Morgunblaðið - 16.10.1958, Qupperneq 1
20 síður
>
Þegar tungl-eldflauginni var skotið frá Flórída
Hér heldur bandarískur vísindamaður á eftirmynd mselitækja-
keílunnar, sem sat fremst í nefi eldflaugarinnar, sem þeir skutu
áleiðis til tunglsins. Með mælitækjum þessum og útvarpssend-
ingum fengu bandarískii vísindamenn meiri upplýsingar en
nokkru sinni fyrr um eðli himingeimsins.
Öryggtsneínd Alsír
snýstgegn deGaulle
Hefur hershöfðinginn brugðizt
vonum landnemanna ?
Algeirsborg og París, 15. okt. (Reuter).
ÖRYGGISMÁLANEFND Algeirsborgar, sem í maí sl. átti megin
þáttinn í því að koma de Gaulle til valda í Frakklandi hefur nú
fyrirskipað allsherjarverkfall í borginni til að mótmæla síðustu
stjórnarráðstöfun de Gaulles. Virðist sú hætta yfirvofandi að upp
úr sjóði í Alsír og fullkomið stjórnleysi taki við.
Þetta er afleiðingin af tilkynningu þeirri sem de Gaulle gaf út
í gær um að hermönnum yrði bannað að skipta sér af stjórn-
málum eða neyta kosningaréttar í þingkosningum þeim sem fram
fara 23. nóv. næstkomandi.
Þetta er söguleg mynd. Sýnir hún eldráklna cftlr rakettuna Pioneer, þegar henni var skotið á loft
frá Flórída-skaga áleiðis til tunglsins. Eldflaugin komst aldrei svo langt, en tilrauninni hefur
verið lýst sem einu stærsta skrefi, sem stigið hefur verið á sviði geimflugsins.
Túnis slítur stjórnmálasambandi
við Egyptaland
Telur Nasser sitja á svikráðum
við sjálfstæði Túnis
Túnis og Kaíró, 15. okt. (Reuter).
T Ú NIS ákvað í dag að slíta stjórnmálasambandi við
Ai'aóíska sambandslýðveldið.
Habib Búrgíba, forseti Túnis, mun á morgun flytja ræðu
á stjórnlagaþingi Túnis, þar sem hann mun gera grein fyrir
ástæðuin vinslitanna milli þessara tveggja Arabaríkja. —
Ræðu hans mun verða útvarpað.
Sadok Mokkadem, utanríkis-
ráðherra, Túnis, sendi egypzka
sendiherranum í dag bréf, þar
sem hann skipaði honum að
verða á brott úr landinu. Túnis
hefði ákveðið eftir margítrekað-
ar móðganir og ofsóknir af Eg-
ypta hálfu, að slíta öllu stjórn-
málasambandi við Arabíska sam-
bandslýðveldið.
Mokkadem sagði að þessi
ákvörðun væri rökrétt afleið-
ing af óstjórnlegum árásum
á Habib Búrgíba, Túnisfor-
seta, í egypzkum blöðum, sem
allar væru runnar undan rif j-
um Nassers, einræðisherra
Egyptalands.
Sundurþykkja Túnis-manna
og Egypta kom fyrst fram í dags-
ljósið fyrir þremur dögum, þeg-
ar El-Shatti, fulltrúi Túnis í
Arababandalaginu, flutti ræðu,
þar sem hann sakaði ónafn-
greinda aðila um að vera með
yfirgang og sitja yfir hlut ann-
arra Arabaríkja í Arababanda-
laginu.
Egypzki fulltrúinn tók þessi
ummæli til sín og gekk stórlega
móðgaður af fundi. Kom hann
ekki aftur til fundar fyrr en
Arababandalagið hafði sam-
þykkt að ummæli Túnis-búans
skyldu strikuð út úr gerðabók
bandalagsins.
Jafnframt þessu hófust í eg-
Framhald á bls. 19.
öryggisnefndin í Algeirsborg
kom saman í dag til að ræða
fyrirskipanir de Gaulles. Þykir
hinum öfgafullu nýlendumönn-
um Alsírs, sem hershöfðinginn
hafi svikið þá hrapallega, er hann
heitir fyrst múhameðstrúarmönn
um fullu stjórnmálalegu jafnrétti
á við evrópskamenn og sviptir
síðan borgararétti, einmitt her-
mennina, sem hafa verið trygg-
ustu verðir Frakklands.
í tilkynningu öryggisnefnd
arinnar í dag segir að nefndin
sé furðu Iostin yfir fyrirskip-
unum de Gaulles og kveður
ástandið mjög alvarlegt. Nefnd
in fyrirskipar sólarhrings verk
fall á morgun og hvetur al-
menning til að koma saman og
mótmæla gerræði de Gaulles,
er hér hafi hlýtt ráðum sér
verri manna.
Nefndin segir, að það sé ein-
kennilegt þakklæti sem hermönn
unum sé sýnt, þeim sem einmitt
björguðu Frakklandi á hættu-
stund, að svipta þá kosningarétti
og kjörgengi, meðan að komm-
únistar og aðrir svikarar fá ó-
hindrað að vinna sín skemmdar-
störf í frönskum stjórnmálum.
Öryggisnefndin ákvað um leið
að senda fjórum frönskum stjórn
málaleiðtogum síraskeyti og biðja
þá um að rétta hlut hermann-
anna. Þeir sem skeytin fá eru
Jacques Soustelle, innanríkisráð-
herra, Georges Bidault, André
Morice og Roger Duchet.
Salan hlýðir de Gaulle
í morgun átti de Gaulle viðræð
ur við Raoul Salan hershöfðingja,
yfirmann franska herliðsins í
Alsír. í kvöld sneri Salan síð-
an heim til Algeirsborgar og mun
hann láta framfylgja fyrirskip-
un de Gaulles.
Harold King fréttaritari
Reuters í París segir úr lausu
lofti gripið að ósamkomulag
sé milli de Gaulles og Salans.
Þvert á móti segir hann að
Salan hafi verið kunnugt um
fyrirætlanir de Gaulles löngu
fyrir fram. Mun Salan e. t. v.
grípa til þess ráðs í fyrramálið
að banna allsherjarverkfallið.
Það er helzt yngri herforingjar
sem eru mjög mótfallnir fyrir-
Framh. áb!i 19
Fimmtudagur 16. október.
Efni blaðsins er m.a.:
BIs. 3: Togarinn Gerpir kemur í fyrsta
sinn til Reykjavíkur.
— 6: Erl. yfirlitsgrein — (Viðskipti
Nassers og Sýrlendinga).
— 8: Tízkufréttir frá Lundúnum ••
(Kvennasíða).
— 9: Nautgripasýningar á þessu ári.
— 10: Forystugreinin: Forðumst Fram
sóknarrangindin.
Missti báðar hendur vegna kals
— (Utan úr heimi).
— 11: NATO — og deila íslands og
Bretlands.
— 12: Fréttabréf frá skákmótinu i
Miinchen.
— 18: íþróttir.