Morgunblaðið - 15.01.1959, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 15. jan. 1959.
MORGVTSBLÁÐIÐ
15
* KVIKMYNDIR *
Gamla Bíó:
FIMM SNERU AFTUR
ÞESSI ameríska kvikmynd er
byggð á skáldsögu eftir Richard
Carroll. Gerist hún að mestu í
flugvél á leið frá Bandaríkjunum
til Suður-Ameríku og í fjalla- og
frumskógaauðn langt frá hinum
siðmenntaða heimi en í námunda
við vilta og grimma Indíána. —
Farþegar í vélinni eru níu og auk
þess flugstjórar tveir og flug-
þerna. Vélin hreppir óskaplegt
óveður og verður að nauðlenda
í hrikalegri auðninni. Áður hafði
vélin og loftskeytatækin bilað og
flugþernan fallið út úr vélinni.
— Það tekst þó að gera við vél-
ina, en þá kemur í ljós að hún
hefur ekki burðarmagn til þess að
taka alla farþegana. Fimm fara
með henni, en fjórir verða að
vera eftir og bíða þarna dauð-
ans. Þegar velja á þá sem fara
eiga, er athyglisvert hversu menn
bregðast við því, allt eftir því
hversu fórnfúsir þeir eru og
skapgerð þeirra sterk. Sumir
bjóðast til að vera eftir, aðrir
neyta allra bragða, jafnvel glæp-
samlegra, til að komast með.
Meðal hinna fyrri er ung stúlka,
Rena að nafni. En hún hefur
tekið ástfóstri við lítinn dreng
sem er farþegi og annast hann af
mikilli nærfærni. Hún er því ein
af þeim, sem látin er fara með
vélinni. Hún og flugstjórinn hafa
auk þess fellt hugi saman, — þó
að það reyndar hafi ekki áhrif
á þessa ákvörðun, því að það er
annar maður, sem hefur tekið
sér vald til þess að ákveða hverj-
ir skuli fara og sjálfur verður
hann eftir. — Efni myndarinnar
verður ekki rakið hér frekar,
enda sjón sögu ríkari.
Mynd þessi er dágóð, spenn-
an töluverð og leikurinn sæmi-
legur. Hin sænska kvikmynda-
leikkona, Anita Ekberg, sem um
langt skeið hefur verið aðalum-
ræðuefni kjaftakerlinga og helzti
matur hneykslisblaðanna vestan
heims og austan, leikur Renu,
eitt af meiriháttar hlutverkunum.
Ef dæma má eftir leik hennar
í þessari mynd, þá er hún vissu-
lega meiri auglýsingasnillingur
en leiksnillingur, því leikur
hennar er svo sem ekki neitt,
sviplaus og tilþrifalaus. Fara
flestir aðrir í myndinni miklu
betur með hlutverk sín. — Ego.
Iðnaðarhúsnœði
Höfum til sölu húseign í nýja iðnaðarhverfinu í
Síðumúla. Grunnstærð hússins er 315 ferm.. Búið að
byggja 1. hæð, sem er fullgerð og má byggja nokkrar
hæðir ofan á.
FASTEIGNASALA & LÖGFRÆÐISTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl. Gísli G. Isleifsson, hdl.
Björn Pétursson: Fasteignasala.
Austurstræti 14, II. hæð. Símar 2-28-70 og 1-94-78
Afgreiðslustúlka
óskast nú þegar. Ekki yngri en 24 ára. Upplýsingar
í verzluninni milli kl. 5,30 og 6,30.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
AUSTURSTRÆTI 9. SÍMI 1116-1117
Cóð 4ra herb.
íbúðarhœð
um 100 ferm. í nýlegu steinhúsi við Gnoðavog. Laus
strax ef óskað er.
NÝJA FASTEIGNASALAN
Bankastræti 7. Sími 24300
* og 7,30—8,30 e.h. 18546
IJtsala
Sléttbotnaðir kvenskór
Kvenskór með fleighælum — Karlmannaskór —
Inniskór
Lágt verð. — Notið tækifærið. — Gerið góð kaup.
HECTOR
Laugavegi 81
Skrifstofustúlka
Fyrirtæki í Miðbænum vill ráða duglega stúlku
(ekki yngri en 19 ára) nú þegar til skrifstofu og
afgreiðslustarfa. Tilboð með uppl. um aldur, mennt-
un og fyrri störf, sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir
16. þ.m. merkt „Rösk—4162“.
Æskilegt að mynd fylgi.
TIL SÖLU
Hus til flutnings
Járnvarið timburhús, stæ>rð 5x16 m, 3
herb., eldhús og bað og olíukynt mið-
stöð. Allt á 1. hæð.
Selst ódýrt ef samið er strax og andvirðið má greiða
með SKULDABRÉFI að mestu eða öllu, ef um góða
tryggingu er að ræða.
FASTEIGNASALA & LÖGFRÆÐISTOFA
Sigurður Reynir Pétursson, hrl.
Agnar Gústafsson, hdl. Gísli G. ísleifsson, hdl.
Björn Pétursson: Fasteignasala
Austurstræti 14, II. hæð. Símar 2-28-70 og 1-94-78
Ingólfskaffi
í kvöld kl. 9.
Framsóknar-
hiísið
H/ð undraverða
töfrapar sýnir
listir sýnar i
kvöld og næstu
kvöld
FRWHHÚSID
Hljómsveit Andrésar Ingólfssonar.
Söngvari: Sigurður Jhonnie
Sími 12826.
Pórscafe—2a
Cömlu dansarnir
J. H. kvintettinn leikur.
Sigurður Ólafsson syngur
Dansstjóri Baldur Gunnarsson.
ðgöngumiðasala frá kl. 8. Sími 2-33-33