsárin tóku
við, skildu leiðir, bæði vegna bú-
staðaskipta og atvinnu. Þó höf-
um við alltaf sézst öðru hvoru og
vitað hvor um annan, og ávallt
þegar ég sá þennan kvika og
íbyggna vin minn, þéttan á velli
og þéttan í lund, þá komu mér
í hug margar endurminningar
frá horfnum æskudögum. Þessar
fáu línur eiga aðeins að vera
lítill þakklætisvottur fyrir þær.
Ástvinum hans öllum sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Gamall leikbróðir.
— Ef stjórn ....
Frh. af bls. 1
ið, né heldur aðrar þingræðis-
stjórnir. Því sé það alger óþarfi'
fyrir hann að hleypa af stað
borgarastyrjöld. De Gaulle geti
beðið rólegur. Á þessu máli verði
engin önnur lausn fundin en að
fela honum stjórnartaumana. Það
sé aðeins tímaspursmál hvenær
stjórn Pflimlins missi þingmeiri-
hluta sinn, en þar með væri de
Gaulle kominn að.
Washington, 19. maí. (NTB) —
Eisenhower forseti ræddi í dag
við aðra forustumenn Republik-
anaflokksins um atburðina i
Frakklandi og Alsír. Hann mun
flytja ræðu í New York á morg-
un, þar sem hann ræðir um þessi
vandamál.
London, 19. maí (NTB). —
Brezka stjórnin fylgist af mesta
áhuga með síðustu atburðum í
Frakklandi. Áður óttuðust Bret-
ar, að de Gaulle myndi gera til-
raun til stjórnarbyltingar. Nú
eru þeir þvert á móti hræddir um
að hann muni brátt taka völd
með löglegum hætti. Þykja lík-
urnar fyrir því hafa vaxið við
síðustu yfirlýsingu hans. Er
brezka stjórnin þegar farin að
íhuga, hvaða afleiðingar það
kynni að hafa í för með sér fyrir
Atlantshafsbandalagið.
RAGNAR JÓNSSON
hæstaréttarlógmaður.
Laugaveg. 8. — Sími 1V752.
Lögfr<eðistörf. — Eignaumsýsla.
Sigurður Ólason
HæstarcUarlögnmðu)
Þorvaldur Lúðvíksson
Héraðsdómslögmaftui
Málflutuingsskrifstoía
Austurstræti 14. Sími 1 -S5-3S.
LOKAÐ
eftir hádegi í dag
vegna jarðairfarar.
Timburverziun
ÁRNA JÓNSSOIMAR & Co. H.f
Innilega þakka ég öllum ættingjum og vinum er sýndu
mér vináttu, sendu mér heillaskeyti og gjafir á 70 ára
afmæli mínu 8. þ.m.
Emilía Pálsdóttir, -
Kamp-Knox H 11
3
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
KRISTlN JÓNSDÓTTIR
andaðist aðfaranótt 19. þ.m. á Elliheimilinu Grund.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Móðir mín
JÓHANNA SIGRlÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 21.
maí kl. 2. Athöfninni verður útvarpað. Blóm eru afþökkuð,
en þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á að
styrkja lamaða og fatlaða.
Jsœðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Sigurþór Eiríksson.
Útför mannsins míns
GUÐMUNDAR ÓUAFSSONAR
fyrrverandi kennara á Laugarvatni fer fram frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 22. þ.m. kl. 16,30.
Athöfninni verður útvarpað.
Kveðjuathöfn fer fram í Akraneskirkju miðvikudaginn
21. þ.m. kl. 14.
Blóm vinsamlegast afbeðin.
Ólöf Sigurðardóttir.
Móðir okkar og tengdamóðir
KRISTÍN SNORRADÓTTIR
frá Hæðarenda, Grindavík, verður jarðsungin frá heimili
sínu Hvoli, Grindavík, fimmtud. 22. maí kl. 1.30 e.h.
Blóm eru afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hinnar
látnu er bent á Grindavíkurkirkju.
Ferð frá Bifreiðastöð íslands kL 11.30 f.h.
Börn og tengdabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
SVAVARS ÞJÓÐBJÖRNSSONAR
Sandgerði, Alsranesi.
Aðstandendur.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við and-
lát og jarðarför
GUÐNÝJAR GUÐNADÖTTUR
frá Dalsmynni.
Lóa Kristjánsdóttir, Friðsteinn Jónsson,
Unnur Runólfsdóttir, Valgeir Kristjánsson
Guðrún Þórðardóttir, Eggert Kristjánsson.
Alúðar þakkir fyrir auðsýrida samúð við andlát og út-
för móður okkar, tengdamóður og ömmu
GUÐRÚNAR jónsdóttur.
Björn Magnússon, Eva Árnadóttir,
Hólmfríður Magnúsdóttir, Ásdís Björnsdóttir.
Hugheilar þakkir færi ég öllum, er sýndu hluttekníngu
við andlát og útför mannsins míns
ÞORBJARNAR ÓLAFSSONAR
Harrastöðum.
Fyrir hönd vandamanna.
Björg Ebeneserdóttir.
Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim nær og fjaer,
er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarð-
arför okkar áustkæru móður
INGIBJARAR JÓNSDÓTTUR
frá Gaddsstöðum
Sigríður Bjarnadóttir,
Þuríður J. Bjarnadóttir,
Jón Bjarnason.
Hjai’tans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og jarðarför móður okkar og tengdamóður
RAGNHEIÐAR KOLBENSDÓTTUR
Kristín Arngrímsdóttir,
Guðjón Arngrímsson, Regína Jónsdóttir.