Morgunblaðið - 16.10.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.1958, Blaðsíða 2
2 m o n c.r * tí r 4 r) i o Flmmtudagur 16. okt. 1958 Brezkur hljómsveitar- stjóri beðinn um að fresta íslandsför Nýir þjóðvegir við ísaijarðardjúp Frumvarp Sigurðar Bjarnasonar SIGURÐUR BJARNASON flytur í Ed. Alþingis frumvarp um breyt- ingu á vegalögum. Er þar lagt til að þessir vegir við ísafjarðar- djúp verði teknir í tölu þjóðvega: Grunnavíkurvegur, frá Sandeyri um Snæfjallaheiði að Sætúni í Grunnavík. Laugardalsvegur, að Ögurvegi hjá Laugardalsbrú fram Laugardal að Efstadal. Reið- hjallavegur, af Bolungarvíkurvegi í mynni Syðridals að Reiðhjalla- virkjun og Skálavíkurvegur, frá Bolungarvík um Skálavík ytri. KAUPMANNAHAFNARBLÖÐ skýra frá því að landhelgisdeila íslendinga og Breta, hafi nú einn ig gripið inn í menningarsam- skipti þessara þjóða, þar eð af- lýst hafi verið heimsókn brezks hljómsveitarstjóra, Harry Blevh, að nafni. Berlingatíðindi segja að ákveð- ið hafi verið að hinn brezki hljómsveitarstjóri lcæmi til Is- lands og stjórnaði Sinfóníuhljóm sveit íslands. Nú hafi hljóm- sveitarstjórinn fengið bréf frá forstöðumanni Sinfóníuhljóm- sveitarinnar, þar sem Blech hljómsveitarstjóri er beðinn að fresta íslandsför sinni, þar til ástandið í samskiptum þjóðanna hafi færzt í betra horf. I bréfi PARÍS, 15. okt. (Reuter). — Fastaráð Atlantshafsbandalagsins kom saman á fund í dag til að ræða Kýpurvandann. Hafði full- trúum þatttökurikjanna nú gef- izt tími til að greina ríkisstjórn- um sínum frá fyrri umræðum í fastaráðinu og tillögu Spaaks framkvæmdastjóra bandalagsins um ráðherrafund Breta, Grikkja og Tyrkja. Ótrúlega mikil bjartsýni ríkti á þessum fundi og mun það eink- um koma til af því áð gríska stjórnin tekur líklega í tillögu Spaaks. Er það nú talið eitt mik ilvægasta verkefni NATO, að koma á sáttum milli fyrrnefndra þriggja þjóða um stjórn Kýpur. Eftir ■ fund fastaráðsins í dag eru horfurnar góðar á því að ráðherrafundur verði haldinn. Hins vegar er ekkert ákveðið enn hverjir munu sitja slíkan ráð- herrafund. Frá Aþenu er hermt, að gríska stjórnin muni helzt kjósa að for- sætisráðherrar landanna sitji fundinn. Kýs hún það fremur til að losna við afskipti Zoglus ut- anríkisráðherra Tyrklands, sem var hinn „illi andi“ ráðherrafund arins 1955 og hindraði allt sam- Vill láta lagíæra Kolviðarhól SKÍÐARÁÐ Reykjavíkur hefur skrifað bæjaryfirvöldunum bréf í sambandi við skíð: 'erðir skóla- barna og Kolviðarhól. Reykjavíkurbær á Kolviðar- hól, en þar hefur allt verið í eyði um nokkurt árabil og er svo kom ið að skemmdarvargar hafa framið stórkostleg spjöll á hinu reisulega húsi, sem í eina tíð var fjölsott gistihus. Skíðaráðið gerir það að tillögu sinni að bæiinn láti fram fara lagfæringar á húsinu, svo að hægt verði að efna til skíðaferða þangað fyrir skólaæskuna, en slíkar ferðir eru fastur liður í j skólastarfseminni. Þá telur skíðaráðið það og æskilegt, að þar upp frá verði sköpuð skil- yrði fyrir börn og unglinga sem stunda skíðaíþróttina að bregða sér þangað um helgar. Hægt verði að veita þeim húsaskjól og svo um hnutana búið að æskufólkið geti borðað nesti sitt þar irini. Telur skíða- ráðið nauðsynlegt að koma þessu í kring, því börn og unglingar hafi ekki þau auraráð að hægt sé að ætlast til þess að þau geti greitt fyrir mat og gistingu sem fullorðnir á gististöðum á skíðaslóðum bæjarins. Á fundi bæjarráðs er haldinn var á þriðjudaginn var bréfið lagt fram, en þar var ekki tekin ákvöiðun um erinuið. sínu ræðir Jón Þórarinsson um hið alvarlega ástand, sem á hvérri stundu geti leitt til slysa, er haft geti ófyrirsjáan legar afleiðingar. Og í bréfinu er því bætt við, að ekki megi skilja uppástunguna um frestun heim- sóknarinnar á þann veg, að um mótmælaaðgerðir sé að ræða, heldur sé aðeins verið að firra vandræðum. Harry Blech er stjórnandi hljómsveitarinnar London Moz- art Players. Kona hljómsveitar- stjórans hafði sagt við blaða- menn, er henni varð kunnugt um frestun íslandsfararinnar, að Is- lendingar litu bersýnilega miklu alvarlegri augum á landhelgis- deiluna er. Bretar gera. komulag með öfgafullum skoð- unum, að áliti grískra stjórn- málamanna. Skóiasetning í Kjós VALDASTÖÐUM, 13. okt. — Barna- og unglingaskólinn að Ásgarði í Kjós var settur í gær og hófst athöfnin með guðsþjón- ustu í skólanum. Allt að 40 börn munu verða í skólanum í vetur Auk þess er ætlunin, að unglinga skóli verði starfræktur, en hann tekur ekki til starfa strax. Óvíst er enn um nemendafjölda í hon- um. Allmargir nemendur eru í heimavist. Skólastjóri verður hinn sami og áður, Njáll Guð- mundsson. Aðstoðarkennari er ráðinn Aðalgeir Aðalsteinsson frá Laugavöllum í Þingeyjar- sýslu. Handavinnukennari verð- ur frú Kristín Jakobsdóttir frá Sogni, en ráðskona verður ung- frú Guðfinna Hannesdóttir frá Hækingsdal. Allmikið hefur verið unnið við skólahúsið í sumar. Lokið var við að múrhúða það að utan, auk þess málað bæði að uian og innan. Er nú langt komið að fullgera skólann, þó að ennþá sé því ekki lokið til fulls. Lögð var ný vatnsleiðsla, víðari pípur en áður var, um 600 m vegalengd, og frá öruggara vatnsbóli en áð- ur. Hjörtur Þorsteinsson á Eyri, sem verið hafðí formaður skóla- nefndar í 12 ár, sagði því starfi lausu, en við tók Oddur Andrés- son, bóndi á Neðra-Hálsi. — St. G. De Gonlle vill iremur umræour en byssukúlur DE GAULLE svaraði í dag kvört unum frönsku landnemanna í Alsír yfir því að jafnvel fylgis- menn sjálfstæðishreyfingar Serkja kynnu að ná kosningu til franska þingsins, eins og þing- kosningunum í næsta mánuði yrði háttað. Hershöfðinginn sagði: — Með- al serknesku þingmannanna verða máske margir fulltrúar, sem heimta fulikominn aðskilnað Aisír frá Frakkiandi og munu berjast fyrir því á franska þjóð- þinginu. — En hvi ekki að leyfa þeim það? sagði Gaulle. Er ekki betra að halda þingræðis- legar umræður en að berjast með byssukúlum. Er þetta svar talið sýna frjáls- lyndi hershöfðingjans. Er hann nú að byrja að t»ka vandamál Alsir föstum tökum. ÞESSI fagri verðlaunabikar verður keppnisgripur skák- manna i Gulibringusýslu. Ól- afur Thors fyrrum forsætisráð herra og alþingismaður gefur bikarinn og mun hann verða afhentur formanni Taflfélags Keflavíkur á aðalfundi félags- ins í kvöld. Gert er ráð fyrir að skák- sveitir, sem kaupstaðir og kauptún Gullbringusýslu scnda til árlegrar skákeppni, keppi um bikar þennan, sem hlotið hefur nafnið, eftir til- lögu gefanda „Sýslubikar- inn“. Bikarinn er farandgripur og getur sú skáksveit unnið hann til eignar, er vinn ur hann þrisvar í röð. Bikar þessi er, eins og myndin sýni- ir, hinn veglegasti gripur. Eisenliower telur herstvrkiun á J Quemoy of mikinn WASINGTON, 15. okt. (NTB). Eisenhower forseti lýsti því yfir í dag, að banda- ríska stjórnin teldi, að kín- verskir þjóðernissinrnar hefðu satnað of miklu liði saman á Quemoy-eyjaklasanum. Eis- enhower gaf þessa yfirlýsingu á fundi með fréttamönnum. Hann sagði hins vegar að bandaríska stjórnin kæmist að þessari niðurstöðu á hern- að.irlegum forsendum og hún vildi ekkert aðhafast til að þvinga þjóðernissinna til að minnka heratyrk sinn á eyjun um. Með þessum orðum tók Eisenhower undir fyrri um- mæli Dulles utanríkisráð- herra. Di engur í híl skerst á höfði í FYRRAKVÖLD meiddist 4 ára drengur mikið á höfði, er hann var í bíl sem lenti í hörðum árekstri. Drengurinn litli sem heima á suður í Keflavík mun hafa verið með móður sinni í bílnum. Hann heitir Ólafur Arinbjörnsson. Konunni, sem bílnum ók, mistókst beygjan á horni Bústaðavegs og Grensás- ássvegar. Fór bíllinn yfir hægri vegarhelming, en þar var vöru- bíll fyrir. Hafði bílstjórinn á hon um numið staðar, er hann sá hvað verða vildi. En er bíllinn sem konan ók lenti framan á vörubílnum, rak litli drengurinn Brestur mikið á um vegasamband f greinargerð, sem fylgir frv. segir á þessa leið: Með frv. þessu er lagt til, að nokkrir vegir í Norður-ísafjarð- arsýslu verði teknir í þjóðvega- Utanríkisráðherra kominn af þingi SÞ RÍKISÚTVARPIÐ skýrði frá því í gærkvöldi að Guðmundur f. Guðmundsson utanríkisráðherra hefði komið heir* í gærmorgun af þingi Sameinuðu þjóðanna. Almennum fundum er nú lokið á þinginu og nefndir teknar til starfa. Á þinginu fluttá ráðherrann ræðu um landhelgismálið eins og áður hefir verið frá skýrt. Laga- nefndin mun fjalla um málið og er búizt við að það komi fyrir til umræðu um næstu mánaða- mót. Eina tillagan, sem komið hefir fram á þinginu um málið er að haldin verði ný ráðstefna. Ný Genfar-ráðstefna BJÖRGVIN, 15. okt. (NTB). — Olav Lund aðstoðarfiskimála- stjóri Noregs flutti í dag fyrir- lestur í Fislcifélagi Hörðalands. Hann sagði m.a. að náðst hefði tölu. Brestur ennþá mikið á, að sveitir héraðsins séu komnar í vegasamband. Veldur það bænd- um og markaðssvæði þeirra I sjávarþorpunum við ísafjarðar-- kaupstað miklu óhagræði. Greið- ar samgöngur eru hyrningar- steinn atvinnulífsins, ekki sizt í sveitunum. Frv. þetta er flutt samkvæmt ósk hreppsnefnda í ýmsum hrepp um Norður-fsafjarðarsýslu. Viðræður um launamál - Á FUNDI bæjarráðs á þriðjudag- inn var tilkynnt í bréfi frá Starfsmannafélagi Reykjavíkur, að félagið hafi tilnefnt Júlíus Björnsson og Þórð Þórðarson til viðræðna við fulltrúa bæjarráðs um launamál bæjarstarfsmanna. Á þessum fundi bæjarráðs var samþykkt að tilnefna Auði Auð- uns og Magnús Ástmarsson til viðræðu við Lögreglufélag Reykjavíkur um launamál lög- regluþjóna. samkomulag um stærð fiskiveiði- landhelginnar. Olav Lund taldi að mál þetta kæmist ekki fyrir alþjóðadóm- stólinn í Haag, ef ísland væri því mótfallið. Hann taldi það einnig ólíklegt að Allsherjarþing S.Þ. gæti tekið ákvörðun í málinu eins og íslendingar hafa lagt til. Líklegast væri að Allsherjarþing ið samþykkti að haldin yrði ný Genfar-ráðstefna. — höfuðið af þvíliku afli a fram- rúðuna að hún brotnaði. Hlaut samkomulag um ymis þyðingar- mikil atriði alþjóðlegs sjóréttar hann mikinn áverka á höfði, og ^ á ráðstefnunni í Genf s.l. vor. var fluttur í slysavarðstofuna. ÍHins vegar hefði ekki náðst neitt Horfur góðar á ráðherra fundi um Kýpurmálið Þessi mynd er tekin í Grænadal í ölfusi, þar sem borað var með stóra jarðbornum í sumar, í leit að gufu. Sýnir hún fyrstu holuna og hinn kraftmikla gufustrók er hann þeytist hátt í loft upp um tæplega 10 þuml. víðan stút. Við stútopið er gufan nu um 100 stiga heit og hávaðinn minnir á þotugný. Ljósm. vig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.