Morgunblaðið - 12.08.1958, Side 16
VEÐRIÐ
Norðan og norðvestan kaldi,
dálítil rigning eða þokusúld.
Undir ís
Norðurskautsins. — Sjá bls. 6.
180. tbl. — Þriðjudagur 12. ágúst 1958
Útsvörin í Reykjavík nema
rúmlega 225 millj. kr.
Ekki lagt á lægri tekjur en 25.000
kr. — Útsvarsstigi lækkaður á
upp i 60.000 kr.
tekj
um
NIÐURJÖFNUN útsvara í Reykja
vík er lokið. Útsvarsseðlarnir eru
bornir út þessa dagana, og í gær
var skrá yfir útsvörin, svo og
skatta til ríkisins, lögð fram í
gagnfræðaskólahúsinu við Vonar-
stræti. Kom þangað margt
manna, og voru lögregluþjónar
á staðnum til að gæta reglu.
Alls var jafnað niður 225.388.080
kr. á 22.849 gjaldenduir. 21.885
einstaklingar eiga að borga 171.-
962.710 kr., en 964 félög 53.325,-
370 kr. — í fyrra vár jafnað nið-
ur 206.374.350 kr. á alls 23.722
gjaldendur.
Breyttar reglur
Niðurjöfnun fór nú fram eftir
nokkuð öðrum reglum en í
fyrra. Útsvar var nú ekki lagt
á lægri tekjur en 25.000 kr., en
í fyrra var lagt á 17.000 kr. tekj-
ur. Við þessa breytingu fækkaði
gjaldendum talsvert. Þá var út-
svarsstiginn lækkaður á tekjum,
sem námu 25.000—60.000 kr., en
að öðru leyti var ekki um breyt-
ingu að ræða á útsvarsstiga ein-
staklinga. Hins vegar breyttist
útsvarsstigi félaga mikið vegna
þess að stríðsgróðaskattur var
felldur niður með lögum frá síð-
asta Alþingi. Veltuútsvör lækk-
uðu um 10%. Þá var veittur auk-
inn frádráttur af tekjum giftra
kvenna, sem vinna utan heimilis.
Er hann nú 50% teknanna. Þá
urðu breytingar á frádrætti fiski-
manna og einhleyps fólks, sem
framfærir skylduómaga. — Grein
argerð niðurjöfnunarnefndar um
álagningarreglurnar er birt ann-
ars staðar í blaðinu.
Lægstu tekjur sem á er lagt
Þess er áður getið, að á ein-
staklinga er ekki lagt, ef þeir
hafa lægri hreinar tekjur en 25
þús. kr. Hjón með 1 barn þurfa
að hafa 30.600 kr. í tekjur. Á
slíkar tekjur er lagt 200 kr. út-
svar. Hliðstæðar tölur um stærri
fjölskyldur eru þessar:
2 börn — 36.300 kr. 210 kr. útsvar
3 börn — 42.000 kr. 210 kr útsvar
4 börn — 47900 kr. 205 kr. útsvar
5 börn — 54.000 kr. 210 kr. útsvar
Hæstu útsvör
16 einstaklingar eiga að greiða
hærra útsvar en 109.000 kr. Þeir
eru:
Þorvaldur Guðmundss. ,forstj.
kr. 311.400. — Þorst. Sch. Thor-
steinsson, lyfsali, 197.730 kr. —
Steindór Einarsson, bifreiðaeig-
andi, 176.460 kr. — Korneiíus
Jónsson, skartgripasali, 176.460
kr. — Jónas Hvannberg, kaupm.,
166.080 kr. — Ingólfur Guðmunds
son, byggingam., 166.080 kr. —
Sighvatur Einarsson, pípulagn-
ingam., 160.890 kr. — Jóhannes
Jósefsson, gestgjafi, 159.850 kr. —
Þorsteinn Jónsson, byggingam.,
155.700 kr. — Guðni Ólafsson, lyf-
sali, 150.090 kr. — Björgvin
Schram, st.kaupm., 135.970 kr. —
Kristján Siggeirsson, kaupmaður,
129.750 kr. — Sigurliði Kristjáns-
son, kaupm., 122.480 kr., Valde-
mar Þórðarson, kaupm., 118.850
kr. — Óskar Einarsson, læknir,
114.180 kr. — Helga Marteinsd.,
veitingakona, 103.800 kr.
Þessi 28 félög eiga að borga
yfir 300.000 kr.
S.Í.S. 2.750.700 kr. — Eim-
skipaf jlag íslands hf. 1.557.000 kr.
— Olíufél. hf. (ESSO) 1.505.100
kr. — Olíufél. Skeljungur hf.
1.266.360 kr. — Olíuverzl. fsl. hf.
(BP) 1.214.460 kr. — Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna 1.038.000
kr. — O. Johnson & Kaaber h.f.
861.540 kr, — Sam. verktakar hf.
851.160 kr. — Sláturfél. Suðurl.
716.220 kr. — Júpiter hf. 602.040
kr. — Harpa hf. 583.350 kr. —
Slippfélagið hf. 539.760 kr. — fs-
björninn hf. 471.250 kr. — Hið
ísl. steinolíuhlutafél. 435.960 kr.
— Eggert Kristjánsson & Co. hf.
430.770 kr. — Garðar Gíslason hf.
425.580 kr. — Vélsm. Héðinn hf.
425.580 kr. — Kassagerð Rvíkur
hf. 417.270 kr. — Ölg. Egill Skalla
grímsson hf. 396.510 kr. — Marz
hf. 384.060 kr. — Eimskipafél.
Rvíkur hf. 384.060 kr. — Litir &
Lökk hf. 381.980 kr. — Loftleiðir
hf. 363.300 kr. — Verzl. O. Elling-
sen hf. 355.720 kr. — Sænsk-ísl.
frystihúsið hf. 311.400 kr. — J.
Þorláksson & Norðmann hf.
311.400 kr. — Fálkinn hf. 303.090
kr. — H. Benediktsson hf. 303.090
krónur.
Þess má að lokum geta, að Mbl.
reyndi í gaer, að afla sér upplýs-
inga um álagningu ríkisskatta í
Reykjavík. Upplýsingarnar feng-
ust ekki, en símastúlka skattstof-
unnar bar fréttamanni blaðsins að
lokum þau boð, að ekki væri
búið að leggja skattana saman.
Ríkharður og Keogh fyrirliðar ásamt -Leif Gulliksen dómara í
leikbyrjun. Fyrirliðar skiptust á gjöfum, sem voru oddfánar
knatt«i#yrnusambanda landanna. — Sjá frásögn á bis. 1 og 15.
Sýning á gömlum
Reykjavík
Verður opnuð á afmælisdegi Reykjavíkur
18. ágúst að Skúlaiúni 2
HINN 18. ágúst nk., afmælisdag mönnum frá þessari fyrirhuguðu
Reykjavíkurbæjar, mun Reyk-
víkingafélagið, í samvinnu við
Minja- og skjalasafn bæjarins,
opna sýningu á Reykjavíkur-
myndum, aðallega gömlum mynd
um, í nýjum 70 fermetra sýning-
arsal að Skúlatúni 2 hér í bæ.
Verður sýningin opin almenn-
ingi í að minnsta kosti hálfan
mánuð.
Kennir margra grasa
Séra Bjarni Jónsson, vígslu-
biskup, formaður Reykvíkinga-
félagsins, og Lárus Sigurbjörns-
son, skjalavörður, sögðu frétta-
sýningu fyrir helgina. A henm
mun kenna margra grasa, en aðal
lega verður hún byggð upp af
tveimur gömlum myndasöfnum
— þ. e. myndum Jóns biskups
Helgasonar, sem eru um 120 tals-
ins, bæði málverk og teikningar,
og í öðru lagi af safni Georgs
heitins Ólafssonar, bankastjóra,
sem Reykvíkingafélagið hefur
haft í sínum vörzlum, en mun
nú afhenda til sýningar við þetta
tækifæri. 1 því safni eru 360
myndir •— Ijósmyndir og stein-
prentanir. Auk þessa verða á
sýningunni myndir og munir úr
Brezkur togari tekinn í landhelgi
Skipstjórinn sýndi mótlpróa, en Óðins-
menn tóku stjórnina
SEYÐISFIRÐI, 11. júní — Að-
faranótt sunnudagsins kom varð-
skipið Óðinn að brezkum togara
að veiðum langt fyrir innan línu
út af Glettinganesi. Skipstjórinn
á hinum brezka togara, sem er
maður um fertugt, sýndi skip-
herranum á Óðni, Pétri Jónssyni,
mótþróa. Varð skipherrann þá
að taka þá -ákvörðun að serda
menn frá borði yfir í tog-
arann, sem heitir Northern
Sky og er frá Grimsby, til
þess að taka þar alla stjórn
í sinar hendur og sigla tog-
aranum inn til Seyðisfjarðar.
400—500 manns við
varðeld í Þjósárdal
Skátahöfðingjans minnzt við messu
SKÁTAMÓTIÐ í Þjórsárdal
hófst á fimmtudaginn eins og þá
var sagt frá í blaðinu. Þátttak-
endur eru rúmlega 160 frá 4 lönd
um, en um helgina kom mikill
fjöldi annarra skáta og gesta aust
ur, og gistu margir þeirra á móts-
staðnum um nóttina. jir áætlað,
að 400—500 manns hau verið við
varðeldinn á iaugardagskvöldið.
Á sunnudagsmorgun var guðs-
þjónusta. Séra Hannes Guð-
mundsson í Fellsmuia predikaði
og minntist dr. Helga Tómassonar
skátahöfðingja. Frú Hrefna
Tynes vara-skátahöfðingi flutti
og minningarræðu um dr. Helga.
Síðari hluta dags voru ýmsar
sýningar. í gær átti að fara göngu
för um Þjórsárdal, í dag taka
skátamir að búast til brottferðar,
og mótinu lýkur á morgun. Fara
skátar síðan ferð á Kjöl, en eiga
að koma þaðan að Úlfljótsvatni
á föstudag og til Reykjavíkur þá
um kvöldið.
Þar fjallaði Erlendur Björnsson
bæjarfótgeti um mál togaraskip-
stjórans, en hann neitaði öllum
sakargiftum.
Atburður sem þessi mun ekki
hafa átt sér stað hér við larid
síðan fjögurra mílna línan var
ákveðin og þykir mönnum hér
sem þetta kunni að vera fyrirboðí
þess mótþróa, sem brezkir togara
menn hafa boðað í blöðum.
Það var um kl. 1 aðfaranótt
sunnudagsins, sem varðskipið
Óðinn stóð Northern Sky að veið
um út af Glettinganesi. Var tog-
arinn að toga þar, og duflið, sem
Óðinn setti út við togarann
reyndist vera 2,5 sjómílur undan
landi. Þessi brezki togari er
þýzkbyggður, svonefndur „sápu-
togari“.
Þegar Pétur Jónsson skipherra
á Óðni tilkynnti togaraskipstjór-
anum, að hann væri að ólögleg-
um veiðum og bæri að fylgja sér
til hafnar á 'Seyðisfirði, neitaði
togaraskipstjórinn með öllu að
svo væri og kvaðst að engu
mundu hafa fyrirskipanír skip-
herrans um að sigla til hafnar.
Þegar hér var komið sögu, var
ljóst að togaraskipstjórinn myndi
hafa í frammi allan hugsanlegan
mótþróa. Var framkoma hans í
alla staði hin dólgslegasta. Ákvað
skipherrann þá að setja 7 af 10
manna áhöfn varðskipsins út í
togarann. Fór Erling Magnússon,
1. stýrimaður. ásamt Hallvarði
Rósinkarssyni vélstjóra yfir í
togarann, þar sem þeir tóku
stjórn hans í sínar hendur og
fylgdu varðskipinu inn til Seyðis
fjarðar. Um borð í varðskipinu
Óðni voru þá eftir skipherrann,
viðvaningur og vélstjóri.
Fyrir lögreglurétti hér í dag
neitaði togaraskipstjórinn öllum
sakargiftum sem fyrr segir. Hann
kvaðst þó viðurkenna að fram-
koma sín hefði verið eins og að
framan greinir. en hann neitaði
öllum staðarákvörðunum og mæl
ingum varðskipsmanna. Lítill
fiskur var í togaranum.
Búizt er við að dómur gangi
í málinu á morgun.
myndum úr
Bergmannssafninu, sem gefið hef
ur verið Reykjavikurbæ af af-
komendum Sigfúsar kaupmanns
Bergmanns og Þorbjargar, konu
hans, og hefur til þessa verið
varðveitt í Reykjavíkursafninu
að Árbæ. Ennfremur allmargar
myndir, sem þegar hafa verið
lengi í eigu skjalasafnsins. Þá
hefur og verið auglýst í blöðum
eftir gömlum myndum frá
Reykjavík, sem fólk kynni að
eiga í fórum sínum og mun Egg-
ert Guðmundsson, listmálai’i,
veita þeim myndum viðtöku í
sýningarsalnum að Skúlatúni 2
þessa viku.
Er fólk hvatt til að ljá þessari
merkilegu sýningu lið með því
að bregðast vel við þeirri aug-
lýsingu.
Kvikmynd á hverju kvöidi
Sýning þessi verður opnuð fyr-
ir boðsgesti kl. 5 síðdegis hinn
18. ágúst, en kl. 6 fyrir almenn-
ing. Á meðan hún verður opin
verður sýnd kvikmynd á hverju
kvöldi úr sögu og þróun Reykja-
víkurbæjar, en að kvöldi opnun-
ardagsins verður sýnd kvik-
mynd, sem tekin hefur verið sér-
staklega fyrir þessa sýningu:
Gömul hús í Reykjavík 1957 —
tekin af Gunnari R. Hansen, leik-
ara.
í hinum nýja sýningarsal verð-
ur Minjasafn Reykjavíkur fram-
vegis til húsa, en auk hans verð-
ur nokkur hluti af húsakynnum
skjalasafnsins tekinn fyrir hina
fyrirhuguðu myndasýningu.
ALGEIRSBORG, 11. ágúst —
Reuter — Franskar hersveitir í
Alsír hafa undanfarna tvo sólar-
hringa fellt og sært 148 skæru-
liða.
Friðrik og Matanovic
gerðu jafntefli í 3. umf.
— en Júgóslavinn vann Tal í þeirri 4.
í FJÓRÐU UMFERÐ á skákmót-
inu i Portoroz í Júgóslavíu, sem
tefld var sunnudaginn 10. ágúst
gerðu dr. Filip og Friðrik jafn-
tefli, sömuleiðis Rosetto og Bron-
stein. Skákir Matanovics og Tals
og Gligorics og Sanguinettis fóru
í bið, Petrosjan vann Pachmann.
Biðskák varð hjá Neykirch og
Larsen, Averbach vann Fúrster,
Benkö vann Ficher, Szabo vann
Sherwin og skák Cardosos og
Panno fór í bið. De Greiff átti frí.
★
PORTOROZ í gærkvöidi. —
Úrslit biðskáka úr 3. og 4. um-
ferð: Averbach vann Neykireh
í þriðju umferð, Friðrik gerði
jafntefli við Matanovic frá
Júgóslavíu og Sherwin vann
de Greif.
Fjórða umferð. Matanovic
vann Tal, Gligoric og Sangu-
inetti gerðu jaíntefli. Öðrum
skákum er enn ólokið.
— Reuter.
★
Eftir fjórar umferðir eru Petr-
osjan og Averbach efstir með 3
vinninga hvor. Næstir koma
Benkö, Bronstein, Tal, Friðrik
Ólafsson, Gligoric og Matanovic
með 2V2’ vinning hver. Filip er
svo með 2 vinninga. — Fjórum
biðskákum er enn ólokið.