Morgunblaðið - 12.08.1958, Blaðsíða 15
f>riðjudagur 12. ágúst 1958
MORCUNBLAÐ1Ð
15
Islenzka liðið og það írska eins og þau stilltu sér upp er forseti íslands heilsaði þeim.
— Landsleikurmn
Framh. af bls. 1
Island átti tvö fyrstu skot að
marki — en bæði fóru fram hjá.
Síðan fóru írar að sækja sig og
sóttu æ fastar er á leið leikinn.
Á 3. mínútu er dæmd horn-
spyrna á ísland, sem ekkert varð
úr. Og liðin þreifa fyrir sér án
nokkurs tilþrifaleiks, og í einu
slíku saklausu upphlaupi íra
fram vinstri kant, verða is-
lenzku vörninni á alvarleg mis-
tök. Búnar, Hörður og Guðjón
Finnboga áttu við tvo íra, Doyle
og Tuohy, útherja. Guðjón send-
ir lausa sendingu, sennilega ætl-
uð Rúnari, í stað þess að senda
Helga markverði. Doyle nær
sendingunni og fær skorað. (Sjá
mynd af markinu)
★
Og er fyrsti stundarfjórðung-
urinn er liðinn verður sókn ír-
anna nær látlaus. Mátti oft happi
hrósa að fá bjargað því að ekki
urðu mörk, og það er ekki laust
við að íslenzka liðið hafi í þeim
efnum notið góðs stuðnings
happadísanna, en mestu réði þó
að Helgi markvörður stóð sig
mjög vel.
Næst lá er Tuhoy útherji átti
skot í þverslá og upp úr því ná
írar öðru skoti sem Helgi fær
naumlega varið í horn. Var þetta
rétt fyrir hálfleikslok. Og hálf-
MOSKVU, 11. ágúst — Reuter —
í dag var birt í Moskvu svar
sovézka forsætisráðherrans Krús
jeffs við bréfi, sem brezki for-
sætisráðherrann Macmillan skrif
aðj honum fyrir fjórum dögum,
en í því bréfj lýsti Macmillan
yfir samþykki sínu við aukafund
Allsherjarþingsins, sem hefst á
miðvikudag (á morgun). í bréf-
inu segist Krúsjeff vona, að um-
ræður þingsins um ástandið í Mið
austurlöndum verði til þess að
auðvelda fund ríkisleiðtoga aust-
urs og vesturs. Bréf Krúsjeffs
var afhent brezka sendiráðinu
í Moskvu í gærkvöldi.
Macmillan lýsti yfir því í bréf-.
sínu, að hann teldi ríkisleiðtoga-
fund innan vebanda Öryggisráðs-
ins vænlegri til árangurs, en
mundi eigi að síður fallast á til-
lögu Rússa um að kalla Allsherj-
arþlngið saman til aukafundar.
★
Gefur Krúsjeff í svarbréfinu
nokkra skýringu á því, hvers
vegna Sovétstjórnin hafi í fyrstu
tekið „jákvæða afstöðu“ til til-
lögu Macmillans um ríkisleiðtoga
fund innan Öryggisráðsins, en
síðar breytt þeirri afstöðu sinni.
Segir Krúsjeff, að komið hafi í
ljós, að Vesturveldin ætluðu að
kalla saman venjulegan fund Ör-
yggisráðsins, sem sé mjög gallað
eins og það sé nú skipað.
Hér á Krúsjeff augljóslega við
setu fulltrúa þjóðernissiunastjórn
arinnar á Formósu í Öryggisráð-
inu, segir í Reutí .sskeyti, Og eins
og kunnugt er, hafnaði Krúsjeff
fundi innan Öryggisráðsins eftir
að hafa heimsátt Mao Tse-tung
í Peking.
Stjórnmálafréttaritarar benda
á, að ekkert nýtt konri fram í
BRUSSEL, 11. ágúst — Reuter —
Sovézki forsetirm, Voroshilov,
skoðaði í dag rússneska sýning-
arskálann á heimssýningunni ;
Brússel. Miklar öryggisráðstaf
anir voru gerðar, og vopnaðir lög
regluþjónar fylgdu forsetanum.
leik lyktaði með 1:0 fyrir íra —
hálfleikur, sem vel gat endað
með 2—3 marka mun þeim í vil
án þéss að nokkuð hefði verið
hægt við því að segja.
Síðari hálfleikur
1 síðari hálfleik kom íslenzka
liðið mikið ákveðnara til leiks
og náði þegar sókn. Á 2. mínútu
verður þvaga við írska markið
og upp úr henni fær Albert knött
inn innan vítateigs og skorar fal-
legt mark — en dómarinn hafði
flautað, og Ríkharður og Iri lágu
í valnum — rákust saman. Þeir
náðu sér báðir og í ljós kom að
dæmd hafði verið aukaspyrna a
ísland.
örskömmu síðar hefst nýtt
áhlaup íslendinga. Knötturinn
fer út af vinstra megin og
Albert þrífur liann strax og
hendir fram til Þórðar, sem
leikur upp og ætlar að gefa
fyrir, en mistekst. Knöttur-
inn fer til miðvarðar íra, en
honum mistekst og missir til
Helga Björgvinssonar, sem
skorar laglega. Þetta var
heppnismark, en hleypti mikl
um kjarki í íslenzka liðið og
jók kcppnina í leiknum.
★
Ekki töpuðu þó Irar foryst-
unni nema í 4. mín. Á 8. mín.
skorar Nolan framvörður af 18—
bréfi Krúsjeffs, sem muni framar
öllu vera til þess ætlað að rétt-
læta sinnaskipti hans í.sambandi
við ríkisleiðtogafund innan Ör-
yggisráðsins.
20 m færi með frekar lausum
jarðarknetti. Að það varð mark
eru kannski einu mistök Helga
markvarðar í leiknum, en þetta
mark staðfesti enn mistök í vörn
okkar liðs.
Á 15. mín. jafna Islendingar
aftur. Gerðist það upp úr auka-
spyrnu um 35 m frá marki.
Sveinn Jónsson framkvæmdi
hana og það varð skalla-návígi
við mark. Ríkharði tókst að
skalla til Þórðar Þórðar og liann
skallar hátt að marki og knött-
urinn hafnar í netinu.
Sóttu nú írar fast en Helgi
ver af snilld. M. a. bjargaði hann
fallega með því að grípa knött-
inn af tám Ambrose miðherja
rétt við markteig.
Leikurinn var jafn og tvísýnn
upp úr þessu langan tíma og átti
hvorugt liðið hættuleg færi. —
Menn voru farnir að halda að
loksins ætlaði einhverjum lands-
leik íslands að lykta með jafn-
tefli.
En svo varð ekki. Á 40. mín.
verða enn illileg mistök í vörn
íslenzka liðsins og Cann útherji
fær skorað frá hægri af um það
bil 15 m færi Skot hans var vel
miðað í horn við jörð.
Liðin
Ekki er blöðum um það að
fletta að írska liðið var vel að
sigri komið. Það átti við óheppni
að stríða í fyrri hálfleik og fékk
ekki nema eitt mark út úr mik-
illi og langri ,sókn. En það átti
heppni að fagna eiginlega með
öll mörkin, því liðinu tókst ekki
að skora úr sínum beztu tæki-
færum.
Ekki var knattspyrna Iranna
betri en búizt hafði verið við, og
þeir áttu í miklum erfiðleikum
Innilegt þakklæti til ykkar allra sem glöddu mig á
ýmsan hátt á sjötugsafmælinu 4. ágúst síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Sesselja Árnadóttir, Heynesi.
Mínar hjartanlegustu þakkir til allra, sem heimsóttu
mig og giöddu með skeytum, blómum og gjöfum á 60 ára
afmæli mínu 1. ágúst síðastliðinn.
Guð blessi ykkur öll.
Ottó Gutijónsson, Nýbýlaveg 50.
Börnum mínum, tengdasonum, öllum, skyldmennum, og
vinum, sendi ég mínar hjartanlegustu þakkir fyrir marg
víslegan vináttuvott, mér sýndan á 70 ára afmæli mínu
30. júlí s.l. En einkum og sér í lagi þakka ég gömlu smöl-
unum frá Grindavík fyrir sérstakan hlýhug í minn garð.
Með innilegri kveðju til ykkar allra.
Hallbjörg Þorvartiardóttir,
Suðurgötu 40, Hafnarfirði.
Glæsileg nýtízku íbúð |
á 1. hæð við Grænuhlíð nr. 11 hér í bæn er til sölu |
nú þegar.. íbúðin er til sýnis á miðvikudag kl. 1—3
og 5—7.
1 Lokuð í dag
milli kl. 12—15,30 vegna jarðarfarar.
Bræðurnir Ormson hf.
Krúsjeff réttlætir sinnoskipti
á hálum vellinum. Liðsmennirn-
ir eru fljótir og harðskeyttir, og
hvað flýtinn snertir bera þeir
langt af íslenzkum liðum. Vörn-
in átti í erfiðleikum með upp-
hlaupshraða íslendinganna, en
átti þó yfirleitt rólegan dag, t. d.
liðu 15—20 mín. í fyrri hálfleik
án þess að markvörður íra kæmi
við knöttinn. Innherjarnir virð-
ast beztu menn liðsins, en verið
getur að það sé í og með vegna
þess að á stundum fengu þeir
mjög að leika lausum hala hjá
Sveini og Guðjóni.
★
íslenzka liðið átti slæman fyrri
hálfleik en allgóðan síðari hálf-
leik. Þá kom keppnisskap upp í
landanum. Ég hafði áður spáð
því í fárra manna hópi, að Is-
lendingar myndu standa vel í ír-
unum. Það er oft að íslenzka
landsliðið finnur sig þegar leik-
ur hefur verið talinn vonlaus
með öllu. Þessi leikur var svo
talinn af öllum þorra manna. Þá
er eins og knattspyrnumenn okk-
ar leiki meir eftir sinni getu. Sé
talin von á sigri er oft eins og
allt fari í handaskolum.
Og leikur liðsins í síðari hálf-
leik heyrir til hins betra hjá ís-
lenzku landsliði, sérstaklega um
keppnis- og baráttuvilja.
Jafnbezti maður liðsins var
Hörður Felixson og var sem klett
ur í vörn. Þó var samvinnu og
skilningi hans og bakvarðanna
ábótavant, en það verður að
skrifast á reikning þess að liðið
hafði aðeins eina æfingu. Hörður
og Helgi eiga mestar þakkir fyr-
ir að ekki var um stærri sigur
Ira að ræða.
Framverðirnir slepptu innherj-
um Ira alltof oft, en það á þó
einkum við um fyrri hálfleik.
Sveinn óx í stöðu sinni er á leið
leikinn.
Innherjarnir, Albert og Rík
harður, báru höfuðþunga sóknar
og unnu einstaklega vel Sam-
vinna þeirra var góð og sjaldan
hefur Albert haft eins mikla
yfirferð og nú, enda virtist skap
mikið hlaupa í hann í byrjun
seinni hálfleiks. Sendingar hans
sumar voru sem fyrr nákvæmar
og öruggar, en stundum var eng-
an mann að finna til að senda á.
Enn vantar íslenzka landsliðið
að nota kantana betur til að
dreifa vörninni. Það er gömul
saga og ný. En við getum verið
ánægð með úrslit þessa lands-
leiks. Þau voru betri en búizt var
við. En enginn sigur var þó leik-
ur okkar manna, því leikurinn
var allur daufari en vænzt var,
og þó einkum af hálfu Iranna.
— A. St.
Konan mín
SIGRfÐUR LOFTSDÓTTIR
Ásgarði, Eyrarbakka, lézt 8. þ.m.
Júlíus Ingvarsson.
Bróðir okkar
BÖÐVAR HALLSTEINSSON
Skorholti, Leirársveit
lézt í sjúkrahúsi Akraness fimmtud. 7. ágúst. Jarðarförin
ákveðin síðar.
Systkinin.
Móðir okkar
SÆUNN JÓNSDÓTTIR
Ásvallagötu 61,
verður jarðsett fimmtudaginn 14. þ.m. frá Fríkirkjunni
kl. 14. Jarðarförinni verður útvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda.
Börnin.
Útför bróður míns,
MAGNOSAR jónssonar
frá Hallgeirsey,
fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. ágúst kl.
2 síðdegis.
Blóm vinsamlega afþökkuð.
Fyrir hönd systkina og annara ættingja.
Sigurður Jónsson.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðar-
för litla drengsins okkar
STURLU PÉTURSSONAR
Guðríður Friðriksdóttir, Pétur Sturluson,
Álafossi.
Okkar innilegt þakklæti færum við öllum þeim er
sýndu okkur aðstoð og vinarhug við andlát og jarðarför
mannsins míns, föður okkar og afa
JÓNS BERGSTEINS PÉTURSSONAR
Skósmíðameistara.
Jóna Gísladótt.ir,
börn, tengdabörn og baruabörn.