Morgunblaðið - 25.01.1959, Side 13

Morgunblaðið - 25.01.1959, Side 13
Sunnudagur 25. ian. 1959 MORCUNBLAÐIÐ „Nokkru eftir komu skipsins til Haugasunds, kom vörubíll akandi niður að skipinu. Hann kom með varninginn, sem skipið átti að taka, nokkrar hurðir, dyraumbúnað og karma, og var allt þetta merkt starísmanni í skipadeild SÍS“. REYKJAVÍKURBRÉF Laugard. 24. jan. Þrennar þjóðlífslýsingar Þegar fyrir jól var rætt um bækur í einhverju blaði munu þrjár hafa verið taldar saman: Sjálfsævisaga Björns Eysteins- sonar, Með góðu fólki eftir Ósk- ar Clausen og örlagaþræðir eft- ir Björn Blöndal. Mikið er til í því að telja allar þessar bækur skyldar og þó eru þær harla ólíkar. Ein þeirra, örlagaþræðir Björns Blöndals, er m. a. s. í skáldsöguformi. Gildi hennar er þó fyrst og fremst þjóðlífslýs- ingin, sem þar er gefin frá fyrri hluta þessarar aldar. Fáum eða engum íslenzkum höfundum hef- ur tekizt betur að lýsa útilífi og dásemdum íslenzkrar náttúru en Birni. Bók Clausens er með allt öðrum hætti, og er hún þó lýs- ing íslenzks þjóðlíís á sömu ára- tugum en séð frá öðrum sjón- arhól. Með réttu hefur verið sagt, að Óskar næði blæ hins forna umhverfis meistaralega. Sumar mannlýsingar hans eins og á frú Þuríði Kúld í Stykkishólmi eru og með ágætum. Góðvild hans til allra þeirra, sem hann minn- ist á ber þó af. Má segja, að ef hann treystir sér ekki til að hæla manni, en getur þó ekki alveg fellt minninguna um hann úr frásögn sinni, gætir hann þess að nafngreina hann ekki. Ævisaga Björns Eysteinssonar er öll með hrjúfara móti. Ævin, sem sagt er frá, hefur og verið harðneskjulegri en flestar aðrar, sem sögur fará af frá seinni öld- um. Maðurinn hefur verið stór- merkur og saga hans er ein eft- irtektarverðasta sálarlýsing, sem finnst í íslenzkum bókmenntum. Er óneitanlega athyglisvert, að afdalabóndi, hálfgerður útilegu- maður, skuli vera höfundur henn- ar. Slíkur er þróttur íslenzkrar menningar. Tengsl við for- tíðina Islenzka þjóðin væri vissulega illa farin, ef hún glataði tengsl- um sínum við fortíð og forna menningu. Við, sem erum allra þjóða minnstir og eigum oft í vök að verjast í samskiptum okkar við aðra, höfum gott af að minnast þess, að ekki eru örðug- leikar okkar miklir miðað við það, sem fyrri tíðar menn á ís- landi áttu við að etja. ísland hættir að vera það Is- land, sem við elskum og gefið hefur okkur þrótt, ef allir þyrp- ast í fjölbýlið. Holl sveitamenn- ing er ein af undirstöðum íslenzks þjóðlífs. íslendingar mega aldrei gera fólkið í strjálbýlinu að horn rekum, heldur stuðla að þvi, að blómlegt atvinnulíf og menning geti hvarvetna þróast. Hafa verður í huga, að hver íslend- ingur er jafnmikilsverður, hvar sem hann býr í landinu. Allir eiga þeir að hafa sama rétt, eng- inn má á annan halla. Frumsanninda slíkra sem þess- ara verður ætíð að gæta, en ekki sízt, þegar til úrlausnar kemur vandamál á borð við kjördæmaskipunina, sem varðar í senn heill og framtíð allrar þjóðarinnar og hvers einstaklings hennar. Goðorð og kjördæmaskipun Menn mega ekki kasta öllu hinu gamla fyrir borð, þó að tímarnir breytist. Halda ber því, sem vel hefur reynzt, og laga það eftir kröfum tímanna. Sjálf- sagt er að sækja til fornra fyr- irmynda, en auðvitað verður að læra af þeim á þann veg, að til framfara horfi en ekki aftur- halds. Fróðlegt er að athuga, að kjör- dæmaskipun sú, sem Sjálfstæð- ismenn nú hafa gert tillögu um, minnir að breyttum tímum og staðháttum mjög á goðorðin fornu, sem íslendingar höfðu á tímum fyrra frelsis síns. Goðorðin voru aldrei stað- bundin, heldur mátti maður kjósa sér hvern þann goða, sem hann vildi innan fjórðungs. Á sama veg leggja Sjálfstæðis- menn nú til, að afnumdar verði1 hinar þröngu staðatakmarkanir, sem eru leyfar frá danska ein- veldistímanum og gersamlega eru orðnar úreltar með breytt- um samgöngum nútímans. Með því næst, að menn geti kosið á milli mun fleiri þingmanna en áður. Valið verður miklu meira, bæði á milli frambjóðenda í fyrstu, og síðan þeirra þing- manna, sem hver kjósandi getur hallað sér að. Betra að liafa 5 eða 6 þingmenn en 1 eða 2 Ekki þarf um það að ræða, að hverjum einstökum kjósanda er betra að geta valið á milli fimm eða sex þingmanna, sem hann beiti fyrir mál sín en eins eða tveggja. Reynslan úr tví- menningskjördæmunum sker þar úr. í fyrstu reyndu Fram- sóknarmenn að gera hlutfalls- kosningar í tvímenningskjör- dæmum að algerri goðgá. Þeir fullyrtu, að slík skrípakosning þekktist hvergi á byggðu bóli. Raunin hefur orðið sú, að kjós- endur, þar sem kosnir hafa ver- ið menn af sitt hvorum flokki í tvímenningskjördæmum, una hlut sínum betur en flestir aðrir. Sá háttur hefur orðið til þess að setja niður innanhéraðsdeil- ur, vegna þess að menn vita, að betur er tekið tillit til óska allra heldur en áður var gert. Víðast hvar hefur og orðið hið bezta samkomulag um héraðsmál á milli þingmannanna eftir að þeir náðu kjöri. Ennþá fleiri ná rétti sínum með þessu móti, ef fleiri þingmenn verða kjörnir á sama veg. Þá þarf ekki helming at- kvæða til að fá mann kosinn, eins og nú, heldur verður hlut- fallið því minna, eftir því, sem þeir verða fleiri, er kosnir eru í hverju kjördæmi. Vegna stærð- ar kjördæmanna er hins vegar ekki veruleg hætta á, að þetta leiði til óhæfilegrar myndunar smáflokka. Fordæmi Reykjavíkur Eini staðurinn, þar sem alvar- leg hætta kynni að vera á þessu, er Reykjavík, ef hún fær 15 þingmenn, sem allir eru kosnir í einu með hlutfaliskosningu. Þó er það ekki annað en gert hefur verið áratugum saman til bæj- arstjórnar Reykjavíkur og aldrei komið að sök. í Reykjavík hef- ur stjórnmálaglundroðinn ein- mitt verið minni en víðast hvar annars staðar á landinu. Sjálf- stæðisflokkurinn einn hefur ætíð fengið hreinan meirihluta. Úr smáflokkahættunni mundi vissu- lega draga í Reykjavík, ef þar væri kosið í tvennu eða þrennu lagi. Sjálfstæðismenn kjósa fremur slíka skiptingu. En um það ræðast þeir að sjálfsögðu ekki einir við, heldur verður það að vera komið undir allsherjar samkomulagi þeirra, sem málinu fylgja. Annað atriði er einnig mjög athyglisvert um Reykjavík; Sum- ir segja, að ef kjördæmin verði stækkuð, þá geti þingmenn ekki haldið sama sambandi við kjós- endur og verið hefur. Slíkt er auðsæ fjarstæða, því að bæði geta þingmenn komið sér sam- an um — og hljóta að vissu marki að gera — a. m. k. innan flokks, að hver kynni sér og ann- ist sérstök mál, sem nokkuð hljóta að verða staðbundin úti á landi. Eins er nú orðið auðveld- ara að ferðast t. d. um allt svæð- ið frá Eyjafirði til Langaness en var um Norður-Þingeyjarsýslu eina fyrir mannsaldri. Hér sem ella segir tæknin að sjálfsögðu til sín. En það lærdómsríka varð- andi Reykjavík er þetta: Hér hefur hvað eftir annað komið upp sú hugmynd, hvort ætti að óska þeirrar breytingar að skipta bænum, t. d. í 15 einmennings- kjördæmi til bæjarstjórnar. Sá háttur er hafður á í stórborgum erlendis og þykir þar sjálfsagður. Hér hefur sú hugmynd ekki fengið neinn byr. Henni til ágæt- is hefur samt verið fært, að þá gætu kjósendur í hverju bæjar- hverfi snúið sér að sínum full- trúa og haft hann fyrir talsmann. Kjósendur vilja hitt miklu held- ur að eiga hönk upp í bakið á öllum bæjarfulltrúunum. Þeir telja betra að eiga 15 talsmenn en 1. — Ákefð Framsólmar Litlu kjördæmunum er ekki hægt að halda við í sinni núver- andi mynd, nema með því að magna ár frá ári það misrétti, sem nú þegar er orðið alltof mik- ið á milli kjósenda, eftir því hvar þeir búa í landinu. Þanþolið er nú þegar orðið meira en hollt er. Engum er gerður verri óleikur en einmitt kjósendum í litlu kjör- dæmunum, ef þeim er talin trú um, að núverandi ástand geti haldizt, hvað þá versnað. Með því móti væri skapað sprengi- efni og sundrungar, sem myndi gera öll vandamál þjóðfélagsins margfalt erfiðari viðureignar en þau þurfa að vera að eðlilegum hætti. Þetta er ærið ískyggilegt. Ekki bætir úr, að greinilegt er, af hverju Framsókn legggur ofur- ást á þessa stjórnarhætti. Það er vegna þess að þar njóta henn- ar sérstöku aðferðir sín til fulls. Um það þekkja allir landsmenn dæmin, svo að þau þarf ekki að nefna. Menn, sem hafa yfir að ráða nær ótakmörkuðu fjár- magni, er þeir síðan skammta öðrum eftir eigin vild og hafa reikninga yfir efnahag og neyzlu hvers einasta manns í heilum héruðum undir höndum, þeir vilja hafa kjördæmin sem minnst í því skyni, að skömmt- un þeirra komi að tilætluðum notum. Henni þarf að fylgja eft- irlit, sem tryggi, að Framsókn- arbroddarnir haldi völdum hvernig sem allt veltist. SÍS- hramminum er ætlað að hindra frjálsa skoðanamyndun, þar sem hann fær að njóta sín til fulls. í Reykjavíkurbréfi voru fyrir viku talin nokkur dæmi um að- ferðir Framsóknar í valdbeitingu hennar. Sú upptalning hefur bersýnilega komið illilega við kaunin, því að um hana hafa síðan verið birtar forystugreinar og svartleturs hver eftir aðra, eftir því sem rúmast hefur í dálkum Tímans. Tíma-óhróður í stað raka Dæmi þau, sem talin voru í Reykjavíkurbréfi, voru höfð eft- ir ákveðnum mönnum eða blaða- greinum, sem vitnað var til, svo að ekki er um að villast. 1 stað þess að hnekkja þeim staðreynd- um, er þar var frá skýrt, hefur Tíminn tekið hitt ráðið, sem raunar eitt er honum tamt, að ráðast með svívirðingum að þeim, sem til var vitnað. Ekki er um að villast, hvaðan aðferð- in kemur. Hinn síðasti, sem gerði hana fræga víða um heim var McCarthy í Bandaríkjunum. Á undan honum voru þeir Göbbels og Hitler, sem raunar höfðu lært listir sínar af kommúnistum, sem aldrei hafa hætt iðkun þeirra. Engir menn hafa oftar hér á landi skammað aðra fyrir Mc Carthyisma eða ásakað þá um að hafa lært af Göbbels og Hitl- er en einmitt Tímamenn. Þetta er hluti aðferðarinnar að ásaka aðra mest fyrir það, sem þeir helzt iðka sjálfir. Hér á landi hefur sennilega enginn komizt lengra í þeirri list en Hermann Jónasson. Nokkurn veginn er segin saga, að þegar hann byrj- ar að ásaka einhvern andstæðing 13 < sinn, þá er hann að undirbua' sjálfur að gera það, sem hann reynir að telja almenningi trú um, að hinn hafi framið. *- Haugasunds- ferðin 1 Reykjavíkurbréfi var vitnað til þess að Helgafelli hefði í til- tekinni ferð verið snúið úr leið og sent inn til Haugasunds í því skyni að sækja þangað smádót, sem einn SÍS-herrann þurfti á að halda til húsbyggingar. Svarið við þessu í Tímanum er svo: „Annað vitnið er fyrrv. sjó- maður á einum af kaupskipum SÍS. Hann heldur því fram, að forystumenn SÍS noti skipin til snattferða fyrir sig. Þessi vitnis- burður mannsins, sem upphaf- lega birtist í Mbl. 20. nóvember Í957, var þannig til kominn, að hann var rekinn af skipinu fyrir óreglu, og reyndi að hefna sín fyrir það með níðskrifi í Mbl. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að skip SÍS eru rekin með mikilli hagsýni og stjórnsemi og mun Skipadeild SÍS vel þola í því samanburð við Eimskipafélag íslands, þar sem Bjarni er vara- formaður. Með því er alveg nægilega svarað þeim áburði, að skip SÍS séu misnotuð fyrir ráða- menn þess“. Hér er sem sagt talað um allt annað en það, sem máli skiptir. Var hin tiltekna för farin í því skyni, sem sagt var eða ekki? Þetta er einföld spurning. Af hverju er henni ekki svarað? Af hverju er í þess stað mann- inum, sem hafði kjark til að koma upp um ósómann brugðið um óreglu? Og af hverju er farið að bera Skipadeild SÍS saman við Eimskip? Væri ekki nær, eíns og á stendur um þessar mundir fyrir Tímann að vitna til Esso? Og vel á minnst, af hverju fæst Tíminn ekki til að segja frá því með hverjum hætti hinir er- lendu skemmtikraftar Framsókn- arhússins fái yfirfærð í erlend- an gjaldeyri laun sín hjá því? Hvort heldur Fram sóknarmaður eða Sjálfstæðis 'i Hinni skeleggu og ágætu grein Magnúsar L. Sveinssonar hefur Tíminn í einni af mörgum grein- um svarað með því, að Magnús hafi verið „yfirlýstur Sjálfstæð- ismaður allan tímann og var síð- ur en svo látinn gjalda skoðana sinna“ meðan hann var starfs- maður hjá Kaupfélagi Árnesinga frá 1951—57. Þetta segir Tíminn 20. janúar, en tveimur dögum síðar, fimmtudaginn 22. janúar, segir sama blað um sama mann: í þetta skiptið teymir hann fram í dagsljósið ungan mann, sem nýlega hefur ráðizt til starfa hjá Olíufélaginu Skeljungi hf., en var áður starfsmaður hjá Kaup- félagi Árnesinga. Er af öllu sýni- legt, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur aftur tekið fram gömlu tólin. Skulu nú allir, sem til nást, rannsakaðir pólitískt og þeim út- skúfað, sem ekki standast próf- ið. Hinn ungi maður hefur séð sitt óvænna að sverjast í flokk sinna atvinnuveitenda og segja það eitt, sem lét bezt í eyrum“. Ef þetta skvaldur hefur nokkra meiningu, felst í því, að Magnús L. Sveinsson hafi aldrei verið Sjálfstæðismaður fyrr en hann fékk atvinnu hjá Skeljungi, sem er þveröfugt við það, er Tíminn sagði tveimur dögum áður. Hann taldi það þá til sérstakrar góð- semi, að einn maður skyldi þó fá að vera nokkur ár hjá einu stærsta kaupfélagi landsins, þrátt fyrir að hann væri yfirlýstur Sjálfstæðismaður. Svona fer fyr- ir þeim, sem hefur slæma sam- vizku og reynir að bjarga sér með ósannindum. Hvað inni fyr- ir býr sést hins vegar á þessum Framh. á bls. 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.