Morgunblaðið - 15.01.1959, Page 20

Morgunblaðið - 15.01.1959, Page 20
VEÐRIÐ Austan gola, skýjað, frost 4—8 stig. Kjördœmamálið Ræða Jóhanns Hafstein — Sjá bls. 10. Friðrik og Eliskases efstir með 4% vinning — og tefla saman í nœstu umferð t frosthörkunum undanfarið hefir víkur og firði hér í naesta nágrenni Reykjavikur lagt. Suður á Skerjafirði er nú samfelld ísbreiða innan úr fjarðarbotni og út undir fjarðarmynni. — Ljósmyndari Mbl. var suður í Skerjafirði í gærdag og tók þessa mynd af vetrarrikinu þar. — Bryggjan á myndinni er olíubryggja við stöð Skeljungs, en í fjörunni þar, sem er samfelld íshella, liggja margir allþykkir ísjakar. Verzlanir sektaðar fyrir að selja smyglað tyggigúmmí NÚ þegar þrjár umferðir eru ótefldar á skákmótinu í Bevebejk í Hollandi eru þeir efstir og jafnir stórmeistararnir Friðrik Óiafsson og Eliskases frá Argentínu. Hafa þeir hvor um sig 4Í4 vinning. tessir tveir hafa langmesta vinn- ingsmöguleika. Þeir mætast í næstu umferð og hefur Friðrik hvítt. Röð annara keppenda er að 6 umferðum loknum þessi. 3—4 van Sheltinga og Baren- dregt 3 Vá, 5—6 Donner og O’Kelly 3, 7—8 Toran og Larsen 2%, 9 van den Berg. 10 Lange- weg 1. Úrslit í 5. umferð urðu þessi. Friðrik vann Donner, Eliskases vann van den Berg, Barendregt vann Langeweg, van Sheltinga Borgarfjörð tekinn að leggja AKRANESI, 14. jan. — Maður ofan úr Borgarfirði kom í dag og sagði að 14—15 stiga frost hefði verið á Hvanneyri. Er Hvítá og Borgarfjörð tekið að leggja með ströndum fram, allt út að Höfn í Melassveit. Teygja ísskarir sig langt út, með víkum í. Aldrei hafa verið fleiri hross á Hvann- eyri en í vetur. Skólasveinar hafa komið með með sér úr jóla- fríinu marga efnilega fola til tamningar, til viðbótar við þá sem fyrir voru. — Oddur. Bæjarstjórn bíður f járlap;a 1959 í DAG verður fundur í bæjar- stjórn Reykjavíkur. Þar mun þó ekki fram fara önnur umræða um frumvarpið að fjárhagsáætl- un Reykjavíkurbæjar fyrir 1959. Þetta stafar af því að enn ríkir óvissa um afgreiðslu fjárlaga þessa árs og efnahagsráðstafanir. Af þeim sökum ákvað bæjarráð á fundi sínum á þriðjudaginn, að fresta um sinn, þar til málin skýr ast frekari umræðum um fjár- hagsáætlunina. Aflafréttir AKRANESI, 14. jan. - Af 12 bátum í dag er tæplega helm- ingur kominn að kl. 10,45. Afli þeirra báta sem komnir eru er 5—7 lestir. í gær var heildarafli sama bátafjölda 60 tonn. Tveir þeir hæstu voru með 7 tonn hvor. Heldur reyndist aflinn minni hjá togurunum. Bjarni Ólafsson land aði 277 tonnum, Akurey 260. Vél- báturinn Svanur bjó sig út á rek- netjaveiðar í dag, og hélt með netin suður fyrir Reykjanes, á þær slóðir þar sem bátar höfðu lóðað á síld í gærkvöldi og í nótt. — Oddur. í GÆR átti fréttamaður tal við Jón Eyþórsson og innti hann eftir ísfregnum. — Eftir þeim fregnum, sem ég hefi, þá hefur ísbeltið við Aust- ur-Grænland verið óvenjumjótt um áramótin, um eða undir 60 sjómílur, norðan frá Seoresby- sundi og suður um Angmasalik. Fjarlægð íssins frá Straumnesi jafntefli Toran, Larsen jafntefli O’Kelly. í 6. umferð urðu úrslit þessi. Eliskases vann Langeweg, Lar- sen vann Toran, Friðrik jafntefli van den Berg, Donner jafntefli van Sheltinga, O’Kelly jafntefli Barendregt. Hvellhetta olli meiðsl- um AKRANESI, 14. jan. — Á að giska 12 dögum fyrir jólin voru nokkrir drengir að handleika hvellhettur í naglabyssur, sem notaðar eru til þess að þrýsta nöglum inn í múr. Þetta var í Sementsverksmiðjunni. — Einn drengjanna, Gunnar Jónsson, 11 óra, Stillholti 7, tók hvellhettu heim með sér, lagði hana á stétt- ina, en tókst ekki að sprengja hana. Kemur þá yngri bróðir hans og kastaði steini ofan á hvellhettuna. Springur hún við fætur Gunnars með þeim afleið- ingum að hálfsundrað hylkið, þeyttist inn í vöðvann á hægra fótlegg. Varð læknir að fjarlægja sprengj ubrotið og er Gunnar litli ekki orðinn góður í fætinum enn. — Oddur. Mannheldur ís á Akureyrarpolli AKUREYRI, 14. jan. — í-hinum miklu frostum, sem gengið hafa hér yfir Norðurland undanfarna daga, hefur Akureyrarpoll lagt, og er þar nú kominn mannheldur ís. Einn af fossum Eimskipafé- lagsins sigldi þó hér upp að Torfu nefsbryggju í dag og braut sér leið gegnum ísinn. Frost er hér enn mjög mikið. í dag var það 18 stig. — Vig. DANSKA sanddæluskipið Sansu er vaéntanlegt til Akraness fyrir hádegi í dag, og mun það taka til við að dæla upp skeljasandi fyrir Sementsverksmiðjuna, þegar tækjum þess hefur verið komið fyrir, eða sennilega í næstu viku. Búið er að afmarka með duflum eins ferm. svæði í Faxaflóa, þar sem skipið á að dæla upp sand- inum. Er ráðgert að dæla upp 125 þús. rúmm. að þessu sinni, eða sem svarar ársnotkun verk- smiðjunnar. Sansu er sama dæluskipið, sem var hér árið 1953 og dældi það virðist því vera yfir 100 sjómílur, sagði Jón. Stafar þetta óvenju mjóa belti á þessum árstíma sennilega af því að það hefur verið norðaust- anátt um langan tíma og fremur kyrrt veður og því lítil hreyfing á ísnum. Það er þess vegna eng- in trygging fyrir því að ekki verði ís á Grænlandshafi, þegar vorar og fer að losna um isinn. EIGENDUR 27 verzlana hér í bænum, aðallega söluturna, hafa verið sektaðir fyrir að hafa á boðstólum tollsvikið tyggigúmmí og sælgæti. í desembermánuði, milli jóla og nýárs, lét Tollgæzlan kanna hversu mikil brögð væru að því að smyglað tyggigúmmí væri selt í verzlunum í bænum. Þessi at- hugun leiddi til þess að -37 verzl- anir, mestmegnis söluturnar, voru kærðar til sakadómara fyrir nokkrum dögum. Mál þessara 37 aðila voru síð- þá upp af sama svæði 134 ferm. af skeljasandi á sjö vikum. Að þessu sinni er ráðgert að skipið verði hér í þrjá mánuði. Þó und- arlegt megi virðast þykir eigend- um skipsins hagræði að því að Olían storknar í kuldanum AKUREYRI, 14. jan. — Nokkuð hefur borið á því í frostunum í gær og dag, að olía sem notuð er til upphitunar húsa hafi storkn- að svo í leiðslum, að ekki hafi verið mögulegt að nota hana til kyndingar. Er það talið stafa af því, hve mikið parafín er í hinni rússnesku olíu, er menn nota nú til kyndingar. En það mun meira en tíðkast í sams konar olíu frá Ameríku. Starfsmenn elíufélaganna hafa verið önnum kafnir við að reyna að koma olíukyndingum í lag, en sem betur fer er aðstaða víða þannig, að truflanir af þessu tagi koma ekki fyrir. — Vig. an tekin fyrir sakadómi Reykja víkur í fyrradag og í gær. Leit var gerð í verzlununum og fannst tyggigúmmí og annað erlent sæl- gæti í, 21 verzlun, mismunandi mjög í hverri, eða frá aðeins nokkrum pökkum upp í 500—600 pakka. í málum 27, af 37 verzlunar- eigendum, hefur verið kveðinn upp dómur, þar sem verzlunar- eigendum er gert að greiða hverj- um einstökum 1000 krónur í sekt, og það tyggigúmmí sem lagt var hald á við húsleitina gert upp- tækt. kemur í dag Igeta unnið hér að vetrarlagi, því ísalög hamla oft störfum skipsins annars staðar á Norðurlöndum á þessum tíma. Verkið er unnið í ákvæðisvinnu og ber verksmiðj- an því ekki kostnað af hugsanleg um töfum vegna veðurs. Lítil sala hefur verið á sementi í desember og janúar vegna frosta, en semmentsframleiðslan hefst væntanlega aftur snemma í næsta mánuði. Enn eru til um hálfs árs birgðir af skeljasandi, en ekki þykir varlegt annað en að hafa nægar birgðir, því oft er erfitt að fá dæluskip og verk- smiðjunni er nauðsyn að eiga alltaf nægar birgðir af sandi. SKRIFSTOFA Sjómannafélags Reykjavíkur skýrði Mbl. svo frá í gær, að samningar væru nú hafnir milli fulltrúa félagsins og útgerðarmanna um kaup og kjör bátasjómanna á vertíðinni. Var boðað til framhaldsfundar um samningana síðdegis í gærdag. Skrifstofan bar til baka blaða fregnir um að stjórn félagsins ætlaði að fela trúnaðarmannaráði félagsins að hafa á hendi samm ingsgerð alla og alræðisvald varð Fyrirsvarsmenn umræddra verzlana skýrðu frá því, fyrir rétti, að þeir þekktu eigi menn þá er selt hefðu þeim hið er- lenda tyggigúmmí. Þegar að því kemur að upp- tækt verði gert þetta tyggi- gúnamí, sem alls mun skipta nokkur þúsund pökkum, mun því trúlega verða sökkt á fertugu dýpi hér út í Faxaflóa. — Maður nokkur hringdi til blaðsins í gær kvöldi og kvaðst vilja koma þeirri hugmynd á framfæri að yfirvöldin láti Bláa bandinu í té hið upptæka togleður, sem vafa- laust myndi k«ma sér mjög vel fyrir vistmenn heimilisins. Samið í Neskaup- stað NESKAUPSTAÐ, 14. jan. — Sjó- menn og útgerðarnienn hér í bænum hafa haldið fundi, til þess að fjalla um kjarasamninga báta- sjómannanna nú á nýbyrjaðri vertíð. Tillögur samninganefndar voru samþykktar af báðum aðilum, og þar með komnir á samningar um hlutaskiptin á öllum fisk- veiðum með línu, á iietjum og handfæraveiðum. Engar ályktanir voru gerðar um fiskverðið. — Fréttaritari. andi samningsgerðina. Þetta er nieð öllu á misskilningi byggt. Jafnvel þótt lög félagsins heimili slíkt, þá er þetta mál ekki komið á það stig að til þess verði grip- ið að fela trúnaðarmannaráðinu samningsgerðina. Einnig gat fyrir«varsmaður Sjó mannafélags Reykjavíkur þess, að samningaumleitanir væru einn ig hafnar milli útvegsmanna og fulltrúa Sjómannafélags Hafnar- fjarðar, varðandi kjör bátasjó- manna þar nú á vertíðinni. ísbeltið við Austur- Crœnland óvenju mjótt Sanddœluskipið Sansu Mun dœla upp skeljasandi fyrir Sementsverksmiðjuna Samningar hafnir á ný um kjör sjómanna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.