Morgunblaðið - 20.07.1958, Qupperneq 13
Sunmídagvr 20. júlí 1958
Moncrynr at>ið
13
Blaðið Sunday Times vekur
athygli á því, að þetta sé alls
ekki í fyrsta skipti, sem Parísar-
borg reyni að fá allar konur til
að ganga í pokakjólum.
Það var einnig reynt árið 1669
— og þá tókst það líka. T.d.
keypti fín frú að nafni frú Pepys
(kona dagbókarhöfundarins
fræga) á meðfylgjandi mynd í
London um það leyti Og Pepys
skrifaði meira að segja í dagbók-
ina sína, að konunni sinni færi
franski kjóllinn, sem kenndur
væri við poka, ákaflega vel. Nafn
ið á pokakjólunum er því heldur
ekki nýtt.
Henrik Kaufmann, danski
sendiherrann í Bandaríkjunum,
fer þaðan 1. ágúst og áformuð er
mikil kveðj uveizla fyrir hann
um borð í Ms. Kungsholm. Þar
verður honum fært málverk og
vafalaust verða haldnar margar
og h á f 1 e y g ar
ræður um þenn-
an fulltrúa Dan-
merkur á banda
rískri grund. —
Fyrir skömmu
stöðvaði Kauf-
m a n n ræðu-
flauminn í ann-
arri veizlu með
því að skjóta
því inn í að hann hefði vissulega
ekki alltaf verið eins óaðfinnan-
legur og menn vildu vera láta.
— Ég man t.d. eftir því, sagði
Kaufmann ,að einu sinni þegar
ég var í Kína, hafði þjónninn
minn gleymt að taka öryggisnæl-
urnar, sem festu kjólfötin
við axlarpúðana, svo að kjól-
fötin færu síður illa í ferðatösk-
unni. Ég gekk því lengi um í há-
tíðlegri diplomatískri veizlu, án
þess að hafa hugmynd um að ég
vakti óskifta athygli vegna þessa
undarlega klæðaburðar.
Það vakti athygli í Austur-
Þýzkalandi þegar Nikita Krú-
sjeff kom þangað fyrir skemmstu
til að sitja landsþing austur-
þýzkra kommúnistaflokksins, að
hann heilsaði mannfjöldanum
ekki með kveðju kommúnista,
uppréttum knýttum hnefa, held
ur rétti hann upp hægri hand-
legginn, þannig að það minnti ó-
hugnanlega mikið á „Heil Hitler“
nazistakveðjuna.
Væntanleg trúlofun Margaret-
ar Svíaprinsessu og Robins Doug
las Homes er nú sögð úr sögunni,
og orðrómur gengur um, að síðan
Verzlunarstörf
Stúlka sem hefur góða hæfileika til afgreiðslu- og
verzlunarstarfa og óskipta möguleika vegna ann-
arra aðstæðna til að stunda atvinnu, óskast nú þeg-
ar. Upplýsingar á mánudag (ekki í síma).
Skóbúð Austurbæjar
Laugaveg 100.
Kristals krónur
í fréttunum
fyrirliggjandi.
STANDLAMPAK 3ja arma nýkomnir
STANDLAMPAR 2ja arma nýkomnir
LJÓSAKRÓNUR í úrvali.
BORÐLAMPAR og VEGGLAMPAR
Fjölbreytt úrval af
1 fyrstu veizlunni sem hon-
um var haldin, spurði einhver
(ofur varlega) hvernig stæði á
þessu.
— Ja, sagði Krúsjeff, mér
finnst það eiginlega svo falleg
kveðja að rétta svona upp hand-
legginn ... en það fer auðvitað
eftir því, hver það er, sem réttir
handlegginn upp.
Einn þingmannanna í Washing
ton hefur hvatt Eisenhower til
að skipa negrasöngkonuna Mari-
an Anderson í hið nýja embætti
varautanríkisráðherra, sem fer
með afríkönsk mál. Hann segir
í bréfi til forsetans, að hún hafi í
ferðalagi sínu í Asíu sýnt, að hún
sé hæfari en nokkur annar til að
skipa þetta nýja embætti.
Ef til vill er þingmanninum
kunnugt um, að þegar Marian
hitti Nehru eftir ákaflega vel
heppnaða hljómleika í Nýju
Delhi, þá sagði hann:
— Þér eruð sá fallegasti og
mest sannfærandi sendiherra, er
Bandaríkin hafa sent okkur til
þessa.
Franski stjórnmálamaðurinn
Georges Bidault þykir ákaflega
skemmtilegur. Eitt sinn hafði
hann b o ð i ð
nokkrum vinum
úr stjórnmála-
flokki s í n u m
upp á nokkrar
flöskur af hvít-
víni á heimili
sínu. Meðal ann
ars s k e m m t i
hann þeim með
því að útskýra
fyrir þeim hvað átt væri við með
hugtakinu „diplomatísk ráð-
stefna“.
— Diplomatísk ráðstefna, sagði
Bidault, er ráðstefna sem diplo-
matar koma saman á til að á-
kveða, hvenær næst skuli haldin
diplomatísk ráðstefna.
hafi Margaret mikið dálæti á lög-
fræðingnum Hans Ulrich von der
Esch, sem er auðugur og vel
menntaður ungur maður og auk
þess vel séður innan hirðarinnar.
Hér sjást Margaret prinsessa og
Hans Ulrich í fjörugum valsi.
SILKI- og PLASTSKERMUM
— Sent gegn póstkröfu —
Skerma- og Seikfangabúðin
Laugavegi 7 — sími 12051
____________________________
I HREINSKIUI SPURT!
[RUD ÞÍR í EINLÆGNI ÁNÆGDAR MED HÁR YÐAR?
Hvor tvíburanna notar TONI?
Pat og June Mackell eru hinar
frægu söngstjórnur Breta. Pat sú
til hægri er með TONI. June systir
hennar er með dýrt stofuperman-
ent. Pat er hæstánægð með TONI
og finnst hárið fara prýðilega.
★
SUPER fyrir hár, sem erfitt
er að liða.
REGULAR fyrir venjulegt
hár.
GENTLE fyrir hár, sem tek-
ur vel liðun.
Enginn undanbrögð — athugið nú hár yðar vandlega. Hvað
um blæfegurðina? og snyrtingu hársins yfirleitt? — Hver
svo sem er uppáhaldshárgreiðslu yðar, þá ætlist þér til að
hár yðar haldist án þess að nota límkennt hárlakk, eða
brillantine, sem fitar hárið — eða með öðrum orðum þér
viljið fá gott permanent. *—
Vér bjóðum yður TONI permanent fyrir aðeins lítinn hluta
af því sem stofupermanent kostar. — Athugið þess vegna
kosti TONI-permanents.
TONI-hárliðunarvökvi TONI-húrbindingin er jafn
hefir gooan ilm. auðveid og venjul. skolun
Tfekla.
Austurstræti 14.
Sími 11687.
TONI-hárliðunarpappírinn
inniheidur lanolin, til að
hindra slit á endurn lokk-
anna.
TONI-hárliðun endist lengi
og hárið blæfagurt og
eðlilegt.