Morgunblaðið - 13.07.1958, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.07.1958, Blaðsíða 4
4 MORCVTSB1 4 ÐIÐ Sunnudagur 13. júlí 1958 í dag er 194. dagur ársins. Sunnudagur 13. júlí. Ardegisflæði kl. 3,48. Síðdegisflæði kl. 16,33. Slysavarðstofa Beykjavíkur í Heilsuverndarstöðinn) er opin all an sólarhringinn. Læknavörður L. R. (fyrir vitjanirj er á sama stað, frá kl. 18—8. — Sími 15030. Helgidagavarzla er í Reykjavík- urapóteki, sími 11760. Næturvarzla vikuna 13. til 19. júlí er í Reykjavíkurapóteki, sími 11760. Hoits-apótek og Carðsapótek eru opir á sunnudögum kl. 1—4. Hafuarfjarðar-apótek er opið alla virka daga kl. 9—21. Laugardaga kl. B—16 og 19—21. Helgidaga kl. 13—16 Helgidagalæknir í Hafnarfirði er Bjarni Snæbjörnsson. Keflavíkur-apótek er opið alla virka daga kl. 9—19. laugardaga kl. 9—16. Helgidaga kl. 13—16. Kópavogs-apótek, Alfhólsvegi 9 er opið daglega kL 9—20. nema laugardaga kl. 9—16 og helgidaga kl. 13—16. — Simi 23100. Hjönaefni I gær opinberuðu trúlofun sína ungfrú Bára Jónsdóttir, Hvamms tanga og Magnús Einarsson, Selja landsveg 17, Reykjavík. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Vilborg Þórarinsdótt- ir, starfsstúlka á Elli- og hjúkr- unarheimilinu Grund, og Sigur- þór Jósefsson, vélamaður hjá Reykjavíkurbæ. Flugvélar Flugféiag íslands hf.: — Hrím- faxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 8 í dag. Væntan- legur aftur til Rvíkur kl. 22:45 í kvöld. Flugvélin fer til Oslóar, Kaupmannah. og Hamborgar kl. 08:00 í fyrramálið. Millilandaflugfélin Gullfaxi er væntanleg til Rvíkur kl. 16:50 í dag frá Hamborg, Kaupmh. og Ósló. Flugvélin fer til Lundúna kl. 10:00 í fyrramálið. Innanlandsflug: f dag til Akur- eyrar (2 ferðir), Húsavíkur, ísa- fjarðar, Siglufjarðar og Vest- mannaeyja. — Á morgun til Ak- ureyrar (3 ferðir), Bíldudals, Eg- ilsstaða, Fagurhólsmýrar, Horna fjarðar, ísafjárðar, Kópaskers og Vestmannaeyja. Loftleiðir h.f.: — Hekla er væntanleg kl. 08:15 frá New York fer kl. 09:45 til Óslóar og Stafang- urs. — Edda er væntanleg kl. 19:00 frá Hamborg, Kaupmannah. og Ósló. Fer kl. 20:00 til New York. - AFMÆLI * Frú Guðrún Egilsdóttir, Álf- hólsvegi 61, Kópavogi, er 85 ára í dag. DAY DEW KYNNIR PEACH PINK DAY DEW gefur yður ferskan blæ — gallalausan, mattan og aðlaðandi. Notið hinn nýja „Peach pink“, og gullhamrarnir hljóma alls staðar, hvar sem þér eruð. Hann gefur yður einmitt hinn aðlaðandi blæ, sem fær húðina til að geisla af lífsorku æskunnar. DAY DEW er fullkomnasta „make-up“ sem þér getið valið — það hylur hrukkur á fullkominn og aðlaðandi hátt .. yður líður bókstaflega vel með þetta mjúka og þægilega „make-up“, sem jafnframt verndar húð yðar gegn veðri og vindi. Day Dew verður eftirlætis ,,make-up“ yðar. .. reynið það sjálfar, og þá skiljið þér hvers vegna! Bankastræti 7 — sími 2-21-35. Sjötug er í dag frú Steindóra Steindórsdóttir frá Bæjum á Snæfjallaströnd. Hún dvelst nú á heimili dóttur sinnar Ingi- bjargar Jónsdóttur, Miðteig 6, Akranesi. B Skipin Eimskipafélag íslands h.f.: Dettifoss, Jullfoss, Reykjafoss og Tröllafoss eru í Reykjavík. — Fjallfoss fór 10 þ.m. frá Antwerp- en. — Goðafoss fór 9. þ.m. frá New York. — —Lagarfoss fer frá Álaborg 26. þ.m. — Tungufoss fór frá Gdynia 9. þ.m. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell, Jökulfell, Dísarfell, Helgafell og Hamrafell eru í Reykjavík. — Arnafell er á Ak- ureyri. Litlafell losar á Norður- og Austurlandshöfnum. Eimskipafélag Reykjavíkur li.f.: Katla og Askja eru í Reykjavík. B5I Ymislegt Oorð lífsins: — Og settist þá upp sá, er dauður var, og tók að mæla, og hann gaf móður hans hann. En ótti greip alla og veg- sömuðu þeir Guð. — Lúk. 7. ★ í tilefni af þjóðhátíðadegi 1 Frakka taka franski sendiherrann ÖRN CLAUSEN heraðsdómsiögmaður Málf'utnmgsskrifstofa. Bankastræti 12 — Simi 18499. og frú Voillery á móti gestum á heimili sínu, Skálholtsstíg 6, mánudaginn 14. júlí frá kl. 17— 19. Bræðralag Óháða safnaðarins heldur fund í Edduhúsinu í dag kl. 2 e.h. Mörg áríðandi mál. Fé- lagar fjölmennið. F^lAheit&samskot Áheit á Hallgrímskirkju í Saur bæ: — J. Þ. kr. 100.00. Til Sólheimadrengsins: — Frá Stokkseyringi kr. 50.00. Gjafir og áheit til Blindrafé- lags íslands: — Þuríður kr. 500; Kvenfélagið Freyja 500; Kven- félag Húsavíkur 100; Guðrún 100; S.B. 50; Gömul kona 150; N.N. (barst í bréfi) 200; Sikverj- ar m.s. Dísafelli 850; Kvenfélag Hvítársíðu 180; Jón Jónsson 200; G.J. 200; K.Þ.Á. 1000; Þórir Vil- hjálmsson 200; N.N. (barst í bréfi) 100. Bæjarbókasafn Reykjavíkur er lokað vegna sumarleyfa frá 12. júlí til 6. ágúst. Þjóðlei'khúsið er opið til sýnis þriðjudaga og föstudaga kl. 11 til 12 árdegis. Inngangur um aðal- dyr. Arbæjarsafnið er opið kl. 14—18 alla daga nema mánudaga. Listasafn Einars Jónssonar, — Hnitbjörgum, er opið daglega frá kl. 1,30 til kl. 3,30 síðdegis. Þjóðminjasafnið er opið sunnu- daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu daga og laugardaga kl. 1—3. • Gengið • Gullverð ísl. krónu: 100 guilkr. = 738,95 pappírskr. Sölugengi 1 Sterlingspund .... kr. 45,70 1 Bandarikjadollar..— 16,32 1 Kanadadollar .... — 16,96 100 danskar kr.......— 236,30 100 norskar kr.......— 228,50 100 sænskar kr.......—315,50 100 finnsk mörk ....— 5,10 1000 franskir frankar .. — 38,86 100 belgiskir frankar..— 32,90 100 svissn. frankar .. — 376,00 100 tékkneskar kr. .. — 226,67 100 vestur-þýzk mörk — 391,30 1000 Lírur .............— 26,02 100 Gyllini ...........— 431,10 Spurning dagsins TELJIÐ þér, að rétt væri og árangursríkara að taka upp at- vinnumennsku í knattspyrnu Albert Guð- mundsson: Vafalaust yrði það árangurs- ríkara knatt- spyrnulega séð, en hins vegar tél ég engan fjárhags legan grund- völl fyrir at- vinnumennskunni hérlendis. Ríkharður Jónsson: Knatt- spyrna kemur sennilega ekki til með að breytast til muna hér fyrr en hún færist í eitt- hvað atvinnu- form. Því fyrr — því betra. Mér finnst líka kominn , tími til að 1 áhorfendur fái fyrir áhuga sinn á íþrótt- inni jafnbetri knattspyrnu en nú tíðkast. Ég segi þess vegna — því fyrr — því betra. Björgvin Schram, form. K.S.Í: 10 ára drengur, sem fer að iðka knattspyrnu, gerir það af eigin löngun — af því að honum finnst knattspyrnan skemmtilegur leikur. Honura dettur ekki peningur í hug í því sambandi. Sá sami hugs- unarháttur á að mínu viti einnig að ríkja hjá fullorðn- um. Knattspyrnan er leikur en ekki atvinna. Svar mitt er því — nei. Axel : Sigurðsson (Kormákr) Ég álít, að við ættum sem fyrst að koma á hinu svokallaða „semi. Pro“, eða hálfatvinnumennsku — þar sem hver keppandi fær greitt fyrir hvern leik eft- ir vissum regl- um. Áhuga- mannareglunn ar, sem við er- um að bisa við að halda, eru löngu orðnar úreltar og samrýmast ekki okk- ar tíma. Þegar farið verður að greiða knattspyrnumönnum okk- ar fyrir að keppa, þá fyrst getum við vænzt viðunandi árangurs. Vefnaðarvöruverzlun gömul og vel þekkt, á góðum stað við Laugaveginn er til sölu, ef samið er strax. Þeir sem áhuga hafa á þessu sendi tilboð á af- greiðslu blaðsins fyrir 15. þ.m. merkt: „Hagkvæmt — 6432“. MÓTORBÁTUR 25—35 tonn óskast til kaups. — Tilboð sendist Ágústi Helgasyni, Hólagötu 8, Vestmannaeyjum. Guðjón Einarsson, form. lands- dómaranefndar: Ég er mótfallinn því, að knattspyrna verði gerð að atvinnugrein hér á landi. ®skumaður- inn á að stunda íþróttir til þess eins að þjálfa líkama sin og skap- gerð, svo að hann verði bet ur undir það búinn að leysa af hendi þau störf, sem hans kunna að bíða fyrir land og þjóð. Gunnar Hannessen, verzlun- arm.: Við erum allt of fáir og fátækir til þess að leggja út á þá braut. Ég hef hugsað málið mikið, en allt- af komizt að sömu niður- stöðu: Hér er enginn grund- völlur fyrir at- vinnuknatt- spyrnu. Hins vegar mætti athuga hvort ekki væri hægt ' að örfa að einhverju æfingar t knattspyrnumanna með þvl að ! reyna að bæta þeim vinnutap, sem þeir yrðu fyrir vegna kapp- leikja. Það væri e.t.v. spor í rétta átt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.