Morgunblaðið - 17.06.1958, Page 20
V EÐRIÐ
Norðan kaldi. — Léttskýjað.
Doktorsvörn
134. tbl. — Þriðjudagur 17. júní 1958
Hásetar og smyrjarar á far-
skipaflotanum hoða verkfall
Járnsmiðir o. //. iðnaðarmenn hefja
e. t. v. verkfall 2 dögum siðar
SJÓMANNAFÉLAG Reykja-
víkur tilkynnti í gær, að
hásetar og smyrjarar á far-
skipaflota íslendinga myndu
hefja verkfall hinn 24. júní,
hefðu ekki tekizt samningar
fyrir þann tíma. Er þetta
fyrsta verkfallsboðunin, sem
fram kemur, eftir að samn-
ingum ýmissa stéttarfélaga
var sagt upp frá og með 1.
þ. mán. —
Sáttasemjari ríkisins, Xorfi
Hjartarson, átti stuttan fund
með aðiium í farmannadeilunni
á fyrrakvöld. Samkomulag varð
ekkert.
I gær sendi sjómannafélagið
bréf til Eimskipafélagsins, Skipa-
útgerðar ríkisins, Sambands ís-
lenzkra samvinnufélaga, Eim-
skipafélags Reykjavíkur og Jökla
Salan — persónu-
legur fulltrúi
de Gaulles
ALGEIRSBORG, 16. júní. Reut-
er. — Raoul Salan, hershöfðingi,
var árdegis í dag formlega skip-
aður persónulegur fulltrúi de
Gaulies, hershöfðingja, í Alsír. —
Salan er einnig æðsti maður
franska hersins í Alsír, og þar
sem Salan hefur nú verið gerður
perósnulegur fulltrúi forsætisráð-
herrans, er borgaraleg stjórn í
Alsír raunverulega komin í hend-
ur franska hersins, segir í frétta-
skeytum.
h.f. og boðaði verkfall háseta og
smyrjara á farskipunum frá og
með 24. júní. Mbl. sneri sér í
gær til Vinnuveitendasambands
íslands og Sjómannafélags
Reykjavíkur og sögðu talsmenn
beggja aðila, að mikið bæri á
milli.
□ ★ □
Mbl. sneri sér einnig, í gær
til Snorra Jónssonar, formanns
Félags járniðnaðarmanna í Rvík,
til að ieita staðfestingar á orð
rómi, um að að félagið myndi
næstu daga boða verkfall frá og
með 26. þ. m. Snorri sagði, að
fundur hefði verið í félaginu í
fyrrakvöld og þar hefði stjórn
og trúnaðarráð fengið heimild til
að boða vinnustöðvun. Yrði fund
ur í kvöld til að ákveða, hvort
heimildin skyldi notuð, og myndi
félagið snúa sér til vinnuveit-
enda á miðvikudag. Fyrr væri
ekki tímabært að skýra opinber-
lega frá samþykktum stjórnar-
innar og trúnaðarráðsins.
Bifvélavirkjar, blikksmiðir og
skipasmiðir munu yfirleitt hafa
samráð sín á milli og við járn-
smiði um aðgerðir í vinnudeilum.
Fundir voru boðaðir hjá a. m. k.
bifvélavirkjum og blikksmiðum
í gærkvöldi, en ekki tókst að
fá upplýst áður en blaðið fór í
prentun, hvort veittar hefðu
verið heimildir til vinnustöðv-
ana. —
Hella varð
mjólkinni
SELFOSSI, 166. júní: — Stór
mjólkurflutningabíll frá Mjólkur
búi Flóamartna fór í dag út af
veginum við Bakkarholtsá, sem
er skammt frá Kotstrandarkirkju.
Bílstjórann sakaði ekki, en mjólk
urbíllinn, sem var mjög þungt
hlaðinn af nýmjólk og var á leið
til Reykjavíkur, varð fyrir tölu-
verðum skemmdum. Reynt var
að ná bílnum upp án þess að létta
á farmi, en það tókst ekki. Einnig
misheppnaðist tilraun til að dæla
mjólkinni úr mjólkurtank bíls-
ins, vegna þess hvernig bíllinn
lá, en hann var svo til á hvolfi.
Varð bílnum því ekki náð upp
með öðrum hætti en að opna fyrir
mjólkurgeyminn. Varð því að
hella þarna niður sex þúsund
niður allri
úr bílnum
lítrum af mjólk,- eða farmi, sem
kostar í mjólkurbúðum rúmlega
22 þúsund krónur. —G.G.
Friðriks Einarssonar. Sjá bls. 8.
Hátíðaveður
um allt land
MBL. hringdi til Veðurstofunn-
ar seint í gærkvöldi og spurðist
fyrir um hvernig mundi viðra
17. júní. Gaf VeðUrstofan þær
upplýsingar að hér á Suð-Vest-
urlandi mundi verða norðankaldi
og létt í Iofti, frá Vestfjörðum
til Austfjarða yrði hægviðri og
þar mundi létta til er liði á dag-
inn, en léttskýjað yrði á Aust-
fjörðum. Er því sýnt að veður
verður hið ákjósanlegasta til há-
tíðahalda um gjörvallt landið.
Dr. Jón E. Vestdal
Sementsverksmiðjan
Akranesi vígð við
hátíðlega athöfn
*
a
SEMENTSVERKSMIÐJAN á
Akranesi var vígð við hátíðlega
athöfn s. 1. laugardag. Fór at-
höfnin fram í einum sal verk-
smiðjunnar og hófst með því að
karlakór Akraness söng, en þá
flutti formaður verksmiðju-
stjórnar, dr. Jón E. Vestdal, ræðu.
Sex manns slasast
undir H af n a rf j a 11 i
AKRANESI, 16. júní. — Hér á
Akranesi liggja nú fimm manns,
fjórir fullorðnir og eitt barn,
vegna meiðsla er þetta fólk hlaut
Einstœtt
sundafrek
Hinn kunni sundgarpur, Eyjólf-
ur Jónsson synti sl. laugurdag
fré Reykjavík til Hafnarfjarð-
ar, 14 km leið. Er það helm-
ingi lengrf vegalengd en Drang
eyjarsund. — Frásögn af þessu
sundafreki er ób Is. 9.
í bílslysi á 6. tímanum sl. laug-
ardagskvöld. Slysið varð í Hafn-
arskógi er tveir bílar rákust sam-
an á hæðinni, sem er utan við
Seleyrargil. Bílarnir eru báðir
taldir nær ónýtir.
Öðrum bílnum, R-812, ók Hjalti
Pálsson framkvstj. hjá S.Í.S.. Með
honum var einn farþegi, Þórdís
K. Sigurðardóttir Voru þau á
leið til Reykjavíkur af aðalfundi
S.Í.S. í Bifröst. Við áreksturinn
hlaut Þórdís mikinn skurð í and-
lit, áverka á höfuð og heilahrist-
ing. Hjalti hafði rifbeinsbrotnað.
Hinn bíllinn var austan úr Ár-
nessýslu, X-451. í honum voru
alls sex Selfyssingar. Hlutu fjór-
ir þeirra meiri og minni meiðsl.
Fimm ára drengur lærbrotnaði.
Móðir hans, Kristín Hermanns-
dóttir og tveir farþegar aðrir,
Yngvi Gunnlaugsson og Bjarni
Tómasson, hlutu töluverða áverka
á höfði og heilahrising, en tveir
farþegar í þessum bíl sluppu ó-
meiddir.
Bílar, sem komu á staðinn,
fluttu hina slösuðu hingað í
sjúkrahúsið, þar sem þeir nú
liggja. Páll Gislason, yfirlæknir,
taldi líðan fólksins vera eftir öll-
um vonum síðdegis í dag. Hjalti
Pálsson var aftur á móti ferða-
fær þegar á laugardagskvöld og
fór þá til Reykjavíkur
Þetta er þriðja stórslysið, sem
verður á þessum stað, en kunnug-
ir telja, að draga megi verulega
úr slysahættunni með því að
lækka hæðina. —Oddur.
Eliefta norræna blaðamótið var sett við hátíðlega athöfn í
Alþingishúsinu í gærmorgun. Myndin sýnir nokkra þeirra,
sem viðstaddir voru. — Frá mótinu er sagt á bls. 6.
Bauð hann gesti velkomna og
rakti ýtarlega sögu verksmiðju-
málsins, og þakkaði öllum, sem
unnið hafa að því. Lauk hann
máli sínu með þessum orðum:
„Öll gæfa er frá Guði. Og gæfan
hefur ekki farið fram hjá þessu
fyrirtæki. Við þökkum forsjón-
inni, að hún skuli hafa látið verk
okkar lánaSt fram til þessa og
biðjum þess af heilum hug, að
Guðs blessun megi fylgja því um
alla framtíð". Þá lagði forseti ís-
lands, herra Ásgeir Ásgeirsson,
hornstein að verksmiðjunni.
Gerði hann það með því að múra
blýhólk með sögu verksmiðju-
málsins til þessa dags og fleiri
merkum upplýsingum í þar til
gerða rás í verksmiðjuveggnum.
Flutti hann ávarp, óskaði þjóð-
inni heilla, „að vera leyst úr
aldagömlum álögum moldarkof-
anna, hafnleysu og vegleysu“. Þá
flutti iðnaðarmálaráðherra, dr.
Gylfi Þ. Gíslason, ræðu og vígði
að því loknu verksmiðjuna með
því að bera eldspýtu að olíu-
bleyttum teinungi, sem verk-
smiðjumaður bar síðan inn í ofn-
inn. Kviknaði á teinungnum við
aðra eldspýtu.
Að vígsluathöfn lokinni skoð-
uðu gestir verksmiðjuna um hríð,
en síðan var setzt að veizluborði
í hinum rúmgóðu salarkynnum
hennar. Undir borðum töluðu
m. a. Max Jensen, formaður í
framkvæmdastjórn F. L. Smidth
& Co„ sem færði verksmiðju-
stjórninni fundabjöllu úr silfri
og Per Mouritzen, forstjóri J. G.
Mouritzen & Co„ sem gaf postu-
línsvasa. Þessu ágæta hófi var
slitið um kl. 10 á laugardags-
kvöld.
Aburðarflugvélin getur
farið yfir 10 hekt. á klst.
HELLU, Rang.: — Áburðarflug-
vélin svo nefnda, sem Flugskól-
inn Þytur hefur keypt fyrir
nokkru í þeim tilgangi að dreifa
áburði og fræi yfir sanda, fór
á laugardaginn í fyrsta leiðang-
ur sinn. Tókst hann vel að dómi
þeirra, sem gerst þekkja.
Það var milli kl. 4 og 5 um
daginn, sem flugvélin tók sig upp
af rennisléttu túninu við Gunn-
arsholt. Var hun með fullfermi
í áburðargeyminum, eða 300. kg.
Flogið var inn yfir hæðirnar fyr-
ir ofan Gunnarsholt, en þar er
beitiland frá búinu. Var flcgið
mjög lágt yfir og var flugvélin
aðeins skamma stund að tæma
áburðinn gegnum þar til gerðan
áburðardreifara. Flugmaður var
Karl Eiríksson.
Páll Sveinsson, sandgræðslu-
stjóri kvaðst vera mjög ánægður
með þessa fyrstu reynsluför. Hún
gæfi fyrirheit um stórátök á sviði
sandgræðslunnar. Með þessu móti
væri t. d. hægt að fara yfir á
einni klukkustund svo sem 10
hektara lands. Að sjálfsögðu
skiptir það höfuðmáli, að skilyrði
séu heppileg til slíks flugs. í 10
ha. lands fara um 3000 kg. af til-
búnum áburði. Litla flugvélin
eyðir alls um 10 gallónum af ben-
síni á klukkustund. Flugmaður
hennar verður Reynir Eiríksson.
Þá kvað Páll Sveinsson ákveð-
ið að nota flugvélina einmg tii
að dreifa gras- og hafrafræí, en
óákveðið er hvar byrjað verður
á að sá því, en það verður í ein-
hvern örfokasand.
í þessari viku mun áburðar-
flugvélin dreifa 4 tonnum af
áburði yfir heiða- og beitiland
fyrir ofan Gunnarsholt. —H.
Prestastefna
Islands
DAGANA 19.—21. júní verður
háð í Reykjavík Prestastefna ís-
lands. Hefst hún með guðsþjón-
ustu í Dómkirkjunni kl. 10 n. k.
föstudagsmorgun. Þar vígir bisk-
up cand. theol. Kristján Búason
til prests í Ólafsfjarðarpresta-
kalli.
Dagskrá fundarhaldanna verð-
ur með svipuðu sniði og venju-
lega. Á fyimmtudagskvöld flyt-
ur séra Bergur Björnsson pró-
fastur synoduserindi frá Palest-
ínuför, og á föstudagskvöld tal-
ar séra Helgi Konráðsson pró-
fastur um Prestafélag Hólastiftis
60 ára.