Morgunblaðið - 16.10.1958, Blaðsíða 13
Flmmtudagur 16. okt. 1958
MORGVTSBLAÐIÐ
13
skákinni og þótti hún standa
Inga heldur i vil. Hélt hann jafn-
vel að Ingi hefði glatað þarna
góðu tækifæri til að vinna fræg-
an stórmeistara. Við síðari at-
hugun kom þó í ljós, að staða
Inga rfeyndist ekki svo ýkja-
traust sem sumt benti til.
Einn vinningur og þrjú
jafntefli •
Guðmundur lék hvítu gegn
hollenzkri vöi'n Dreyers frá Suð-
ur-Afriku, hafði heldur rýmra
tafl allan tímann, en þóf var
talsvert framan af. Þar kom að
Dreyer lék leik, sem gefið gat
hættulegt færi, en þar sem hann
var í ani með tímann, og þeir
báðir raunar, tefldi hann vörn-
ina, gegn kóngssókn Guðmund-
ar ekki rétt vel. Guðmundur seig
á jafnt og þétt, unz svarti kóng-
urinn lét fánann falla í 39. leik.
í næstu skák var það Guðm.,
sem fór í hollenzka vörn, gegn
Tröger frá Köln, sem varð Þýzka
landsmeistari í fyrra. Skákin fór
fljótt út af venjulegum leiðum
og var frumlega tefld af báðum.
Guðmundi sást yfir dálitla leik-
fléttu Trögers í miðtaflinu og
missti peð fyrir bragðið, en mik-
ið var þá eftir á borði og ekki
öll nótt úti. Þegar skákin fór í
bið, má kannske segja að Tröger
hafi haft svolitla vinningsmögu-
leika, en eftir biðina tefldi hann
ekki eins vel og unnt hefði ver-
ið. Upp kom hróksendatafl með
þremur peðum gegn tveimur
kóngsmegin, og varð Þjóðverjinn
að sætta sig við jafnteflið eftir 71
leik, þótt hann sýndist lengi
hafa góðan hug á vinningi.
Guðmundur og Pérez öttu sam
an hestum sinum í sjöundu um-
ferð. Var það svokölluð Ben-
Oni-byrjun Pérez lét peð
snemma í tafli, sjálfsagt með
vilja, þar eð hann fékk nokkurt
mótspil í staðinn. Eftir 20 leiki
hafði Spánverj inn í frammi til-
burði til að heimta peð sitt bætt,
en við það hefði Guðmundur
komið út með heldur lakara, svo
hann tók það ráð að þráskáka
á svörtu drottninguna. Var þá
lýst friði þeirra í milli.
Heimsmeistari unglinga, Lom-
bardy, sem mér er tjáð að hafi
hug á að heimsækja ísland aft-
ur núna eftir Olympíumótið,
hafði hvitt á móti Guðmundi í
lokaumferðinni. Blés hann
snemma til sóknar kóngsmegin,
en Guðmundur náði gagnfærum
á drottningarvæng, og gat Lom-
bardy ekki látið þær aðgerðir
afskiptalausar. Þegar samið var
jafntefli eftir tæpa 30 leiki, áttu
báðir færi á „gegnumbroti“
kóngsmegin, en þar sem í því
fólust hættur fyrir báða, þótti
þeim ekki vax-legt að láta til
skarar skríða.
Tvær tapskákir
Freysteinn Þoibergsson tefldi
aðeins tvær af fjórum skákum
seinni hlutans, gegn Grivaines,
Suður-Afríku og Schmid, Vest-
ur-Þýzkalandi, enda hefur hann
ekki verið vel frískur. Þeir
Grivaines fengu jafnvæga stöðu
upp úr byrjuninni, en þó þótti
Freysteini sem sinn hlutur væri
ívið betri og reyndi mikið til
að ná yfirhöndinni. Við það
komst hann í tímahrak^ og sner-
íst þá innan tíðar á verri veg
fyrir honum. Grivaines náði
kóngssókn, sem lauk með manns
vinningi, og var þá ekki um ann-
að en uppgjöf að ræða á þriðja
borði okkar.
Freysteinn lagði út í glæfra-
lega sókn gegn Schmid, fórnaði
fyrst peði og bauð síðan fram
peð og hrók í þokkabót, en
Schmid tók ekki þvi góða boði
en fór aðra leið, sem gaf vísan
sigur. Loks skildi Freysteinn
drottningu sína eftir í uppnámi
í 16. leik, og þarf þá ekki að
spyrja neins að leikslokum. —
Þessi skák bar með sér, að Frey-
steinn var illa fyrir kallaður og
hvíldarþurfi.
Ingimar átti erfitt uppdráttar
Ingimar Jónsson tefldi á 4.
borði gegn Suður-Afríkubúanum
Isaacson en á 3. borði gegn
Darga, Vestur-Þýzkalanöi og
Evans, Bandaríkjunum. í hinni
Guðmundur Pálmason
teflir á 2. borði
fyrstu þessara skáka var tefldur
spænskur leikur, og varð byrj-
unin skemmtileg. Ingimar mun
hafa haft heldur betur, og sýnd-
ist honum á einum stað að hann
gæti unnið mann eftir að nokk-
ur uppskipti hefðu farið fram,
en þetta reyndist tálsýn, þegar
til kom. Fékk hann við þetta
aðeins erfiðara tafl og lenti auk
þess í tímaþröng. Skákin fór í
bið, og var þá jafnteflið næsta
fyrirsjáanlegt, en þeir þreyttu
þó taflið upp í 62 leiki.
Gegn Darga kvað Ingimar sig
hafa haft góða jafnteflismögu-
leika, en hann lék af sér eftir
rúma 20 leiki og bar ekki.full-
komlega sitt barr eftir það. Var
hann ekki vonlaus um jafntefli
samt sem áður, en í framhald-
inu eftir biðina komst hann í
þrönga stöðu til allra athafna,
enda mun Darga hafa valið
beztu leið. Gaf Ingimar skákina.
Skákir íslendinga og Þjóðverja
vöktu mikla athygli, eins og
raunar flestar skákir Þjóðverj-
anna, og kannski ekki hvað sízt
þessi skák. Svo mikið er víst að
hinn gamalreyndi skákmeistari
Rellstab tók hana eftir á til sér-
stakrar skýringar í hliðarsal.
Ekki verður sagt að Ingimar
hafi beitt sínu bezta í viðureign-
inni við stórmeistarann Evans
Náði Evans snemma undirtökun-
um og lagði andstæðinginn að
velli eftir u. þ. b. 25 leiki hafði
þá unnið peð og hótaði manns-
vinningi.
íslenzkur ósigur
Arinbjörn Guðmundsson lék
á 3. borði gegn Spánverjanum
Farré. Byrjunin var Sikileyjar-
vörn, en endirinn varð íslenzkur
ósigur. Einkenndist skákin af
fórnum og gagnfórnum og aldrei
um kyrrstöðu að ræða. Fyrst
fórnaði Arinbjörn riddara og
ætlaði að láta hrók fjúka sömu
leið, en Farré gaf sig ekki að
honum en kom með snilldarleik
á móti og endaði með drotnning-
arfórn og óhrekjandi máti. Arin-
björn fer miklum viðurkenning-
arorðum u mtaflmennsku mót-
stöðumanns síns, enda er það
óhætt, því að hann hefur víst
unnið allar skákir sínar á mótinu
til þessa.
Annar varamaður sveitarinn-
ar, Jón Kristjánsson, tefldi sína
fyrstu skák á mótinu við Spán-
verjann Albareda, og er það
raunar jafnframt fyrsta skák
Jóns á erlendri grund. Albareda
hafði svart og fór í kóngsind-
verska vörn. Var heldur frjáls-
ara tafl hjá hvítum og samið
jafntefli eftir 16 leiki, án þess
að til átaka kæmi.
Jón tefldi aftur á 4. borði í
síðustu umferð forriðilsins og
mætti þá Rossolimo. sem nú er
orðinn Bandaríkjamaður. Var
leikinn spænski leikurinn. Rosso
limo fékk betri stöðu, þar eð
Jón fann ekki beztu leið í mið-
taflinu. Eyddist þá einnig tím-
inn mjög fyrir Jóni og varð hann
að gefast upp eftir 30 leiki eða
þar um bil.
i B-riðli.
Þannig fór þá síðari helft for-
keppninnar, að íslendingar gerðu
jafntefli 2 : 2 við Suður-Afríku-
menn, töpuðu fyrir Þjóðverjum
og Bandaríkjamönnum með 1 : 3
og fyrir Spánverjum með 1 %:
2M>. Alls fékkst því 5.Í4 vinn-
ingur í þessum hluta á móti 10
vinningum í fyrri hlutanum
heild verður þetta að teljast dá-
góð frammistaða, þótt hún hefði
hins vegar mátt vera betri. Varð
íslenzka sveitin jöfn Finnlandi í
4. —5. sæti riðilsins, en ísrael
hálfum vinningi lægri. Þessar
þrjár sveitir lenda í úrslitaflokki
B og koma því til með að tefla
þar saman á nýjan leik.
Endanlegar tölur í forriðlum
urðu svo sem hér skal greina:
I. riðill: 1. Sovétríkin 27 vinn.,
2. Búlgaría 21 %, 3. Austurríki
21, 4. Holland 20%, 5. Danmörk
16%, 6. Frakkland 14%, 7. ítalía
11, 8. Porto Rico 8, 9. írland 4.
II. riðill: 1. Spánn 23% vinn.,
2. Bandaríkin 23, 3. Vestur-Þýzka
land 22, 4.—5. fsland og Finnland
15%, 6. ísrael 15, 7. Noregur
11%, 8. Suður-Afríka 10%, 9.
íran 7V2.
III. riðill: 1. Argentína 23 vinn.,
2. Austur-Þýzkaland 21, 3. Eng-
land 20, 4. Ungverjaland 19%,
5. Pólland 19, 6. Kólumbía 16%,
7. Filippseyjar 12%, 8. Skotland
10, 9. Líbanon 2%.
IV. riðill: 1. Tékkóslóvakía 25
vinn., 2. Júgóslavía 24, 3. Sviss
20, 4. Kanada 19, 5. Svíþjóð 18%,
6. Belgía 10%, 7. Portúgal 10,
8. Túnis 9%, 9. Grikkland 7%.
Munaði hársbreidd
í öljfum riðlum nema öðrum
var baráttan gífurlega hörð um
sæti í sigurriðli úrslitanna, og
munaði þar aðeins hársbreidd. —
T. d. tapaði Hollendingurinn van
den Berg fyrir Reizzmann frá
Porto Rico í síðustu umferð, og
munaði það sætinu fyrir Hol-
land. Á sama hátt þurfti Fúster
frá Kanada að vinna skák sína
við Svisslendinginn Blau. Hafði
Fúster hrók og riddara á móti
hrók og tveim samstæðum peð-
um, en Blau tryggði sér örugg-
lega jafntefli og færði þar með
sveit sinni sæti í sigurriðli. Lauk
þeirri viðureign síðast allra
hinna 576 skáka, sem búið er að
tefla á þessu móti.
Mesta athygli vekur að Ung-
verjum og Hollendingum skyldi
ekki auðnast að komast í aðal-
flokk úrslitanna, eins og þeir
hafa þó kröftugum liðssveitum á
að skipa. Nægir að nefna annars
vegar Euwe, Donner og Prins
og hins vegar Szabó, Barcza og
Portisch. Ættu þessar þjóðir að
vera nokkuð öruggar um tvö
efstu sætin í B-flokki.
í kvöld var dregið innbyrðis
í úrslitariðlum. Fer dráttarröðin
hér á eftir:
A-flokkur: 1. Sovétríkin, 2.
Vestur-Þýzkaland, 3. Búlgaría,
4. Júgóslavía, 5. Tékkóslóvakía,
6. Spánn, 7. Argentína, 8. Eng-
land, 9. Austur-Þýzkaland, 10.
Austurríki, 11. Sviss, 12. Banda-
ríkin.
B-flokkur: 1. Island, 2. Israel,
3. Frakkland, 4. Danmörk, 5.
Kanada, 6. Pólland, 7. Kólumía,
8. Belgía, 9. Holland, 10. Ung-
verjaland, 11. Finnland, 12. Svi-
þjóð.
C-flokkur: 1. Suður-Afríka, 2.
Skotland, 3. Portúgal, 4. Porto
Rieo, 5. Filippseyjar, 6. Grikk-
land, 7. Irland, 8. Túnis, 9. íran,
10. Noregur, 11. Líbanon, 12.
ítalia.
Sé miðað við Olympíumótið
1956 í Moskvu, standa nú fjorar
þjóðir, sem þá náðu sæti í A-
flokki, utan við. Það eru Ung-
vei’jar (sem hlutu 2.—3. sæti í
Moskvu), Danir, ísraelsmenn og
Rúmenar, en hinir síðastnefndu
eru nú ekki þátttakendur. I
þeirra stað koma nú í A-flokk
Austur-Þjóðverjar, Svisslend-
ingar, Austurríkismenn og Spán-
verjar, en hina síðasttöldu vant-
aði á Olympíumótið í Moskvu.
í B-flokki ern nú 8 þjóðir hinar
sömu og þá, en nýjar eru nú þar
ísraelsmenn, Ungverjar, Danir
og Kanadamenn. Þá lentum við
í öðru sæti flokksins á eftir
Austurríki, hlutum 27 vinninga,
sigurvegararnir 28. Aftur á móti
unnu Sovétborgarar aðalkeppn-
ina með 31 vinning.
Enginn veit fyrir útkomuna
úr þeim dæmum, sem nú verð-
ur byrjað að x-eikna. En íslend-
ingar biðja að heilsa heim.
2ja dyra ísskópur
alveg sein nýr til sölu.
Tilvalinn fyrir kjötverzlun, veitingahús og þ.u.l. —-
Uppl. í síma 15899 eftir kl. 7 í kvöld.
•K" -M
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
LeyniiögregEusögur
Þær leynilögreglusögur, sem mesta frægð hafa hlotið,
eru tvímælalaust
l^lirrlork llolmcs KÖ^urnnr
rflir Sir A. ('oiian Hovle
Nú eru komnar í bókaverzlanir í íslenzkri þýðingu
nokkrar hækur með úrvali þessara sagna:
Aiifta lni«ilk
Ilal llr óiiaiiK Sir A. Conan Doyle.
Haiiðkollafélagid
VrArriAablesi
KanAi liriiigurinn
Upplag bókanna er mjög takmarkað, og munu þær því
fljótt ganga til þurrðar. — Þetta er skemmtilegur lestur
fyrir karlmenn og röska drengi.
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
©
f'htx&oa
SAL!
CEREBOS I
HANDHÆGU BLAU DÓSUNUM.
HElMSpEKKT GÆÐAVAKA