Morgunblaðið - 20.07.1958, Síða 1
20 siður og Lesbók
45. árgangw
162. tbl. — Sunnudagur 20. júlí 1958
Prentsmiðia Morgunblaðslns
Libya næst?
Brezk herskip eru
farin á vetfvang
L.ONDON, 19. júlí. — Brezka
varnarmálaráðuneytið tilk. í
dag, að brezk herskip hefðu
verið send til hafnarborgar-
innar Tobruk í Libyu. Meðal
herskipanna er beitiskipið Ber
muda. Ekki vildi ráðuneytið
gera frekari grein fyrir þessari
ráðstöfun, en fullvíst er tal-
ið, að Bretar hafi hugboð um
að til tíðinda geti dregið í
Libyu og vilja vera við öllu
búnir. Samkvæmt samningi
Breta og Libyumanna getur
Libyustjórn kvatt brezka her-
inn til aðstoðar, ef til uppreisn
ar kemur í landinu. Libya á
landamæri að Egyptalandi.
Bagdad-bandalagið
liðasf ekki í sundur
— segir utanríkisráðherra Pakistan
KARACHI, 19. júlí — M.S.A.
Baig, utanríkisráðherra Pakist-
ans sagði í dag, að Bagdad-banda
lagið mundi ekki liðast í sundur
vegna atburðanna í írak. Bag-
dad-sáttmálinn er staðreynd —
og hann verður það einnig í
MIG yfir
Jórdaniu
LONDON, 19. júlí. — Frá
brezka flugvélamóðurskipinu
Eagle bárust þær fregnir í
dag, að í morgun hefði'
orrustuflugmenn, sem verið
hafa á þotum sínum til vernd-
ar flutningaflugvélum brezka
hersins á flugleiðinni til
Amman, séð rússneskar
MIG-þotur, sem báru sýr
lenzk einkennismerki, á flugi
mjög hátt yfir Jórdaníu.
framtíðinni, þrátt fyrir atburði
síðustu daga. Ég býst við því, að
hin nýja stjórn íraks segi sig úr
bandalaginu mjög bráðlega og
rifti öllum samningum landsins
við bandalagsríkin, enda þótt að
aðildarríkjunum beri að tilkynna
úrsögn sína með sex mánaða fyr-
irvara. Þetta breytir samt engu
— og bandalagsfundurinn verð-
ur haldinn 28. júlí í London eins
og áður var ákveðið, sagði utan-
ríkisráðherrann.
Hussein aðvarar
AMMAN, 19. júlí. — Hussein
Jordaníukonungur flutti út-
varpsræðu í gærkvöldi til
þjóðar sinnar og sagði þar,
að uppreisnin í írak hefði
verið skipulögð af „útsendur-
um kommúnista“. Hvatti
hann herinn til fylgis við sig
og varaði hann við öflum,
sem ynnu nú að því að riðla
fylkingar hersins og sundra
honum.
Allsherjarþingið kallað
saman til skyndifundar
NEW YORK, 19. júlí. —-
Sendinefnd Bandaríkjanna
hjá S. Þ. hefur krafizt þess,
að allsherjarþingið komi til
skyndifundar til þess að ræða
Frakkar
mótmœla
— segir Frante Soir
FARÍS, 19. júlí. — NTB — Reuter
— Franska stjórnin mun mót-
mæla því við bandarísku stjórn-
ina, að Frakkar voru ekki látnir
vita fyrirfram um landgöngu
banadrísks herliðs í Líbanon, seg
ir í óháða kvöldblaðinu France
Soir í dag. Franski sendiherrann
í Washington mun afhenda banda
ríska utanríkisráðherranum Fost
er Dulles mótmælaorðsendingu,
segir blaðið. I orðsendingunni
verður kvartað yfir því, að
franska stjórnin átti ektri
þátt í undirbúningsviðræð-
um um málið, var ekki spurð
ráða og henni var ekki sagt frá
þessum fyrirætlunum fyrirfram.
atburðina í Iöndunum fyrir
botni Miðjarðarhafsins þar eð
umræður í öryggisráðinu hafa
ekki borið neinn árangur. AIl-
ar tillögur, sem þar hafa ver-
ið fluttar, hafa verið felldar
— og næst mun ráðið koma
saman á mánudag. Fastlega
er búizt við að Ráðstjórnar-
ríkin taki undir kröfu Banda-
ríkjanna um að allsherjar-
þingið komi saman þegar í
stað.
Bandariskir landgönguliðar taka sér stöðu við bandaríska sendiráðið í Beirut. —
Sendir Krúsjeff „sjálfboða-
íiba" til Nassers?
Bandarikjmenn auka enn
herstyrk sinn i Libanon
BEIRUT og LONDON,
19. júlí. —
Það er haft eftir áreiðanlcg •
um heimildum í A-Berlín, að
forystan í Kreml hafi í hyggju
að boða fulltrúa leppstjórn-
anna í Austur-Evrópu til
Moskvu hið bráðasta til þess
að ræða um hugsanlega send-
ingu „sjálfboðaliða“ frá öll-
um kommúnistaríkjunum til
landanna fyrir botni Mið-
jarðarhafsins. Fullvíst er og
talið, að þetta sé meginárang-
ur Moskvufarar Nassers — og
ummæli hans við komuna til
Damaskus eftir viðræðurnar
í Kreml benda til þess, að
hann sé þess fullviss, að Ráð-
stjórnin veiti honum aðstoð.
Njósnir
í gærkveldi gaf libanska
stjórnin út tilkynningu þess efn-
is, að samkv. áreiðanlegum heim
ildum í Sýrlandi, sé sýrlenzka
stjórnin að þjálfa mikinn fjölda
erindreka, sem sendir verða inn
í Líbanon til skemmdarverka og
njósnastarfsemi — í viðbót við
þá, sem þegar hafa verið sendir.
Eru menn þessir sérstaklega
þjálfaðir í því að fremja laun-
morð.
•fc Allt kyrrt
Segja má, að allt hafi verið
með kyrrum kjörum í Beirut síð-
asta sólarhringinn. Að vísu tókst
leyniskyttum uppreisnarmanna
að hæfa bandaríska herflutninga-
flugvél, sem var í aðflugi að
flugvellinum í Beirut. Var hún
þéttskipuð hermönnum, en eng-
an sakaði. Hæfðu uppreisnar-
mennirnir vélina tveimur skot-
um. Hið fyrra kom í búkinn fram
anverðan og straukzt við sigl-
ingafræðing vélarinnar, en hið
síðara fór í gegnum annan vnæg
inn.
★ 8000 hermenn komnir
Liðsflutningum Bandaríkja-
manna hefur verið haldið áfram
— aðallega frá Tyrklandi. Talið
er, að 8000 bandarískir, hermenn
séu nú komnir til Líbanon og
voru um 1600 fluttir í morgun.
Fréttámönnum voru ekki gefnar
neinar upplýsingar um flutninga
þessa — og ekki var þeim leyft
að hafa tal af hermönnum né
foringjum nýju sveitanna. Var
mjög mikill kraftur í flutningun-
um í morgun. Tugir flugvéla
lentu í Beirut, en héldu hver af
annarri samstundis aftur til Tyrk
lands. Stanzaði hver vél innan
við 10 mínútur.
★
Blöðin í Beirut skýrðu frá því
í morgun ,að Chamoun forseti
Framh. á bls. lð
Rússarnir réðusf
inn í sendiráðið
MOSKVU, 19. júlí. — NTB —
Reuter — Brezka stjórnin sendi í
orðsendingu í dag vegna göng-
unnar að brezka sendiráðinu
í Moskvu í gær. Talsmenn Banda
Vopnasendingar kommúnista til Araba
undirrót alls - segir Nixon
MINNEAPOLIS, 19. júlí. — Nix-
on, varaforseti Bandaríkjanna,
lét svo ummælt hér í dag, að
líkindi fyrir beinni styrjöld í
löndunum fyrir botni Miðjarðar-
hafsins væru nú hverfandi lítil.
Ef kommúnistaríkin hefðu ekki
látið Egyptum og Sýrlendingum
vopn í té hefði ekki komið til
byltingarinnar í írak — og ástand
ið í Jórdaníu og Líbanon væri
heldur ekki ótryggt i dag. Sagði
munur væri á landgöngu Banda-
1 ríkjamanna í Líbanon og innrás
Frakka og Breta í Suez árið
Nixon og, að enda þótt and- 1956. Aðgerðir Breta og Frakka
stöðunni gegn Chamoun forseta hefðu verið brot á sáttmála SÞ,
í Líbanon og Hussein í Jórdaníu þvi að þar hefði yerið um íhlut-
mætti að nokkru rekja til þjóð- | un að ræða. Nú hefðu hins vegar
ernisstefnu, þá gengi þess enginn
dulinn, að erlend herveldi stæðu
þar að baki — og uppreisnin í
írak hefði aldrei vérið fram-
kvæmd á þennan hátt, ef ekki
hefði komið til öflugur stuðning-
ur utan frá. .
Þá tók Nixon fram, að regin-
stjórnir Líbanon og Jórdaníu beð
ið um aðstoð — og ekkert væri
því til fyrirstöðu að verða við
slíkum óskum vinaþjóða. Sagði
Nixon að lokum, að bandaríski
herinn mundi verða í Líbanon,
þar til annar nægilega öflugur
herstyrkur leysir hann af hólmi.
ríkjastjórnar segja, að sams kon-
ar mótmæli verði afhent sovézka
utanríkisráðuneytinu í dag,
vegna þess að bandaríska sendi-
ráðið í Moskvu var grýtt í gær.
Margar rúður brotnuðu.
Brezka mótmælaorðsendingin
var afhent, eftir að brezki
sendiherrann í Moskvu hafði í
mótmælt því í samtalj við ltuz
betsjov aðstoðarutanríkisráð-
herra, að um hundrað sovézk-
ir borgarar hefðu klifrað yfir
girðinguna umliverfis seudi-
ráðið og brotizt inn i sendi-
ráðsbygginguna.
Er farið fram á í orðsendinunni,
að Sovétstjórnin komi í veg fyrir,
að slíkir atburðir endurtaki sig í
framtíðinni. — Einnig verður far-
ið fram á bætur fyrir það tjón,
sem jrpnið var í sendiráðsbygg-
ingunni. Tjón þetta hefur ekki
verið metið, en engir gluggar
voru brotnir.