Morgunblaðið - 08.06.1958, Side 12

Morgunblaðið - 08.06.1958, Side 12
12 MORC.unnr 4 rtíÐ Sunr,udagur 8. Júní 1958 tjtg.: H.í. Arvakur, ReykjavIK. Framkvæmdastjóri: bigíus Jónsson. Aðairitstjorar: Vaitýr Stefánsson (ábm.) Bjarni Benediktsson. Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá V-~ Einar Asmundsson. Lesbók: Arm Ola, sími 33045 Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjörn: Aðalstræti 6. Auglýs'ngar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480 Asknftargjalci kr 30.00 á mánuði innaniands. 1 lausasolu kr. i.50 eintakið. > HAGUR REYKJAVÍKUR STENDUR MEÐ BLÓMA UTAN UR HEÍMI Sjö víkingar, fimm tonn af olsu, fsmm tonn af portvíni — og nokkur keröld af miði Víkingaskipið er nú á leið yfir Atlantsliaf AFIMMTUDAGINN kom reikningur Reykjavíkur- bæjar fyrir árið 1957 til fyrri umræðu í bæjarstjórn Reykjavíkur. í sambandi við fjár- hagsmál bæjarins hafa Sjálf- stæðismenn lengi lagt áherzlu á, að fjárhagsáætlunin væri snemma til og hefur hún að jafn- aði verið lögð fram íyrir áramót og afgreidd fljótt þar á eftir. í ár varð alllangur dráttur á af- greiðslu fjárhagsáætlunarinnar af því, að vegna óvissunnar út af efnahagsráðstöfunum ríkisstjórn- arinnar var ekki unnt að áætla gjöld bæjarins sannsýnilega fyrr en nú í síðastliðnum mánuði. t sambandi við reikninga bæjarins hefur verið lögð áherzla á, að þeir yrðu sem fyrst til, svo að bæjaryfirvöldin sjálf og bæjar- búar gætu sem fyrst fengið yiir- lit yfir reikningshald bæjarins fyrir liðið ár. Til samanburðai má nefna að ríkisreikningarnir eru ekki til fyrir nokkrum árum á eftir og gerir það allan sam- anburð við ríkið miklu ógleggri og notaminni, þar sem reikning- ur ríkisins kemur svo seint fram. Einn af fulltrúum minnihluta- flokkanna fann sérstaka ástæðu til þess, að þakka Sjálfstæðis- mönnum fyrir það á bæjarstjórn- arfundinum, hve fljótt þeir brygðu við að gefa út reikning- ana. ★ í reikningunum kemur fram, að rekstraráætlun bæjarfélagsins hafa staðizt vel. Rekstrargjöldin voru áætluð kr. 165 milljónir og á árinu voru fjárveitingar hækk- aðar og samþykkt gerð um ný útgjöld fyrir kr. 2,5 milljónir, þannig að áætluð gjöld urðu samtals 167,5 milljónir. Reksturs- gjöld samkvæmt reikningunum urðu kr. 166,1 millj. eða kr. 1,4 milljón lægri en áætlað hafði verið. I þessu sambandi ber að gá að því, að við samningu fjár- hagsáætlunarinnar var reiknað með lægri kaupgjaldsvísitölu en reyndist vera, en vísitöluhækk- unin kostaði bæjarsjóðinn 1,5 milljón kr. í auknum útgjöldum og sé þetta athugað í sambandi við samanburð á áætlun og reikn- ingi hafa gjöldin orðið kr. 2,9 milljónir undir áætlun eða 1,75%. Mun það vera allt að því eins- dæmi nú í opinberum rekstri, að rekstraráætlanir opinbers fyrir- tækis standist svo vel sem hér hefur orðið raun á. Á siðustu ár- um hafa rekstrargjöldin einnig staðizt vel og oftar verið undir áætlun en yfir. ★ í ársbyrjun 1957 var hrein eign kaupstaðarins kr. 354,9 milljónir en við árslok kr. 457,7 milljónir og nemur eignaaukningin þannig 102,8 milljónum króna. Á síð- ustu árum hefur orðið stöðug eignaaukning hjá bænum, þannig að á síðustu fjórum árum hefur eign kaupstaðarins aukizt um kr. 215,7 milljónir króna, eða um tæp 90%. ★ Þegar rætt er um eignirnar er rétt að geta þess, að skuldir, sem bæjarsjóður stendur undir, haía vaxið um 12,5 milljónir króna. Kemur þetta að miklu leyti til af þvi, að lán, sem tekin voru til raonusa, eru veitt bæjaisjóðnam og falla undir skuldir hans. Þe?si lán endurlánar oæjarsjóður síð- an kaupendum húsanna og auk- ast þá jafnframt útistandandi skuldir bæjarsjóðs. Slík lá.r námu tæpum 7 milljónum kr. á s. 1. án. ★ Þrátt fyrir aukningu, sem einnig hefur orðið á útistand- andi skuldum, hefur greiðslu- jöfnuður bæjarsjóðs orðið hag- stæður um tæpa eina milljón króna, og hefur greiðslujöfnuður- inn á seinustu árum verið hag- stæður nema árið 1956, en þá var hann óhagstæður um 0,6 milljónir. ★ Sjálfstæðismenn hafa ætíð lagt mikla áherzlu á að tryggja hag Reykjavíkurbæjar sem bezt og hefur þeim einnig- tekizt það. Að vísu hlýtur hagur Reykjavi..-*r- bæjar að draga mjög dám af ástandinu í hmu opinbera fjár- málalífi, en þess ber sérstakiega að geta að meirihluti allra gjalda Reykjavíkurbæjar er lögákveð- inn. í sambandi við fjárhag Reykjavíkur hafa andstæðingar Sjálfstæðismanna reynt að sverta þunn árangur, sem náðst hex tr og segja, að reikningur bæ.iarin:; sé „staðfesting á stefnu thaldsins í fjármálum bæjarins: hækkun út- svaranna, vaxandi skuldir og óráðsía". Það leiðir vitaskuld af stefnunni í opinberum fjármál- um að útgjöld bæjarins og fjár- þörf hefur sífelldlega hækkað á undanförnum árum við það hafa yfirvöld Reykjavíkur ekki getað ráðið. Það má segja, að það sé undarlegt ósamræmi, að á sama tíma, sem miklu meiri hækkun verður bæði á tekjum og gjöld- um hjá ríkinu og skuldir þess vaxa um helming á stuttum tíma að þá skuli slík fjármála- stjórn vera lofuð hástöfum í blöð- um stjórnarflokkanna. En þegar það gerist að gjöld og tekjur Reykjavíkurbæjar verða að hækka á sama tíma, þó ekki sé í neitt svipuðum mæli, þá er það kallað „óráðsía“! ★ Með verðból^ustefnu ríkis- stjórnarinnar er fjárhag Reykja- víkurbæjar vitaskuld stefnt út í hættu, eins og fjárhag einstak- linga og fyrirtækja í landinu al- mennt. Enginn hefur meiri hags- muni af heilbrigðri fjármála- stefnu í landinu en sjálfur höfuðstaðurinn, stærsta bæjar- félag á íslandi. Þó Sjálfstæðis- menn geti ekki nema að nokkru leyti ráðíð því, hvernig hagur bæjarins er á hverjum tíma, munu þeir þó kappkosta eins og áður að treysta sem bezt fjár- hagslegan grundvöll höfuðborg- arinnar. því með því eina móti að hann sé traustur er unnt að halda uppi framförum og fram- taki í bænum öllum bæjarbúum til heilla. Verkefnin sem blasa við eru næstum ótæmandi. Það er bent á hinar mörgu ómalbik- uðu götur. En til að gera það átak, sem þarf á því sviði, skort- ir bæði fé og mannafla. Það þarf einnig að útvíkka hitaveituna svo sem frekast er unnt. Þetta eru að- eins tvö dæmi af mörgum, en góð- ur fjárhagur er undirstaða þess að slik og önnur mál verði leyst á vióunandi hátt. ÁR og dagur er nú liðinn síðan raunverulegt víkingaskip klauf öldur N-Atlantshafsins. En í vikunni lét úr höfn í Noregi vik- ingaskip, sem nú er á leið vestur um haf til Bandaríkjanna — og mun eftir múnuð eða svo verða vel fagnað á höfninni í New York. Þetta er eitt af víkinga- skipum þeim, sem bandaríski kvikmyndaleikarinn og fram- leiðandinn, Kirk Douglas, lét smíða í fyrra og notaði siðan við upptöku kvikmyndar í Norgei. Myndin, sem íslenzltir blaðales- endur hafa heyrt getið, heitir „Víkingurinn" og verður frum- sýnd í tveim kvikmyndahúsum í hjarta New Yorkborgar næstu daga — og í tilefni þess er vík- ingaskipinu siglt vestur um haf í auglýsingaskyni. ★ • ★ Kirk Douglas ætlaði engan veginn að leggja í þann auka- kostnað að sigla vikingaskipi vestur, kvikmyndatakan sjálf hafði kostað hann nóg, þegar allt var um garð gengið. Það, sem í rauninni liggur að baki þessari för, er, að Douglas viðhafði í fyrra þau ummæli við norskan verkfræðing^ sem aðstoðaði við kvikmyndaupptökuna, að i Noregi væri ekki dropi af vík- ingablóði í neinum manni lengur — og hann efaðist um að til væru Norðmenn, sem þyrðu að sigla víkingaskipi yfir hafið. V erkfræðingurinn spurði Dou- glas þá, hvort hann vildi kosta slíka útgerð — og Bandaríkja- maðurinn játaði þvi, sagðist ekki vera hræddur við það, því hann væri viss um að enginn þyrði að fura. ★ • ★ Verkfræðingurinn tók síðan að unuirbt-.ð förina — og auglýsti eftir „vikingum“. Douglas til mikillar undrunar gáfu þúsundir ungra Norðmanna sig fram, en ákveðið var, að áhöfnin yrði að- eins sjö manns svo að margir urou trá að hvería — og valinn maður er þar í hverju rúmi. ★ • ★ Vikingaskipið er nákvæm eftir líking af Gauksstaðaskipinu, og í kvikmyndinni bar það nafnið „Ormurinn langi“. Nú hefur ver- ið skipt um nafn á því — og yfir hafið siglir það undir nafninu „Víkingurinn“. Skipið hefur ver- ið endurbyggt og styrkt fyrir þessa löngu sjóför og búið ýms- um tækjum, sem víkingaskip fyrr á tímum skorti — m.a. 55 hestafla díeselvél, lofskeytatækj- um og miðunarstöð. ★ • ★ Búizt er við því að ferðin taki 25 daga, ef allt gengur vel. Komið verður við í Orkneyjum og Shetlandseyjum, en ekki reiknað með neinum töfum þar. Ef víkingarnir fá hins vegar vont í sjóinn og mikinn mótvind er búizt við því, að förin geti tekið allt að tvo mánuði — og engan veginn verða víkingarnir komnir í tæka tíð til New York til þess að vera viðstaddir frumsýningu vík ingamyndarinnar. En þeir eru vel vistaðir og hafa nægt eldsneyti — 5 tonn af olíu fyrir dieselvél- ina — og 5 tonn af portvíni fyrir sig, auk nokkurra keralda af miði, sem ölgerð ein í Bergen leysti þá út með áður en látið var úr höfn. Sóitindur kominn til Reykjarfjarðar GJÖGRI, 6. júní. — Happdrættis- báturinn Sóltindur. sem Kjartan Guðmundsson bóndi 1 Reykjar- firði fékk í vetur, kom þangað hinn 5. júní eftir nær 41 klst. siglingu frá Reykjavík. Ágúst ísfeld er skipstjóri á bátnum og sigldi honum hingað ásamt Ágústi Lýðssym, sem er öllum leiðum kumnur, er nær dregur Ströndum. Ferðin gekk vel, og telja þeir félagar bátinn gott sjóskip. Ágúst fór 6 róðra frá Reykjavík á Sóltindi í mis- jofnu veðri og fiskaði ágætlega. Báturinn verður sennilega gerður út frá Djúpavík í sumar. —Regína. Fyrir skemmstu hleyptu Bandaríkjamenn sjötta kjarnorku- knúna kafbátnum af stokkunum. Ber hann nafnið „Skipjack“ og er stærstur og hraðskrciðastur ailra kafbáta Bandaríkja- manna — og þeir halda því jafnframt fram, að hann sé hrað- skreiðastur kafbátur í heimi. Myndin er tekin framan við kaf- bátinn, þegar hann rann á fiot. Hann er 75 metra iangur og mjög hár, eins og myndin sýnir — í samanburði við mennina, sem standa á honum. Ganghraði hans undir sjávarfletinum er 50 hnútar, hann getur siglt 50.000 mílur án þess að taka eldsneyti og gæti verið í kafi í heilt ár — og jafnvel lengur, ef hann rúmaði nægilegar vistir fyrir áhöfnina í svo langan tíma.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.