Morgunblaðið - 13.07.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.07.1958, Blaðsíða 8
8 MORCVNfíT. 4Ð1Ð SunmúJagur 13. 'júlí 1958 Um borð í Gripsholm ÞAÐ hefur ekki oft komið fyrir, að fallegustu skip, sem sigla um heimshöfin, hafi varpað akkerum í Reykjavíkurhöfn. Þetta gerðist þó fyrir nokkrum dögum, þegar sænska hafskipið Gripsholm kom hingað til Reykjavíkur með bandaríska auðkýfinga. Skipið var á leiðinni til Hammerfest í Noregi. Síðan var í ráði að sigla suður með Noregsströnd til Osló ar, þaðan til Kaupmannahafnar og jafnvel Helsingfors og síðan og endahöfn þess er Antwerpen, en þaðan á skipið að fara aftur með ferðafólkið til New York. Ferðin tekur um 44 daga. Gripsholm, sem er eign Sænsk- amerísku línunnar í Gautaborg, er stærsta og nýtízkulegasta far- þegaskip, sem nú siglir undir Norðurlandafána. Hin velkunna skipasmíðastöð í Itala Anzaldo 480 manns, en af þessum fjölda | höxðu aðeins tveir menn komið hingað til íslands áður og voru þeir í förum með gamla Grips- holm. Þegar komið er um borð i Gripsholm, er engu líkara en gengið sé um borgarstræti. Gang arnir eru t.d. svo langir, að ekki sér milli enda. Þeir eru að visu dálítið þröngir, minna kannske einna helzt á götur í ævagömlum borgarhverfum erlendis. Við gangana eru farþegaklefar, sem allir snúa út að hafinu, en gegnt þeim eru ýmsar verzlanir, rakara stofur, hárgreiðslustofur og því um líkt. Skipsmennirnir tala um torg, þar sem gangarnir breikka. Þar eru sýningargluggar með alls konar vörum, sænsku postulíni, silfurmunum og öðrum luxus- varningi, sem fáir kaupa aðrir en bandarískir milljónamæring- Sænskur sjóliði í skipsbáti. byggði skipið og það hefur verið í förum í rúmlega 1 ár. Það kost- aði um 15 milljónir dollara full- gert, það er rúmlega 23 þúsund tonn að stærð og í farþegaklef- um, sem eru jafnglæsilegir og dýrustu hótelherbergi, rúmast rúmlega 400 farþegar. Þegar Gripsholm sigldi inn á ytri höfnina í Reykjavík fyrir skömmu var það auðvitað í fyrsta skipti, sem það kom hing- að, en þess má geta til gamans, að gamla Gripsholm sigldi oft hingað norður á hjara veráldar fyrir síðustu styrjöld og var Reykvíkingum vel kunnugt. Áhöfn nýja Gripsholms er um ar. Það má því með sanni segja, að hér sé um að ræða fljótandi borg. Hér er það varla annað en sjáv arloftið, sem minnir farþegana á, að þeir séu komnir á sjó út. Skipið á lítið sem ekkert að rugga, því það er með eins kon- ar uggum, sem eiga að halda því í jafnvægi. Þegar tíðindamenn Morgunblaðsins, sem fengu að skoða skipið, spurðu leiðsögu- mann sinn að því, hvort farþeg- amir yrðu ekki oft sjóveikir, sagðist hann ekki vita til þess. Hér líður öllum prýðilega, sagði hann og við efuðumst ekki um það. Tíðindamennirnir skoðuðu skipið hátt og lágt með leiðsögu- manni sínum, sænskum manni Ohlen að nafni. Hann hefur eink- um með höndum að sjá um mót- tökur gestanna í landi. Aðeins var hægt að sjá hið helzta, enda nauðsynlegt að hafa hraðann á, ef ganga átti um allar 7 hæðirn- ar. Þó flýtti það fyrir ferðinni, að í Gripsholm hefur nútíma- tækni haldið innreið sína: Marg ar hraðlyftur eru í skipinu og koma að góðu gagni. í þessari „eftirlitsför“ var farið um hvern salinn öðrum glæsilegri, matsali, setustofur, vínstúkur, samkomu- sali, danssali, skoðaðir voru tenn isvellir, úti og innisundlaug og síðan gengið upp á sólbaðsþilj- urnar, sem eru næst fyrir neðan brúna, en að því búnu í útsýnis- turninn, sem er í fremri reykháfi, því að vélin þarf aðeins þann aftari, hinn er settur til að gera línurnar í skipinu fallegri, sagði Ohlen, leiðsögumaður. Hvor reyk háfurinn um sig er álíka hár og tvílyft hús. Salirnir voru allir búnir mjög fallegum húsgögnum og litaval allt og samsetning mjög smekkleg. Víða gat að líta frábært handbragð á allri vinnu og frágangi og á nokkrum stöð- um hreinustu listaverk. Gangar voru allir skreyttir með lista- verkum eftir unga sænska list- málara. Fylgdarmaður blaðamannanna var bersýnilega mjög kunnugur orðinn öllu skipulagi slíkra skemmtisiglinga. Hann vissi hvaða kröfur skemmtiferðafólk- ið gerir, hvar hættast er við árekstrum, enda vita forstöðu- menn slíkra skipa að fyrsta atr- iðið í rekstri þeirra er: góð þjón- usta. Fólkið vill fá hvíld, það vill lifa makindalegu lífi, þann stutta tíma, sem það er um borð og fá sem allra mest fyrir peningana. Eins og kunnugt er, hugsa millj- ónamæringar ekki síður um pen inga en annað fólk, annars hefðu Gripsholm. þeir sennilega aldrei orðið milljónamæringar! — En far- þegarnir vilja líka geta skemmt sér, lifa í sukki og sællífi, ef út í þá sálma fer, því að milljónamæringar þurfa líka að skemmta sér, sagði Ohlen og brosti. Fólkið borgar geypiverð fyrir farmiðana, lægsta fargjald er um 2500 dollarar fyrir þessa 44 daga en getur líka farið upp í 5000 dollara, ef vill. Sumir þeir, sem hér eru um borð, eru svo ríkir, að þeir gætu keypt Gripsholm, sprengt hann í loft upp og verið jafn stöndugir eftir sem áður. Það mátti líka sjá, að frúrnar skorti ekki skartgripi, en yfirleitt var þetta fólk allmjög við aldur. Það fór ekki hjá því, borgarbúa. Voru hér komnir Fóstbræður að skemmta farþeg- um með söng. Það var augsýni- legt, að margir höfðu áhuga á því að heyra í þessum íslenzka karla kór og eftir söngskemmtunina heyrðum við, að Fóstbræðrum hefði verið „vel tekið“. Þannig er reynt að gera farþegum allt til hæfis. Meðan skipið er í förum milli landa, eru ýmisskonar skemmtanir til reiðu, kvikmynd- ir, fyrirlestrar og þess háttar. Auk þess fá farþegarnir nokk- urs konar dagblað á hverjum morgni og geta fylgzt vel með því sem gerist í umheimmum. Þá er um borð 10 manna dans- hljómsveit að minnsta kosti og sennilega einhverjir fleiri ’omnisvöllurinr. Horft af brún- að ævi þess var tekin að hníga til horns.Ohlen saagði, að Reykja vík væri fyrsta höfnin, sem ferða mennirnir kæmu til á þessari ! skemmtiför. Það gerir því ráð 1 fyrir að komast í verzlanir til að eyða peningum, en hvað gerið þið svo, spurði hann. Jú, þið lok ið verzlununum kl. 12 á hádegi á laugardögum og er enginn vafi á því,- að margar pyngjur eru þyngri en ella af þeim sökum. Svo er það mjög þýðingarmikið atriði að þetta fólk þurfi ekki að bíða eftir neinu. Amerískir milljónamæringar eru nefnilega þeirrar náttúru, að þeir eiga erf- itt með að bíða eftir þjónustu. Ef þeir fara austur að Geysi til að sjá hann gjósa og eru komnir þangað kl. 4,50, ætlast þeir til, að hann gjósi kl; 4,52. Þess vegna er líklega öruggara að fara aust ur á Þingvöll eða í Hveragerði, ja eða austur að Gullfossi, því að ekki hættir hann að renna kl. 4,52. Ohlen leiðsögumaður skýrði okkur frá því, að Gripsholm væri alltaf í sólskini. Á sumrin fer hann um norðlægar slóðir, en á veturna siglir hann inn í suð- rænni sólarlönd. Það er skemmti legt að vera um borð,sagðiOhlen og ekki er ég farinn að finna til þreytu. Ég kann vel við mig í sólskininu og svo rignir kannske stundum, já og ekki aðeins í Reykjavík bætti hann við. Þegar við komum niður á aðal- hiljurnar, sáum við kjólklædda skemmtikraftar án þess að við yrðum þeirra varir. Þegar við höfum setzt að snæð ingi og hámum í okkur þann bezta mat, sem hugsazt getur, „Long Island Duckling“, segir Ohlen okkur frá því, að Svíakon- ungur noti stundum Gripsholm nafnið, þegar hann fer til Riviera eða annar ókunnra slóða og vill ganga undir dulnefni. Þá lætur hann skrá sig í gestabækur hó- telanna: hertoginn af Gripsholm. Ohlen sagði okkur einnig, að far- þegarnir hefðu verið ánægðir með dvöl sína hér á landi. Hún væri að vísu ekki löng, en þeir hefðu ýmislegt séð og ýmsu kynnzt og væru yfirleitt í „sjö- unda himni“. Áður en við kom- um hingað, höfðu þeir séð kvik- mynd frá íslandi og starfsmaður fyrirtækisins hafði haldið fyrir- lestra fyrir þá um íslenzk mál- efni. Þeir hafa því verið allvel undirbúnir og kannske ekki allt komið þeim á óvart. Þegar hér var komið sögu voru íslendingarnir beðnir um að ganga í land og við urðum því að kveðja þetta fallega skip og okkar ágæta gestgjafa. Við förum með seinasta báti. Þar eru Fóst- bræður fyrir og taka eitt lag, en farþegar standa á þiljunum, veifa og klappa í kveðjuskyni. Síðan er haldið inn á Reykjavíkurhöfn. Allir vonast til þess að sjá hið tignarlega skip aftur á ytri höfn inni eitt fagurt sumarkvöld 1959.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.