Morgunblaðið - 13.07.1958, Qupperneq 2
MORcrnvnr 4»i*>
Sunnudagur 13. júlí 1958
Ekki nóg að stöngin
góð heldur verður línan
að vera rétf
FLEIRI og fleiri leggja nú stundá
stangaveiði og mun nú meiri og
aimennari áhugi fyrir stangaveiði
en dæmi eru til áður. I öllum
laxveiðiám landsins er hver veiði
dagur umsetinn þegar snemma á
vorin og verði einhver forföll, þá
eru hundruð um boðið.
Allir, sem einhvern tíma hafa
handleikið veiðistöng, hafa heyrt
nöfn eins og Milward og Handy
stangir. Þær hafa algera sérstöðu
þegar um er rætt hinar vandaðri
gerðir veiðistanga, enda eru þetta
heimsþekkt vörumerkj á sviði
veiðistangaframleiðslu og gerð
hverskonar tækja til þeirra.
Nú er staddur hér á landi,
kominn í laxveiðiför H.G.V. Mil-
ward ofursti, sern er einn eigenda
og framkvæmastj. Milward Fish
ing Tackle Ltd. Hann er mikiil
og gamalreynáur laxveiðimaður
og hefur mikla þekkingu a smíðj
og gerð veiðistanga. Hann fer
vikulega til laxveiða 1 einni af
helztu laxveiðiám Skotlands,
Wye. Hér mun hann einnig renna
í nokkrar ár. Mun hann fara til
laxveiða með forseta íslands en
honum hefur hann árlega sent
laxafiugu. Voru þær lengi vei
framleiddar undir nafninu Ice-
land 'Sweep, en nú neita þessar
flugur „President".
Einn af tíðindamönnum Mbl.
hitti Milward ofursta í gær,
skömmu áður en hann var að
leggja af stað út úr bænum.
Hann ætlaði að veiða í Laxá í
Leirársveit, síðan í Langá á Mýr-
um. þá í Laxá í Þingeyjarsýslu,
svo í Svalbarðsá og Hafralónsá,
en þær eru báðar í Þistilfirði. Var
ofurstinn með Sæmundi Stefáns-
syni stórkaupmanni, sem heíuv
umboð fyrir Milward hér á landi.
Um laxveiðar almennt, komst
Milward ofursti svo að orði, að
flugulínur úr gerfiefnum t. d.
terylene, sem nú hefði tekizt að
framleiða með betri eiginleikum
en gömlu silkilínurnar myndu
vafalaust marka tímamót í þess-
ari vinsælu íþrótt. Þær hafa þá
kosti, að þær þola vern með-
xerð en gömlu línurnar og þær
fúna ekki þó þær séu á hjóiinu
árið um kring. Þá sagði hann,
að fjöldinn allur af stangaveiði
mönnum gerði sér ekki ljóst að
vel heppnuð veiðiför væri ekki
undir því einu komið að skil-
yrðin frá náttúrunnar hendi
væru góð, stöngin rétt valin, held
ur skipti þar ekKj minna máli
áð við stöngina væri rétt lína.
Milward ofux-sti kvað pað hafa
glatt sig, að hafa nitt laxveiði-
menn hér í Reykjavík, sem veitt
hefðu í 20—25 ár með sömu Mill
wardstönginni og teldu hana enn
sína beztu. — En annars er ég
ekki kominn til þess að reka aug-
lýsingastarfsemx fyrir fy’iitaki
mitt, heldur einvörður.gu til þess
að veiða lax. Síðan kvaddi ofurst-
inn og það var auðséð á honum,
að hugurinn var allur við lax-
veiðarnar.
Vmáffusamningur Breta
og Jemensmanna?
ADEN — Opinber tilkynning
hefur verið gefin út um það í
Lundúnum og Jemen, að stjóinir
þessara ríkja geri nú tilraun til
að komast að samkomulagi um
ýmis deilumál, svo að þau geti
undirritað vináttusamning sín á
milli. Eins og kunnugt er af
fréttum, hefur ríkt mikil ólga
á landamærum Jemens og vernd
arsvæðis Breta Aden.
Samningsviðræðurnar um vin-
áttusamning fara fram í sumar-
höll Haile Selassis í Eþíópíu
Meðal fulltrúa Breta í þessum
viðræðum er Horace Phillips ráð
herra í stjórninni í Aden. Hann
fiaug skyndilega frá Eþíópíu og
var för hans haldið leyndri, sagt
að hann væn á leið til Bretiands.
Aðalfulltrúi Jemens mun vera
varautanríkisráðherra landsins,
Gadi al Amri.
RANGT: — Sá, sem ætlar að beygja, stanzar þannig, að ÖU
umferð að baki honum verður einnig að stanza, og veldur
þannig óþarfa töf í umferðinni.
U mferðaþáttur:
Hvernig á að beygja rétt
UMFERÐARLOGIN gefa bend-
ingu um það. Þau bjóða öku-
mönnum að aka hægt og sýna
ýtrustu varkárni í beygjum. Þau
segja að vísu ekki, hve hægt skal
aka, enda ókleift að gefa al-
menna reglu um það. En auðvit-
að skal aka svo hægt sem beygj-
an og umferðin gefa tilefni til,
og annað er að beygja á gatna-
mótum en fylgja beygju á vegi.
Ökumenn skulu sýna ýtrustu
varkárni í beygjum. En er ýtrasta
varkárni alltaf hin sama? Á að
stöðva ökutæki áður en ekið er
fyrir horn og láta mann hlaupa
og gefa merki, þegar óhætt er að
aka áfram? Eða á að aka með
fullri gát, svo að stöðva megi
ökutækið þegar í stað, ef ástæða
er til? —- Umferðarlögin segja
um ökuhraða, að aldrei megi aka
hrðar en svo, að stöðva megi öku-
tækið á þriðjungi þeirrar vega-
lengdar, sem auð er og hindrun-
arlaus framundaa og ökumaður
hefur útsýn yfir. En þau krefjast
meiri varkárni í beygjum, ýtr-
ustu varkárni. í beygjum ber
ökumanni sérstaklega að gæta
þess, að aka eftir vinstri vegar-
helmingi, einkum þar, sem útsýn
er lítil og erfitt að sjá umferð á
móti.
Nú voru sett í lög sérstök
ákvæði um umferð, þegar beygt
er á vega- eða gatnamótum.
Þau hafa ekki verið í lögum áður,
en þóttu nauðsynleg, enda
árekstrar á gatnamótum mjög al-
gengir.
Fyrst og fremst er lögð rík að-
gæzluskylda á þann ökumann,
sem ætlar að beygja, gagnvart
þeim, sem á eftir honum aka, að
beygja þannig, að ekki valdi
hættu.
Þá eru ýtarleg ákvæði um það,
hvernig akstri skuli hagað, áður
en beygt er. Merkasta nýmælið er
það, að ekið skuli, ef aðstæður
ikuiuur í nærsveitum Reykjavíkur munu hafa tekið daginn snemma í gær, þvi gíaóasóisKu, ».
Að vísu fannst mörgum þessi fyrsti þurrkadag ur, sem komið hefur um nokkurt skeið, vera
allótryggur, en samt var tekið til óspilltra maianna við að þurrka, því margir áttu hey sín flöt.
En þurrkuriim var ótryggur og svo fór, að um nónbii gerði víða skúr úr lofti, og kom hún ofan í
hálfþurra flekkina. Fleiri skúrir fylgdu í kjölfarið. 1 Reykjavík má enn sjá hin gömlu hey-
vinnutæki þegar ekki er um umfangsmeiri slátt að ræða en á Arnarhólstúni eða snúa þarf flekk
á Landsspítalaskákinni. Konurnar sögðu ljósm yndaranum, að þær vonuðust tii þess að ná hey-
inu upp þurru um kvöldið. — Sú von þeirra rættist ekki og svo mun hafa verið méð fleiri,
scm voru í heyvinnu í gærdag. (Ljósm. Mbi.: Ól. K. M.)
leyfa, að miðlínu vegar, þegar
ætlunin er að beygja til hægri,
eða ef um einstefnuakstur er að
ræða, yfir á hægri vegarbrún,
áður en beygt er. Regla þessi
gildir á Norðurlöndum og víða
annars staðar. Hér á landi hafa
ökumenn fylgt henni í æ ríkara
mæli, án þess að hún hafi verið
leyfð í lögum. Kostir þessarar
reglu eru þeir, að hún dregur úr
töfum fyrir þá, sem ætla að halda
beint áfram eða til vinstri, því
að þeim er heimilað, ef aðstæður
leyfa, að fara vinstra megin fram
úr ökutæki, sem ætlar til hægri.
Ekki má taka beygju til hægri,
fyrr en nálæg ökutæki, sem á
móti koma, hafa farið fram hjá,
og ekki beygja fyrr en svo, að
ökutækið lendi á vinstra helm-
ingi þess vegar, sem beygt er
inn á. i
+ KVIKMYNDIR «■
„Það skeði i Róm"
Þetta er ítölsk kvikmynd sýnd
í Stjörnubíói.
ÞAU hittast í auðri íbúð á 5. hæð
í húsi einu í Róm. því að bæði
eru þau í leit að hentugu hús-
næði. — Hún er ung og glæsileg
saumakona, hann höfuðsmaður,
nokkuð roskinn ,en hinn gjörvu-
legasti maður. Bæði vilja þau
hreppa íbúðina og verða tölu-
verð átök á milli þeirra út af
því. Þá ber höfuðsmaðurinn
fram þá snjöllu miðlunart.illögu
að þau skuli njóta íbúðarinnar
saman. Hún þykkis tviC það í
fyrstu, en þegar hann (sem er
orðinn bráðskot.inn) biður hana
að giftast sér, lætur hún tilleiðast,
en segir honum jafnframt að hún
elski hann ekki og vilji hafa
frjálsar hendur ef hún verði ást-
fangin af öðrum. Hann játar þvL
Og nú hefst hjónabandið með
margskonar útúrdúrum eiginkon
unnar, sem alltaf er að hitta
fyrir rnenn,, sem heilla hana. —
En eiginmanninum tekst ailtaf
með skemmtilegum kænskubrögð
um og þekkingu sinni á sálarlífi
kvenfólksins að forða konu sinni
frá alvarlegum víxlsporum. Og
að lokum er það hin kerjótta
húslyfta, sem á sinn verulega
þátt að því, að leysa vandann
milli hjónanna.
Mynd þessi er prýðisvel gerð,
bráðskemmtileg og ágætiega leik
in, en aðalhiutverkin fara þau
með, Linda Darnell, er leikur
saumakonuna, Renate og Vittorio
De Sica, er leikur höfuðsmann-
inn. Einkum er leikur hans af»
bragðsgóður. Ega.
[i a------------------------>
■T
:i i
RETT: — Sá, sem ætlar að beygja, ekur að mifflínu akbrautar
og bíffur þar. þangað tii bifreiðar úr gagnstæðri átt eru
komnar fram hjá. Bifreiðar úr sömu átt komast óhindrað fram
hjá vinstra megin.
Þegar beygja á til vinstri, skal*-
í hæfilegri fjarlægð frá gatna-
mótum ekið að vinstri brún ak-
brautar. Taka skal þrönga og
krappa beygju á vinstri vegar-
helmingi, en forðast að sveigja
yfir á hægri helming áður en
beygt er, eins og sumra er siður.
í sambandi við beygjur er rétt
að minna á það, að nú er skylt
að hafa tæki til að gefá með
stefnumerki á hverri bifreið. Öku
mönnum er og skylt að gefa
merki um breytta akstursstefnu,
þegar þörf er á. Tvímælalaust ber
ökumönnum að nota stefnuljós,
er þeir hyggjast beygja á gatna-
mótum. Er óþarft að benda á
öryggi það, sem fylgir notkun
stefnumerkja.
Varnir
foiorður-Auierílku
OTTAWA, 10. júli. — Bandaríkin
og Kanada hafa komið sér saman
um að koma á fót nefnd, sem skip
uð er áf ríkisstjórnum bc.. .a
landanna og fjalla á um pólitísk
vandamál í sambandi við sam-
eiginlegar varnir Norður-
Ameríku innan vébanda Atlants
hafsbandalagsins. Var þetta upp-
lýst að afloknum viðræðum
Eisenhowers Bandaríkjaforseta
og kanadiska forsætisráðherrans
Diefenbakers. Eisenhower held-
ur nú heimleiðis.
Hefi kaupanda
að 3—4ra herb. íbúð á góðum stað. Ibúðin þarf
ekki að vera laus nærri strax.
ARNI GUÐJÓNSSON hdl.,
Garðastræti 17, sími 12831.
v