Morgunblaðið - 20.07.1958, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.07.1958, Blaðsíða 16
16 MOncrMUAÐIÐ Sunnudagur 20. Júlí 1958 \WOM<í R SkÁLPVAtA EFT'ft RICHA.R«> „Til þess að fá tækifæri til að segja mér, hve mjög þú hatar mig“. Áður en kvöldverðinum var lokið, var Suzie farin að tárast af bræði — en jafnframt var henni hætt að standa á sama um hann. Þau fóru ekki til gistihúss saman þá nótt, en hann bauð henni til hádegisverðar daginn eftir. Þau hittust nokkrum sinnum eftir það að degi til og síðan enn , einu sinni að kvöldi og í það skipti gistu þau saman á hóteli. Suzie vildi ekki taka við neinum peningum, en hann laumaði fimmtíu dollurum í tösku hennar. Kvöldið eftir hittust þau aft- ur. Um morguninn, er Muir skrapp frá, tók Suzie eftir, að peningaveski hans lá á snyrtiborð inu. Hún tók það upp eins og í leiðslu. „Hvað í ósköpunum er ég að gera?“ hugsaði hún. Það var eins og hún væri að horfa á ein- hvern annan gera þetta, einhvern sér óviðkomandi einstakling. Hún opnaði veskið og tók úr því þrjú hundmð dali. Von bráðar kom Muir aftur. — Hann leit í veskið, áður en hann stakk því í vasann. Hann hlaut að hafa tekið eftir, að peninga vantaði, en hann sagði ekki neitt. Hann tók um hönd hennar. „Það er sunnudagur á morgun. Við skulum aka til Repulse Bay og fara í sjóinn". „Ég get það ekki“, sagði hún. „Ég hef lofað mér annað". „Þú getur svikið það loforð, þú BABY er einasta borðstrauvélin, sem stjórnað er með fæti og því hægt að nota báðar hendur við að t hagræða þvottinum. — Pantanir óskast sóttar hið allra fyrsta — Tfekla Austurstræti 14 Sími 11687 hefur gott af að koma með mér“. Hún féllst að lokum á það, og þau skildu. Hún braut heilann um, hvað hefði valdið því, að hún tók peningana. Þetta var í fyrsta skipti sem hún stal peningum, síð an hún var rekin úr hinu danshús- inu — og hví í ósköpunum hafði hún byrjað á að stela frá Alan? Hún fór að reyna að réttlæta þjófnaðinn fyrir sjálfri sér. — „Þegar á allt er litið, hef ég eytt fjarska miklum tíma með hon- um“, sagði hún við sjálfa sig. „Hví skyldi hann ekki borga fyr- ir tíma minn eins og allir aði’ir?“ Henni tókst að sannfæra sjálfa sig um, að hún hataði hann fyrir það, að hann hefði notað sér það, hve meinlaus hún væri og góð- hjörtuð. Er þau hittust í Repulse Bay daginn eftir, gerði hún sér far um að vera eins andstyggileg við hann og henni var frekast unnt. En honum virtist aðeins skemmt yfir ilsku hennar, og það jók enn á reiði hennar. Hún sagði honum óþvegnum orðum álit sitt á honum. Hann hló. „Veiztu ekki, hvers vegna þú ert svona ill út í mig? Það er vegna þess, að þú tókst peningana úr veski mínu. En þú ert vel að þeim komin. Mér er al- veg sama þótt þú tækir þá“. „Þú skrölcvar! Ég tók enga peninga frá þér!“ „Vissulega gerðirðu það. Ég get líka sagt þér, hvers vegna þú gerðir það. Ekki vegna þess, að þig langaði í peningana, heldur vegna þess, að þú vildir ná þér niðri á mér. Eða öllu heldur ná þér niðri á karlmönnum. Þú hat- ar alla karlmenn — er ekki svo?“ „Nei“. „Jú, það gerirðu. Þú leggur okkur alla að jöfnu. Ég veit ekki hver á sök á því — en mig grun- ar, að það sé maðurinn, sem tældi þig í upphafi". Hana setti dreyrrjóða — blóðið hljóp fram í vanga hennar, áður en hún fengi tóm til að hugsa. — Hún vissi, að Alan hafði tekið eftir því, þótt hann liti nú í aðra átt. Hún var bálreið. „Þvættingur“, sagði hún. „Þetta er tómt bull. Fyrsti vinur minn var góður og líka laglegur — við elskuðum hvort annað mjög mik- ið. Já! Góður maður! Gott hjarta! Ekkert líkur þér“. En fáum dögum síðar, er betur lá á henni, sagði hún Alan frá föðurbróður sínum og viður. kenndi fyrir honum, að sennilega væri skýring hans rétt. Hvernig sem á því stóð, missti hún upp frá því allan áhuga fyrir peninga- veskjum annara. Vinátta hennar og Alans Muir varð æ innilegri, og brátt varð henni ljóst, að hún var ástfangin í fyrsta skipti. Hana langaði til að eyða öllum pehingum sínum í gjafir handa honum, hún vildi fórna sér fyrir hann og hún þráði að eignast barn. Jafnvel ástarat- lot, sem verið höfðu henni svo hversdagsleg og hvimleið, urðu henni ánægja. Alan var bæði hugulsamur og nærgætinn og ást þeirra jókst með degi hverjum. Loks kom að þeim degi að ást þeirra næði algerri fullkomnun. Það var á fimmtudegi. Á laug- ardégi hittust þau aftur, og hann gaf henni gullarmband, áletrað upphafsstöfum þeirra beggja og mánaðardegi fimtudagsins. Dag- inn eftir, á sunnudegi, var hann að baða sig í námunda við lysti- snekkju kínversks vinar síns, þeg ar hákarl réðist á hann og reif hægri fót hans í tætlur. Hann lézt, áður en snekkjan náði landi. Alan Muir hafði verið góður fulltrúi þjóðar sinnar, og jafnan upp frá því tók Suzie enska karl- menn fram yfir aðra. — Nokkrum mánuðum eftir dauða Alans kynnt ist hún á Granada, enskum lög- reglumanni, sem hét Gerald Parry. Honum gazt vel að Suzie, og þar sem hann var vel efnum búinn, kaus hann, að hún hætti í danshúsinu. Flestar nætur dvaldi hún hjá honum í íbúð hans. Hann var hálf-fertugur að aldri, dulur og fáskiptin að jafnaði, en átti þó til að fá ofsafengin reiði- köst. Honum tókst aldrei að vekja hjá Suzie þær tilfinningar, sem hún hafði borið í brjósti til Alans Muir. Þrátt fyrir það var henni hlýtt til hans, kveneðli hennar hafði verið vakið, og hann var sá karlmaður, sem hún helg- aði sig nú að einu og öllu. Brátt komst hún að raun um, að hún var barnshafandi. Hún gat að þessu sinni ekki hugsað sér annað en að fæða barnið. — Hún hafði alltaf, síðan hún kynnt ist Alan, þráð að eignr.st bain — jafnvel þótt hann væri ekki fað- ir þess. Hún bjó enn í herberginu með Yu-lan, en hún sagði henni ekki frá því, hvernig komið væri, því að hún vissi, að Yu-Ian myndi álíta, að hún væri gengjn af göfl- unum. Hún þorði heldur ekki að segja Parry það, af ótta við reiði hans. En þegar fram liðu stund- ir og tæpast var hægt að leyna því lengur, herti hún upp hug- ann og sagði honum fréttirnar. Hún skýrði honum frá því, að hún væri staðráðin í að eiga barnið og ala önn fyrir því sjálf, jafnvel þótt það kostaði vináttuslit þeirra. Parry hlustaði á hana en lagði ekkert til málanna. Hann sagði ekki orð £ tvo daga. Ilann var þungbúinn og sýnilega í djúpum þönkum. Hún beið þéss skelfd, að geðofsi hans brytist út, því að venjulega lauk ólundarköstum sem þessu með því. En það fór á annan veg í þetta skipti. Þriðja kvöldið, er hún kom til íbúðar hans, var hann sem gjörbreyttur maður. Hann tók glaðlega á móti henni, virtist í senn ánægður, hrærður og hlýlegur. Áður en hún næði að jafna sig eftir undrun- ina, lét hann í ljós, að hann væri hrifinn af að barns skyldi vera von — og enn hrifnari af því, hve ákveðin hún hefði verið í að eiga það. Hann fór mörgum fögrum orðum um kjark hennar, trygg- lyndi og ósvikið kveneðli. Hann lýsti því yfir, að hann hefði fyrr á ævinni oft liðið miklar þjáning- ar af voldum kvenna. Jafnvel kon ur, sem áttu að heita siðsamar og a r L ú ó IV LIKE TO BE ACCOMMODATING, ^ MR.TRAIL, BUT A NEW ROAD THROUGH LOST FOREST IS A 0 MATTER OF ^ PUBLIC NEED... W AND FRANKLV, t IT'S NECESSARY FOR MY BUSINESS/ THANK YOU FOR BEING FRANK, MR. TUGGLE...I'LL BE FRANK, TOO... I'M GOING TO DO ALL I CAN TO STOP K YOU/ 4». OKAY, TRAIL... A NICE.CLEAN FIGHT, EH?... BUT I WARN YOU, YOU’RE WASTING YOUR TIME / GEE...THAT WOULD BE SWELL/ GOODBYE, TIMMY.. SOMEDAY WE'LL TAKE THAT CAMERA OF YOURS AND TRY SOME ANIMAL PICTURES IN LOST FOREST/ 1) „Eg vil gjar*an vera lið- legur, Markús, en nýr vegur gegnum Týndu skóga er í þarfir almennings . . . og satt að segja, er hann nauðsyulegur vegna fyrirtækis míns“. 2) „Eg þakka fyrir þessa hreinskilni, Tryggvi. Þá ætla ég líka að vera hreinskilinn og segja að ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að korna í veg fyrir þetta“. „Allt í lagi, þetta verður þá hörð og heiðarleg sam- keppni, ekki satt? En ég aðvara þig. Þú eyðir tínaa þínum til einskis". 3) „Vertu sæll, Tommi. Ein- hvern tíma munum við fara með myndavélina þína út í Týndu skóga og reyna að ná myndum af dýrunum". „Ji, hvað það væri garnan!" segir Tommi. dyggðugar, höfðu reynzt svikular og ómerkilegar. Það hafði raunar verið andstyggð hans á einni slíkri konu, sem olli þvi, að hann fór frá Englandi til Hong Kong. En nú hafði hann öðlast trúna á kvenfólkið á ný. Nú fyrst hafði hann fundið alla þá eiginleika, sem hann hafði örvænt um að til væru, og þá hjá kínverskri dans- stúlku. Hann vildi heiðra hana á þann hátt, sem hún verðskuldaði. Hann ætlaði að kvænast henni. „Nei“, sagði Suzis. „Það er ekki hægt“. „Hvers vegna ekki?“ „Ef þú giftist kínverskri stúlku, muntu lenda í vandræðum. Lögreglumaður nr. 1 kemur þér í vandræði. Hann kallar þig inn í skrifstofu sina. Hann segir: —■ „Góðan daginn. Þú ert rekinn!“ „Ég hætti í lögreglunni“, sagði Parry. „Ég fer að verzla hérna. Ég hef góð sambönd — og það er mikið upp úr því að hafa“. Yu-lan var stórhrifin, þegar hún heyrði fréttirnar. Henni hafði alltaf fundizt, að Suzie væri ekki á sinni réttu hillu — nei, hún væri £ eðli sínu kjörin til að vera eiginkona og móðir. Þetta var nú meiri heppnin — að hún skyldi fá enskan eiginmann! Það var miklu eftirsóknarverðara en kinverskur eiginmaður, sem stund ar knæpur og danshús á hverju kvöldi! Hún var svo gagntekin af hrifningu, að hún rauk til og keypti dýra eyrnahringi til þess að gefa Suzie i brúðargjöf. Parry var fullur af ráðagerð- um um þá framtíð, sem beið þeirra, hvar þau myndu búa og hvílíka fyrirlitningu hann mundi sýna hverjum þeim, sem reyndi að lítilsvirða hann vegna þess, að hann hefði gengið að eiga kín- verska stúlku. Þanni; liðu þrir til fjórir mánuðir. Að þeim liðn- um varð Suzie þess vör, að hann gerðist þunglyndari, varð þegj- andalegur og fáskiptinn eins og áður. Kvöld eitt spurði hún hann, hvenær hann ætlaði að segja upp í lögreglunni og leita ÍHÍItvarpiö Sunnudagur 20. júlí: Fastir liðir eins og venjulega. 11,00 Messa í Dómkirkjunni. — (Prestur: Séra Ragnar Fjalar Lárusson prestur á Siglufirði. — Organleikari: Jón G. Þórarins- son). 15,00 Miðdegistónleikar (plötur). 16,00 Kaffitíminn: Létt lög af plötum. 16,30 Færeysk guðsþjónusta (hljóðrituð í Þórs- höfn). 17,00 „Sunnudagslögin“. 18.30 Barnatími Helga og Hulda Valtýsdætur). 19,30 Tónleikar (plötur). 20,20 Tónleikar (plötur) 20,35 „ÆskuslóðiF', IV: Hánefs- staðir í Seyðisfirði (Hjálmar Vil- hjálmsson ráðuneytisstjóri). — 20,55 Tónleikar: Syrpa af lögum úr söngleiknum „Kissmet" (plöt ur). 21.20 „I stuttu máli“. — Um sjónarmaður: Loftur Guðmunds- skrárlok. Mánudagur 21. júlí. Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar. 20.30 Um daginn og veginn (Gísli Jónsson for- sjóri). 20.50 Einsöngur: Cesare Sieppi syngur. 21.10 Upplestur: Förin til Lourdes, bókarkafli eft_ ir Alexis Carrel í þýð. Torfa Öl- afssonar Sig. Þorsteinsson flyt- ur). 21.30 Tónleikar. 22.15 Bún- aðarþáttur: Mjólkin og hlýindin (Grétar Símonarson mjólkurbús. stjóri. 22.30 Frá tónlistarhátíð- inni í Stokkhólmi. 23.05 Dagskrár lok. Þriðjudagur 22. júlí: Fastir liðir eins og venjulega. 19.30 Tónleikar. 20.30 Erindi. Hyggindi, sem í hag koma (Sveinn Ásgeirsson, hagfræðingur). 20.55 Einsöngur: Henny Wolf syngur. 21.30 Útvarpssagan: „Sunnufell" eftir Peter Freuchen, XVI (Sverr ir Kristjánsson sagnfr.). 22.10 Kvöldsagan: „Næturvörður" eftir John Dickson Carr; X (Sveinn Skorri Höskuldsson). 22.30 Hjör- dís Sævar og Haukur Hauksson kynna lög unga fólksins. 23.25 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.