Morgunblaðið - 08.06.1958, Side 20

Morgunblaðið - 08.06.1958, Side 20
20 MOnCVlSBLAÐIt: P-jnnudagur 8. júni 1958 „Sá möguleiki er auðvitað hugs anlegur", svaraði monsieur Charl es hikandi — „en ég er ekki trú- aður á hann. Þessar vélar bila aldrei. Ég skil þetta alls ekki“. „Aðgættuð þér nokkuð vélina áður en þér byrjuðuð á verkinu?" var næsta spurning skipstjórans. „Það var ekki ég sem var að nota hana, hr. skipstjóri", svaraði Charles Morelle og yppti öxlum. — „Madame Cortes hafði óskað þess eindregið að mademoiselle Lis ette annaðist hárgreiðsluna á sér“. „Prófuðuð þér vélina fyrst?“, spurði skipstjórinn og leit hvasst á Joan. Nei, það gerði ég ekki. . . Við erum ekki vön að gera það, hr. skipstjóri". Joan fannst hún standa sem af- brotamaður frammi fyrir skip- stjóranum, enda þótt spurning hans væri algerlega út í hött, því að það var alls ekki venja að prófa þessar permanent-vélar. Til þess var einfaldlega enginn tímí. 1 Fulham skoðuðu rafmagnsfræð- ingar allt, með hæfilegu millibili. Það var öryggisráðstöfun sem lát in var nægja. Á sama augnabliki varð hún þess vís að Ron var kominn inn í stof- una. Menn viku úr vegi fyrir hon um, svo að hann kæmist alveg inn tii skipstjórans og gjaldkerans. Hann var mjög fölur, en annars var andlit hans alveg svipbrigða laust. Skipstjórin leit á hann, ræskti sig nokkrum sinnum og spurði svo: — „Er madame . . . Ég á við: hafið þér talað við lækninn?" „Frænka mín er ekki dáin, ef það er það sem þér eigið við“ svar aði Ron án þess að nokkurrar breytingar yrði vart í svip hans. — —„En hún hefur heldur ekki vaknað tíl meðvitundar enn sem komið er . . . og læknirinn hefur litla von um að svo muni verða. .. Hann getur ekki heldur gefið neina ákveðna skýringu á því sem komið hefur fyrir“. Joan kreppti hendurnar og varð þess allt íeinu vör að hún var farin að gráta. Hún vissi ekki af því, fyrr en hún fann tárin renna niður kinnarnar. Hún huldi andlitið í höndum sér og þannig stóð hún, þegar Ron kom til henn- ar. Hann lagði handlegginn yfir axlirnar á henni, eins og hann skildi að hún þarfnaðist styrks hans og stuðnings. Aldrei hafði Joan verið jafn þakklát nokkrum manni. Hún hefði getað gengið út í opinn dauð ann fyrir hann af einskæru þakk- læti. „Ég votta yður hina innileg- ustu samúð mína, monsieur Cort- es“ sagði skipstjórinn hlýlega. — „Ég ber mjög mikla virðingu fyr- ir madame Cortes. Ég hefi alltaf dáðst að henni og ég vona af heilum hug að dr. Perrier tak- ist að bjarga lífi hennar. Mér þyk ir það mjög leiðinlegt að þetta skyldi koma fyrir á mínu skipi og ég skal þegar í stað láta vélstjór- ann athuga þessa óhappavél“. „Ég er yður mjög þakklátur fyr ir það, hr. skipstjóri" svaraði Ron — „og ég þakka yður fyrir hin vingjarnlegu orð. Læknirinn hafði heyrt að Amy frænka væri hjart- veik en mér er óhætt að fullyrða að það hefur hún aldrei verið. — Hann þagnaði og þögnin grúfði þung og ógnandi yfir þeim sem í stofunni voru. Svo hélt hann á- fram hljómlausri röddu: — „Ef ég á að segja mina skoðun hrein- skilnislega, þá er hún sú, að hér hafi ekki verið um neins konar slys að ræða, heldur rétta og slétta morðtilraun" Það mátti heyra hvemig fólkið stóð á öndinni og svo varð aftur grafarþögn í stofunni. Joan vissi að það var rétt sem Ron sagði, en þó varð hún sem þrumu lostin af óttablandinni undrun, er hún heyrði orð hans. Þetta var í fyrsta skipti sem grun urinn var srgður berum orðum og það var sízt að undra, 'þótt þeir sem heyrðu, létu sér bregða. „Þér sögðuð morðtilraun monsi- eur Cortes", sagði skipstjórinn. — „Hvernig ætlið þér að rökstyðja þá ákæru?“ Vernier skipstjóri talaði hægt og orðin komu eitt og eitt á stangli eins og hann ætti erfitt með að mynda setningarnar. KVENFÉLAG HÁTEIGSSÓKNAR Kaffisala I Sjómannaskólanum í dag. Hefst kl. 3 (eftir messu). Safnaðarfólk og aðrir Reykvíkingar. Fjölmennið í Sjómannaskólann í dag. NEFNDIN. „Ég held að ég geti rökstutt hana, hr. skipstjóri“, svaraði Ron og tók um leið fastar um axlirn- ar á Joan. „Ætlið þér að halda því fram að einhver hafi gert tilraun til að myrða frænku yðar?“, spurði skip stjórinn. „Já, og ennþá vitum við ekki hvort sú tilraun hefur tekizt. — Sennilegast er að Amy frænka deyi án þess að fá meðvitund aft- ur“. „Getið þér sagt okkur hvern þér grunið? Eða er þessi fullyrð- ing gripin úr lausu lofti. . . án þess að nokkrar líkur séu fyrir hendi?“. hvern eða hverja hann tortryggi, hlýtur orsökin að vera sú, að hann neyðist til að gruna einhverja þá manneskji , sem hann vill ekki á- kæra. Hver var það sem ætlaði að framkvæma hárgreiðsluna á mad- ame Cortes, þegar þetta skeði?“ „Það vitum við öll, frú Leish- man“, sagði skipstjórinn óþolin- móður. „Já, við vitum að það var made moiselle Lisette. En þér vitið ekki að þessi sama Lisette sagði mér í gærkvöld, að hún væri dauðást- fangin al monsieur Ron Cortes. Ég veit líka að í gær átti hún mjög alvarlegar viðræður við madame Cortes í káetunni hennar. Gamla frúin sagði það skýrt og skorin- ort við ungu stúlkuna að ef frændi sinn kvæntist henni, gegn vilja sín um, yrði hann strikaður út af erfðaskránni. Ég minntist á þetta við Lisette í gærkvöld, þegar hún kom til mín í káetuna og ég ráð- lagði henni að fara varlega í sak- irnar og gera enga vitleysu. Hún tók þessu mjög illa og mér kæmi það ekki á óvart þótt það hefði gert hana alveg óða. Hún kann að hafa hugsað svo, að ef madame Cortes yrði rutt úr vegi, þá gæti hún hindrunarlaust gifst monsieur Cortes. Það er augljóst mál, að „Það var ekki ég sem var að nota hana, hr. skipstjóri, sagði Charles Marelle. „Ég vil helzt ekki segja neitt ákveðið fyrr en sérfræðingur er búinn að skoða permanent-vél- ina“. „Sú skoðun verður látin fara fram nú þegar", lofaði skipstjór- inn. — „Maður gæti haldið að þér grunuðuð nú þegar einhverja vissa persónu hér á skipinu”. „Núna get ég því miður ekki sagt ykkur meira en ég er þegar búinn að segja“, svaraði Ron stutt lega. — „Hinir grunuðu eru hér á skipinu og geta ekki komizt í burtu, svo að ég held að það g^ti ekki sakað neitt að bíða“. Skipstjórinn yppti öxlum. Hann leit á gjaldkerann, því næst til Charles Morelle og vissi bersýni- lega ekki hvað hann átti að segja meira. Frú Leishman hafði olnbogað sig í gegnum þröngina og var nú komin alveg til skipstjórans. — „Þér verðið að afsaka þótt ég sletti mér fram í þetta, enda þótt segja megi að það komi mér ekki við“, sagði hún lágt og hik- andi. — „Ég get samt ekki orða bundizt. Fyrst monsieur Cortes vill ekki ~egja það afdráttarlaust permanent-vélin er eitthvað öðru vísi en hún á að vera og nú hefi ég leyft mér að benda á það, hver er að mínum dómi völd að því“. Á eftir orðum frú Leishmann fylgdi stutt, lamandi þögn, sem Ron rauf: — „Þetta er helber fjarstæða", sagði hann æstur og sneri sér að skipstjóranum. — „Það sem þessi frú leyfir sér að segja er tóm rakalaus vitleysa. Amy frænka var einmitt farin að meta mademoiselle Lisette mjög mikils. Ég skil ekki hvernig frú Leishman þorir að leyfa sér að koma með slíkar dilgjur og að dróttanir". „Þjónn madame Cortes getur borið vitni um það að ég segi alveg satt og rétt frá“, flýtti frú Leishman sér að taka fram. — „Hann getur skýrt frá því hvað madame Cortes sagði við Lisette í gæikvöldi". „Ef hann vottar það sem þér hafið sagt, þá er hann lygari", sagði Ron reiðilega. Aftur varð óþægileg þögn um stund en svo tróð madame Claire sér til þeirra sem stóðu umhverf- is skipstjórann og gjaldkerann. Hún var mjö»- áhyggjufull á svip- inn og röddin var afsakandi: —. „Auðvitað vil ég ógjarnan varpa grun á eina af starfsstúlkum hár greiðslustofunnar", sagði hún — „en ég álít það skyldu mína að skýra skipstjóranum frá því, að Lisette hefur hagað sér mjög und arlega pessa síðustu daga. í gær borðaði hún ekki hádegisverð með okkur hinum og ég skrapp því nið ur í káetuna til hennar til þess að vita hvort nokkuð gengi að henni. Hún hafði sagt mér að hún væri dálítið sjóveik. Þegar ég var að laga til í þilrekkjunni hennar rakst ég af hendingu á umslag með miklum peningum, undir kodd anum. Það voru mörg þúsund doll arar í seðlum, hr. skipstjóri. Auð vitað varð ég mjög hissa og sem hin eldri og sú er ber ábyrgðina á stúlkunum sem vinna á hár- greiðslustofurni, færði ég þetta í tal við hana. Ég spurði hana að því hvers vegna hún geymdi svona mikla peninga í káetunni hjá séi-, I stað þess að koma þeim í geymslu hjá féhirðinum. Lisette varð mjög vandræðaleg og sagði mér einhverja tröllasögu um það, að hún hefði verið beðin um að kaupa eitthvað fyrir þá. Ég tal- aði svo ekki meira um þetta, en mér datt strax í hug að madame Cortes hefði látið hana fá þessa peninga gegn loforði um það að hætta öllum eltingaleik við monsi eur Cortes . . . Mér þykir leitt að ég skyldi þurfa að segja þetta, hr. skipstjóri — en ég áleit það skyldu mína“. W a r L U á * FRENCHY'S COMING BACK TO SEE WHAT'S KEEPING MOOSE ... UNLOCK THE DOOR AND KEEP OUT OF SIGHT, PEEDEE' 1) „Frikki er á leiðinni til þess að gá að, hvað tefur Magn- ús,“ sagði Stígur. „Taktu slag- brandinn frá og láttu hann eKki sjá þig.“ 2) „Hvað er þetta, Magnús, ætlarðu ekki að koma með skófl , .. “ — „Komdu innfyrir, Frikki, og lokaðu dyrunum," skipaði Stígur. 3) „Fjötraðu hann,“ sagði Stíg- ur, „og keflaðu svo hann geti ailltvarpiö Sunnudugur 8. júni. 9.30 Fréttir og morguntónleik- Fastir liðir eins og venjulega. ar. 11.00 Messa í Fríkirkjunni (Prestur: Séra Þorsteinn Björns son. Organleikari: Sigurður ísólfs son). 15.00 Miðdegistónleikar. 16. 00 Kaffitíminn: Létt lög af plöt- um. 16.30 Færeysk guðsþjónusta: Séra Johan Nielsen prédikar. — (Hljóðritað í Færeyjum). 17.00 frá Akureyri: Sigurður Sigurðs- son lýsir keppni á Sundnieistara- móti Islands. 18,30 Barnatími (Helga og Hulda Valtýsdætur): a) Leikritið „Stóllinn hennar ömmu“, II. þáttur: „Lávarðarnir tveir“. Leikstjóri: Helgi Skúla- son. b) ,í musterinu", saga eftir Selmu Lagerlöf. 19.30 Tónleikar. 20.20 Skáldið og ljóðið: Steinn Steinarr (Knútur Bruun stud. jur. og Njörður Njarðvik stud. mag. stjórna þættinum. Með þeim kemur fram Matth. Johannessen kand. mag.). 20.50 Hljómsveit Ríkisútvarpsins leikur. Stjórn- andi: Hans-Joachim Wunderlich. Einsöngvari: Nanna Egilsdóttir. 21.20 „1 stuttu máli“, þáttur í um sjá Lofts Guðmundssonar og Jón asar Jónassonar. 22.05 Danslög. 23.30 Dagskrárlok. Mánndagur 9. júní: Fastir liðir eíns og venjulega. 19.30 Tónleikai'. 20.30 Um daginn og veginn (Andrés Kristjánsson, blaðam.). 20.50 Einsöngur: Einar Sturluson syngur; Fritz Weiss- happel leikur undir á píanó. 21.10 Upplestur: „Gyðja miskunnsem- innar“, smásaga eftir Lin Yutang (Þýðandinn, Aðalbjörg Bjarna- dóttir, les). 21.45 Tónleikar frá hollenzka útvarpinu: Paul God- win og hljómsveit hans leika létt, hollenzk lög. 22.10 Búnaðarþátt- ur: Sitt af hverju (Gísli Krist- jánsson ritstjóri). 22.25 Kammer- tónleikar (plötur). 22.55 Dagskrár lok. Þriðjudagnr 10. júuí: Fastir Jiðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar. 20.30 Erindi: ís- lenzk Ijóðlist; fyrra erindi (Jó- hannes úr Kötlum). 21.00 Frá tón leikum Sinfóníuhljómsveitar Is- lands í Austurbæjarbíói 3. þ.m. Stjórnandi Paul Pampichler. Ein- leikari á selló: Erling Blöndal Bengtsson. 21.30 Útvarpssagan: „Sunnufell“ eftir Peter Freuchen V. (Sverrir Kristjánsson sagn- ekki hrópað.“ — Dídí verður litið fræðingur). 22.10 íþróttir Sigurð út um gluggann. „Það er einhver , ur Sigurðsson). 22.30 Haukur hér fyrir utan, Stígur,“ hrópar Hauksson kynnir lög unga fólks- hún ‘ins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.