Morgunblaðið - 16.10.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 16.10.1958, Blaðsíða 20
VEÐRIÐ NV og síðan N-gola. Léttir til. TIZKUFRETTIR Sjá bls. 8 236. tbl. — Fimmtudagur 16. október 1958 Banaslys á Snœfellsnesi Bóndi hrapar í Djúpagil Borg, Miklaholtshreppi, 15. okt. SÁ HÖRMULEGI ATBURÐUR gerðist vestur á Snæfellsnesi sl. nótt, að Þorsteinn Gunnla<ugsson, bóndi á Ölverskrossi í Hnappadal, hrapaði í Djúpagil á Snæfellsnesi og beið bana. Þorsteinn var 73ja ára að aldri. Nánari tildrög slyssins eru þau að þeir Þorsteinn Gunnlaugsson og Olgeir sonur hans héldu af stað í gær um kl. 9.00 frá Set- bergi á Skógarströnd með hrossa- rekstur, er átti að fara að Hamra- endum í Breiðavíkurhreppi. í fyrstu fylgdu þeir feðgar þjóð vegi frá Setbergi og að sæluhús- inu í Kerlingarskarði. Þaðan héldu þeir síðan, sem leið liggur að Efra-Hóli í Staðarsveit. Báðir voru þeir feðgar ókunnugir þess- ari leið en nú tók að dimma í þann mund er þeir héldu á Lága- fellsháls. Ætlun þeirra var að halda niður með Djúpagili á Lága fellshálsi austanverðum. Lentu vestan Djúpagils Sakir myrkurs og ókunnugleika þeirra feðga lentu þeir niður vest- an við gilið. Hins vegar liggja gamlir götuslóðar, sem farnir voru áður fyrri, austanvert við gilið. Olgeir fór aðeins á undan föður sínum niður með gilinu og teymdi nú hest sinn. Taldi hann sig vera á réttri leið unz hann hrapaði fram af dálitlu kletta- þrepi. Þá þegar kallaði hann til föður síns í aðvörunarskyni, en fékk ekkert svar. Fann hestinn með tauminn uppi Snéri Olgeir nú við hið skjót- asta og hélt upp með gilinu. Kall aði hann margsinnis til föður síns en án árangurs. Þegar hann kom upp á gilbarminn sá hann hvar hestur föður hans stóð með tauminn uppi i makka. Virtist honum þetta benda til þess að Þorsteinn hefði fallið af hestin- um. Hélt Olgeir nú ofan eftir gilinu á ný heima að Ytra-Lágafelli í Miklaholtshreppi. Sagði hann þar frá hversu komið var. Þá þegar hélt hópur manna úr hreppnum til að leita Þorsteins. Klukkan mu* hafa verið um 22,30 um kvöldið er Olgeir kom að Ytra-Lágafelli. Tveir leitarmann- anna fundu Þorstein rétt fyrir lega í bot»i Djúpagils. Virt- ist þeim hann látinn og hefði hann hrapað niður gilbarminn að vestan eftir skriðum, um 30 m. fall, en síðan skoraðst í kletta- rauf skammt ofan við árfarveg- inn. Siðar um nóttina voru hross þau, er þeir feðgar voru með, sótt og fundust þau meðfram Djúgagili að vestan. Þorsteinn heitinn Gunnlaugs- son var 73 ára að aldri. Lætur hann eftir sig ekkju, Þórdísi Ól- afsdóttur, og 9 uppkomin börn. — Páll. Haíin prófkosning til biskupskjörs VIÐ biskupskosningu hefur það jafnan tíðkazt, að stjórn Presta- félags íslands hefur gengizt fyr- ir prófkosningu innan stéttarinn- ar til undirbúnings sjálfri kosn- ingunni. í gær sendi stjórn prestafélagsins kjörgögn til allra atkvæðisbærra kennimanna að eiga öll atkvæði að vera komin í hendur stjórnar prestafélagsins fyrir 16. nóvember nk. Niður- staðan verður síðan send prest- um sem trúnaðarmál jafnskjótt og hún er kunn. Listamaðurinn við eitt af málverkum sínum. Gjöf Ásgríms til ríkisins - 659 listaverk auk húss EINS og kunnugt er gaf Ás- grímur Jónsson, listmálari, ís- lenzka ríkinu mestan hluta eigna sinna eftir sinn dag þar á meðal húseign sína við Bergstaðastræti í Reykjavík og listaverk þau, er haon lét eftir sig. Hefur nú farið Stuttir fundir á Alþingi í gœr Fjáriagaumrœða á mánudagskvöld fram skrásetning og könnun þessarar miklu gjafar. Lætur Ás- grímur eftir sig 225 vatnslita- myndir og 198 olíumálverk. Þar að auki eru 203 ófullgerð olíu- málverk og 33 ófullgerðar vatns- litamyndir Auk þessa eru mjög margar teikningar. í ráði er að efna til sýningar á listaverkum þeim, er Ásgrím- ur Jónsson gaf íslenzka ríkinu og verður sýningin væntanlega haldin næsta vor. Gefst mönnum þá kostur á að.sjá hina dýrmætu gjöf þessa höfuðsnillings. (Frá menntamálaráðuneytinu). Fé fennir í kaf í Bárðardal ÁRNESI, S-þing 15. okt. — í norðanstórvirðrinu s.l. föstudag varð svo mikil stórhríð í Bárðar- dal að fé fennti í kaf. Hjá Víði- keri í Bárðardal fundust 12 kind- ur í fönn, allar lifandi, og vitað er um 9 kindur, sem hrakizt hafa í krap og læki og drepizt. Fleira fé getur hafa farið í fönn, en það er enn ekki rannsakað. í þessu stórviðri urðu miklar bilanir á símalínum, brotnuðu staurar og línur slitnuðu. Var þetta eitt með allra verstu veðr- um, sem komið hafa, Hér er enn allt hvítt af snjó, einkum til heiða. — H.G. Tyeggja akreina- kerfi á Laugavegi og Snorrabraut BÆJARRÁÐ hefur nú mælt með því að tekin verði upp tveggja akreina braut á Laugavegi inn- anverðum og eftir Snorrabraut allri. Akreinakerfi verður sett á Laugaveginn milli Snorrabraut- ar og Hlemmtorgs og verða þá bílastöður bannaðar við Lauga- veginn á fyrrnefndu svæði, þó með þeim undantekningum að leyfð verða tvö stæði við Hlemm. Þá verða takmarkaðar bílastöð- ur á „eyjunni“ milli akbrauta Snorrabrautar, Laugavegs og Grettisgötu og verða þar settir upp stöðumælar fyrir hálftíma stöðu í senn, milli kl. 9 og 19 virka daga. BÁÐAR deildir Alþingis komu saman til fundar kl. 1.30 í gær. Á dagskrá efri deildar var eitt mál, frumvarp til laga um tollskrá o.fl. Var frumvarp þetta til fyrstu um- ræðu og vísað til annarrar um- ræðu samhljóða og til fjárhags- nefndar. Á dagskrá neðri deildar var frumvarp um breytingu á vegalögunum (flm.: Eiríkur Þor- steinsson) til fyrstu umræðu og tiu miðnætti þar sem hann lá ofar-! vísað samhljóða til annarrar um- &<■■■■ ■ Hér sjáum við matgírugan svartbak, þar sem hann hefur náð til sín vænum bita af karfa á togarabryggjunni hér í Reykja- Vik. Svartbakurinn var þarna svo gæfur að ekki reyndist erfitt fyrn Ijósmyndarann að fá hann til þess „að sitja fyrir“. Ljósmynd vig. ræðu. Stóðu þingfundir tæpai mínútur. Á mánudagskvöldið verður fyrsta umræða um fjárlagafrum- varpið. Hefst umræðufundurinn kl. 20.15 og verður honum út- varpað. í gær var útbýtt sjö nýjum þingskjölum og voru það allt breytingartillögur við vegalög, þar sem lagt er til að nýir vegir verði teknir í þjóðvegatölu. — Eru það tillaga frá Jóni Kjartans- syni um Péturseyjarveg, Meðal- landsveg syðri og Holtsveg á Síðu. Frá Páli Zóphóníassyni og Björgvin Jónssyni um Selárdais- veg, Sunnudalsveg í Vopnafirði, Jökuldalsveg eystri og Loðmund- arfjarðarveg. Frá Sigurði Ó Ól- afssyni um Sólheimaveg, Skarðs- veg og Laxárdalsveg. Frá Pétri Ottesen um Botnsdalsveg, Grafar dalsveg, Vatnshamraveg, Sarps- veg, Katanesveg, Reynisveg, Hvítanesveg, Eyrarveg, Bæjar- veg, Stórakroppsveg, Hálsasveit- árveg og Skáneyjarveg. Frá Jóni Sigurðssyni og Steingrími Stein- Þórssyni um Sæmundarhlíðarveg, Héraðsdalsveg, Austurdalsveg, Kjálkaveg, Norðurárdalsveg, Hegranesveg vestri, Hjaltadals- veg, Sléttuhlíðarveg og Sléttuveg. Frá Ingólfi Jónssyni og Svein- birni Högnasyni um Háfsósbraut, Utkróksveg, Lækjarveg, Hvamms veg, Bjallaveg, Keldnaveg, Árgilsstaðaveg, Sigluvíkurveg, Krossveg, Affallsveg, Fljóts- hlíðarveg, Vatnsdalsveg, Markar- fljótsveg, Hólmabæjarveg í Vestur-Eyjafjallahreppi, og Leirnaveg. Frá Halldóri E. Sigurðssyni um Gufuár- veg, Neðranesveg, Ásbjarnar- staðaveg, Hlíðarveg, Veiðilækjar- veg, Króksveg, Hreðavatnsveg, Grímsstaðaveg, Seljaveg og Hítar ai vcg. Harrastaða-kindur voru með þurramœði í lungum BORGARNESI, 15. okt. — Á mánudag og þriðjudag var slátr- að fullorðnu fé frá þrem bæjum í Dalasýslu, sem næst liggja svæði því, sem mæðiveiki fannst á í fyrrahaust. Frásögn Guðmundar Gíslason- ar dýralæknis um rannsóknir hans á þessu fé fer hér á eftir: Sýkt íungu Frá Stóra-Skógi í Miðdölum var slátrað 282 fullorðnum kind- um. Óljós vottur af þurramæði fannst í tvennum lungum. En áð- ur hafði fundizt grunur um skemmdir í éinum lungum. Veik- in hefur því ekki verið staðfest með vissu í Stóra-Skógi. Frá Harrastöðum í Miðdöl- um var slátrað 186 fullorðn- um kindum. Þurramæði- skemmdir fundust í 27 lung- um eða um 13,5% af fénu á mismunandi stigum. Sýking hefur því verið komin á ali- hátt stig í fénu. Þó sá ekki á neinum lifandi kindum um réttir í haust. Frá Saursstöðum í Haukadal var slátrað 210 fullorðnum kind- um. Enginn vottur fannst af þurramæði í neinni kindanna. Líflömb að sunnan Ráðgert hefur verið að bænd- ur á þessum bæjum fái líflömb á þessu hausti. Verða þau fengin úr Álftaness- og Hraunhreppum á Mýrum, en það er í sama fjár- skiptahólfi og fyrrgreindir bæir. Þetta fjárskiptahólf nær yfir Mýrasýslu alla, nema hluta af Hvítársíðu, auk þess Kolbeins- staða-, Eyja- og Skógarstrandar- hreppa í Snæfellsness- og Hnappadalssýslu, ennfremur Hörðudal, Miðdali og Haukadal í Dalasýslu. Síðastliðið vor vonu framgengin um 60 þúsund fjár á fjárskipta- svæðinu. í flestum réttum í haust at- huguðu skoðunarmenn féð og tóku frá nokkrar kindur til slátrunar og rannsóknar og fannst ekkert grunsamlegt. Virð- ist féð því heilbrigt að sjá á fæti. Fleiri umferðarljós Á FUNDI bæjarráðs er haldinn var á þriðjudaginn, var samþykkt að óska eftir kostnaðaráætlun umferðarnefndar um upp- setningu umferðarljósa á fimm stöðum hér í bænum. Hafði nefnd in ritað bæjarráði um nauðsyn þessa. Leggur nefndin til að um- ferðarljósin verði á þessum gatna mótum: Klapparstíg — Laugavegi Hafnarstræti — Lækjartorgi Hverfisgötu — Snorrabraut Laugavegi — Nóatúni Kalkofnsvegi — Tryggvagötu. Geta má þess einnig hér að umferðarnefnd mun nú láta rann saka hvort rétt sé að setja upp umferðarljós á gatnamótum Hafnarstrætis — Pósthússtræti3, Tryggvagötu — Pósthússtrætis og Miklubraut — Lönguhlíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.