Morgunblaðið - 15.01.1959, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 15.01.1959, Qupperneq 19
Fimmtudagur 15. jan. 1959. MORGTIISIU.AÐIÐ 19 Biðröð til að fá miða á Rakarann Uppselt á „Rakar- annw á 2-3 klst. „RAKARINN í Sevilla" hefur nú verið sýndur 7 sinnum og hafa þá um 4700 leikhúsgestir séð sýn- inguna. Næsta sýning er á föstu- dagskvöld. Það hefur verið mjög annríkt í aðgöngumiðasölu Þjóðleikhúss- ins að undanförnu. Síminn þagn- ar þar aldrei allan daginn. Oft eru langar biðraðir þegar sala aðgöngumiða hefst og seljast þá alir aðgöngumiðar á þessa vin- sælu óperu upp á 2—3 klukku- stundum. Það er augljóst, að „Rakarinn" hefur þegar náð mikilli hylli is- lenzkra leikhjsgesta, enda hlaut sýningin einróma lof allra gagn- rýnenda og er talin ein skemmti- legasta ópera allra tíma. Þúsundir uppreisnarmanna verða látnir lausir PARÍS, og KAIRÓ, 14. jan. — Franska stjórnin hefur ákveðið að láta lausa þúsundir alsírskra uppreisnarmanna, sem að undan- förnu hafa verið í haldi. Er þetta í aðgöngumiðasölu Þjóðleik- hússins: Guðm. Stefánsson, Þóra Böðvarsdóttir og Fanney Pétursdóttir. MisreiknaBi fjarlœgB frá brautarenda Fyrsta flugslys Lufthansa RIO de Janero, 14. jan. — Eins og skýrt hefur verið frá í frétt- um fórst ein af Constellation- flugvélum þýzka flugfélagsins Lufthansa í lendingu á flugvell- inum í Rio de Janero um helg- ina. Er þetta ein af stærstu flug- vélum, sem nú eru í förum í farþegaflugi — að þotunum und anskildum. Að þessu sinni voru aðeins 29 farþegar með flugvélinni — og fórust þeir allir, sömuleiðis sjö af 10 manna áhöfn. Samkv. frásögn talsmanns þýzka flugfélagsins er þetta fyrsta slysið, sem orðið hefur hjá félaginu síðan það tók upp starf- semi að nýju eftir styrjöldina. Kullvíst þykir, að ekkert hafi hér valdið annað en mistök flug- mannsins. Flugvöllurinn, sem vélin átti að lenda á, er við sjáv- arsíðuna. Endi flugbrautarinnar, sem nota átti í þetta sinn, liggur fram á bratta sjávarbakka. Þegar flugvéin lækkaði flugið og undir bjó lendingu skall á rigningar- skúr — og var skyggni frekar lélegt — og misreiknaði flugstjór inn því fjarlægðina frá brautar- endanum, lækkaði flugið of snöggt, náði ekki brautarendan- um, heldur flaug beint á sjávar- bakkann. ★ Flugstjórinn var Bandaríkja- maður, en áhafnarmeðlimirnir, sem komust af, stóðu allir við afturdyr farþegaklefans, tilbúnir til þess að opna dyrnar um leið og flugvélin staðnæmdist. Um leið og slysð varð og flugvélin að brakhrúgu köstuðust þre- menningarnir út úr flugvélinni — og varð það þeim til bjargar. — Dulles Framhald af bls. 1. að Bandaríkjamenn hefðu skipt um skoðun. Hann hvatti til sam- stöðu, sagði Bandaríkjamenn ekki mundu gera neinar örlaga- ríkar ráðstafanir án fulls sam- ráðs við bandamenn sína — og varaði við kommúnistahættunni. Leiddi hann einkum athygl- ina að kínverskum kommúnist- um, sagði, að e. t. v. þyrfti hinn frjálsri heimur í framtíðinni að óttast þá meira en Rússa. En hann sagðist vona, að friðar- og lýðræðisöflin yrðu yfirsterkari á meginlandi Kína. Vestur-þýzka utanríkisráðu- neytinu barst í dag skrifleg yfir- lýsing Dullesar um Þýzkalands- málin og sagði talsmaður v-þýzku stjórnarinnar við það tækifæri, að hún væri enn þeirrar skoð- unar, að frjálsar kosningar um gervallt landið væri eina leiðin til sameiningar Þýzkalandi. Hins vegar kvaðst hann ekki óttast neina stefnubreytingu af hálfu Bandaríkjamanna. Orðrómur var á kreiki um það í Bonn í kvöld, að Adenauer hafi kvatt bandaríska sendiherrann á fund sinn til að ræða málið. • ♦ • Á fundi utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar flutti Dulles í dag ræðu þar sem hann sagði, að Bandaríkjamenn hefðu þeg- ar myndað viðræðugrundvöll, viðræður Vesturveldanna og Rússa gætu orðið gagnlegar. — Enda þótt mikill skoðanamunur væri, þá hefðu þessir aðilar átt gagnlegar viðræður fyrr. Útvarpsstöð í A-Þýzkalandi fagnaði hins vegar ummælum Dullesar um að frjálsar kosning- ar væru: ekki nauðsynlegar til sameiningar Þýzkalands. Sagði stöðin, að skynsamir og friðelsk- andi menn væru nú orðnir svo áhrifamiklir í Bandaríkjunum, að jafnvel Dulles yrði að taka tillit til þeirra. gert til þess að lægja óldurnar í Alsír. Samkv. tilkynningu frá útlaga- stjórn uppreisnarmanna í Alsír, sem aðsetur hefir í Kaíró, telja uppreisnarmenn þetta engin veg- inn nóg, því að ekkert annað en beinar viðræður fulltrúa frönsku stjornarinnar og útlagastjórnar- innar geti lægt öldurnar varan- iega. Sagði í yfirheyrslunni, að hingað til hefðu engar viðræður, hvorki opinberar né leynilegar átt sér stað milli stjórnanna — og væri illa farið. Þá voru bornar til baka fregnir um það, að Fanfani, forsætisráð- herra Ítalíu, sem var í heim- sókn hjá Nasser á dögunum, hafi átt viðræður við fulltrúa upp- reisnarmanna. Segist útlagastjórn in telja milligöngumenn einskis virði, beinar viðræður sé það eina sem dugi. Fanfani hélt til Parísar að lok inni Kaíródvölinni — og í dag ræddi hann við de Gaulle og skýrði honum frá viðræðunum við Nasser, sérstaklega hvað við- vék Alsír og uppreisnarmönnun- um bar. Samkomulags- horfur í Kaíró KAIRO, 14. jan. — Brezk sendi- nefnd ræðir nú við fulltrúa egypzku stjórnarinnar og reynir að semja um skaðabótagreiðslur Breta og Egypta. Bretar krefjast skaðabóta fyrir hönd hluthafa í Súez-félaginu vegna þjóðnýtingu skipaskurðarins, en Egyptar vilja fá skaðabætur vegna innrásar Breta og Frakka í Súez. Tals- maður Egypta sagði í dag, að við ræður þessar gengju mjög vel og kvaðst vongóður um að samkomu lag tækist, jafnvel á morgun, því að fáein atriði væru ójöfnuð. Tapað—Fundið Peningaveski (unglinga) >g telpupils í óskilum, í herradeild- inni í Haraldar-búð h.f. Samkv. síðustu fregnum birti bandaríska utanríkisráðuneytið þá yfirlýsingu í kyöld, að frjáls- ar kosningar í öllu Þýzkalandi væri bezta leiðin til sameiningar landinu, enda þótt aðrar leiðir væru ekki útilokaðar. Umræðurnor á slúdenfalundinum sönnuðu knýpndi nauðsyn kjördæm abreytingar I BLAÐINU í gær er getið um ræður frummælenda á stúdenta- fundinum í fyrradag og nokkurra ræðumanna, sem talað höfðu, þegar tíðindamaður blaðsins á fundinum gekk frá fréttum í blað ið. Er á fundinn leið tóku margir til máls og skýrðist þá enn frek- ar, hve menn almennt gera sér grein fyrir þeirri knýjandi nauð- syn, sem er á því að breyta hinni ranglátu kjördæmaskipun. Frumræða Jóhanns Hafsteins alþingismanns er birt á öðrum stað í blaðinu, en í fundarlok rakti hann helztu firrur þeirra ræðumanna, sem hneigðust að því að núverandi kjördæmaskip- un væri ekki svo slæm, að neina nauðsyn bæri til að vinda bráð- an bug að breytingum á henni. Benti hann a, að ömurleg væru þau örlög Framsóknarflokksins að þurfa ætíð að eiga eigin heill undir því, að ranglæti væri við haldið. Þá fordæmdi hann þann flótta frá málefninu, sem fram kom í ræðum þeirra Framsóknar- manna, sem kvöddu sér hljóðs, þegar þeir beindu málinu að óskyldum efnum, eins og fjár- hagsmálum í þeim tilgangi að beygja réttlætismál, sem hlýtur að sigra í lýðræðisþjóðfélagi, inn á óskyld svið. Júlíus Havsteen var meðal þeirra ræðufnanna, sem talaði á fundinum og benti á að býsna kynlegur væri ræðuflutningur andstæðinga kjördæmabreyting- arinnar, þegar einn þeirra lýsti því yfir, að þær mundu skapa Reykjavík óyfirstíganleg efna- hagsleg vandamál, en sumir teldu þær koma harðast niður á sveit- unum. Jón Þorsteinsson miðstjórnar- maður Alþýðuflokksins taldi Hræðslubandalagið hafa verið þarft, því að það hefði sannað Sjálfstæðisflokknum, hve brýna nauðsyn bæri til að breyta kjör- dæmaskipun. Tömas Árnason og Sveinbjörn Dagfinnsson voru andstæðir kjör dæmabreytingunni, á'n þess að færa ný rök fyrir þeirri afstöðu. Síðastur þeirra sem kvöddu sér hljóðs var sr. Jónas Gíslason, sem benti á að kosningabaráttan í litlu kjördæmunum væri orðin með þeim hætti, að naumast væri hægt að tala um fullkomlega leynilegar kosningar, þegar ná- kvæmlega væri fylgsí með hverj um kjósanda. Mælti hann með stórum kjörsvæðum, þar sem kos ið væri hlutfallskosningu, en benti á athyglisverða leið við ákvörðun framboða og skipun þingsæta innan hvers kjörsvæðis, sem tengdi hin gömlu kjördæmi nokkuð við hið nýja fyrirkomu- lag. í fundarlok var samþykkt til- laga, sem lýsti stuðningi við breytingu kjördæmaskipunarinn ar í þá átt, að tekin yrði upp fá stór kjördæmi með hlutfalls- kosningu. Jarðarför konu minnar, móður og tengdamóður INGIBJARGAR SVEINSDÓTTUR fer fram á morgun, föstudag, frá Fríkifkjunni kl. 2 e.h. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Athöfnin hefst með bæn á heimili hinnar látnu, Bræðraborgarstíg 12 og byrjar kl. 1,15. Björn Jónsson, Sveinn Björnsson, Áslaug Jónsdóttir Jón Björnsson, Halla Guðbjörnsdóttir Guðmundur Ingi Björnsson Jarðarför mannsins míns JÓNS BRANDSSONAR fyrrv. prófast að Kollafjarðarnesi fet fram frá Fossvogskapellunni föstudaginn 13. þ.m. kl. 1,30 e.h. Jarðarförinni verður útvarpað. Blóm og kransar afbeðnir. F.h. barna okkar barnabarna og tengdabarna. Guðný Magnúsdóttir Minningarathöfn um MAGNÚS VALDEMAR FINNBOGASON fyrrv. bónda í Reynisdal í Mýrdal, fer fram frá Foss- vogskapellu föstudaginn 16. þ.m. kl. 10,30 árdegis. Athöfninni verður útvarpað. Jarðsett verður frá Reyniskirkju, laugardaginn 17. þ.m. kl. 1,30 e.h. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað. Vandamenn Öllum þeim, sem sýndu mér samúð og hjádp við and- lát og jarðarför mannsins mins JÓNS PALSSONAR votta ég mínar innilegustu hjartans þakkir. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Jónsdóttir Brimnesi, Ólafsfirði Útför móður okkar ÓLAFlU KATRlNAR HANSDÓTTUR Garðastræti 4, fer fram föstudaginn 16. þ.m. frá Dómkirkjunni og hefst kl. 1,30 e.h. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Kristín Kristjánsdóttir, Snorri Kristjánsson, Guðmundur Kristjánsson. Föðursystir okkar JÓNlNA AÐALBJÖRG JÓNSDÓTTIR sem andaðist 7. janúar s.l. verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju í dag 15. janúar kl. 1,30 e.h. F.h. aðstandenda. Páll Þorláksson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.