Morgunblaðið - 16.10.1958, Side 12
12
MORCinSBL AÐIÐ
Fimmtnrlagur 16. okt. 1958
3 Wistoft
vogir
krómað stál, alveg sem nýjar til sölu af sérstökum
ástæðum. 2 vigtar, sem vigta upp í 15 kg. og ein
vigt sem vigtar 1 kg. Tilboð er tilgreini verð, sem
kaupandi vill greiða, sendist afgr. Mbl. fyrir annað
kvöld merkt: „Wistoft vigtar — 4105“.
NÝKOMIN BEZTA TEGUND AF
Einangrunarkorki
FRA COKCHERA ESPANOLA S.A., ALGECIRAS
Vegna sérstakrar framleiðsluaðferðar er korkið óvenju-
létt, en jafnframt eru gæðin meiri en áður. Um leið er
það ódýrara en annað kork á markaðnum.
Verð: 2“ þykkt kr. 95.80 pr. fermeter
iy2” — kr. 71.80 — —
1” — kr. 50.25 —
Póll Þorgeirsson
Laugavegi 22 Vöruaígr. Ármúla 13.
Sími 1-64-12 Sími 3-40-00.
íslendingar taplausir á
fyrsta og öðru borði
Skákbréf frá Munchen frá Balcfri Pálmasyni
Miinchen, 10. okt.
MUNCHENARBORG telst grund
völluð 14. júní 1158 og heldur
því hátíðlegt 800 ára afmæli sitt
í ár. Hefur verið hér mikið um
að vera síðan á afmælisdaginn í
vor, og má teljast að því til-
haldi hafi að mestu lokið með
októberhátíðahöldunum svoköll-
uðu, sem byrjuðu raunar kring-
um 20. sept. og lauk á sunnu-
daginn var, 5. okt. Þessi október-
hátíð er árlegur viðburður og
gömul og gróin hér um slóðir.
Enn má þó sjá afmælisskilti í
verzlunargluggum og á hótelum,
og enn er framreiddur hátíðar-
bjór. Er hann ótæpt drukkinn
af gestum og heimamönnum,
enda er þetta einhver kunnasta
bjórborg í heimi hér.
Skákmennirnir mega þó frem-
ur lítið gefa sig að bjórþamb-
inu, því sjálfsagt yrði það ekki
til skerpingar dómgreind þeirra
í flóknum taflstöðum. Á skák-
stað er þeim borið molakaffi,
og það talið duga betur í þeim
tilgangi. Fyrirtækið Nescafe eða
Nestle gefur kaffið og fær í
staðinn að auglýsa það á hverju
skákborði með kaffibaukum sin
Siðasta umferð í forriðlum fór
fram í gærkveldi, og biðskákir
hreinsuðust upp í morgun. Réð-
ust þá örlög skáksveita, að því
er til flokkaskiptingar tekur í
lokahrinunni. En áður en greint
verði frá þeirri skiptingu, er bezt
að gefa nokkurt yfirlit um skák-
ir okkar manna í fjórum síðari
umferðunum.
Fyrsta og annars borðs menn
okkar, Ingi R. Jóhannsson og
Guðmundur Pálmason, tefldu
allar forriðilsumferðirnar án
hvíldar (utan hvað þeim bar að
sitja yfir í næstsíðustu umferð)
og unnu jafnframt það afrek að
tapa ekki neinni skák. Er Ingi
með 5Vz vinning (eða 69%) og
Guðmundur með 4% vinmng
(56%) eftir átta skákir.
Heidenfeld brást hinn
glaðasti við
Fimmta umferð okkar sveitar
var viðureign við Suður-Afriku-
menn. Á fyrsta borði þeirra tefl-
ir Heidenfeld, enda þótt hann sé
fyrir ári eða svo fluttur búferl-
um til Dyfiinnar. Annars er
hann þýzkur að uppruna. Ingi
| hafði svart og beitti Sikileyjar-
I vörn, en í upphafi tafls kom
IÁTIÐ HANN FÁ HONIG'S-súputeninga
með á sjóinn
svo hann getí hvenær sem er búið til nærandi og
Ijúffengan drykk og þurfi engan tíma til undirbún-
ings. Ef aðeins hann hefur H0NIGS súputeninga við
hendina.
Spyrjið eftir HONIGS súputeningum i bláu og
rauðu dósunum, hjá kaupmanni yðar. —
ES >
Eggert Kristjánsson & Co. hf.
Hotel Kongen ai Danmark — Köbenhavn
Herbergi með morgunkaffi fra dönskum kr. 12.00.
HOLMF.NS KANAL 15 C. 174
I mðboiguini — rett við hofnina
Heidenfeld með nýlegan leik
(Ra3), sem eignaður er Perú-
manninum Canal. Ingi þekkti
lítið til þessa afbrigðis og tók
sér um klukkustundar umhugs-
un á 5—6 leiki. Tókst honum
þar með að gera staðgóða áætl-
un um framhaldið. Heidenfeld
mun ekki hafa valið happa-
drýgstu leið, og náði Ingi í bili
dálítilli sókn á f-línu, en hinum
tókst að eyða henni von bráðar.
| Svo fór að Ingi bauð jafntefli
; í 23. leik, enda var hann þá mjög
| þreyttur orðinn eftir hma löngu
j þaulhugsun í byrjun taflsins og
: þó öllu fremur eftir erfiða skák
við Czerniak kvöldið áður og
i langvarandi biðskák þennan
sama morgun. Segja má að
staðan hafi engan veginn verið
rakin jafnteflisstaða, en „betn
er ein kráka í hendi en tvær í
skógi“ stendur þar. Brást Heid-
enfeld hinn glaðasti við og taldi
sér sóma að jafntefli vlð fyrsta
borðs mann svo sterkrar skák
þjóðar sem íslendinga.
Fyrsti stórmeistarton
í sjöttu umferð fíkk Ingl
fyrsta stórmeistarann andspænis
sér, Unzicker. Þegar hér var
komíð sögu, höfðu íslendingar
12 vinninga í 5 umferðum, en
Vestur-Þjóðverjar 9 vinninga í
4 umferðum. Spánn og Banda-
ríkin voru komin kippkorn fram
fyrir. Var talsverður hugur í
mannskap okkar að reyna að
klekkja á heimaþjóðinni, ekki aí
neinum kala, síður en svo, heldur
í drengilegum leik og reyna að
halda þriðja sætinu áfram. Ingi
hefði því gjarnan viljað tefla
til vinnings í þessari skák, en
Unzicker valdi leið, sem lagði
megináhættuna Inga á herðar, ef
hann gerði sig tii einhvers lík-
legan. Náði Þjóðverjinn nokkru
færl um stundarsaKir, en Inga
tókst að fyrirbyggja allar meiri-
háttar aðgerðir hans. Urðu við
það tvöföld mannakaup og síð-
an samið jafntefli í mjög á-
þekkri stöðu á báða bóga.
Spanverjar hafa komið nokk-
uð á óvart með ágætri frammi-
stöðu sinni, en þeir tefla fram
öllum sínum beztu mönnum og
nafa verið í fararbroddi í nðl-
mum allan tímann. Gegn Pomar
lék Ingi mótteknu drottningar-
bragði, sem hann kveðst hafa
kynnt sér nokkuð fyrir mótið.
Pomar gat ekki varizt peðstapi
en náði nokkru gagnfæri í stáð-
mn, bauð svo upp á annað peð,
sem Ingi hefði e. t. v. ekki átt
að þiggja, þar sem því fylgdi
hættan á skiptamunstapi, en með
því að Ingi hafði þá tvö peð þar
á móti og vafasamt var, hvort
vlnningur leyndist í stöðunni fyr
ir Spánverjann, gekk hinn síðar-
nefndi greiðlega að jafnteflisboði
Inga. Skákin varð ekki löng.
Enn jafntefli við stórmeistara
I síðustu umferð hafði Ingi
hvítt gegn sjálfum Reshevsky,
sem bar fyrir sig kóngsindverska
vörn. Ingi beitti aftur á móti
biskupaaðferðinni (Ba2 og Bg5),
og var því líkast sem hún hitti
veikan punkt á Reshevsky, sem
tefldi framhaldið ekki sem ná-
kvæmast. Staðan varð gríðarlega
flókin, enda fóru engin manna-
kaup fram. Þegar komnir voru
tæplega 20 leikir, höfðu báðir
eytt miklum tíma, áttu aðeins
eftir um 50 mín. hvor. Þá skeði
það í umhugsunartima Inga, að
bandaríski fyrirliðinn Spann
kemur til hans og býður jafn-
tefli fynr Reshevskys hönd.
Enda þotc þetta væri óneitan-
lega allskrítin aðferð, fannst
Inga ekkl borga sig að leggja út
i erfiða úrvinnslu þessarar
margslungnu stöðu og samsinnti
því boðinu. Tal fylgdist með
PAIMTIÐ HJÁ OKKLR
Krstjánsson hl.
Borgartúni 8. — Símar: 12800 & 14878.
„ALKATHENE" plast-vatnspípur. Springa ekki í frosti
og tærast ekki. Eru léttar í meðförum og koma í allt að
500 feta rúllum. Endast endalaust. Hagstætt verð. Mjög
auðvelt er að leggja pípur þessar í jörð. Bændur, það
er óráð að nota annað í vatnsleiðslur.
PLASTIK TIL UiMBÍJÐA
1 örkum og slöngum af ýmsum víddum, útvegum við
á lægsia verði.
Það er deginum ljósara,
að „PERSPEX“ báru
plast-plötur eru það allra
bezta, sem þér getið feng-
ið í glugga á verksmiðjur
og útihús. Gerið pantanir
yðar sem íyrst.