Morgunblaðið - 02.09.1958, Page 1

Morgunblaðið - 02.09.1958, Page 1
20 síðuK Á þessari mynd sést greinlega, hvernig brezku herskipin hindiuðu islenzku varðskipin í að taka landhelgisbr jótana fyrir Vestfjörðum í gær. — Myndin sýnir t. v. brezkan togara en fremst til hægri varðbátinn Albert, sem er á hlið við hann. Brezka herskipið H. M. S. Russel siglir á fullri ferð á milli Alberts og brezka togarans. Sýnir myndin efst á næstu síðu, sem tekin er nokkrum mínútum seinna að íslenzki skipherrann hefur neyðzt til þess að hætta við þá fyrirætlun að nálgast togar- ann og beygir snögglega af leið. — Ljósm. Mbl. Ólafur K. Magnússon tók allar myndirnar, sem fylgja frásögnum af landhelgismálinu. Hindio oðgerðir landkelgisgæzlnntfnr gegn Inndhelgisbrióinnum Hópur brezkra togara íiskar innan 12 mílna fiskveiðitakmarkanna undir fallbyssuvernd IJM LEIÐ og reglugerðin um 12 mílna fiskveiðilandhelgi við strendur íslands tók gildi kl. 12 á miðnætti s. 1. sunnu- dag sigldi hópur brezkra togara inn á hið friðaða svæði úti fyrir Dýrafirði og hóf þar veiðar. Höfðu brezk herskip, sem fylgja togurunum undirbúið og skipulagt þessa för þeirra inn fyrir fiskveiðitakmörkin. Jafnhliða höfðu her- skipin skipulagt för togara inn í fiskveiðilandhelgina á tveim- ur öðrum stöðum, fyrir norðan Horn og fyrir sunnan Suð- austurland. Voru það samtals 11 togarar, sem vitað er um að tekið hafi þátt í hinum skipulögðu landhelgisbrotum undir stjórn brezkra herskipa. Voru 9 þeirra út af Dýrafirði og 2 út af Horni. Þegar íslenzka landhelgisgæzl- an hóf aSgerðir gegn hinum hrezku togurum úti fyrir Vest- fjörðum í gærmorgun beitti eitt hinna brezku herskipa valdi til þess að hindra löggæzlustarf varðskipsins. Sigldi það milli landhelgisbrjótains og hina ís- lenzka varðskips. En varðskip íslendinga skráði nöfn og númer togaranna og mun freist- að að koma lögum yfir þá síðar. í allan gærdag voru brezkir tog- arar að veiðum innan fiskveiði- takmarkanna og höfðu hin litlu íslenzku varðskip ekki bolmagn til að hindra það. Ríkisstjórn Bretlands hefur með því að beita flota sinum gegn íslenzku þjóðinni framið hið argasta ofbeldi, sem vekja mun þjóðarreiði á íslandi. Meðal allra frjálsra þjóða hlýtur hinn kaldrifjaði yfirgangur Breta að vekja ríka andúð. Þess skal get- ið að allar Norðurlandaþjóðirn- ar, sem hagsmuna eiga að gæta á íslandsmiðum hafa ráðiagt skip um sínum að virða 12 mílna fiskveiðitakmörkin. Ennfremur hafa Belgir og Vestur-Þjóðverjar látið sín skip sigla út af hinu nýja friðunarsvæði. MBL. sendi fréttamenn og ljós- myndara í flugvél vestur fyrir Vestfirði á sunnudagskvöld og mánudagsmorgun til þess að fylgjast með atburðum þar. Birt- ir blaðið í dag frásögn og mynd- ir af því, sem þar gerðist. Yfirlýsing landhelgis- gæzlunnnar Hér fer fyrst á eftir fréttatil- kynning, sem yfirstjórn íslenzku landhelgisgæzlunnar gaf út um hádegií gærdag: „Eftir þeim upplýsingum, sem landhelgisgæzlan nefur, er í dag mjög svipaður fjöldi erlendra togara á grunnslóðum við lsland og algengt er um þennan tíma árs. Við breytinguna á fiskveiði- takmörkunum úr fjórum í tólf sjómílur síðastliðna nótt varð Framh. á bls. 2. Varir flotaverndin aðeins 3 daga? MJÖG er nú um það rætt hve lengi veiðar brezku togaranna í íslenzkri landlielgi undir vernd brezkra herskipa muni standa, og jafnframt það hve lengi brezka flotantálaráðu- neytið muni veita' brezku togurunum vopnavernd innan 12 mílna línunnar. Sú fregn hefúr borizt frá fréttastofu Reuters að formæl- endur brezkra togarautgerðarmanna hafi Iýst því yfir að togararnir muni væntanlega aðeins stunda veiðar 3 daga innan landhelginnar. Kemur þar vafalaust tvennt til. Annars vegar það að afli er nú mjög lítill á þeim slóðum sem tog- ararnir stunda nú veiðar í landhelginni og einnig hitt að illfært er að veiða undir vernd herskipanna, þar sem togar- arnir verða þá að halda sig í þéttum hóp. í gær fregnaði Mbl. eftir mjög áreiðanlegum heimildum að togurunum muni aðeins verða veitt flotaverndin í þrjá daga. Má því ætla að aðfaranótt 4. september hverfi brezku togararnir út úr landhelginni, og brezku herskipin til sinna venjulegu eftirlitsstarfa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.