Morgunblaðið - 08.06.1958, Qupperneq 16
16
MOKCVISHT 4 Ð1Ð
^’nnudagur 8. júní 1958
Skrifarmn á Stapa
Sviðsmjnd úr 1. þaetti „My Fair Lady“. Rex
fremst í miðju.
Harrison (Higgins) og Julie Andrws (Eiiza)
Leikfréttir frá Lundúnum
GRISKAR sagnir herma að Pyg- hann er orðinn „vanur“ henni og
malion konungur Cyprusar haf
orðið ástfanginn af likneski af
konu, sem hann smíðaði sjálfur
úr fíiabeini og grátbeðið Afróditu
að blása lífi í hana. Hún varð við
beiðni hans og Pygmalion giftrit
draumgyðju sinni. Brezka skáld-
ið G. Bernard Shaw hefur skrif-
að leikritið Pygmaiion og var það
íyrst leikið í London og New
York árið 1914 við miklar vin-
sældir. Fyrsta kvikmyndin var
gerð í London í október 1938 jg
eg held að mér sé óhætt að segja
að hún hafi verið sýnd í Reykja-
vík. Nú hefur þessu fræga leik-
riti verið breytt í söngleik: My
fair Lady, sýnt í Theatre Royal
Drury Lane um þessar mundir
Tveir amerískir listamenn háfa
unnið að söngleiknum með við-
urkenndri prýði, þeir Frederick
Loewe, sem hefur samið lögin og
Alan Jay Lerner söngtextana.
Þeim hefur tekizt að halda sögu-
þræði Shaw’s mjög vel og kunnug
ir vilja halda því fram að Shaw
myndi ekki verða óánægður með
árangurinn,- ef hann gæti litið
upp úr gröf sinni og séð og heyrt
um þá sigurför, sem þessi söng-
leikur hefur farið — fyrst í
Ameríku og núna í Englandi. —
Enginn leikur hefur verið svo
umtalaður eða auglýstur sem
þessi. I fyrra var verið að selja
hljómplöturnar á svörtum mark-
aði fyrir óheyrilegt verð í Lon-
don, á meðan leikurinn var á
Broadway, en nú eru þær auð-
fengnar í búðunum. Aðgöngumið
ar hafa verið uppseldir fyrir árið
en daglega má sjá í blöðunum
auglýsingar um miða til sölu „á
bak við tjöldin".
Cecil Beaton, mjög vel þekkt-
ur enskur ljósmyndari og tízku-
teiknari, hefur teiknað búninga.
sem eru mjög fagrir og íburðar-
miklir. Svo hefur My fair Lady-
stormurinn geisað í London að
varla er hægt að líta í búðar-
glugga án þess að sjá blússur og
pils með slæmri eftirlíkingu af
myndum frá söngieiknum, eða
ganga í búðir án þess að heyra
sömu lögin glymja i hátalara.
Söguþráðurinn er flestum
kunnur. Eliza Doolittle, fátæka
blémasölustúlkan í Covent Gard-
en, sem k.ann ekki að tala gott
mál, er tekin sem tilraunadýr af
fr*gum málfræðing, prófcssor
Henry Higgings, sem ásetur sér
aS kenna henni rétt og fagurt
mál ásamt góðri hegðun.
Eiiza er í ströngum skóla og
óhamingjusöm í fyrstu. Henry
Higgins nær marki sínu eftir
langa baráttu Hún talar nú fal-
legt mál og er viðurkennd „lady’
meðal hástéttanna, þegar út úr
henni hrekkur enska blótsyrðið
„bloody" sem vakti geysimikið
umtal á sinum tíma, þegar leik-
ritið var fyrst prentað.
Eítir sálarlega tortímingu sem
tilraunadýr hjá málfræðingnum
hleypur Eliza í burtu til Freddy
Eynsford-Hill, ungs, einskis nyts
manns, og ætlar sér að giftast
faonum. Higgins verður ljóst að
hann saknar hennar. 1 söngleikn-
um og í kvikmyndinni er Eliza
látin koma til baka til Higgins,
sem biður hana að finna fyr-
ir sig inniskóna í þeim tón að
manni verður ljóst að hann getur
peninga, þegar hann hrekkur upp
af! David er ekki ástfanginn af
kærustunni sinni, svo það verður
fljótt augljóst að hverju fer.
Anna Massey leikur ungu stúlk
una, hressilega. Eitt af þessum
hlutverkum, sem hver ung og
Julie Andrews (Eliza) og Rex Harrisson (prófessor Higgens)
„My Fair Lady“ )
ekki án hennar verið. Þótt Shaw óþvinguð leikkona þráir að leika.
hafi í leikritinu látið Elizu gift
ast Freddy, þá samþykkti hann
þennan rómantíska endi fyrir
kvikmyndina og því hefur einnig
verið haldið fyrir söngleikinn.
Prófessor Henry Higgins er
Ieikinn af Rex Harrison, af frá-
munalegri tækni og nákvæmm.
Hann er sá eini sem syngur ekki
heldur talar hlutverk sitt í kveð-
andi hljómfalli við lagið. Frábær
leikur. Julie Andrews, óþekkt
fyrir ári síðan, nú upprennandi
stjarna, leikur Elizu af snilld.
Stanley Holloway leikur föður
Elizu, Alfred Doolittle, sorp-
hreinsara, af mikilli kímni. —
Leikendur eru um 45 að tölu og
fara allir vel með hlutverk sín
Leikstjórn hvílir á sterkum herð-
um amerísks leikstjóra, Moss
Hart.
O—★—O
Gamanleikritið: „Kæri söku
dólgur‘;, eða á ensku: „Dear
Delinquent“ er þó nokkuð fynd-
ið. Sýnt í Aldwych Theatre. —
Fjallar um unga stúlku, sem er
innbrotsþjófur að atvinnu og
kcmur af mjög góðri innbrots-
þjófafjölskyldu. Hún brýzt inn
um glugga hjá ungum pipar-
sveini og er næstum á brolt með
feng sinn, þegar hún dettur um
borð og vekur eigandann,
David Warren, leikinn aí
David Tomlinson, sem ei'
alltaf aðlaðandi og fyndinn Jeik-
ari. 1 staðinn fyrir að afhenda
hana lögreglunni, dettur honum
í hug að reyna að gera hana að
betri og heiðarlegri manneskju,
sem auðvitað endar með því að
hún verður ástfangin af honum!
David er trúlofaður ríkri stúlku,
því að hann heldur að frænda
hans, sem er stórefnaður, mura
líka það vel og gefa honum mein
Anna er dóttir Raymond Massey.
sem er ákaflega þekktur meðal
enskra áhorfenda.
Leikritið er eftir Jack Popple-
well og ristir frekar grunnt að
efni til, en er vel meðfarið af
leikendum.
London, 13. maí ’58.
Krf.
SENDIBREF 1806—1877.
Finnur Sigmundsson bjó til
prentunar. Bókfellsútgáf-
an, Rvik 1957.
Nýtt safn af gömlum bréfum
frá hendi Finns Sigmundsson
ar landasbókavarðar er góður
gestur bókamanna, fallega út-
gefin bók með mörgum myndum
af merkum mönnum frá öldinni,
sem leið. Bókin er kennd vxð
skrifara Bjarna amtmanns Þorst-
einssonar á Stapa, Pál stúdent
Pálsspn, enda eru bréfin flest frá
honum eða til hans. Er hér um
úrval að ræða úr miklu safni,
en valið auðsjáanlega gert með
það fyrir augum, að lesa megi
margan söguþráð út úr bréfun-
um.
Um Pál stúdent segir séra Matt
hías Jochumsson svo í Þjóðólfi
5. apríl 1877: „20 f. m. andaðisl
hér í bænum Páll stúdent Pálsson
(sýslumanns Guðmundssonar frá
Krossavík), f. 1807 (rétt 1806), sá
er yfir 50 ár var skrifari, aðstoð-
ar- og trúnaðarmaður Bjarna
sál. Þorsteinssonar amtmanns.
Hann dó ógiftur og barnlaus.
Páll sál. var sannui ágætismaður,
þótt hans væri lítið getið opin-
berlega, með því hann var stak-
lega hógvær maður, sundurgjörð
arlaus og trúlyndur. Hann var
lærdóms- og fræðimaður mikilí
og kunnari íslenzkri bókfræði en
nokkur maður annar — að menn
hyggja — nema ef vera skyldi
Jón Sigurðsson forseti. Síðan
hann kom hingað suður, endur-
bætti hann eða afritaði með mik-
illi elju og snilld hinn mesta
fjölda skemmdra bóka og hand-
rita, bæði fyrir bókasöfnxn og
eiijstaká menn, og tók aldrei
eyrisvirði fyrir. Sjálfur átti hann
og mikið safn og dýrmætt, sem
ekki er ólíklegt, að Landsbóka-
safnið verði látið kaupa.“
Af þessari fáorðu lýsingu séra
Matthíasar má sjá, að Páll stúd-
ent hefir verið óvenjulegur mað-
ur. Hann eignaðist marga vini
meðal helztu mennta- og forystu
manna þjóðarinnar og stóð í tíð-
um bréfaskriftum við þá, eins
og siður var mikill á þeim t'm-
um. Meðal kunnra bréfavina
hans, sem bréf eiga í bókinni,
má nefna Árna Thorsteinsson,
Baldvin Einarsson, Bjarna Þorst-
einsson amtmann, sr. Gunnar
Gunnarsson í Laufási, Jón Sig-
urðsson forseta, sr. Skúla Gísla-
son á Breiðabólsstað, Pál Ólafs-
son skáld, Steingrím Jónsson
biskup, sr. Tómas Sæmundsson
og sr. Þorstein Helgason í Reyk-
holti. En einna skemmtilegust
og að ýmsu forvitnilegust eru
bréfin, sem fara á milli Páls og
systkina hans. Skyggnist lesand-
inn þar inn í löngu liðin ástar-
ævintýi’i og jafnvel harmsögur,
sem nú eru orðnar á fárra vitorði,
en standa ekki að áhrifum og
örlagamagni að baki því, sem
stundum má lesa í skáldsögum
vorra tíma. Þegar í fyrsta bréf-
inu, sem ritað er af Geiri biskupi
Vídalín til Bjarna Þorsteinssonar
og segir frá fæðingu Páls stúd-
ents, er var systurdóttursonur
bisl.ups, fáum vér að kynnast
erfiðleikum ungra elskenda og
hugsunarhættinum í byrjun 19.
aldar. Foreldrar Páls voru enn
ógift, þegar t-engurinn fæddist,
og móðir hans þá á heimili Geirs
biskups, móðurbróður síns. í bréf
inu skýrir biskup frá því, að í
tilefni af þessu.n ótímabæra
barnsburði hafi Ólafur gamli
Stefánsson í Viðey kallað allar
stúlkur sínar fyrir og útlagt fyrir
þeim sjötta boðorðið „a la Mose
et Bastholm.“ Hafi þá ein af
stúlkunum gerzt svo djörf að
andmæla, og var það Ingibjörg,
síðar húsfreyja á Bessastöðum og
móðir Gríms skálds Thomsens.
Foreldrar Páls stúdents giftust
skömmu síðar og fluttust austur
á land. Varð faðir hans sýslumað-
ur í Múlasýslu, en dó á bezta
aldri og stóð kona hans þá uppi
með 5 börn, hið elzta 9 ára og hið
yngsta fárra vikna. Var Páli þá
komið i fóstur til Steingríms
Jónssonar í Odda, síðar biskups,
og útskrifaði hann Pál stúdent
úr heimaskóla 1823 með ágætum
vitnisburði. Sama ár réðst hann
skrifari hjá Bjarna Þorsteinssyni
amtmanni og var síðan óslitið í
þjónustu hans.
Fræðsluíundir ú vegum Mat-
sveinu- og veitingaþjdnuskólans
SO nýbreytni hefur verið tekin
upp í starfsemi Matsveina- og
veitingaþjónaskólans að halda
fræðslufundi fyrir nemendur.
starfsfólk gisti- og veitingahúsa,
svo og alla þá, sem áhuga hafa
á veitingamálum. Fyrsti fræðslu-
fundurinn var haldinn föstu-
dag, 9. maí, í húsakynnum skól-
ans í Sjómannaskólanum.
Fundurinn var settur af skóla-
stjóra, Tryggva Þorfinnssyni, og
mselti hann m. a. á þá leið, að
foi-ráðamenn skólans hafi komið
þessum fræðslufundum á til þess
að auka fjölbreytni kennslunnai
gefa veitingamönnum og starfc-
fólki veitingahúsa kost á að
kynnast starfsemi hans og fá
frseðslu um ninar ýmsu starfs-
greinar gisti- og veitingahúsa,
ásamt öðrum raálum nátengdum
veitingastarfsemi.
Skólastjóri tilkynnti að slíkir
fræðslufundir yrðu framvegis
fastur liður i starfseminni, og
yrði reynt að hafa þá sem fjöl-
breyttasta bverju sinni. Að lok-
um kynnti skólastjóri dagskrá
fundarins og var hún eins og hér
segir:
Halldór S. Gröndal, veitinga-
maður í Nausti, talaði um veit-
ingastarfsemi, þýðingu hennar
fyrir þjóðfélagið og rekstur veit-
ingahúsa almennt. Fulltrúi borg-
arlæknis, Þórhallur Halldórsson,
mjólkurfræðingur. talaði um
gerla í mat og mikilvægi hrein-
lætis í veitingahúsum. Að lokum
talaði Sveinn Símonarson, yfir
matreiðslumaður í Matstofu
Austurbæjar og formaður Sam-
bands matreiðslu- og fram-
reiðslumanna, um félagamál al-
mennt, einkum í sambandi við
starfsgreinar veitingahúsa. Erind-
in voru hin fróðlegustu og vöktu
óskipta athygli áheyrenda. Born
ar voru upp fyrirspurnir og
nokkrar umræður urðu að erind-
unum loknum.
í fundarlok þakkaði skólastjóri
ræðumönnum þátt þeirra í þess-
um fyrsta fræðslufundi skólans
og fundarmönnum komuna. Síðan
bauð hann til kaffidrykkju.
Óhætt er að fullyrða, að þessi
fyrsti fræðslufundur Matsveina-
og veitingaþjónaskólans hafi ver-'
ið heilladrjúgt spor í rétta átt til
víðsýnis og skilningsauka á þess-
um atvinnuvegi.
Sigríður Pálsdóttir, systir Páls
stúdents, gerðist tvítug að aldri,
þjónustustúlka hjá Steingrími
biskupi í Laugarnesi. Um þær
mundir var Þorsteinn Helgason,
systursonur biskupsfrúarinnar, í
Laugarnesi og trúlofaður Sigríði
biskupsdóttur. En svo fór, að
hann lagði hug á Sigríði Páls-
dóttur og hafði „Sigríðaskipti",
eins og Steingrímur biskup kemst
að orði í bréfi til kunningja síns.
Féll biskupshjónunum þetta all-
þungt og þótti hneisa mikil og
ráku þau Þorstein og Sigríði
Pálsdóttur af heimilinu. Giftust
þau síðan og unnust vel. Fékk
ÞorstéTnn Reykholt og varð
skammlífur, en Sigríður giftist
aftur sr. Sigurði Thorarensen í
Hraungerði. Hún andaðist á
Breiðabólstað hjá sr. Skúla Gísla-
syni og Guðrúnu, dóttur sinni.
Sigríður hefir verið bráðgáfuð
kona og merkileg. Segir útgef-
andi bréfasafnsins að til séu 240
sendibréf frá henni til Páls bróð-
ur hennar. Vill nú ekki einhver
taka sig til og gefa út öll bréf
Sigríðar og rita um ævi hennar,
svo sem þarf bréfunum txl skýr-
ingar?
Önnur systkini Páls stúdents
voru Þórunn, fyrri kona Páls
Ólafssonar skálds, sr. Stefán á
Hofi og sr. Siggeir á Skeggja-
stöðum. Hafa þessi systkini öll
verið vel gefin. Bréf s- Siggeirs
eru einhver skemmtilegustu bréf
in í safninu.
Margt fleira mæUi nefna, sem
þessi bréf veita um athyglisverð-
an fróðleik. Hvar skyldu t.d.
vera betri upplýsingar en þar um
ástamál Baldvins Einarssonar,
veikindi og fráfall sr. Þorsteins
Helgasonar og margt fieira?
Á aukatitilblaði er bók þessi
nefnd tstenzk sendlbréf 1. Það
gefur vonir um. að útgáfan eigi
að halda áfram, og er gott til þess
að vita. Hafi úlgefandi og kostn-
aðarmaður þakkir fyrir þessa
vönduðu og skemmtilegu bók.
Giitei Jónsson.
LOFTUR h.t.
LJ OS M Y N UASTO FAN
Ingóifsstrseti 4.
Pantið euma i sima 1-47-72.