Morgunblaðið - 20.07.1958, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.07.1958, Blaðsíða 19
Sunnudagur 20. júlí 1958 MORCVNBT AÐÍÐ 19 Fréttir í stuttu máli Útgöngubann er nú á Kýpur,®* en húsmæðrum er leyft að verzla stutta stund í dag. Síðasta sólar- hringinn voru margir eyjarskeggj ar myrtir. ■fc Dulles sagði í dag, að brýn nauðsyn bæri til þess að fundur yrði haldinn með honum og for- sætis- og utanríkisráðherra Ítalíu eins fljótt og auðið yrði. •fc Ráðgjafaþingið í Marokko hefur fordæmt landgöngu Banda- ríkjamanna í Líbanon og sagt hana ógnun við heimsfriðinn. Rússneskur vísindamaður segir, að þess verði ekki langt að bíða að smíðaðar verði farþega- eldflaugar, sem farið geti til tunglsins og næstu hnatta. Rúmenska fréttastofan segir, að í gær hafi miklar mótmæla göngur verið farnar til brezka og bandaríska sendiráðsins í Búkarest. Mynd þessi var tekin er Feisal II var krýndur konungur í írak áriff 1953. Til vinstri á mynd- inni er krónprinsinn Abdul Illah, föðurbróðir hins unga konungs. Myndin er tekin fyrir utan þinghúsið í Bagdad, er þeir frændur heilsuðu að liermannasið liðssveitum úr her íraks. Reykjavíkurflugvöllur á vissulega að hverta Í»EGAR hinir björtu og fögru vor og sumardagar renna upp, er okkur mörgum hér í nágrenni Reykjavíkur ógerlegt að slíta hug an frá því, hvílík andstyggð þessi flugvöllur er inni í miðri Reykja- vík. Um flugvöllinn hafa orðið nokkrar umræður að undanförnu og hafa menn rökstutt allvel, hve sjálfsagt væri að leggja flugvöll- inn niður. En svo birtist einnig grein í blöðunum um það, að at- vinnuflugmenn væru á móti slíku. Þetta er auðskilið. Ég er vissulega meðal þeirra manna, sem vilja atvinnuflugmönnum okkar allt hið bezta, og hef enga hneigð til þess að ergja þá né skaða á neinn hátt. Hitt er svo aftur á móti afleitt að oft skuli það vera svo, að hagsmunir ein- stöku manna skuli þurfa að koma í bága við þægindi og heill al- mennings. Því miður er það venjulega svo, að heill almenn- ings verður að víkja fyrir hags- munamálum manna á vissum sviðum, hvort heldur um er að ræða vopnagerð, áfengissölu eða eitthvað annað. Þá eru jafnvel mannslífin ekki mikils metin. Allir hljóta að sjá það, að flug- völlurinn á engan rétt á sér inni í miðri höfuðborg landsins. Bæði er hann í vegi fyrir framkvæmd- um, sem þar ættu að hefjast, og svo er hann geigvænleg hætta fyrir bæinn. Má færa næg rök fyrir slíku, þótt hér verði sparað allt slikt hrellingatal. Fyrir okk- ur hér í minni byggð, Kópavog- inum, og auðvitað eins í Foss- vog'i, er flugvöllurinn óskapleg plága. Stóru flugvélarnar fijúga hér mjög lágt yfir húsþökum okkar, þegar þær eru að fljúga inn á flugvöllinn eða koma það- an. Þær koma nótt sem dag eins og þrumuveður rétt yfir húsum okkar, og það mjög iðulega. Þó eru æfingaflugvélarnar enn leið- inlegri. Þær hringsóla hér yfir okkur klukkustundum saman, dag eftir dag. Þær fljúga venju- lega sama hringinn, koma inn yf- ir Kársnesið utarlega, fljúga svo inn eftir, rétt þar yfir sem byggð- in er hæst og halda stundum áfram fram yfir klukkan 11 síð- degis. í sumar minnist ég einkum fyrstu dagana, t.d. 5. júní. Þá var blíðskaparveður. Klukkan 2 eftir hádegi tóku þessar flugvélar að hringsóla yfir okkur og héldu viðstöðulaust áfram til klukkan 7 síðd. Laugardaginn fyrir hvíta- sunnudaginn sluppum við ekki heldur. Ég hef hvergi verið staddur, hvorki hérlendis né í borgum er- lendis, þar sem slíkt hringsól flugvéla tíðkast yfir höfðum manna klukkustundum saman dag eftir dag, sízt af öllu yfir þéttustu byggðinni. Ailt flug yfir mesta þéttbýli ætti að vera úti- lokað af fremsta megni. Hvað eftir annað hafa blöðin birt frétt- ir um átakanieg slys erlendis, þar sem flugvélar hafa hrapað niður í skólahús og drepið fjölda barna, eða grandað húsum og fólki annars staðar, svo að ekki sé nú minnzt á hin hryllilegu manndráp, þegar flugvél flaug inn í hæstu byggingu New York borgar, og höfðu þó þeir menn verið varaðir við að fljúga í svo slæmu skyggni. Það er þó alls ekki af hræðslu við neitt slíkt, að ég skrifa þess- ar línur um Reykjavíkurflugvöll- inn. Nei, en hann er óþolandi, eins og ég hef þegar bent á. Síðari hluta þessa mánaðar (júní) hefur varla orðið lát á þessu þreytandi æfingaflugi hér yfir byggðinni dag eftir dag, og þar við bætist svo annað flug, sem er vissulega hreinasta plága. Flugvellinum og flugskólanum á vissulega að finna annan stað en miðdepil Reykjavíkur. Þaðan á hann að hverfa sem allra fyrst. 30. júní 1958. Pétur Sigurðsson. — Litkvikmyndir Frh. af bls 3 urðu þeir fyrir smáóhöppum. í ákafanum að kvikmynda í Krísu- vík, hætti Max Magnaghi sér of nærri og rak fótinn ofan í heita holu. Af því hlaut hann annars stigs brunasár, sem nú er að gróa. Og tvisvar sinnum kom það fyrir í ferðinni út á land, að þeir vöruðu sig ekki á þessum slæmu vegum okkar og hjuggu göt á benzíngeymi bifreiðarinnar En sem betur fer kemur það víst ekki fram á kvikmyndinni þeirra. íllbricht hreinsar til Ekkerl heyrzl íil Brelanna LONDON, 19. júlí. — Ekkert hef- ur heyrzt frá brezku herstöðinni við Habbaniyah, utan við Bag- dad í Irak, síðan í gærmorgun. Hér er um flugstöð að ræða, sem Bretar hafa haft — og eru um 1000 hermenn staðsettir þar. Þeg ar síðast heyrðist til herstöðvar- innar var allt með kyrrð þar. Brezki sendiherrann í Bagdad til- kynnti í dag, að brottflutningi brezkra borgara frá írak hefði verið slegið á stundarfrest. Ara- bíska fréttastofan í Kairó til- kynnti um sama leyti, að herskar ar ísraelsmanna streymdu nú til sýrlenzku landamæranna og hefðu mikinn viðbúnað. BERLIN, 19. júlí. — Walter Ul- bricht, valdamesti maðurinn í austur-þýzka kommúnistaflokkn- um, hefur látið reka 30.000 starfs menn og óbreytta félaga úr flokknum síðustu mánuðina. Upplýsingar þessar eru hafðar eftir austur þýzkum flóttamsvnni, sem áður gegndi mikilvægu embætti í kommúnistaflokkn- um. Sagði hann, að í Leipzig einni hefðu 2.500 menn verið reknir úr flokknum. Ulbricht hóf hreinsunina eftir að komizt — „Sjálfbo&aliðar" Frh. af bls. 1 hefði í gær átt símtal við Hussein Jórdaníukonung. í gær átti Murphy, aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna, viðræður við líbanska stjórnmálamenn — og í dag heldur viðræðunum áfram. Eitt Beirutblaðanna skýrir svo frá, að um 30 þingmenn, sem er tæplega helmingur fulltrúadeild- arinnar, hafi undirritað áskorun til Bandaríkjahers um að hverfa úr Líbanon. Segir blaðið, að for- seti deildarinnar, sem í upphafi lýsti andstöðu sinni við að Banda ríkjamenn yrðu við hjálpar- beiðní ríkisstjórnarinnar, stæði fyrir þessari áskriftasöfnun. ★ I»á segir og í Líbanonfréttum, að ríkisstjórnin hafi í hyggju að vísa einum erlcndum sendiherra í Beirut úr landi þar eð hann hafi gerzt brotlegur við lög landsins. Fullvíst er talið, að hér sé um eg/pzka sendiherrann að ræða. SEINNI FRÉTTÍR: Uppreisnarmenn réðust í dag að stjórnaraðsetrinu og vörpuðu handsprengjum inn um marga glugga á neðstu hæðinni. Þrir starfsmenn saerðust mikið. Skipzt var á skotum. . Mestu vopnavið skiptin áttu sér stað við aðal- póststöðina, en þar veittu örygg- .isverðir uppreisnarmönnum hart viðnám. Ekki er vitað um mann- fall, en miklar skemmdir urðu á mannvirkjum. hafði upp um samsæri „tæki- færissinna“ í febrúarmánuði síð- astliðnum. í a-þýzka kommúnista flokknum eru nú um 1.300.000 meðlimir — og hefur flokkurinn 35.000 starfsmenn á fullum laun- um. Mslíundur Vesfur- skaHfellskra kvemia KIRKJUBÆJARKLAUSTRI, 17. júlí. — 17. aðalfundur vestur- skaftfellskra kvenna var haldinn Vík í Mýrdal sl. sunnudag. — Fundinn sóttu 14 fulltrúar frá 8 sambandsfélögum auk stjórnar sambandsins. Af hálfu Kvenfé- lagasambands íslands sátu fund- inn þær Guðrún Pétursdóttir og Guðlaug Narfadóttir. Á fundinum voru aðallega rædd ýmis múl varðandi húsmæðrafræðslu á sambandssvæðinu. Voru gerðar um það nokkrar ályktanir. — Gestir fundarins fluttu báðir er- indi. Guðrún Pétursdóttir sagði fréttir af formannaráðstefnu Kvenfélagasambands íslands, sem nýlega var haldin í Reykja- vík. En Guðlaug Narfadóttir hélt erindi um bindindismál. Var það talsvert rætt af fulltrúum og samþykkt svofelld tillaga: „Fundurinn beinir því til kven- félaganna á sambandssvæðinu að þau geri allt sem í þeirra valdi stendur til að efla bindindis- semi hvert í sinni sveit og styðji á allan hátt þau bindindissamtök sem fyrir eru eða kunna að verða stofnuð. Formaður sambandsins, frú Kristín Loftsdóttir, átti að ganga úr stjórninni. Baðst hún undan endurkosningu og í stað hennar var kjörin Gyðríður Pálsdóttir, Seglbúðum. Fyrir voru í stjórn- inni Ásta Valdemarsdóttir, Kirkjubæjarklaustri og Kristjana Jónsdóttir, Sólheimum. Reikningar sambandsins sýndu að skuldlaus eign þess nú er tæp- lega 27 þús. kr. G. B. Si mi 2-24-80 Ég þakka hjartanlega börnum mínum, systkinum og öðrum vinum, fyrir gjafir, heillaóskir og hlý handtök á 75 ára afmælisdegi mínum hinn 4. júlí sl. Mín orð ná skammt til að launa ykkur tryggð ykkar og höfðingskap en ég bið algóðan guð að gefa ykkur öllum styrk og ham- ingju í framtíðarstarfi ykkar, og að hann megi blessa alla þá er öldnum sýna tryggð og vir3h:w Lifið öll heil. Sigríður Jónsdóttir, Seljatungu. Til leigu 130 ferm. iðnaðarhúsnæði í Lauganeshverfi. Fyrir- framgreiðsla æskileg. Tilboðum sé skilað til ai- greiðslu Morgunblaðsins fyrir þriðjudag merkt: Lauganes — 6504. Fósturfaðir minn stefAn jósepsson bifreiðarstjóri frá Litlabakka, Akranesi, lézt að Elliheim- ilinu Grund að morgni þess 19. þ.m. Fyrir hönd vandamanna. Helgi S. Eyjólfsson. LlNEY K. SIGURBJÖRNSDÖTTIR * hjúkrunarkona, er lézt 16. þ.m. veröur jarösett að Sauða- nesi, fimmtudaginn 24. þ.m. Kveðjuathöfn fer fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík, þriðjudaginn 22. þ.m. kl. 2 eftir hádegi. Athöfninni verð- ur útvarpað. Fyrir hönd vandamanna. Bergur Sigurbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.