Morgunblaðið - 17.06.1958, Side 3
Þriðjudagur 17. júni 1958
MORGU'NBl. AÐIÐ
3
Ungfrú ísland 1958 hefir
mestan áhuga á leiklist
og tónlist
Rœtt við Sigríði
Þorvaldsdóttur
ER Tíðindamaður Mbl. kom í
heimsókn til hinnar nýkjörnu
fegurðardrottningar, Sigríðar
Þorvaldsdóttur í gærmorgun var
hún íklædd „samkeppniskjóln-
um“ sínum og eiginlega enn þá
fallegri heldur en þegar hún var
valin af Tívoligestum á sunnu-
dagskvöldið. Og „drottningar“
móðirin, frú Ingibjörg Halldórs-
dóttir, sem reyndar lítur frekar
út fyrir að vera systir Sigr. en
móðir flýtti sér að hella upp á
könnuna og bera fram veitingar.
— Heimili þeirra hjóna, Ingi-
bjargar Halldórsd. hárgreiðslu-
konu og Þorvaldar Steingríms-
sonar fiðluleikara, að Rauðalæk
73, er ákaflfega vistlegt og að-
laðandi og ber vott um smekk-
vísi húsbændanna.
— Jæja, ertu búin að átta þig
á þessu öllu saman?
— Nei, það veit sá sem allt
veit að ég er ekki, svaraði Sig-
ríður brosandi og elskuleg. —
Þetta var líka allt í svo miklu
flaustri og svo bjóst ég alls ekki
við því að úrslitin yrðu á þennan
veg.
— En ertu samt ekki ánægð?
— Jú, ég er mjög hamingjusöm
með sigurinn.
— Og hlakkar til að fara til
Langa sands?
-— Það er nú líklega að ég
hlakki til. Ég mun fara 11. júlí
og hafa Einar Jónsson sem fylgd-
armann.
— En varst þú ekki upptekin
á leiksýningu í gærkvöldi
— Jú. Ég leik í söngleiknum
„Kysstu mig Kata“ og gat ekki
komizt í Tívolí fyrr en að sýn-
ingu lokinni.
— Hefurðu mikinn áhuga á
leiklist?
— Já, það hef ég. Ég hef verið
á leikskóla Þjóðleikhússins og
hef nú lokið prófi þaðan. Ég kom
fram í fyrsta skipti í vetur í
barnaleikritinu.
— Heldurðu ekki að sigur þinn
í fegurðarsamkeppninni geti haít
einhver áhrif á framtíðina?
— Það er ómögulegt að segja
um það, en vonandi.
Kornung — en útlærð
hárgreiðsludama
— Hvað ertu gömul?
— Ég varð 17 ára í apríl s.l.,
svaraði Sigríður.
— í hvaða skóla hefurðu ver-
ið.
— Ég fór í Iðnskólann þegar
ég var 13 ára og tók alla þrjá
bekkina á einum vetri. Ég hef
síðan verið að læra hárgreiðslu
á stofunni hjá mömmu, og er
núna útlærð, þ.e.a.s. ég mun taka
hárgreiðsluprófið í haust.
—‘Þú hefur verið meiri náms-
hesturinn að taka heila þrjá
bekki á einum vetri. Talar þú þá
ekki erlend tungumál reiprenn-
andi?
— Ég er nú ekki viss um það.
Enskuna má segja að ég þekki
nokkuð, en ég hef hugsað mér að
æfa mig óg tala hana og lesa
þangað til ég fer til Langa sands.
— Hvernig tók nú fjölskyldan
sigrinum.
— Halldór litli bróðir minn,
sem er ekki nema 7 ára sgaði:
„Ég er svo hreykinn af þér“.
(Það er talsvert mikil viður-
kenning frá 7 ára heiðursmanni,
sem er bróðir dömunnar í, ofaná
lag)
— Og hvað sagði pabbi þinn?
— Hann sagði nú ekki neitt,
hann bara kyssti mig, en ég veit
að hann var glaður.
— Og þér frú Ingibjörg, voruð
þér ekki ánægðar með dótturina?
— Jú, ekki neita ég því, sagði
frúin og brosti. — Mér fannst
hún taka sig vel út, blessunin.
— Tókuð þér ekki eitt sinn
þátt í fegurðarsamkeppni
— Við skulum nú ekki fara að
tala neitt um það.
— Mér finnst það megi koma
fram, því það er áreiðanlega fáar
fegurðardrottningar sem eiga
mæður sem tekið hafa þátt í feg-
urðarsamkeppni.
Ja, þetta var nú öðru vísi
samkeppni heldur en nú tíðkast.
Það voru teknar myndir af nokkr
um stúlkum, sem birtar voru í
Vikunni og síðan voru lesendurn
ir látnir greiða atkvæði eftir
myndunum. — En það var
náttúrulega samkeppni samt sem
áður.
Það má skjóta því hér inn að
frú Ingibörg er sérstaklega lag-
leg kona og aðlaðandi og var, er
hún var ung stúlka annáluð fyrir
yndisþokka og fegurð.
Á einnig fallega systir
— En átt þú ekki systur?
— Jú, Kristín systir mín, sem
er 15 ára gömul er nýfarin til
Englands. Hún fór 2 dögum fyrir
keppnina og þótti mjög leiðin-
legt að geta ekki verið viðstödd.
— Er hún eins falleg og þú?
— Það finnst mér.
— Heldurðu ekki að hún mæti
þá í keppninni eftir tvö ár?
— Ég gæti bezt trúað því, svar
aði Sigríður.
Áhugamál og sentimetrar
Hin unga fegurðardrottning á
sér mörg áhugamál, en þar ber
hæst leiklistina og tónlistina. Hún
hefur lært að leika á píanó og
eftirlætistónskáldið hennar er
Bach, en hún sagðist hafa mjög
gaman af að leika og hlusta á
létta klassíska tónlista.
Eftirlætisrétturinn hennar er
fyllt, steikt lambalæri og eftir-
lætislitirnir hennar eru blá-
grænt, rautt og gult.
En svo við snúum okkur að
sentimetramáli hennar, þá er
hún 174 cm á hæð, ekki nema 55
cm I mittið, 91 cm yfir mjaðmir
og 88 cm yfir brjósið. (Miss Uni-
verse 1957 var 170 á hæð, mitti
57 og brjóst og mjaðmir undir
90).
Keppinautarnir elskulegir
— Og svo að lokum, hvað vilfu
segja um keppnina almennt.
— Ég er ákaflega þakklát fyrir
að hafa fengið tækifæri til þess
að taka þátt í keppninni. Og mig
langar til þess að taka skýrt
fram hve mér fannst allar stúlk-
urnar sem þátt tóku í keppninni
vera elskulegar. Þær óskuðu
mér svo innilega til hamingju
með sigurinn og það var ekki
hægt að finna neina öfund hjá
þeim. Þær voru ekkert líkar þ- í
sem maður hefur lesið um kepp-
endur í erlendum samkeppnum,
sem verða fjúkandi vondar þegar
þær komast ekki í efsta sætið,
sagði Sigríður Þorvaldsdóttir að
lokum.
Og nú óskuðum við drottning-
unni og foreldrum hennar enn
einu sinni til hamingju, þökkuð-
um kaffið og kvöddum.
A. Bj.
Líbanonsstjórn segist
hafa sigrazt á upp-
reisnarmönnum í Beirut
BEIRUT, 16. júní. Reuter-NTB.
— Talsmaður Líbanonsstjórnar
skýrði svo frá í dag, að stjórn-
inni hefði nú tekizt að vinna bug
á uppreisnarmönnum í höfuðborg-
inni, Beirut, en víða væri enn bar-
izt annars staðar í landinu. Sagði
talsmaðuri.m, að foringjum upp-
reisnarmanna yrði stefnt fyrir
rétt undir eins og tekizt hefði að
binda endi á oardagana.
Kyrrt var í Beirut í dag. —
Verzlanir voru víðast hvar opnar.
Til nokkurra Itaka kom í vestur-
hluta bor-arinnar og sprengja
sprakk fyrir utan aðsetur fjár-
málaráðuneytisins, án þess að
nokkurt tjón hlytist af.
f fréltaskeyti frá AKP segir, að
stjórnir Bretlands og Bandarí’kj-
anna séu reiðubúnar að bregda
skjólt við, ef Líbanonsstjórn æski
aðstoðar. — Hinir umfangsmiklu
flutningar berliðs til Kýpur eru
m. a. varúðarráðstöfun, ef koma
skyldi til óvæntra atbttrða í
Líbanon. •
----□-----
Fimm menn komu í dag á veg-
um SÞ til Beirut, og 10 norskir
eftirlitsmenn fóru frá Ösló í dag
á vegum SÞ til Beirut. Verða þeir
komnir þangað árdegis á morgun.
Finnska stjórnin hefur sv'arað ját
andi þeim tilmælum Dag Hamm-
arskjölds, aðalritara SÞ, að finnsk
ir eftirlitsmenn fari á vegum SÞ
til Líbanons. Sænska stjórnin hef-
ur enn ekki ákveðið, hvort beiðni
Hammarskjölds verði svarað ját-
andi. Hammarskjöld fer sjálfur
til Beirut á miðvikudag, og hefur
Líbanonsstjórn lýst ánægju sinni
yfir því. Eftirlitsmenn SÞ hafa
nú komið sér upp bækistöðvum í
Beirut, Trípólí og á svæðinu við
sýrlenzku iandamærin. Þeir hafa
ekki orðið fyrir skotárásum af
hálfu uppreisnarmanna.
í útvarpsræðu í dag ásakaði for
sætisráðherra Líbanons Arabíska
j sambandsríkið um að hafa egnt til
; óeirða í landinu. — Bandaríska
! sendiráðið í Beirut hefur boðið
bandarískum borgurum ókeypis
far til Bandaríkanna, En Bretar
hafa engar ráðstafanir gert enn
til að flytja brezka ríkisborgara á
brott.
Þusundir manna voru í Tivolí er
fegurSardrottningin var krýnd
Á LAUGARDAGS- og sunnu-
dagskvöld fór fram í Tívolí feg-
urðarsamkeppni kvenna. — Var
fyrirkomulag keppninnar svipað
nú og Verið hefur. Fyrra kvöldið
komu fram 10 stúlkur, er forráða-
menn keppninnar höfðu valið úr
hópi þeirra er þeim hafði verið
bent á. Síðara kvöldið komu fram
á baðfötum þær 5 er flest atkvæði
fengu kvöldið áður. — Fór þá
fram kjör fegurðardrottningar-
Stúlkurnar fimm. sem komust í úrslitakeppnina. TaliS frá vinstri: Aldís Einarsdóttir, Aðalheið-
ur Þorsteinsdottir, Hjördís Sigurðardóttir, Margrét Gunnlaugsdóttir og Sigríður Þorvaldsdótiir.
innar 1958 og varð 17 ára stúlka,
Sigríður Þorvaldsdóttir, fyrir val-
inu. Hlaut hún flest atkvæði garðs
gesta og sömuleiðis dómnefndar.
Á laugardagskvöldið var veður
mjög óhagstætt er keppnin fór
fram. Voru þá áhorfendur og með
færra móti. Þótti mönnum stúlk-
urnar 10 óvenjulega jafnar að
fegurð og einnig vakti athygli
hve ungar þær voru, fjórar þeirra
voru 17 ára og sú elzta mun vera
21. —
Síðara kvöldið var veður fag-
urt og gott. Keppnin hófst seint
því ein stúlknanna (sú er sigraði)
fékk eigi að kon.ast til keppninn-
ar fyrr en að aflokinni sýningu í
Þjóðleikhúsinu. Þúsundir manna
voru viðstaddir er stúlkurnar 5
gengu fram í baðfötum og þegar
atkvæði höfðu verið talin og dóm-
nefnd lokið störfum, fór krýning
fram. Krýndi Vigdís Sigurðar-
dóttir, ein af þátttakendum keppn
innar í fyrra, Sigríði, sem feg-
urðardrottningu íslands 1958.
Þær stúlkur aðrar er fram
komu síðara kvöldið hlutu og
verðlaun. Margrét Gunnlaugs-
dóttir varð önnur og hlaut far til
Evrópu og rétt til þátttöku í
„Miss Europe“ keppninni í Mad-
rid 1959. Hjördís Sigúrðardóttir
hlaut flugfar til Lundúna, Aldís
Einarsdóttir armbandsúr og Aðal-
heiður Þorsteinsdóttir snyrti-
vörur.
Kynnir keppninnar var Guð-
mundur Jónsson, óperusöngvari,
og skemmti hann áhorfendum hið
bezta og átti sinn þátt í að þessi
fegurðarsamkeppni fór vel og
skipulega fram og var hin ánægju
legast-