Morgunblaðið - 13.07.1958, Síða 20
V EÐRIÐ
Hxg norðlæg átt, léttskýjað.
Reykjavíkurbrét
Sjá bls. 11.
156. tbl. — Sunnudagur 13. júlí 1958
Miðlunartillaga í
farmannadeilunni?
KLUKKAN 2 í gærdag stóð enn
yfir sáttafundur í farmannadeil-
unni. Þá höfðu samninganefndar-
menn ásamt sáttasemjara ríkis-
ins, Torfa Hjartarsyni, setið á
fundum frá því klukkan 3 á
á föstudaginn.
Þegar þetta er skrifað, kl. 2,30,
er blaðið var fullbúið til prent-
unar, var ekki orðið samkomu-
lag. Að vísu virtist þá liggja í
loftinu að samningum hefði mið-
að verulega í áttina til samkomu-
lags, en þó gat brugðið til beggja
vona.
Ef svo fer, að samninganefnd-
irnar komist að samkomulagi,
verður að sjálfsögðu að bera það
undir fundi deiluaðila, sjómanna
og skipafélaganna, því undir sam
þykki þessara aðila er komið að
deilan leysist. Hafi miðlunartil-
laga kömið fram í gærkvöldi,
mun hún trúlega verða borin
undir félagsfundi í dag.
Hannibal Valdimarsson hafði
einn ráðherranna tekið þátt í
samningafundunum á föstudags-
kvöldið.
Allgóð síldveiði var á
austursvœðinu í gœr
m * - Maawamwgg «bíw
VIKAN sem nú er liðin var léleg
síldarvika, því ýmist var slæmt
veður og landlega, sem var raun
ar fram yfir miðja vikuna, en
þegar bátarnir komust út aítur,
var engin veiði.
í fyrrinótt hafði verið mjög
síldarlegt á Vestursvæðinu, en
það var ekki nóg, því þegar kast-
að var, en það mun hafa verið
á allstóru svæði sem síldin hélt
sig, hafði sáralítið fengizt úr köst
unum og vart meira en 30—40
tunnur, margir fengu aðeins 2—3
tunnur í kasti.
★
ER Mbl. hafði síðast samband við
Vísitalan
199 stig
KAUPLAGSNEFND hefur reikn
að út vísitölu framfærslukostn-
aðar í Reykjavík hinn 1. júlí s.l.,
og reyndist hún vera 199 stig.
Viðskiptamálaráðuneytið, 11/7.
1958.
6187 kr. lil Eyjóifs
Jónssonar
SUNDAFREK Eyjólfs Jónssonar,
þegar hann um daginn synti frá
Reykjavík til Akraness, hefur
vakið almenna aðdáun og var
uppi mikill áhugi um að styðja
hann til að þreyta hið fræga
Ermarsund. Þykjast menn sjá
fram á að ekki muni það reynast
honum ofviða eftir að hann hefúr
leyst af hendi svo langt sund í
hinum kalda sjó við strendur ís-
lands.
Nú hafa starfsmenn í Áhalda-
húsi Reykjavíkurbæjar viljað
sýna áhuga sinn í verki og safn-
að kr. 6187.00 til að styrkja Eyj-
ólf í hið fyrirhugaða ferðalag,
svo að hann geti reynt sig í hinu
eftirsótta Ermarsundi. Heyrst
hefur að fleiri starfshópar hafi
á prjónunum svipaða söfnun.
Nærri lá að illa færi
GATWICK, Englandi, 11. júlí. —
Nærri lá, að illa færi, er farþega-
flugvél frá belgíska flugfélaginu
SABENA lenti hér í dag. Flug-
vélin var af gerðinni DC-C7, með
54 farþega innanborðs, á leið frá
Evrópu til New York. Einn hreyfl
anna bilaði, þegar komið var út
yfir Atlantshaf — og sneri flug-
vélin til Englands. Er hún lenti
hér sprakk einn hjólbarðanna um
leið og hann nam við jörðu, flug-
stjórinn missti stjórn á flugvél-
inni og rann hún út af brautinni.
Siglufjörð í gærdag var veður
nyrðra hið ákjósanlegasta en sára
lítil síldveiði á vestursvæðinu. Frá
Raufarhöfn barst blaðinu hins
vegar eftirfarandi síldarfregn:
RAUFARHÖFN, 12. júlí: — Bát-
arnir hafa verið að fá síld úti á
Þistilfirði í nótt og morgun og
hafa fimmtán skip tilkynnt komu
sína til Raufarhafnar með þann
afla sem hér segir: Faxaborg 250
tunnur; Grundfirðingur II 250;
Þorsteinn GK-15 150; Sigurður,
Siglufirði 600; Álftanes 1000;
Suðurey 200; Stella 600; Kópur
KE 150; Hrönn 200; Gunnólfur
200; Rafnkell 800; Hafrenningur
400; Garðar 500; Skipaskagi 500;
og Sæborg 150. Síld þessi hefur
aflazt á Þistilfirði um 13 mílur
frá landi. Veiðiveður var gott í
nótt, enda þótt svolítill kaldi
væri á miðunum. í kvöld og í nótt
er búizt við góðu veiðiveðri. Fitu
magn þessarar síldar er 19,5%
og er þetta talin góð söltunar-
síld. Er saltað á öllum stöðvum
hér á Raufarhöfn. Fólksskortur
er nokkur og einkum vantar síld-
arstúlkur, en allmargar stúlkur,
sem voru ráðnar hingað fóru til
Siglufjarðar. — Einar.
Frá Norðurlöndum —
á leið til Langasands
MEÐAL farþega í flugvél Loft-
leiða vestur um haf sl. föstu-
dagskvöld voru þrjár nýkjörnar
„fegurðardrottningar“ frá Norð-
urlöndum á leið til keppni um
titilinn „Ungfrú Alheimur", sem
hefst á Langasandi í Kaliforníu
17. þ. m.
Myndin að ofan er tekin meðan
flugvélin stóð við á Reykjavík-
urflugvelli. — Blómarósirnar eru,
talið frá vinstri: ungfrú Britt
Gárdman (19 ára) frá Svíþjóð,
ungfrú Greta Andersen (20 ára)
frá Noregi og ungfrú Evy Nord-
lund (20 ára) frá Danmörku. —
Allar eru þær ljómandi lagleg-
ar stúlkur og bjóða af sér einkar
góðan þokka, enda mun hörð
samkeppni bíða þeirra fyrir vest-
an. Ungfrú Svíþjóð stundar nám
í ensku og frönsku við háskólann
í Stokkhólmi og segist ætla að
Sanngjörn skrif um land-
helgismálið
I JULIHEFTI enska fiskveiði-
tímaritsins „World Fishing“ birt-
ist löng og ýtarleg grein um ís-
land, sjávarútvegsmál okkar og
landhelgina. Einn af starfsmönn-
um blaðsins hefur dvalizt hér á
landi og aflað efni í greinina,
sem er óiík flestu því, sem skrifað
er í Englandi um landhelgismál
Kaupslefna í Leipzig
í HAUST, 7.—14. september verð
ur haldln kaupstefna í Leipzig
og munu yfir 30 þjóðir sýna þar
vörur sínar á 110,000 fermetra
sýningarsvæði. Verður kaup-
stefna þessi nú umfangsmeiri en
nokkru sinni fyrr.
Mörg lönd taka þátt í kaup-
stefnunni og sýna þar framleiðslu
vörur sínar. Má þar nefna Vestur
Þjóðverja, Frakka, Belgíumenn,
Hollendinga, Dani, Norðmenn,
Finna, Svisslendinga, Breta, íra
og allar austurevrópuþjóðirnar.
Einnig verða á sýningunni vör-
ur frá öðrum heimsálfum, svo
sem kaffi frá Brasilíu og Colum-
bíu, aldini, vín og kaffi frá
Chile, romm frá Jamaika, aldini
frá Morokkó og vefnaðarvara frá
arabíska samveldinu.
okkar. í greininni gætir mikils
skilnings á hagsmunum okkar og
viðhorfum, enda er ljóst, að grein
arhöfundur hefur útt tal við
marga málsmetandi menn hér og
reynt að kryfja málefnið til
mergjar. Margar myndir prýða
og greinina — og er okkur mikill
hagur af því að landhelgismálið
skuli skýrt áf jafnmikilli óhlut-
drægni og raun ber vitni — í
jafnviðurkenndu blaði og „World
Fishing" er. Niðurlag greinarinn-
ar er á þessa leið:
Þess er vænzt í einlægni, að
Sir Farndale Phillips láti verða
af því að fljúga til íslands til við-
ræðna. Við viljum veiða við
þröskuldinn hjá þeim (fslending-
um) — og það væri ekkert annað
en kurteisi af okkur að knýja á
þessar dyr til þess að ræða málið
við þá, sem búa innifyrir.
Akureyringar unnu
Skagfirðinga 10:1
AKUREYRI, 12. júlí: — Knatt-
spyrnumót íslands í annarri deild
hófst hér í gærkvöldi kl. 8,30
með leik milli Akureyringa og
Skagfirðinga. Leiknum lauk með
sigri Akureyringa, 10 gegn 1. —
Dómari var Magnús V. Pétursson.
— Mag.
verða kennari. Ungfrú Noregur
er verzlunarskólamenntuð og
vinnur á skrifstofu í heima-
borg sinni, Stavanger og ungfrú
Danmörk vinnur sem sýningar-
stúlka hjá tízkufyrirtæki í Kaup-
mannahöfn. Greta og Evy eru
báðar trúlofaðar en Britt laus og
liðug. Þær kváðust ekki vera
neitt kvíðnar en hlakka mikið til.
— Hvað, ef þær fengju nú kvik-
myndatilboð frá Hollywood —
myndu þær taka því? Ungfrú
Svíþjóð: Nei. Ungfrú Danmörk:
Já, það myndi eg gera. Ungfrú
Noregur: Nei, eg fer aftur heim
til Norge.
Flugvélinni seinkaði héðan um
einn klukkutíma og notuðu stúlk-
urnar hann til að sjá sig dálítið
um í Reykjavík í boði Loftleiða
og sem minjagrip frá íslandi fékk
hver þeirra myndabók A'-
bókafélagsins.
Fundur norrœnna vinnu-
veitenda hér 14.—77. /ú/r
REYKJAVÍK, 12. júlí 1958. —
Fundur norrænna vinnuveitenda
verður haldinn í Reykjavík dag-
ana 14.—17. júlí n.k.
Fulltrúar frá öllum norður-
löndunum koma til Reykjavik-
ur í dag til að sitja fundinn.
Fastanefndafundur. norrænu
vinnuveitendasamtakanna verð-
ur haldinn hér í Reykjavik dag-
ana 14.—17. þ.m. og sækja hann
fulltrúar frá öllum hinum norð-
urlöndunum Hlutverk fundanna
er að skiptast á upplýsingum um
allt það helzta, sem á hverjum
tíma gerist í efnahags- og félags-
málum hverrar þjóðar fyrir sig.
Hafa slíkir fundir verið haldnir
til skiptis á norðurlöndum að
undanskildu íslandi um langt ára
bil og þykja hinir mikilsverðustu
fyrir norræna samvinnu á þeim
sviðum, sem þeir fjalla um.
Vinnuveitendasamband íslands
F orsætisráðherr-
ann komst ekki
í gær
H. C. HANSEN forsætis- og ut-
anríkisráðherra Dana, sem ætlaði
í gærmorgun að halda héðan til
Grænlands, varð frá að snúa er
hann kom út á Reykjavíkurflug-
völl. Kom í ljós að flugveður var
óhagstætt til Meistaravíkur. Ár-
degis í dag mun ráðherrann halda
héðan, og mun þá verða flogið til
herbækistöðvarinnar „Station
Nord“. Er sennilegt að ráðherr-
ann komi ekki að þessu sinni til
Meistaravíkur.
hefir tekið þátt í þessu samstarfi,
en fastanefndarfundirnir hafa
aldrei fyrr verið haldnir hér á
íslandi.
Málefni þau, sem fundurinn
mun að þessu sinni taka til með-
ferðar auk venjulegra skýrslna
hvers lands um ástand og horfur
í vinnumálum svo og í efnahags-
og félagsmálum eru þessi:
1. Nýjar reglur um samninga-
umleitanir í vinnudeilum, sem
danska vinnuveitendasambandið
og danska alþýðusambandið hafa
komið sér saman um.
2. Framkvæmd á styttingu
vinnutímans í 45 klst. á viku.
3. Fríverzlunarsvæði Evrópu
og samræming á félagslegum
kjörum manna
Þessir fulltrúar sækja fundinn:
Frá danska vinnuveitendasam-
bandinu: Civilingeniör Ejnar
Thorsen, Fabrikant Svend Hein.
eke, Direktör Svend Heineke,
Direktör W. Elmquist, Direktör
Allan Rise. — Finnland: Mini-
stern bergsrodet Lauri J. Kive
kas, form., Ambassadören, verk-
stallande direktören Johan Ny-
kop, Fil. magister, Nils-Östen
Grotenfelt. — Noregur: Direktör
A. P. Östberg, formaður, Direk-
tör G. Ring Amundsen, Direktör
Erling Berg, Disponent Sverre
Fugelli. — Svíþjóð: Fil. Dr. Sven
Schwartz, formaður, Direktör
Bertil Kugelberg, Hovrattsrádet
Sven Hammerskjold, Direktör
Gullmar Bergenström. — ísland:
Kjartan Thors, framkvæmda-
stjóri, form. Guðmundur Vil-
hjálmsson, framkvæmdastjóri,
Benedikt Gröndal, framkv.stj.,
Ingvar Vilhjálmsson, framkv.stj.,
Gústaf E. Pálsson, framkv.stj.
Björgvin Sigurðsson framkv.stj.
Ritarar fundarins verða Barði
Friðriksson, skrifstofustjóri og
Einar Árnason, fulltrúi