Morgunblaðið - 20.08.1958, Side 16
V EDRID
NA-kaldi, léttskýjað —
10 stig.
hiti um
187. tbl. — MiSvikudagur 20. ágúst 1958
MARTIN LARSEN
ræðir um handritin o. fl. Sjá bls 9.
Þessi mynd er af sýningarreit L. Christiansens í Hveragerði á blómasýningunni. — Cliristiansea
hiaut verðlaunagrip þann er Mbl. gaf í tilefni sýningarinnar.
Á tólfta þúsund áhorf
endur hafa séð land-
búnaðarsýninguna
Sýningunni lýkur annað kvöld
AÐSÓKN hefir verið mjög mikil
að landbúnaðarsýningunni á Sel-
sem ekkert lát hefir verið á, er,
ákveðið að sýningunni ljúki ann-
að kvöld (fimmtudag), en í upp-
hafi var gert ráð fyrir að hún
stæði degi skemur. Ýmsir örðug-
leikar eru á því að hafa sýning-
una lengur opna, sérstaklega
hvað viðkemur garðyrkjusýning-
unni, en hún hefir vakið mikla
athygli. Þótt sýningarhúsið sé að
mörgu leyti hentugt, verður ekki
komið í veg fyrir að viðkvæm
blóm og jurtagróður spillist.
Fleira kemur og til.
Farið á jeppa yfir Kolla
fjarðarheiði að Djúpi
Snóléttari leið en um Þorskafjarðarheiði
SUNNUDAGINN 10. þ.m. fór
fossi og er mikill hátíðarbragur
ríkjandi austur þar. Er engu lík-
ara en menn séu staddir á þjóð-
hátíð, bæði á sýningunní sjáifri
og einnig á Selfossi, þar sem
aldrei hafa komið svo margir á
jafnskömmum tíma. í gærkvöldi
höfðu á 12. þús. manns séð sýn-
inguna.
Að sjálfsögðu eru flestir sýn-
ingargestir héðan af Suðuriandi,
en margir eru samt langt að
komnir, til dæmis hefir verið
stofnað til hópferða á sýninguna
bæðj af Norður- og Vesturlandi.
Þrátt fyrir þessa miklu aðsókn.
STOKKHÓLMI, 19. ágúst — Ev-
rópumeistaramótið í frjálsíþrótt-
um hófst á Ólympíuleikvangin-
um hér í dag með því að þátt-
takendur gengu inn á völlinn. —
Síðan tók Bertil pnns til máls og
seti mótið með stuttu ávarpi.
Fyrsti sigurvegarinn að þessu
sinni varð Vicker frá Englandi,
sem varð Evrópúmeistari í 20 km
köngu á 1 klst. 33,9 mín. Þjóð-
verjinn Lindner kom annar að
marki, en.„hljóp upp“ á síðustu
metrunum og var dæmdur úr
leik. Rússi, sem kom þriðji að
marki, hlaut því annað sætið, en
Svíar skipuðu 3. og 4.
Pólverjinn Cruskoviak sigraði
i 10000 m hlaupi á 28.56,0 mín.,
sem er nýtt pólskt met. Rússinn
Sjukov varð annar og Eldon frá
Bretlandi þriðji.
Þá var í dag keppt til úrslita
í spótkasti kvenna. Þar sigraði
Zatopkova (kona Zatopeks) frá
Tékkóslóvakíu við mikinn fögn-
Haraldur Sæmundsson jarðýtu-
stjóri á jeppabifreið yfir Kolla-
fjarðarheiði að ísafjarðardjúpi.
Var hann 4 klst. á leiðinni frá
Fjarðarhorni í Kollafirði að
Laugabóli í ísafirði.
Leiðin milli þessara bæja er
uð áhorfenda. Kastaði hún 56,02
m. Rússnesk stúlka varð 2. en
þýzk þriðja.
Af íslendingunum er það að
segja, að Hilmar Þorbjörnsson
varð 4. í sínum riðli í 100 m
hlaupi á 11,3 sek. og komst því
ekki áfram í milliriðil. Hann
varð 26. af 29 keppendum. Svav-
ar Markússon náði aftur á móti
mjög góðum árangri. Hann varð
3. í sínum riðli í 800 m hlaupi á
nýju íslenzku meti, 1.50,5 mín.
(var 1.51,8). Var hann með 5.
bezta tíma 800 metra hlaupar-
anna. Kemst hann þar með í und
anúrslit, sem fram fara á morg-
un. Aðrir íslendingar, sem keppa
á morgun eru Björgvin Hólm og
Pétur Rögnvaldsson í tugþraut og
Hallgrímur Jónsson í kringlu-
kasti.
Á þessum fyrsta degi mótsins
vakti England mesta athygli sem
þjóð, en af einstaklingum var það
Zatopkova. — A. St.
um 26 km. Kvað Haraldur heið-
ina yfirleitt mjög greiðfæra,
slétta mela, sem jeppar færu
hindrunarlaust. Fyrir litla fjár-
hæð væri hægt að lagfæra brekk
urnar beggja megin heiðar þann-
ig að þær verði vel akfærar.
Lengur fær
en Þorskafjarðarheiði
Mbl. átti tal við Sigurð Þórð-
| arson bónda á Laugabóli um
þetta vegarstæði og komst hann
þannig að orði, að mjög þýðing-
armikið væri að akfært yrði um
Kollafjarðarheiði. Hann kvað
veg um hana verða :æran miklu
fyrr á vorin en Þorskafjarðar-
heiði. Ennfremur væri hann
auður töluvert lengra fram á
haustið. Mjög gagnlegt væri því,
bæði fyrir Barðstrendinga og
byggðirnar við ísafjarðardjúp, að
þessi leið yrði fær venjulegum
bifreiðum.
Tveir togarar
c>
landa á Akranesi
AKRANESI, 19. ágúst. — Rek-
netjabáturinn Böðvar fékk 78
tunnur síldar og kom með þær
til Akraness. Sigurfari fór til
Ólafsvíkur með sinn afla. —
Bjarni Ólafsson landaði hér í dag
290 lestum af karfa. Akurey kem
ur í kvöld, einnig hlaðin.
Vélbátarnir Sveinn Guðtnunds
son og Ásbjörn komu í fyrradag
af síldveiðum fyrir Norðurlandi.
Flestir skipsmenn af m.b. Keili
komu hingað suður í gær vegna
þess, að vél bátsins bilaði. Liggur
Keilir á Raufarhöfn, og þar eru
yfirmennirnir einir eftir. — O.
Frá EM i frjálsiþróttum:
Svavar Markússon komst
í undanúrslit í 800 m hl.
Hljóp á nýju islenzku metir 7.50,5 min.
Héraðsmót Sjálfstœðis-
manna um nœstu helgi
UM NÆSTU HELGI verða tvö héraðsmót Sjálfstæðismanna. Er
annað mótið í Vestur-Barðastrandarsýslu, en hitt í Borgarfirði.
VESTUR-BARÐASTRANDARSÝSLA
Héraðsmótið í Vestur Barðastrandarsýslu verður á Bíldudal
laugardaginn 23. ágúst og hefst kl. 8,30 síðdegis. Ræður flytja Jó-
hann Hafstein, alþm., og Matthías Bjarnason, formaður fjórðungs-
sambands Sjálfstæðismanna á Vesturlandi. Fjölbreytt skemmti-
atriði annast leikararnir Brynjólfur Jóhannesson og Baldur Hólm-
geirsson, Hanna Bjarnadóttir, söngkona, og Skúli Halldórsson,
tónskáld. Að lokum verður dansað.
ÖLVER
Héraðsmótið í Borgarfirði verður að ölveri, sumarskemmtistað
Sjálfstæðisfélaganna, sunnudaginn 24. ágúst, og hefst kl. 4 síðd.
ftæðu flytur þar Pétur Benediktsson, bankastjóri. — Fjölbreytta
skemmtiskrá annast leikararnir Ævar Kvaran og Steinunn Bjarna-
dóttir, Kristinn Hallsson, óperusöngvari, og Fritz Weisshappel,
píanóleikari. — Dansleikur verður að Ölveri bæði á laugardags-
og sunnudagskvöld.
Vísitala byggingarkostn-
aðar heekkar um 5,1%
Hún var 723 stig miðað við verðlag í júní
í NÝÚTKOMNUM Hagtíðindum, I
en þau eru tímarit Hagstofu Is-I
lands, er gerð grein fyrir vísi-
tölu byggingarkostnaðar. Vísitala
þessi er reiknuð út á f jögurra mán
aða fresti. Síðast var hún reikn-
uð út miðað við verðlag í júní-
mánuði, en þar áður hafði hún
verið reiknuð miðað við verðlag
í febrúar sl. Niðurstaðan varð sú,
að hækkunin næmi 5,1%.
Orsakir hækkunarinnar
Um þetta segir 1 Hagtíðindum:
„Verðhækkanir þær, sem valdið
hafa hækkun vísitölunnar frá
febrúar sl. urðu flestar um
mánaðamótin maí—júní eða í
júnímánuði og stöfuðu af ráðstóf
unum þeim, sem ákveðnar voru
í lögum nr. 33, 29. maí 1958, um
útflutningssjóð og fleira. Vinnu-
laun hækkuðu almennt um 5%
frá 1. júní 1958 samkvæmt
ákvæðum laga um útflutnings-
sjóð. Akstur hækkaði 4. júní um
25%, og sement um rúm 20%
strax eftir gildistöku laga um út-
flutningssjóð. Eru þetta þær
verðhækkanir, sem mest áhrif
höfðu til hækkunar á vísitöl-
unni“.
Við þessa frásögn má bæta því,
að mjög verulegar hækkanir
hafa orðið á byggingarvörum,
síðan vísitala byggingarkostnað
ar var reiknuð út miðað við verð
lag í júní.
Vísitalan og þýðing hennar
Vísitala byggingarkostnaðar er
nú 123 stig, miðað við 100 stig
hinn 1. október 1955. Vísitalan,
sem fundin var í febrúar, var
117 stig. Sé miðað við grunntöl-
una 100 árið 1939, er vísitalan nú
1192 stig.
Samkvæmt vísitölugrundvell-
inum er byggingarkostnaður í
„vísitöluhúsinu“ nú 1145,90 kr.
á rúmmetra, en í jafnvandaðri
sambyggingu er áætlaður bygg-
ingarkostnaður, 1031,31 á rúmm.
Lögum samkvæmt hefur bygg-
ingarvísitalan áhrif á söluverð
íbúða í húsum byggingarsam-
vinnufélaga og verkamannabú-
stöðum, svo og á brunabótaið-
gjöld utan Reykjavíkur. Vísital-
an, sem síðast var reiknuð út,
gildir fyrir mánuðina júlí—okt.
Frá Portoroz
PORTOROZ, 19. ágúst — Úrslit
9. umferðar: Tal vann Fúster,
Fischer vann Sanguinetti, Szabo
vann Filip og Cardoso vann de
Greiff. Jafntefli varð hjá Larsen
og Bronstein, Pachman og Mat-
anovic og Petrosjan og Neykirch.
Biðskákir urðu hjá Sherwin og
Gligoric, Panno og Benkö og
Friðrik Ólafssyni og Rossetto.
-— Reuter.
Annað kvöld verður gamanleikurinn Haltu mér — slepptu
mér sýndur í Leikhúsi Heimdallar í Sjálfstæðishúsinu kl. 8.15.
Er þetta 30. sýning leiksins. Hann var sýndur 18 sinnum viða
um land nýlega, sem kunnugt er, og hér í bæ hefur hann verið
sýndur 11 sinnum við ágætar undirtektir. Myndin er af atriði
úr leiknum, þar sem öll horn þríhyrningsins eru á sviðinu, —
konan og báðir herrarnir. Skal fólki bent á að fáar sýningar
eru eftir.
!
k