Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.09.1958, Blaðsíða 8
B MORCUNBLAÐtB Þriðjudagur 2. septemb'er 1908 Utanríkisráðherrc hefur mótmœlf ofbeldss• aðgerðum brezkra herskipa Ræða Guðmundar í. Guðmundssonar i ríkisútvarpinu i gærkveldi HINN 2. júní sl. gaf ríkisstjórnin út yfirlýsingu um að hún hefði ákveðið að gefa út nýja reglu- gerð um fiskveiðilögsögu við ís- land. Skyldi reglugerðin gefin út 30. júní og koma til framkvæmda 1. september. Með hinni nýju reglugerð skyldi fiskveiðilögsag- an færð út í 12 mílur frá grunn- línum og öllum erlendum skip- um skyldu öannaðar veiðar inn- an þeirra marka. Jafnframt var því lýst yfir, að timinn fram til 1. september yrði notaður til þess að kynna erlendum þjóðum nauð syn ákvarðana ríkisstjórnarinnar og afla viðurkenningar á þeim. Reglugerðin var gefin út á til- settum tíma og hún kom til fram kvæmda á miðnætti sl. nótt. Unnið hefir verið að því, sam- kvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnar- innar, að kynna málið á erlend- um vettvangi og afla því viður- kenningar. Þykir mér rétt að gefa nokkurt yfirlit yfir gang málsins og þá einkum um það, sem fram hefir komið seinustu mánuðina um afstöðu annarra þjóða til þessa lífshagsmuna- máls þjóðarinnar. Öllum íslendingum er vel um það kunnugt með hverjum hætti núverándi og fyrrverandi ríkis- stjórnir hafa að því unnið að fá settar reglur á alþjóðavettvangi til verndunar fiskimiða við ís- land og fiskistofna úthafsins. Þeir fengu því til vegar komið á þingi Sameinuðu þjóðanna árið 1949, að Alþjóðalaganefnd- inni var falið að gera heildar- rannsókn á öllum reglum, er gilda skyldu á hafinu, þ. e. bæði í landhelgi og úthafinu, og gerðu sér vonir um að störf nefndarinn ar myndu bera þann árangur, að frá henni kæmu fullnægjandi til- lögur. Reynslan varð þó önnur. Nefndin skilaði skýrslu sinni til Sameinuðu þjóðanna árið 1956 án beinna tillagna um stærð fisk veiðilögsögunnar og lagði til, að málið yrði tekið fyrir á alþjóða- ráðstefnu. Bíkisstjórn íslands hafði gert sér vonir um eða rétt- ara sagt treyst því, að Allsherjar- þingið 1956 myndi komast að end anlegrl niðurstöðu í málinu, enda hafði ríkisst-jórnin nokkru áður lýst yfir, að hún myndi ekki færa út fiskveiðitakmörkin um- hverfis ísland fyrr en Allsherjar- þingið hefði fjallað um skýrslu Alþjóðalaganefndarinnar og tæki færi gæfist til að taka ákvörðun í Ijósi þess, sem þar kynni að koma fram. Svo sem kunnugt er vildi Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna ekki taka afstöðu til skýrslunnar og taldi málið of flókið og ákvað því, gegn at- kvæði íslands einu, að kveðja saman ráðstefnu í Genf. Það var tilætlun rikisstjórnar- innar í fyrstu að bíða ekki með útfærslu fiskveiðilögsögunnar lengur en þangað til þing Sam- einuðu þjóðanna 1956 hefði fjall- að um málið. Samkvæmt ein- róma tillögu allra þeirra sérfræð- inga ríkisstjórnarinnar, sem um málið höfðu fjallað og í samráði við þær þjóðir, sem sömu hags- muna höfðu að gæta og íslend- ingar í málinu, ákvað ríkisstjórn- in þó að bíða árangurs Genfar- fundarins. Rikisstjórnin lýsti því hins vegar yfir að þegar Genfar- fundinum væri lokið myndi ekki verða frekari dráttur á útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Kom þetta meðal annars fram í ræðu, sem ég flutti í ríkisútvarpinu 10. marz s. 1., þar sem segir: „Það hefur komið skýrt fram af íslands hálfu á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna f Genf, að íslendingar muni gera ráðstafanir til frekari útvíkkunar fiskveiðilandhelginn- ar þegar lokið er þessari ráð- stefnu“. Af íslands hálfu var því berum orðum lýst yfir á Genf- arfundinum, að ríkisstjórn ís- lands væri þeirrar skoðunar, að eigi væri unnt að bíða lengur og frekari frestur því útilokað- ur. Allur heimurinn vissi því á meðan Genfarfundurinn stóð yfir, að íslendingar myndu færa út fiskveiðilögsögu sína strax að fundinum loknum. Höfðu menn gert sér vonir um, að svo afdrátt- arlausar yfirlýsingar af íslands hálfu myndu sannfæra þá, sem verið hafa Islendingum mótsnún- ir í málinu, um óhjákvæmilega nauðsyn þess að leysa málið á viðunandi hátt á fundinum. Svo fór því miður ekki. Þrátt fyrir fögur orð um skilning á þörfum fslendinga náðist ekki fullgild meirihluta samþykkt fyrir neinni úrlausn. Strax eftir Genfarfundinn fóru ríkisstjórninni að berast formleg og óformleg mótmæli annarra þjóða gegn væntanlegri útfærslu fiskveiðilögsögunnar. Komu þessi andmæli frá þeim þjóðum, sem mestra hagsmuna hafa að gæta í sambandi við fiskveiðar við ís- land. Beindust andmælin eink- um að því að við hefðum ekki rétt til einhliða útfærslu í 12 mílur þó að hins vegar væri á því skilningur að vernda þyrfti fiskimiðin við ísland sérstaklega vegna þess, að þar væru uppeldis- stöðvar fiskistofna auk þess sem íslendingar ættu alla lífsafkomu sína undir fiskveiðum. Þjóðir þær, sem mestra hags- muna hafa að gæta i sambandi við fiskveiðar í Norðurhöfum og mótmæltu fyrirætlunum íslend- inga eru meðlimir í Atlantshafs- bandalaginu. í reglum þess er gert ráð fyrir því, að bandalags- ríkin skuli snúa sér til banda- lagsins áður en þau ráðast í fyr- irætlanir, sem líklegar eru til að valda alvarlegum ágreiningi milli bandalagsríkja og fram- kvæmdastjóra þess gefið vald til að reyna að miðla málum og af- stýra vandræðum. Eg ákvað því áður en til nokkurra aðgerða kom af íslands hálfu að fara eft- ir þessum reglum bandalagsins og taka málið upp innan þess. Áður en ráðherrafundur Atlants hafsbandalagsins, sem haldinn var í Kaupmannahöfn 7.—9. maí, hófst, óskaði ég eftir þvi við framkv.stjóra þess, að skýra fyrir bandalaginu viðhorf og fyrirætl- anir Islands í landhelgismálinu. Var þessari ósk fullnægt. Ég rakti á fundinum, hverja þýðingu fiskveiðar hefðu fyrir ísland, að þjóðin ætti alla sína tilveru und- ir fiskveiðum og verndun fiski- miðanna og að íslendingar hefðu barizt árangurslaust fyrir því í meira en áratug að fá settar al- þjóðlegar reglur til verndar fiski- miðunum. Ég benti á, að allan þennan tíma hefðu íslendingar beðið úrlausnar með fiskimið sín og fiskistofna í hættu og nú gætu þeir ekki beðið lengur. Það væri einungis vegna tillits þeirra til grannþjóða sinna og einlægs vilja til vinsamlegrar úrlausnar að þeir hefðu beðið svo lengi. Ég lýsti því yfir, að þegar ég kæmi heim til íslands yrði gefin út ný reglugerð um fiskveiðilögsöguna, sem færði hana út í 12 mílur og kæmi þegar til framkvæmda. Auk mín tóku átta utanríkis- ráðherrar til móls á fundinum og mótmæltu þeir allir einhliða út- færslu i 12 mílur. Fundinum lauk með því, að framkvæmdastjóri bandalagsins óskaði að athuga málið nánar í nokkra daga í aðal- stöðvum þess í París og freista að finna á því lausn. Var á þetta fallizt. Umræður fóru síðan fram í París til 23. maí og tók ráðu- neytisstjóri Henrik Sv. Björnsson þátt í þeim af hálfu utanríkis- ráðuneytisins, þar eð fastafull- trúi íslands hjá bandalaginu dvaldist heima á íslandi um þess- ar mundir til viðræðna við ríkis- stjórnina. Viðræðurnar í París leiddu ekki til niðurstöðu. Af íslands hálfu var haldið fast við, að ekki væri hægt að leysa málið, nema viðurkenning fengist á útfærsl- unni í 12 mílur. Ef tillaga hefði borizt á þeim grundvelli, hefði hún verið lögð fyrir þingflokk- ana. Til þess kom ekki. Þar eð ríkisstjórnin ákvað um þessar mundir að hin nýja fiskveiði- reglugerð skyldi ekki koma til framkvæmda fyrr en 1. septem- ber og tíminn skyldi notaður til að kynna ákvarðanir íslendinga og freista að afla þeim viðurkenn ingar, var umræðunum í París frestað en ekki slitið. í júnímánuði fór fastafulltrúi íslands hjá Atlantshafsbandalag- inu á ný til Parísar og hóf þá á ný viðræður um málið. Beindust allar umræður að því að fá við- urkenningu á 12 mílna útfærsl- unni. Þrátt fyrir ýtarlegar um- ræður og mikla viðleitni báru þessar tilraunir ekki árangur. Það kom hins vegar fram, að ýms ir töldu sig hafa aðrar tillögur að gera, sem leystu málið á full- nægjandi hátt. Af íslands hálfu var því lýst yfir, að við værum reiðubúnir að hlýða á þessar til- lögur og gera grein fyrir afstöðu okkar til þeirra. Þetta leiddi til þess, að fram komu tvær hug- myndir að lausn á málinu. Fyrri hugmyndin gerði ráð fyr ir því, að fallið yrði frá útfærsl- unni í 12 mílur, en þess í stað skyldu koma aðrar ráðstafanir. Lagt var til að alfriða fyrir tog- veiðum allt landgrunnið sunnan Reykjaness frá Geirfuglaskeri að austan og í Reykjanestá að vest- an, svo og alfriða allt landgrunn- ið fyrir Vestfjörðum frá Horni og að Bjargtöngum. Ennfremur skyldi taka upp skömmtun á veiði í hafinu kringum ísland. Var gert ráð fyrir, að takmarka leyfilegt aflamagn við 1,1 milljón tonna af djúpfiski á ári og hlutur íslendinga vera 60%, annarra 40%. Það kom fram í umræðun- um, að hugmynd þessi var af hálfu ýmissa þjóða hugsuð sem umræðugrundvöllur. Síðari hugmyndin gerði ráð fyrir því, að nokkrar breytingar verði á grunnlínum til útfærslu, að erlendar þjóðir skuldbindi sig til þess að láta skip sín ekki veiða á sex mílna svæði fró grunnlínum, að íslendingar hindri ekki veiðar erlendra skipa fyrir utan þessi mörk ,að sam- komulag þetta skuli gilda þar til alþjóðareglur hafi verið settar, en að endurskoða skuli samkomu lagið, ef alþjóðareglur yrðu ekki settar innan þriggja ára. Það kom fram í umræðunum einnig um þessa hugmynd, að hún var af ýmissa hálfu hugsuð sem um- ræðugrundvöllur. Af íslands hálfu hefur báðum þessum hugmyadum verið hafn- að. Hvorug þeirra felur í sér full nægjandi lausn fyrir ísland. Fyrri hugmyndin felur að vísu í sér mikla lausn fyrir viss lands svæði, en veitir ekki aukna vernd fyrir fiskimiðin sem heild, þvert á móti beinir togurunum frá viss um miðum og á önnur, sem þá verða enn verr sett en þau voru áður en útfærslan átti sér stað. Síðari hugmyndin veitir okk- ur aðeins vernd fyrir sex mílna fiskveiðilögsögu í bili, en vísar málinu að öðru leyti óafgerðu til einnar alþjóðaráðstefnunnar enn. Það hefir ætíð verið ófrávikj- anleg stefna ríkisstjórnarinnar að vinna að viðurkenningu á 12 mílna fiskveiðilögsögu. Ef tillaga hefði borizt á þeim grundvelli, hefði hún verið lögð fyrir þing- flokkana eins og ég gat um áðan og má þá búast við, að útfærsla á vissum grunnlínum og tímatak- mörk um framkvæmdir hefðu dregizt inn í þær umræður. Fullnægjandi viðurkenning hefir enn ekki fengizt á útfærslu fiskveiðilandhelginnar, en hlé hefir orðið á umræðum um málið á erlendum vettvangi í bili. ís- lendingar þakka þeim þjóðum, sem strax viðurkenndu ráðstaf- anir þessar og meta mikils fram komu hinna ,sem halda skipum sínum utan fiskveiðilandhelginn- ar, þótt þær hafi mótmælt út» færslunni. í dag hafa hins vegar þeir at- burðir gerzt, að brezk herskip hafa hindrað varðskip íslenzku landhelgisgæzlunnar í störfum sínum, og þar með verndað með valdi ólöglegar veiðar brezkra togara innan hinnar nýju fisk- veiðilandhelgi, en ekki er kunn- ugt um, að aðrir togarar en brezkir hafi verið að ólöglegum veiðum í dag. Ég hefi í dag afhent am- bassador Breta harðorð mótmæli gegn þessum aðgerðum brözkra herskipa. Jafnframt hefi ég falið ambassador íslands hjá Atlants- hafsbandalaginu í París að skýra framkvæmdastjórn bandalagsins frá þessari valdbeitingu hinna brezku herskipa. Það hefir ávallt verið og er enn von allra góðra íslendinga, að máli þessu ljúki á farsælan hátt og verði ekki til þess að spilla vináttu þjóðarinnar við nágrannaríki. Mun ríkisstjórnin halda áfram að vinna að því á. alþjóðavettvangi. íslendingar for dæma það harðlega að ofbeldi og ofríki skuli beitt gegn ráðstöfun- um, sem hafa það eitt markmið að tryggja það, að þjóðin megi halda áfram að lifa frjálsu menn ingarlífi í landi sínu. Að síðustu beini ég því til allra íslendinga, að þeir standi fast saman um rétt og sæmd þjóðar- innar í máli þessu. Lélegasta síldar- vertíð Kef lavíkur báta Varðbáturinn Óðinn siglir upp að hliðinni á togaranum York City frá Grimsby í gærmorgun, þar sem togarinn er að veiðum í landhelgi út af Dýrafirði, Óðinn skráði nafn og einkennisstafi tog- arans og gerði nákvæma staðarákvörðun. KEFLAVÍK, 29. ágúst — Aðeins einn bátur er enn ókominn af þeim 20, er fóru norður til síldveiða í sumar, en það er Hilmir. Þegar athugað er afla- magn þessara 20 báta, kemur í ljós, að þessi síldarvertíð er ein- hver sú lélegasta, sem bátar héð- an hafa sótt. Aðeins helmingur bátanna náði að afla fyrir kauptryggingu. Sá aflahæsti, og jafnframt sá langhluthæsti, er Guðfinnur, sem aflaði fyrir 941.000,00 kr. Hásetahlutur þar gerði 36,700,00 kr. Næstur honum mun Hilmir verða, en enn er ekki hægt að segja um aflamagn hans, þar sem hann er enn ókominn. Nú er verið að búa flesta bát- ana út á reknetjaveiðar, og munu þeir hefja róðra nú um helgina. Einn bátur hefur þegar byrjað róðra. Er það Faxaborgin og fékk hún 100 tn. af síld í nótt. Gullborgin, sem hefur stundað reknetjaveiðar í sumar, fékk 80 tn. Síldin er mjög slæm, og er að sögn sumra kunnáttumanna, vart vinnandi í nokkra samninga, — Ingvar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.