Morgunblaðið - 25.01.1959, Síða 10
1C
MORCUNBLAÐ1Ð
Sunnudagur 25. Jan. 1959
SIR WINSTON CHURCHILL
dvelst um þessar mundir í borg-
inni Marrakesh í Marokkó. — Þar
eyðir hann dögunum við að mála
á hinum litríku strætum borgar-
innar, eða í garði gistihússins þar
sem hann býr, ásamt konu sinni.
Stundum situr nann líka við svala
gluggann og festir liti og form
hins fagra útsýnis þaðan á lér-
eftið.
Churchill hefur jafnan barða-
stóran sólhatt á höfði, þegar hann
situr við málaratrönurnar, enda
hefur undanfarið gengið óvenju-
leg hitabylgja yfir Marokkó —
hitinn farið allt upp í 30 stig.
Einkalífvörður Churchilis fylgir
honum jafnan eins og skugginn
og stendur að baki honum, þegar
hann er að mála, en innfæddir
lögreglumenn sjá um, að forvitn-
ir vegfarendur ónáði ekki gamla
manninn.
Churchill er nú 84 ára gamall,
en er enn vel ern og situr sjald-
an auðum höndum. Hann dvelst
flesta daga utandyra þangað til
um kl. 5 síðdegis — þá hvcrfur
hann til gistihúss síns og fær
sér vænan slurk af góðu skozku
viskíi ....
Groucho Marx — einn af Marx
bræðrunum frægu — er langt frá
því að vera gallagripur, en eitt
bá þó nefna hon
um til ávirðing-
ar: Hann er
mjög ákafur í
að spila póker.
Undanfarið hef-
ir hann verið ó-
venjulega óhepp
inn og tapað há-
u m f járhæðum
kvöld eftir
kvöld. Þegar svona illa fer etur
Groucho vindilinn sinn í ákafa.
En í þetta sinn lét hann ekki þar
við sitja, heldur settist hann nið-
ur og skrifaði forráðamönnum
fyrirtækisins er framleiðir spil-
in, sem hann notar:
— Segið mér — er fyrirtæki
yðar alveg hætt að framleiða
spil, sem ásar og kóngar eru í?
Brezku konungsfjöskyldunni
berst ýmislegt til eyrna, sem hún
verður að kæra sig kollóttan um.
Og margt birtist
um konungsfjöl-
skylduna á
prenti, sem til-
gangslaust er að
taka nærri sér.
Bandaríska blað-
ið Ladies Home
Journal birti fyr
ir nokkru grein
um Margréti
1. Vélstjóri
óskast á nýsköpunartogara Upplýsingair
hjá Skipa og Vélaeftirlitinu Ægisgötu 10
Skrifstofusfúlka óskast
Stórt fyrirtæki í Reykjavík vill ráða vana skrifstofu-
stúlku nú þegar. — Góð vélritunarkunnátta sæki-
leg. Hátt kaup í boði. Umsóknir er greini aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 1. febr.
merkt: „Skrifstofustúlka — 4166“.
W. C. kassar
háskolandi nýkomnir.
Sighvatur Einarsson & Co.
Skipholti 15 — Sími 24133 og 24137.
Verzlunaratvinna
Ungur maður, alvanur afgreiðslustörfum í kjöt- og
nýlenduvöruverzlunum óskar eftir atvinnu 1. apríl
eða síðar. Hefur einnig unnið við matreiðslu og við
kjötvinnslu. Bílpróf Tilboð með uppl. um kaup sendist
afgr. Mbl. fyrir 1. febr. n.k. merkt: „Kjöt — 5774“.
Húsgagnafjaðrir
fyrirliggjandi.
Ó. V. Jóhannsson & Co.
Hafnarstræti 19 — Símar 12363 og 17563.
prinsessu. Ætlunin var, að grein-
in yrði lofsamleg, en óvíst er, að
tigna fólkið í Englandi hafi orð-
ið mjög hrifið af eftirfarandi
kafla úr greininni:
— Prinsessan er reyndar ekki
sérstakt gáfnaljós, en að andlegu
atgervi ber hún þó langt af öðr-
um í konungsfjölskyldunni.
Ef þið haldið að þessi mynd sé
af Tyrene sáluga Power, sem ný-
lega lézt á Spáni í miðri töku
myndarinnar „Salomon og drottn
ingin af Saba“, þá skuluð þið
skoða hana betur. — Myndin er
sem sagt.af 33 ára gömlum tann-
lækni, Antonio Morra-Greco frá
Napoli. Þar til í fyrra var hann
skipstannlæknir í hinum ítalska
verzlunarflota, en nú eru allar
líkur til, að hann gerist kvik-
myndaleikari.
Amerískt kvikmyndafélag hef-
ir gert honum tilboð um að leika
aðalhlutverkið í kvikmynd, sem
meiningin er að gera bráðlega
um líf Tyrone Powers — og á
an „Ty“, enda líkist hann hinni
hann að sjálfsögðu að leika sjálf-
föllnu kvikmyndahetju mjög.
Ekki hefir Andtonio þó svarað
tilboðinu enn ,og velta menn því
nú fyrir sér, hvort hann muni
kjósa — skemmdar tennur eða
hvíta tjaldið.
Eins og kunnugt er, þykir Jó-
hannes páfi XXIII. frjálslyndari
og „ógætnari" í orðum og gjörð-
um en flestir fyrirrennarar hans.
Líður varla svo
dagur, að ekki
birtist í heims-
blöðunum ein-
hver smásaga af
páfanum.
Eftirfarandi at-
hugasemd v a r
höfð eftir honum
fyrir skömmu —
og þótti blaða-
efni:- — Menn verða einkum ör-
eigar með þrennu móti: með því
að leggja lag sitt við konur, á
spilamennsku — eða með því að
leggja fyrir sig búskap. — Faðir
minn valdi á sínum tíma örugg-
ustu leiðina — þá síðastnefndu!
Hinn fjölhæfi, enski leikari,
Alese Guinness, var ekki aðeins
kjörinn bezti kvikmyndaleikari
sl. árs fyrir frábæran leik í kvik-.
myndinni „Brúin yfir Kwai-fljót-
ið“, heldur sló Elísabet drottning
hann einnig til
r i d d a r a , sem
kunnugt er af
fréttum.
f tilefni hins
mikla heiðurs
æ 11 u ð u vinir
hans að halda
h o n u m veizlu
mikla. Sir Guinn
es var svo sem
ekkert á móti því að gleðjast með
vinum sínum, en tók það fram,
að hann mundi ekki neyta ann-
ars en einna eða tveggja samloka
og sódavatns. — Til þessa hófs
hans í mat og drykk liggja eðli-
legar orsakir. Hann mun á sumri
komanda leika Mahatma Gandhi
í kvikmynd, sem gerð verður um
líf þessa merkilega, indverksa
leiðtoga — og sá sem fer með
hlutverk hans, má ekki vera
mjög þykkholda.
Mountbatten lávarður, sem ný-
lega var skipaður yfirmaður her-
foringjaráðsins brezka, segir frá
því, að eitt sinn, er hann var
á ferð um Pakistan, á þeim árum,
er hann var landstjóri í Indlandi,
hafði hann haft með sér prýðis-
góðan túlk, sem var mjög vel að
sér í ensku.
Á þessari ferð sinni heimsótti
Mountbatten m.a. herbúðir nokkr
ar í Pakistan. Þar sagði hann að
sjálfsögðu eina af sínum vel
þekktu kímnisögum — en Mount
batten þykir hinn mesti háðfugl.
Hann sagði sögu sína á ensku,
en síðan tók túlkurinn við, og
jafnskjótt fóru allir viðstaddir að
hlæja svo ofsalega, að Mountbatt
en vissi ekki, hvaðan á sig stóð
veðrið — og er hann þó ýmsu
vanur í þeim efnum.
Haalkunne öHHíHhe
— Þér hljótið að hafa þýtt sög-
una mjög vel, sagði hann við
túlkinn, úr því að hún vekur
slíka kátínu ....
—Nei-nei, greip túlkurinn
fram í. Þessi saga var alltof löng
til þess að ég treysti mér til þess
að endursegja hana að gagni, svo
ég sagði bara við þá: Stóri Eng-
lendingurinn var að segja ágæta
skrýtlu. Viljið þið gera svo vel að
hlæja nú hátt og snjallt!
Anita E k e b e r g vakti fyrir
skömmu athygli í Rómaboi^. Á-
stæðan er sú, að hár hennar er
nú stutt og svart, en eins og menn
munu minnast hefir hún til þessa
verið með sítt, ljóst hár.
Félagslíf
SkíðaferSir um helgina
Laugardag kl. 2 á Heilisheiði;
kl. 2,30 á Skálafell og Mosfells-
heiði; kl. 6 á Hellisheiði. — Sunnu
dag kl. 9,3Í á Skálafell og Mos-
fellsheiði; kl. 10 á Hellisheiði; kl.
1,30 á Hellisheiði. — Skíðabrekk-
urnar við Skálafell, Jósefsdal og
skíðaskálann verða upplýstar á
laugardagskvöldið. Afgreiðsla á
B.S.R. —
SkíSafélögin í Reykjavík.
Ármefiningar —
Handknattleiksdeild
Æfingar um helgina verða sem
hér segir: Sunnud. kl. 3, 3. flokk-
ur karla. Mánud. kl. 9,20 kvenna-
flokkar; kl. 10,10 meistara-, 1. og
2. flokkur karla. — Mætið vel og
stundvíslega. — Þjálfarinn.
Körfuknattleiksdeild K.R.
Piltar! — Munið æfingarnar í
dag kl. 3,30 og 7,40 í K.R.-heimi!-
inu. Mætið vel og stundvíslega.
— Stjórnin.
V A L U R
Önnur umferð í tvímennings-
keppninni í bridge verður spiluð
í dag (sunnudag), kl. 2 e.h. Mætið
réttstundis. — Nefndin.
Auglýsingagildi ■
blaða fer aðallega ettir les-
endafjölda þeirra. Ekkert
hérlent blaf kem bar i
námunda við
3Bör0unl>IaM&
IMauðungaruppboð
sem auglýst var í 42., 44. og 46. tbl. Lögbirtingablaðsins
1958 á húseigninni Seljaholti við Seljalandsveg, hér í bæn-
um, talin eign ívars Guðlaugssonar, fer fram eftir kröfu
tollstjórans í Reykjavík á eigninni sjálfri föstudaginn
30 janúar 1959, kl. 214 síðdegis.
Borgarfógetinn í Reykjavík.
Málaranemi
Reglusamur ungur piltur getur komist að sem nemi
í málaraiðn nú þegar. — Tilboð er greini aldur og
menntun sendist afgr. Mbl. fyrir föstudag merkt:
„Ákveðinn — 5780“.
Nauðungaruppboð
á húseigninni Merkurgötu 3 Hafnarfirði sem auglýst var
í 76., 77. og 78. tbl. Lögbirtingablaðsins fer fram eftir
kröfu Gústafs A. Sveinssonar hrl. á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 27. jan. kl. 11 árdegis.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
í fréttunum